Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 37
37Helgarblað 4.–6. nóvember 2011 „Allrar athygli verð og þarft innlegg í umræðuna um kynferðislegt ofbeldi“ „Óslípaður demantur sem óhætt er að mæla með“ Í slenska óperan er flutt í Hörpu og hefur hleypt fyrstu sýningunni af stokk- unum. Töfraflauta Moz- arts var frumsýnd þar fyrir hálfum mánuði – við misjafnar undirtektir, heyrist mér. Ein- hverjir voru búnir að ákveða að þetta yrði allt ómögulegt áður en þeir sáu sýninguna. Sú hefur ekki orðið raunin. Þetta er mjög þokkaleg sýn- ing, snoturlega sviðsett og á heildina litið vel sungin, þó að maður hafi sjaldnast tekið nein andköf af hrifningu. Sem við viljum helst gera í óper- unni. Töfraflautan er raunar ekki hefðbundin ópera að því leyti að þar skiptast á sungin atriði og töluð, og var leikurinn í þeim síðarnefndu sjaldan mikið til að hrópa húrra fyrir að þessu sinni. Okkar ágætu söngvurum veitti flestum ekkert af því að taka sér tak í leikrænni tjáningu. Mætti Ís- lenska óperan vel athuga að fá til sín færan leiklistarkennara, nú þegar hún er komin í höfn – í bili alltént. Líkast til best að fá til þess einhvern kláran útlending sem kann að vinna með söngvurum. Annmarkar Eldborgarsalarins Dómar um þessa fraumraun Óperunnar í Hörpu virðast nokkuð litaðir af skoðunum á því hversu vel eða illa Eld- borgarsalurinn hentar fyrir óperusýningar. Það er sjálfsagt óhjákvæmilegt. Annmarkar hans liggja í augum uppi. For- svarsmenn Óperunnar, sem hafa verið að tjá sig um þessi mál á síðustu dögum, eru auð- heyrilega í nokkurri vörn og þau rök, sem þeir hafa borið fram, eru ekki öll sannfærandi. Ég nefni aðeins þá skoðun sem Stefán Baldursson óperustjóri lýsir í leikskrárgrein, að það sé eiginlega bara kostur að vera laus við allt þetta tæknidót sem erlend óperuhús séu full af. Þá sé minni hætta á því að tæknin taki völdin og drekki listinni í brellum, auk þess sem það reyni svo á hugkvæmni leikstjóra og annarra listrænna stjórnenda, að finna lausn sem henti hverri einstakri sýningu. Eftir þessu að dæma virðist Stefán telja í lagi að halda hér uppi óperusviði sem kalli sí- fellt á neyðarlausnir. En leit að neyðarlausnum getur líka ver- ið tímafrek og dregið athygli manna frá því sem er kjarni máls. Þá má benda á að slíkar reddingar eru ekki nýtt fyrir- bæri í íslenskri leikhússögu. Í Iðnó þurftu menn áratugum saman að finna neyðarlausnir til þess að geta sýnt góð leikrit og oft tókst leikstjórum og ekki síst senógröfum það ótrúlega vel. Engum datt þó í hug að líta á Iðnó sem framtíðarhús handa Leikfélagi Reykjavíkur. Stærsti plúsinn, sem ég sé við vistaskiptin úr Gamla bíói í Hörpu, er fjölgun á áhorfenda- sætum sem auðveldar rekstur. Engin ástæða er til að vanmeta það. Fyrir mína parta vildi ég þó ekki þurfa að njóta óperu- sýninga þarna ofan af öðrum eða þriðju svölum – eins þótt ég viti að hljómburðurinn efst uppi er frábær. Undir það get ég hins vegar tekið með óperustjóranum að sambýli Óperunnar við aðrar greinar tónlistarinnar í því stórkostlega húsi, sem Harpan svo sannarlega er, og aðgang- ur að fleiri sölum en Eldborg- inni, á að opna ýmis tækifæri. En það breytir ekki því að Eldborgin er í óbreyttri mynd fráleit framtíðaraðstaða fyrir íslenska óperu. Og eitt verð ég að nefna enn: að sögn Stefáns fékk Óperan einungis tíu daga til að undirbúa sýninguna á sviðinu sjálfu (viku, sagði ein- hver mér raunar, en ég kýs að trúa óperustjóranum). Slíkt er auðvitað með öllu óviðunandi. Nógu er aðstaðan gölluð, þó að starfsliðið þurfi ekki að vera í blóðspreng á lokasprettinum við að pússla showinu saman. Hér hlýtur að vera við innra skipulag hússins að sakast sem hægur vandi ætti að vera að bæta úr. Neyðarlausn Sviðsetning Ágústu Skúla- dóttur á Töfraflautunni er að sjálfsögðu