Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 32
32 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað L íney Jóhannesdóttir rithöf- undur fæddist að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp til ellefu ára aldurs, en fór þá, eft- ir lát móður sinnar, í fóstur til hjónanna Páls Stefáns- sonar, stórkaupmanns frá Þverá, og Hallfríðar Proppé Stefánsson. Líney lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík og stundaði síðan nám í félagsfræði hjá Ölvu Myrdal í Stokk- hólmi. Líney starfaði m.a. hjá Raf- orkumálastofnun og við mæðra- eftirlit á Heilsuverndarstöð Reykja- víkur auk húsmóðurstarfa. Hún stundaði ritstörf um árabil og samdi m.a. barnabækurnar Æðarvarpið, útg. 1961; Í lofti og læk, útg. 1962, og Síðasta sumarið, útg. 1969. Hún skráði, ásamt Þorgeiri Þorgeirssyni, æviminningar sínar, Það er eitthvað sem enginn veit, útg. 1975. Auk þess samdi hún skáldsögurnar Kerlinga- slóðir, útg. 1976, og Aumingja Jens, útg. 1980. Þá hefur birst eftir hana fjöldi smásagna í blöðum og tíma- ritum auk þess sem Líney stundaði þýðingar. Eiginmaður Líneyjar var Helgi M. Bergsson, hagfræðingur og forstjóri, en börn þeirra eru Páll læknir, Jó- hannes Bergur bankamaður og Líney skólastjóri. Líney átti fimm bræður sem allir létust í bernsku en systur hennar komust á efri ár. Þær voru Soffía; Snjólaug Guðrún; Mar- grét Stefanía; Jóna Krist- jana, móðir Benedikts Árnasonar leikstjóra, föð- ur Einars borgarfulltrúa, og Sigurjóna. Foreldrar Líneyjar voru Jóhannes Baldvin Sigurjónsson, óðalsbóndi á Laxamýri, og Þórdís Þorsteinsdóttir húsfreyja. Jóhann- es Baldvin var bróðir Jóhanns Sig- urjónssonar skálds, og Snjólaugar, móður Sigurjóns Sigurðssonar lög- reglustjóra, föður Jóhanns Sigur- jónssonar, forstjóra Hafró. Snjólaug var einnig amma Magnúsar Magn- ússonar, rithöfundar og dagskrár- gerðarmanns hjá BBC og Sigurðar, yfirlæknis og prófessors. Þ orgeir fæddist að Hæli í Hreppum og ólst þar upp við almenn sveitastörf. Foreldrar hans voru Gestur Einarsson, bóndi á Hæli í Gnúpverja- hreppi, og k.h., Margrét Gísla- dóttir húsfreyja. Þorgeir lauk gagnfræða- prófi frá Menntaskólanum á Akureyri, stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, embættisprófi í læknisfræði við Háskóla Íslands og stundaði fram- haldsnám í Danmörku. Þorgeir var héraðslækn- is í Árneshéraði í stríðslok, í Neshéraði 1947–50, Húsavík- urhéraði 1950–58 og Hvolshéraði 1958–65 og heimilislæknir í Reykjavík 1965–90. Þorgeir var alls staðar vinsæll lækn- ir og alþýðlegur sem ekki var sjálfgefið í þá daga. Hann sat í stjórn Læknafé- lags Reykjavíkur og í heilbrigðisráði Ís- lands. Þorgeir söng fyrsta tenór í MA- kvartettinum en söngfélagar hans þar voru þeir Gestur, bróðir hans, Jón frá Ljárskógum, og Jakob Hafstein. MA- kvartettinn söng við miklar vinsældir á árunum 1932–42. Eftirlifandi eiginkona Þorgeirs er Ása Guðmundsdóttir húsmæðrakenn- ari, en synir Þorgeirs og Ásu eru lækn- arnir Guðmundur hjartasérfræðingur, Gestur,hjartasérfræðingur, og Eiríkur augnlæknir. Systkini Þorgeirs: