Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 23
Erlent | 23Helgarblað 4.–6. nóvember 2011 Afmælistilboð 15-40% afsláttur Laugavegi 176 www.lindesign.is Lín Design Sími 5332220 Opið laugardag 11-16 lokadagur www.lindesign.is sendum frítt á pósthús n Gríska ríkið skuldar jafnvirði um 4,8 milljóna króna á hver Grikkja n Neyðaraðstoð til Grikkja nemur um 35 billjónum króna n Fóru geyst í lántökur eftir að hafa tekið upp evru Þess vegna eru grikkir í vanda G ríska ríkið er gífurlega skuld- sett og sér ekki fyrir endann á efnahagsvandræðum rík- isins nema ráðist verði í um- fangsmiklar og sársaukafull- ar niðurskurðaraðgerðir. Leiðtogar Frakklands, Þýskalands og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins eru áhyggjufullir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar en niðurskurðaráform og aðhaldsað- gerðir hafa verið gagnrýndar harka- lega heima fyrir í Grikklandi. En af hverju er Grikkland í vandræðum? Skulda tugi billjóna króna Í grunnatriðum hafa Grikkir lifað um efni fram um margra ára skeið. Það hefur verið staðan frá því áður en landið hóf þátttöku í evrusamstarf- inu árið 2001. Þegar Grikkir tóku upp evruna var eins og olíu hefði ver- ið hellt á eldinn og fór ríkið að taka meira fé að láni og auka útgjöld sín. Skuldir gríska ríkisins hafa vaxið jafnt og þétt á síðustu árum og eftir efna- hagskreppuna sem varð árið 2008 hafa tekjustofnar ríkisins hrunið og skuldirnar nú margfalt það sem rík- ið getur mögulega greitt af þeim. Í dag skuldar ríkið um 340 milljarða evra, jafnvirði rúmlega 54 billjóna ís- lenskra króna. Á sama tímabili, eða um það bil síðustu tíu árum, tvöfölduðust laun opinberra starfsmanna á sama tíma og skattaafslættir og undanskot und- an skatti jukust mikið. Það má því með sanni segja að Grikkir hafi eng- an veginn verið í stakk búnir til að takast á við þrengingar í efnahags- málum – hvað þá nær algjört hrun. Óttast þjóðaratkvæðagreiðslu George Papandreou, forsætisráð- herra Grikklands, hefur sýnt vilja til að halda þjóðaratkvæðagreiðslu vegna krafna evruþjóðanna um að- haldsaðgerðir sem ríkissjóður lands- ins þarf að ráðast í til að fá áframhald- andi fjárhagsaðstoð. Litið hefur verið til Íslands vegna atkvæðagreiðslunn- ar en Íslendingar kusu tvívegis um Icesave-samningana en leiðtogar stærstu evruríkjanna óttast að sama niðurstaða fáist og fékkst í þjóðarat- kvæðagreiðslunum um Icesave kjósi Grikkir um neyðarpakkann – skýrt og ákveðið nei. Nú lítur hins vegar út fyrir að Papandreou muni hætta við þjóðaratkvæðagreiðsluna en hann vill að stjórnarandstaðan styðji við aðgerðirnar sem ráðast þarf í. Líklegt þykir að Grikkir myndu fella neyðarpakkann í þjóðarat- kvæðagreiðslu en svo virðist vera sem flestir Grikkja hafi engan hug á því að standa við skuldbindingar ríkisins. Heildarskuldir gríska rík- isins samsvara því að hver og einn einstaklingur skuldi jafnvirði um 4,8 milljóna króna umfram þær pers- ónulegu skuldir sem einnig eru mik- ið vandamál. Billjóna króna neyðaraðstoð Hinar þjóðirnar á evrusvæðinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sam- þykktu í maí á síðasta ári að láta Grikki hafa 110 milljarða evra neyðarlán. Í júlí síðastliðnum var svo ákveðið að láta Grikki hafa 109 milljarða evra til viðbótar vegna vandans. Strangari skilyrði voru hins vegar sett fyrir því láni sem ekki hefur verið greitt út. Meðal þess sem felst í 109 milljarða evra neyðarpakkanum er um 20 pró- senta afskrift lánardrottna gríska ríkisins. Aukin niðurskurðarkrafa fylgir einnig nýja neyðarpakkan- um. Helsti tilgangurinn með þess- um stóru neyðarpökkum er ekki endilega að bjarga Grikklandi sem slíku frá greiðsluþroti heldur að bjarga evrusvæðinu í heild sinni. Greiðsluþrot Grikklands myndi að mati margra hagfræðinga vera upphafið að endalokum evrusam- starfsins. Grikkland er ekki eina landið á evrusvæðinu sem berst við miklar skuldir því Írar, Spán- verjar og Ítalir hafa þurft að leita aðstoðar annarra Evrópusam- bandsríkja og Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins eftir aðstoð. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Íbúafjöldi: 11,32 milljónir Skuldir ríkisins: 54 billjónir króna Skuld á hvern íbúa: 4,8 milljónir króna Neyðaraðstoð: 34,79 billjónir króna Staðreyndir um Grikkland Grípa til aðgerða Leiðtogar stærstu iðnríkja evrusvæðisins hafa fundað stíft um björgunaraðgerðir til hjálpar Grikklandi en greiðsluþrot ríkisins gæti haft veruleg áhrif á evrulöndin. MyNd ReuteRS Treysta á guð Fulltrúadeild bandaríska þingsins tók sér tíma frá ýmsum mikilvæg- um verkefnum til að ræða og kjósa um hvort einkunnarorð Banda- ríkjanna ættu að fá að halda sér. Einkunnarorðin, In God We Trust, eða við treystum á guð, eru meðal annars rituð á Bandaríkjadal. Þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem kosið er um hvort einkunnarorðin eigi að fá að standa en það var gert bæði árið 2002 og árið 2006. Aðeins níu þingmenn greiddu atkvæði með til- lögunni um að fella einkunnarorðin niður en 395 þingmenn vildu halda þeim. Barack Obama Bandaríkjafor- seti gagnrýndi hins vegar umræðuna og atkvæðagreiðsluna mikið og kall- aði eftir því að þingið héldi áfram að vinna að því að skapa störf fyrir Bandaríkjamenn og koma landinu út úr efnahagsþrengingum. Vilja Silvio Berlusconi frá Enn eykst þrýstingur á að Silvio Ber- lusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segi af sér. Á fimmtudag kölluðu sex fyrr- verandi stuðningsmenn ríkisstjórn- arinnar á ítalska þinginu eftir því að Berlusconi segði af sér. Ástæðan er ekki skrautlegt líferni forsætisráð- herrans heldur stóri efnahagsvand- inn sem landið stendur frammi fyrir. Ítalir hafa verið í miklum vandræð- um frá efnahagshruninu árið 2008 og hafa ekki náð að koma landinu út úr þeim. Sjálfur hefur Berlus- coni neitað að stíga til hliðar til að hægt verði að mynda einhvers konar þjóðstjórn til að leysa úr vandan- um. Hann segist ekki ætla að stíga til hliðar nema boðað verði til nýrra kosninga og það segir hann vera óá- byrgt á meðan ekki sé búið að leysa úr vandanum. Forðast ákvörðun George Pap- andreou ætlar að láta Grikki kjósa um neyðarpakka evruríkjanna og Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Hann forðast að taka ákvörðun sjálfur en gríska þjóðin er ekki sátt við niðurskurðaráform ríkisins. MyNd ReuteRS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.