neyðarlausn, en hún er hreint ekki slæm sem slík. Ágústa kemur verkinu óbrengluðu til skila ásamt samstarfsmönnum sínum og það er út af fyrir sig afrek. Á heildina litið eru myndræn áhrif sýningarinnar þó ekki heillandi; það er of augljóst að verið er að fela hliðar- og bakveggi með ýmsum ráðum. Fjórir risastórir trjástofnar, æði klossaðir í lögun, ramma inn sviðið sitt til hvorrar handar, en á baksviðið er varpað upp óræðum myndum sem taka ýmsum breytingum og eru þær flestar dökkar og drunga- legar ásýndum. Í sviðslýsingu eru ofanljós, kyrrstæð hliðar- ljós og eltiljós ríkjandi. Ofan- ljósunum er sums staðar vel beitt, einkum í síðari hluta sýningarinnar, en skarpir geisl- ar hliðarljósanna, sem mynda breiða rák þvert yfir sviðið, verða fljótt mjög leiðigjarn- ir, auk þess sem þeir líkt og þröngva leikurum inn í sviðs- miðjuna. Búningar og leikgervi eru skrautleg, að ekki sé sagt skræpuleg, og sumt orkar nán- ast sem skrípó. Hvað í ósköp- unum hafði til dæmis komið fyrir hárið á henni Pamínu sem minnir mest á heysátu sem hefur fokið til í stormi? Og af hverju var Sarastró með þetta dátabrjóst? Eða Papa- genó með höfuðfjaðrir sem minntu á pönkarakamb? Ég gat yfirleitt ekki komið auga á neina sérstaka línu í búning- um og gervum, nema þetta hafi allt bara átt að vera ein- hvern veginn „öðru vísi“. Íslenska óperan gefur að þessu sinni fleiri en einum söngvara tækifæri til að syngja þrjú af burðarhlutverkun- um. Það er lofsvert, eins þótt tveir þeirra syngi aðeins einu sinni samkvæmt heimasíðu Óperunnar; miklu skiptir að sem flestir af þeim söngvur- um okkar, sem á annað borð eiga erindi upp á óperusvið, fái að spreyta sig. Á frumsýn- ingu söng Sigrún Hjálmtýs- dóttir Næturdrottninguna og Finnur Bjarnason Tamínó og á annarri sýningu sungu Alda Ingibergsdóttir og Garðar Thór Cortes sömu hlutverk. Þeir Garðar og Finnur munu skiptast á að syngja Tam- inó, en annars syngur Sigrún Næturdrottninguna. Á frum- sýningunni gætti sýnilegs öryggisleysis hjá henni, bæði í leik og söng, og vantaði tals- vert upp á að hún glansaði í kólóratúrunum í hinni frægu aríu drottningar í öðrum þætti; þessu mómenti sem við bíðum alltaf svo spennt eftir þegar við förum á Töfraflaut- una. Má vera að Sigrún hafi verið plöguð af einhverjum glímuskjálfta sem hún nær vonandi að losa sig við síðar. Alda Ingibergsdóttir skilaði sama hlutverki af tæknilegu öryggi og fágun. Ég hef ekki heyrt hana syngja áður, svo ég muni, og mér finnst sjálfsagt að gefa henni fleiri tækifæri á óperusviðinu. Ástríðan logar ekki Finnur söng Tamínó vel, en nokkuð mátti heyra að honum er tamara að syngja á öðrum málum en íslensku; ég geri ráð fyrir að það hafi átt þátt í því að u-hljóðið í enda orða rann stundum út í ö hjá hon- um (hugur varð hugör og svo framvegis) sem er ekki fal- legt. Þetta á hann vel að geta lagað. Garðar Thór var líka ágætur Tamínó; húsið virðist henta rödd hans vel, ég man varla eftir því að hafa heyrt hana hljóma öllu betur. Vart verður þó sagt að ástríðan hafi beinlínis logað í túlkun þeirra Finns og Garðars á þessum ævintýraprinsi sem er þó all- tént að berjast við ill öfl til þess að ná í stúlkuna sem hann elskar. Jóhann Smári Sævars- son syngur Sarastró; hann hefur hljómfagra og kröft- uga bassarödd sem nýtur sín mjög vel á efra sviðinu, en því miður nær hún ekki nógu langt niður í þau undirdjúp, sem Mozart sendir hana ofan í, og varð óþægilega klemmd á lágsviðinu, hætti bókstaf- lega að hljóma þar. Ég sé á vef Óperunnar að Bjarni Thor Kristinsson syngur hlutverkið einu sinni; sá ætti að hafa alla þá dýpt sem það útheimtir. En mikið hefði nú verið gaman að fá að heyra hann Kristin okkar Sigmundsson syngja þessa glansrullu bassanna; ef ég man rétt var hann einhvern tímann af vísum manni jafnvel