Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 22
22 | Erlent 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað D önsk stjórnvöld hafa orðið við beiðni Grænlendinga um að taka til rannsóknar fangaflug bandarísku leyniþjónustunn­ ar, CIA, yfir grænlenska landhelgi. Það var Sara Olsvig, annar af þing­ mönnum Grænlendinga á danska þinginu, sem krafðist rannsóknar­ innar um miðjan október síðastlið­ inn. Danska alþjóðamálastofnunin, DIIS, mun rannsaka málið og hefur fengið frest til 1. maí næstkomandi til að skila skýrslu. „Við munum komast að því hve­ nær og hvar þessir flutningar fóru fram og hvert hlutverk danskra yfir­ valda var í málinu,“ sagði Kuupik Kleist, formaður grænlensku land­ stjórnarinnar, á blaðamannafundi sem haldinn var vegna málsins á dögunum. Upplýsingarnar um fangaflug­ ið komu fram í heimildarmynd sem sýnd var árið 2008 en í henni kom fram að CIA hefði meðal ann­ ars notað flugvöllinn í Narsarsuaq undir slíka flutninga. Ásakanirnar sem komu fram í umræddri heim­ ildarmynd voru staðfestar fyrr á árinu þegar uppljóstrunarvefur­ inn Wikileaks birti bréf frá James Cain, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, til utanríkisráðu­ neytis Bandaríkjanna. í bréfinu, sem dagsett er 31. janúar 2008 eða skömmu eftir sýningu myndarinn­ ar, segir Cain að heimildarmynd­ in hafi valdið fjaðrafoki meðal danskra yfirvalda. Þau séu þó til­ búin að leggja sitt á vogarskálarnar til að þagga niður í umfjöllun um málið. Líklegust til að bjóða mútur Rússnesk og kínversk fyrirtæki eru líklegust til að bjóða mútur þegar þau stunda viðskipti á erlendri grundu. Þetta er niðurstaða könn­ unar Transparency International, stofnunar sem berst gegn spill­ ingu. Tuttugu og átta lönd tóku þátt í könnuninni og svöruðu þrjú þús­ und forstjórar stórra og meðalstórra fyrirtækja spurningum stofnunar­ innar. Holland og Sviss komu best út með meðaleinkunn upp á 8,8. Í næstu sætum þar á eftir komu í réttri röð: Belgía, Þýskaland, Japan, Ástr­ alía, Kanada, Singapúr, Bretland og Bandaríkin. „Það er sérstakt áhyggjuefni að Kína og Rússland séu neðst á list­ anum,“ segir í skýrslunni, en bæði lönd hafa á undanförnum árum aukið mjög viðskipti sín erlendis. Í skýrslunni er kallað eftir samstilltu átaki yfirvalda um heim allan til að minnka þá spillingu sem virðist við­ gangast í fyrirtækjum. Ísland var ekki með í könnuninni. Verkjalyf bana þúsundum Ofneysla á sterkum verkjalyfjum í Bandaríkjunum er orðin svo mikil að bandarísk yfirvöld tala um far­ aldur. Ofnotkun á þessum lyfjum dregur fleiri til dauða en ofnotkun heróíns og kókaíns til samans, að því er fram kemur í skýrslu sem CDC, bandarísk stofnun sem sér um varn­ ir gegn sjúkdómum og um forvarnir, gaf út nýlega. Í skýrslunni kemur fram að dauðsföll af völdum verkjalyfja hafi meira en þrefaldast á undanförnum tíu árum og eru þau nú um 40 á dag að meðaltali. É g þakka Guði fyrir allt saman. Það geta engin orð lýst ánægju okkar,“ segir Ginady Sabuco, 33 ára. Ginady er móðir tveggja ára tvíburasystra, Angelinu og Angelicu Sabuco, sem voru fastar saman á bringu og maga þegar þær komu í heiminn. Þær gengust undir aðgerð á Lucile