Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað
Hjálpa í Kvennaathvarfinu
n Laganemar í HR bjóða ókeypis lögfræðiþjónustu
L
aganemar á þriðja til fimmta ári
í Háskólanum í Reykjavík bjóða
upp á lögfræðiþjónustu án end-
urgjalds undir formerkjum Lög-
fróðs, lögfræðiþjónustu Lögréttu. Með-
al þjónustu sem laganemarnir hafa veitt
að undanförnu er að ráðleggja innflytj-
endum og fólki af erlendum uppruna
um réttarstöðu sína hér á landi. Þá hafa
laganemarnir veitt framhaldsskóla-
nemum á höfuðborgarsvæðinu laga-
og réttindafræðslu. Þar er unga fólkið
frætt um vinnurétt og skattarétt auk al-
mennrar fjármálafræðslu.
Starfsemin hefur vaxið á hverju
ári og segir í tilkynningu frá félaginu
að aldrei hafa fleiri sjálfboðaliðar tek-
ið þátt en í ár. Það hefur gert Lögfróði
kleift að aðstoða fleiri en nokkru sinni
fyrr.
Almenningur getur haft samband
við Lögfróð til þess að fá endurgjalds-
lausa lögfræðiráðgjöf, en Lögfróður er
opinn á miðvikudögum á milli 17 til
20 og er með aðstöðu í Háskólanum í
Reykjavík.
Laganemarnir í Lögfróði hafa einn-
ig komið reglulega í Kvennaathvarfið
og veitt þar endurgjaldslausa ráðgjöf.
Algengustu verkefnin í athvarfinu snúa
að dvalarleyfum, forsjármálum og hjú-
skaparrétti. Mikil þörf er á þessari ráð-
gjöf í athvarfinu og er mikil ánægja með
samstarfið hjá báðum aðilum.
Hægt er að hafa samband við Lög-
fróð í síma 777 8409 eða senda tölvu-
póst á logfrodur@hr.is.
Lögfróður Framkvæmdastjóri er Sigríður
Marta Harðardóttir og með henni sitja í
framkvæmdaráði Elísabet Aagot, Klara B.
Briem og Sunna Elvira Þorkelsdóttir.
Stálu bifreið
og óku út af
Aðalmeðferð í máli lögreglustjórans
á Akureyri gegn fjórum mönnum
um tvítugt fór fram í Héraðsdómi
Norðurlands eystra á miðvikudag.
Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa í
sameiningu stolið nýrri Volks wagen
Golf-bifreið við hús á Akureyri
sunnudagsmorguninn 26. júní. Einn
mannanna er ákærður fyrir að hafa
bakkað bifreiðinni frá húsinu undir
áhrifum áfengis. Samkvæmt ákæru
tók annar ungu mannanna við akstr-
inum og ók henni langt umfram há-
markshraða uns hann missti stjórn á
henni við Heiðartún og ók út af. Bif-
reiðin skemmdist mikið. Dóms er að
vænta í málinu síðar í mánuðinum.
Fyrirsæta dæmd í 12 mánaða fangelsi
Stakk mann
með steikarhníf
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
á miðvikudag tuttugu og fimm ára
konu, Elínu Jakobsdóttur, í tólf mán-
aða fangelsi, þar af níu mánuði skil-
orðsbundna, fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás. Elín var ákærð fyrir
að hafa veist að fyrrverandi kærasta
sínum og stungið hann með steikar-
hníf í öxlina. Einnig var Elín dæmd
til að greiða fórnarlambinu 500.000
í skaðabætur. Atvikið átti sér stað á
heimili fyrrverandi kærasta Elínar í
desember í fyrra. Við árásina hlaut
maðurinn fjögurra sentímetra skurð
á öxl. Elín var einnig ákærð fyrir að
slá hann í andlitið með þeim afleið-
ingum að hann hlaut bólgu á kinn-
beini.
Elín hefur vakið athygli fyrir fyrir-
sætustörf og hefur meðal annars
prýtt forsíðu spænsku útgáfu tíma-
ritsins Elle en einnig hafa birst af
henni myndir í Vogue og fleiri þekkt-
um tímaritum. Við seinni hluta aðal-
meðferðar málsins kom fram að Elín
hafi verið undir áhrifum áfengis og
fíkniefna þegar árásin átti sér stað en
hún og kærastinn fyrrverandi höfðu
átt í deilum sem leiddu til árásar-
innar. Listmeðferðarfræðingur sem
fórnarlambið hefur verið í meðferð
hjá eftir árásina vitnaði við aðalmeð-
ferðina og sagði að maðurinn væri
óöruggur og hræddur eftir árásina
og ætti erfitt með að treysta fólki.
H
anna Birna Kristjánsdóttir
gæti orðið fyrsta konan til
þess að verða formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Fari svo
verður Bjarni Benediktsson
einnig sögulegur formaður, en hann
verður þá sá fyrsti sem ekki verður for-
sætisráðherra. Hanna Birna hefur þótt
sigurstrangleg. Samkvæmt nýlegri
könnun MMR kom fram að 63 prósent
af stuðningsmönnum flokksins vildu
Hönnu Birnu sem næsta formann.
Engu að síður herma heimildir DV að
þrettán af sextán þingmönnum flokks-
ins séu stuðningsmenn Bjarna Ben.
Innanbúðarmaður í Sjálfstæðisflokkn-
um segir að þeir þrír þingmenn sem
ekki séu eindregnir stuðningsmenn
Bjarna séu Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Þor-
gerður Katrín, en óvíst sé að hve miklu
leyti þeir muni beita sér í framboðs-
slagnum.