talinn með bestu Sarastróum okkar tíma. Það hefði sannar- lega verið viðeigandi að hafa þennan höfuðsnilling íslenskr- ar óperulistar á sviðinu við þetta tækifæri og þess óskandi að við fáum að njóta hans þar sem allra, allra fyrst. Þóra ber af Aðrir söngvarar eru mjög góðir. Þóra Einarsdóttir ber vissulega af sem Pamína sem kemur ekki á óvart miðað við frammistöðu hennar að und- anförnu; hún er hreint út sagt yndisleg í hlutverkinu og sam- söngur þeirra Garðars Thórs í dúetti þeirra undir lok annars þáttar var gullfallegur. Ágúst Ólafsson bregst ekki fremur en fyrri daginn sem Papagenó, en mætti slípast til í leiklistinni. Snorri Wium var skemmtileg- ur Mónóstatos og Valgerður Guðnadóttir hreint afbragð í litlu hlutverki Papagenu. Hirð- meyjar Næturdrottningarinn- ar og reglubræður Sarastrós skiluðu sínu einnig mjög vel. Kórinn var frábær. Sjálfsagt er ekki við því að búast að hljóm- sveitin hljómi jafn fagurlega ofan úr gryfjunni og hún gerir af sviðinu, en þó hygg ég að þar megi vel við una, alltént þar sem ég sat fyrir miðjum sal. Tónar Mozarts liðu ljúft fram undan tónsprota Daní- els Bjarnasonar, þó að víst hafi maður heyrt kröftugri sveiflur í flutningi á þessari undur- samlegu tónlist, svo full af angurværri ljóðrænu, dimmu drama og himneskri þrá sem hún er. Ég hef stundum minnst á það í skrifum mínum um Ís- lensku óperuna, að mér þyki forráðamenn hennar ekki alltaf sinna almennri kynningu á óperulistinni nógu vel, til dæmis með samstarfi við skóla eða aðrar slíkar stofnanir. Nú er lag að bæta úr því. Tilkoma Hörpunnar býður upp á enda- laus tækifæri fyrir íslenska tón- list á öllum sviðum og í þeirri framsókn á Óperan vitaskuld að taka fullan þátt. Töfraflautan hljómar í Hörpu Raunir unglingsins Ópera Jón Viðar Jónsson Töfraflautan eftir W. A. Mozart Líbrettó: Emanuel Schikaneder. Þýðing söngtexta: Böðvar Guð- mundsson, Þorsteinn Gylfason, Þrándur Thoroddsen og Gunnsteinn Ólafsson. Þýðing og aðlögun leiktexta: Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Söngvarar: Þóra Einarsdóttir, Finnur Bjarnason / Garðar Thór Cortes, Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári Sævarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir / Alda Ingibergsdóttir, Snorri Wium, Valgerður Guðnadóttir. Leikmynd: Axel Hallkell Jó- hannesson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Búningar: Filippía I. Elísdóttir. Brúðugerð: Bernd Ogrodnik. Sýnt í Eldborg í Hörpu Þóra bar af Hreint út sagt yndisleg í hlutverkinu og samsöngur þeirra Garðars Thórs í dúetti þeirra undir lok annars þáttar var gullfallegur. Ekki líta undan eftir Elínu Hirst Uncharted 3: Drake’s Deception það en það breytti lífi mínu að fara þarna út,“ segir hún. Vin- konurnar tóku upp heimildar- mynd um heimilið meðan á dvöl þeirra stóð. Heimilið er rekið með fjárframlögum sem koma meðal annars að miklu leyti frá Íslendingum. Börnin bíða þess ekki að vera ætt- leidd heldur búa á heimilinu og eru styrkt til náms. Í mynd- inni er fylgst með nokkrum þeirra. „Þetta þróaðist út í það að við fylgdumst með fjórum börnum á mismunandi aldri sem lenda í alls konar gleði og sorg. Við fylgjum þeim eftir í þrjá mánuði.“ Anna Svava segir það hafa verið erfitt að kveðja börnin að dvöl lokinni. „Það var alveg hræðilega erfitt að kveðja. Ég fæ enn tár í augun þegar ég tala um þetta. Þegar maður kynnist einhverjum svona vel þá vill maður fylgja þeim eftir. Ég vildi bara að ég væri milljónamæringur, þá gæri ég farið út einu sinni á ári.“ „Við erum að tala um kraft- galla, hvítar galla- buxur, landabrúsa og þetta helsta. m y N d ir S ig tr y g g u r A r i „Madonna. Sérstaklega platan Confessions on a Dance Floor.“ Hvaða tónlist kemur þér í gott skap? Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.