Packard­barnaspítal­ anum í Palo Alto í Kaliforníu í vikunni þar sem þær voru aðskildar. Aðgerð­ in var flókin eins og við var að búast og tók aðeins lengri tíma en búist var við, eða tíu klukkustundir. Allt fór þó vel og eru systurnar ungu á góðum batavegi. Góðar batahorfur „Batahorfurnar til lengri tíma eru mjög góðar og við munum væntan­ lega koma til með að sjá tvær ham­ ingjusamar og heilbrigðar ungar stúlkur. Það eru engar hindranir í veg­ inum lengur,“ segir Gary Hartman, skurðlæknirinn sem framkvæmdi að­ gerðina. Hartman var þó ekki einn að verki því um 40 læknar, hjúkrunar­ fræðingar og annað heilbrigðisstarfs­ fólk aðstoðaði við aðgerðina. Systurnar, sem fæddust á Filipps­ eyjum en fluttu á síðasta ári til San Jose í Bandaríkjunum, voru sem fyrr segir fastar saman á bringu og kvið. Þær höfðu sameiginlega lifur, þind, bringubein og kviðvöðva en hvor sitt hjartað, nýru, maga og þarma. Hart­ man segir að erfiðasti hluti aðgerð­ arinnar hafi verið að skera lifrina því mikil hætta hafi verið á blóðmissi. Sá hluti aðgerðarinnar gekk þó vel fyrir sig. Með tárin í augunum „Draumurinn er orðinn að veru­ leika,“ sagði móðir systranna með tárin í augunum og grátstafinn í kverkunum eftir að aðgerðinni var lokið. Hún komst ekki að því að tví­ burarnir sem hún gekk með væru samvaxnir fyrr en hún var komin sjö mánuði á leið. Stúlkunum gekk vel að aðlagast lífinu þrátt fyrir að vera fastar sam­ an. Þær höfðu lært að ganga, tala og þekktu til dæmis nöfnin á öllum lit­ um. Hartman sagði eftir aðgerðina að nauðsynlegt hefði verið að fram­ kvæma aðgerðina áður en stúlkurn­ ar stækkuðu meira. Hefði hún ekki verið framkvæmd nú hefði heilbrigði þeirra í framtíðinni verið stefnt í mikla hættu. Eitt helsta vandamálið sem læknar stóðu frammi fyrir var að loka gatinu sem myndaðist á bringu og kviði stúlknanna eftir aðgerðina. Það kom í hlut lýtalæknisins Peter Lorenz að leysa það vandamál. Í sumar var byrjað að sprauta salt­ lausn inn í blöðrur sem komið var fyrir undir húðinni. Þannig teygðist á húðinni sem gerði læknum auðveld­ ara að loka gatinu þegar aðgerðin var loks framkvæmd. Einu sinni áður hefur sambæri­ leg aðgerð verið framkvæmd á Lucile Packard­sjúkrahúsinu. Það var árið 2007 þegar síamstvíburar frá Kosta­ ríka voru aðskildir. Líkt og aðgerðin á systrunum gekk sú aðgerð vel. n Tveggja ára síamstvíburar aðskildir í tíu klukkutíma aðgerð n Höfðu sameiginlega lifur og þind en sitt hjartað hvor n Móðirin þakkar Guði Grét þegar stúlkurnar hennar voru aðskildar Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is „Bata- horfurnar til lengri tíma eru mjög góðar Allt gekk vel Angelina og Angelica eru ekki lengur fastar saman eftir að hafa gengist undir aðgerð þar sem þær voru aðskildar. Flókin aðgerð Aðgerðin tók tíu klukkustundir og þurftu læknar að leysa hin ýmsu vandamál. Fangaflug Bandaríska leyniþjónustan notaði meðal annars flugvöllinn í Narsarsuaq til að flytja fanga á milli staða. Meðfylgjandi mynd er frá bænum Sisimiut á vesturhluta Grænlands. Mynd ReuTeRs Fangaflug yfir Grænland n dönsk nefnd rannsakar málið og vinnur að gerð skýrslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.