Gísli, safnvörður á Þjóðminjasafninu; Einar, bóndi að Hæli; Steinþór, bóndi og alþm. að Hæli; Hjalti ráðunautur, og Ragnheiður, húsfreyja á Ásólfsstöðum í Gnúpverja- hreppi. Föðurbróðir Þorgeirs var Eiríkur alþm. og föður- systir hans var Ingveldur, móðir Einars Ingimund- arsonar, fyrrv. alþm. Önn- ur systir Gests var Ragn- hildur, amma Páls Lýðssonar forstjóra. Þriðja systir Gests var Sigríður, móðir Einars Sturluson- ar óperusöngvara. Gestur var sonur Einars, b. á Hæli Gestssonar, og Stein- unnar, systur Guðrúnar, móður Guð- nýjar, móður Brynjólfs Bjarnasonar, heimspekings og ráðherra, en systir Guðnýjar var Torfhildur, langamma Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgun- blaðsins. Steinunn var dóttir Vigfúsar, sýslumanns á Borðeyri, Thorarensen og Ragnheiðar Melsted. Í móðurætt var Þorgeir hins veg- ar af Urriðafossætt, Fjallsætt, Reykja- ætt og af Finsenum, ætt Finns biskups Jónssonar. Ó li fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann stundaði sjó- mennsku á fiskiskipum á sín- um yngri árum og var um skeið fararstjóri á Spáni, Ítalíu, Jamaíku og víðar, og síðar fararstjóri og skíðakennari í Sviss og Austurríki. Hann var einnig stöðvarstjóri í Jeddah í Sádi-Arabíu fyrir Arnarflug þegar fé- lagið stundaði pílagrímaflug þaðan. Óli var blaða- og fréttamaður á hinum ýmsum fjölmiðlum nánast all- an sinn starfsferil. Hann hóf ferilinn kornungur á Vísi árið 1962, var síðan blaðamaður við Morgunblaðið, Helg- arpóstinn, hjá Frjálsu framtaki við ýmis tímarit og var ritstjóri vikublaðs- ins Fólks og ritstjóri tímarits Arnar- flugs Örninn flýgur. Óli var auk þess lengi fréttmaður við ljósvakamiðla, m.a. á Bylgjunni og visir.is. Síðustu árin var hann frétta- maður í erlendum fréttum á Stöð 2. Óli upplifði og sagði frá mörgum stórviðburður á sínum langa frétta- mannsferli. Hann fór tvisvar sem sjálfboðaliði á samyrkjubú í Ísrael og þegar sex daga stríðið hófst, 1967, var hann staddur í Ísrael. Í þorskastríðinu 1976 var hann fyrst um borð í varð- skipunum Tý og Þór þegar breskar freigátur sigldu á þau og síðar sama ár um borð í bresku freigátunum Gurkha og Falmouth þegar þær sigldu á ís- lensku varðskipin. Óli tók virkan þátt í félagsstörf- um. Hann var m.a. formaður frosk- mannafélagsins Syndasela, formað- ur félagsins Ísland-Ísrael, formaður Starfsmannafélags Arnarflugs og sat í fulltrúaráði Sólheima. Fjölskylda Eftirlifandi eiginkona Óla er Vil- borg Halldórsdóttir, f. í Reykjavík 25.9. 1937, fyrrv. læknaritari, búsett í Reykjavík. Foreldrar Vilborgar voru Halldór Gíslason, f. 19.8. 1899, d. 7.12. 1999, skipstjóri, og k.h., Sigríð- ur Jenný Magnúsdóttir, f. 30.7. 1909, d. 6.9. 1978, húsmóðir. Fyrri kona Óla var Sigurdís Laxdal Eggertsdóttir, f. 31.1. 1946, verslunar- maður, búsett í Kópavogi. Sonur Óla og Sigurdísar er Jón Gunnar Ólason, f. 1965, tölvunar- og viðskiptafræðingur og aðstoðarinn- kaupastjóri hjá N1. Dóttir Jóns Gunnars og Þrúðar Hjelm er Eva Dögg Hjelm, f. 20.7. 1983, en sonur Evu Daggar er Þráinn Berg Hjelm, f. 9.6. 