Hvött áfram
„Ég hef auðvitað fengið mikla hvatn-
ingu um að gefa kost á mér og tel að
þetta formannskjör snúist um framtíð-
ina og Sjálfstæðisflokkinn og að koma
hér öðrum sjónarmiðum að varðandi
stjórn þessa ágæta samfélags. Þess
vegna ákveð ég að gera þetta núna,“
segir Hanna Birna.
Heimildarmenn DV segja að í raun
hafi ráðin verið tekin af Hönnu Birnu
og hún hafi nánast verið tilneydd til að
taka slaginn. Hefði hún ekki farið fram
núna er óvíst hvort hún fengi annað
tækifæri til að leiða flokkinn. Ákvörð-
unin hjá Hönnu Birnu felur í sér að
hún muni sækjast eftir kosningu á Al-
þingi í næstu kosningum. Hún segist
vera þeirrar skoðunar að endurnýjun-
ar sé þörf á þeim vettvangi til að auka
traust í stjórnmálum. „Ég tel það vera
tímanna tákn að formaður Sjálfstæðis-
flokksins komi ekki endilega úr röðum
þingflokksins heldur geti eins verið
kjörinn fulltrúi af öðrum vettvangi eða
almennur sjálfstæðismaður.“
Skipa sér í fylkingar
Eins og DV hefur greint frá er áhrifa-
kjarni í Sjálfstæðisflokknum, sem kall-
ast Primaverurnar, áberandi í bak-
landi Hönnu Birnu. Nafngiftin er
komin til vegna þess að um er að ræða
konur sem hittust reglulega á veitinga-
staðnum La Primavera. Í þeim hópi
eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir þingmaður, Gréta Ingþórsdóttir,
starfsmaður flokksins, og Ásdís Halla
Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri.
Á meðal annarra stuðningsmanna
Hönnu Birnu má nefna Björn Bjarna-
son, fyrrverandi dómsmálaráðherra,
og Ólaf Stephensen, ritstjóra Frétta-
blaðsins. Þau sem næst standa að baki
Hönnu Birnu í framboðinu eru hins
vegar sögð Ásdís Halla og Þór Sigfús-
son, fyrrverandi forstjóri Sjóvár, sem
hefur verið nefndur nánasti ráðgjafi
Hönnu Birnu.
Kvennaforysta
Það verður að teljast markvert ef
Hanna Birna verður formaður Sjálf-
stæðisflokksins og Ólöf Nordal verð-
ur endurkjörin varaformaður að
Sjálfstæðisflokkurinn marki sér nýja
stefnu. Hanna Birna vill sjálf gefa lítið
fyrir kynjasjónarmið og segir að hún
hafi aldrei talið að sér væri mismunað
eða hyglað vegna kynferðis síns.
„Ef það væru tvær konur í for-
ystu fyrir flokkinn þá er það auðvitað
óhefðbundið og óvenjulegt en það
á ekki að vera neitt óvenjulegra en ef
það væru tveir karlar í forystu hans,“
segir hún. Hvort Hanna Birna nýtur
raunverulegs stuðnings landsfundar
kemur ekki í ljós fyrr en um miðjan
mánuðinn, en ljóst er að kosningabar-
áttan er hafin fyrir alvöru og blikur eru
í lofti í pólitísku landslagi innan Sjálf-
stæðisflokksins. Næsti formaður verð-
ur að ná flokknum aftur á band þeirra
sem yfirgáfu hann í kjölfar hrunsins.
n Þingflokkurinn ekki á bak við Hönnu Birnu n Gæti orðið fyrsta konan til að verða formaður
Sjálfstæðisflokksins n Bjarni gæti orðið fyrsti formaðurinn sem ekki verður forsætisráðherra
Hanna Birna mun
taka til í flokknum
„Ég tel það vera
tímanna tákn að
formaður Sjálfstæðis-
flokksins komi ekki endi-
lega úr röðum þingflokks-
ins.
Hver er
Hanna Birna?
Hanna Birna er 45 ára, fædd þann 12.
október 1966. Hún er stjórnmálafræð-
ingur að mennt og hefur masterspróf
í alþjóðlegum og evrópskum stjórn-
málum. Hún hefur starfað í stjórnsýslu
frá lokum níunda áratugarins en hefur
einnig gegnt trúnaðarstörfum innan
Sjálfstæðisflokksins og var meðal
annars framkvæmdastjóri þingflokksins
1995–1999 og aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins frá 1999–
2006. Hún tók við borgarstjórastólnum
árið 2008 af Ólafi F. Magnússyni þangað
til að Besti flokkurinn og Samfylkingin
tóku við eftir kosningarnar árið 2010. Þá
var hún forseti borgarstjórnar en sagði
af sér eftir tíu mánuði í starfi eftir mikinn
málefnaágreining.
Árni Johnsen
Ásbjörn Óttarsson
Birgir Ármannsson
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Illugi Gunnarsson
Jón Gunnarsson
Kristján Þór Júlíusson
Ólöf Nordal
Pétur H. Blöndal
Tryggvi Þór Herbertsson
Unnur Brá Konráðsdóttir
Stuðningsmenn
Bjarna Ben:
Ásdís Halla Bragadóttir
Björn Bjarnason
Hjalti Magnússon
Ólafur Stephensen
Ragnheiður Elín Árnadóttir
Þór Sigfússon
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Óvíst
Árni Sigfússon
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Stuðningsmenn
Hönnu Birnu:
Taka bæði slaginn Hanna Birna
hefur mikinn stuðning samkvæmt
skoðanakönnunum en Bjarni hefur
stuðning þingflokksins.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Baldur Guðmundsson
blaöamaður skrifar baldur@dv.is
Hulduherinn Primaverurnar eru bakland
Hönnu Birnu, en þar er Ásdís Halla Braga-
dóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, fremst í flokki.