2007. Dætur Jóns Gunnars og Guð- bjargar Ágústsdóttur eru Indíana Rut, f. 15.5. 1997, og Karitas Ósk, f. 17.3. 2003. Sonur Óla og Guðnýjar Jónsdótt- ur er Jón Þór Ólason, f. 8.2. 1974, lögmaður og kennari við Háskóla Íslands en sambýliskona hans er Elín Björg Harðardóttir sjúkraþjálf- ari og eru börn þeirra Tryggvi Garð- ar, f. 13.4. 2003, og Arna Sif, f. 21.5. 2009. Systkini Óla eru Jón Örn Jónsson, f. 30.3. 1938, fyrrv. ráðuneytisstjóri og fyrrv. hagfræðiprófessor við Háskól- ann í Regina í Saskatchewan í Kanada en kona hans er Guðrún Mjöll Guð- bergsdóttir húsmóðir; Ingvi Hrafn Jónsson, f. 27.7. 1942, sjónvarpsstjóri ÍNN, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Ragnheiður Sara Hafsteins- dóttir húsmóðir; Sigtryggur Jónsson, f. 14.6. 1947, fasteignasali, búsettur í Reykjavík, en kona hans er Guðlaug Helga Konráðsdóttir, deildarstjóri í gjaldeyrisdeild Íslandsbanka; Mar- grét Jónsdóttir, f. 26.12. 1955, starfs- maður við umönnun fatlaðra, búsett í Reykjavík. Foreldrar Óla voru hjónin Jón Sig- tryggsson, f. á Akureyri 10.4. 1908, d. 11.2. 1992, læknir og tannlækn- ir, stofnandi og fyrsti prófessor við Tannlæknadeild Háskóla Íslands, og k.h., Jórunn (Lóa) Tynes, f. á Siglu- firði 28.2. 1913, d. 23.3.1978, hús- móðir. Ætt Systir Jóns, samfeðra, var Sigríður, móðir Hannesar Péturssonar skálds. Jón var sonur Sigtryggs, veitinga- manns á Akureyri Benediktssonar, b. á Hvassafelli í Eyjafirði, bróður Sig- ríðar, langömmu tónlistarmannanna Ingimars og Finns Eydal. Benedikt var sonur Jóhannesar, b. á Sámsstöð- um í Eyjafirði Grímssonar, græðara á Espihóli í Eyjafirði Magnússonar. Móðir Jóhannesar var Sigurlaug, systir Jósefs, langafa Stefaníu, ömmu Odds Helgasonar, sjómanns og ævi- skrárritara. Sigurlaug var dóttir Jó- sefs, b. á Ytra-Tjarnarkoti Tómasson- ar, langafa Kristjáns, afa Jónasar frá Hriflu. Jósef var einnig langafi Jóns, langafa Sigrúnar, móður Kristjáns Karlssonar, skálds og bókmennta- fræðings. Jósef var líka langafi Jó- hannesar, afa Jóhanns Sigurjóns- sonar skálds. Þá var Jósef langafi Ingiríðar, langömmu Steins Stein- ars. Loks var Jósef langafi Finns Jóns- sonar ráðherra. Móðir Sigurlaugar var Ingibjörg, systir Gunnars, afa Tryggva Gunnarssonar bankastjóra, og Kristjönu, móður Hannesar Haf- stein, skálds og ráðherra. Móðir Sig- tryggs var Sigríður Tómasdóttir, b. á Holti í Eyjafirði Jónssonar, bróður Magnúsar í Laufási, föður Jóns for- sætisráðherra. Annar bróðir Tómasar var Jón, langafi Rögnvalds Sigurjóns- sonar píanóleikara. Systir Tómasar var Margrét, langamma Bjargar, móður Magnúsar Thoroddsen, fyrrv. hæstaréttardómara. Móðir Tómasar var Sigríður, systir Tómasar, langafa Davíðs, föður Ingólfs grasafræðings. Systir Sigríðar var Rannveig, amma Páls Árdals skálds, afa prófessor- anna Steingríms J. Þorsteinssonar og Páls Árdals og langafa Guðmund- ar Emilssonar söngstjóra. Rannveig var einnig langamma Kristínar Sig- fúsdóttur rithöfundar. Sigríður var dóttir Davíðs, b. á Völlum í Eyjafirði, bróður Jósefs í Ytra-Tjarnarkoti og Jónasar, afa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Jónas var einnig langafi Frið- bjarnar, afa Ólafs Jóhannessonar for- sætisráðherra og langafi Kristínar, ömmu Kristjáns Thorlacius, fyrrv. formanns BSRB. Móðir Jóns var Margrét, systir Kristínar listmálara, móður Helgu Valtýsdóttur leikkonu og Huldu, fyrrv. blaðamanns. Önnur systir Margrétar var Jónína, móðir Gunn- ars G. Schram prófessors. Margrét var dóttir Jóns, skipstjóra í Arnarnesi í Eyjafirði Antonssonar, b. í Arnarnesi Sigurðssonar, veitingamanns á Akur- eyri Benediktssonar, b. í Grjótgarði á Þelamörk Jónssonar, bróður Þor- gríms, langafa Gríms Thomsen. Syst- ir Benedikts var Þuríður, langamma Hólmfríðar, langömmu Ingimars Ingimarssonar, fyrrv. fréttamanns Sjónvarpsins. Móðir Jóns var Mar- grét Jónsdóttir, systir Friðriks, lang- afa Gunnars J. Friðrikssonar, for- manns VSÍ. Móðir Margrétar var Guðlaug Sveinsdóttir, hálfsystir Ein- ars, alþm. á Hraunum, langafa Þur- íðar Pálsdóttur óperusöngvara og Einars skólastjóra Pálsbarna. Guð- laug var dóttir Sveins, b. á Haganesi Sveinssonar. Jórunn var dóttir Ole Tynes, norsks útgerðarmanns á Siglufirði, sem Óli fréttamaður var skírður eft- ir. Bróðir Ole Tynes var Karl Peter- sen Tynes, skósmiður, m.a. í Alaska, faðir Ölmu Sölvínu, móður Ragnars Páls Einarssonar myndlistarmanns, Sverris Einarssonar, læknis í Svíþjóð, og Önnu Sigríðar Einarsdóttur leik- konu. Móðir Jórunnar var Indíana fagra, systir Kristínar, ömmu Njarð- ar P. Njarðvík og langömmu Júlíusar Hafstein. Indíana var dóttir Péturs, b. á Skáldalæk Gíslasonar, vinnu- manns í Hrísey Brandssonar, b. á Ystabæ í Hrísey Þorkelssonar. Móð- ir Gísla vinnumanns var Ingibjörg Gísladóttir, b. á Hnjúki í Svarfaðar- dal og í Ystabæ í Hrísey Gíslasonar, og Hallfríðar Bjarnadóttur. Móðir Indíönu var Jórunn, systir Jóns, b. á Jarðbrú, afa Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra SÍS. Jórunn var einnig systir Gunnhildar, langömmu Ingibjargar, móður Jóns L. Árnasonar stórmeist- ara, Björns kennara og Ásgeirs Árna- sonar, skákmanns og lögmanns. Jórunn var dóttir Hallgríms, b. á Stóru-Hámundarstöðum, bróður Þorláks, langafa Björns Th. Björns- sonar, rithöfundar og listfræðings. Hallgrímur var sonur Hallgríms, b. á Stóru-Hámundarstöðum Þorláks- sonar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal Hallgrímssonar, bróður Gunnars, afa Tryggva Gunnarssonar banka- stjóra og langafa Hannesar Hafstein. Annar bróðir Þorláks var Jón í Lóni, langafi Pálínu, móður Hermanns Jónassonar forsætisráðherra, föður Steingríms forsætisráðherra, föður Guðmundar alþm. Systir Þorláks í Skriðu var Ingibjörg, kona Jósefs, b. í Kasthvammi Tómassonar, ættföð- ur Hvassafellsættar. Móðir Jórunnar var Filippía Stefánsdóttir. Útför Óla Tynes fór fram frá Foss- vogskirkju í Reykjavík 3.11. sl. Óli Tynes Jónsson Fréttamaður f. 23.12. 1944 – d. 27.10. 2011 Líney Jóhannesdóttir Rithöfundur f. 5.11. 1913 – d. 18.7. 2002 Þorgeir Gestsson Læknir f. 3.11. 1914 – d. 19.6. 2005 Merkir Íslendingar Merkir Íslendingar Andlát Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.