Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 36
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
5
NÓV
4
NÓV
6
NÓV
Dúndurfréttir
og Eiríkur Hauks
Hljómsveitin Dúndurfréttir hefur
stillt saman strengi sína ásamt
rokkaranum Eiríki Haukssyni en
í sameiningu ætla þeir að halda
alvöru rokktónleika í Hofi á Akur-
eyri. Þar ætla þeir að flytja það
besta úr sögu rokksins í bland
við perlur Eiríks í gegnum tíðina.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og
miðaverð er 4.400 krónur.
Matarleikhúsið Völuspá
Samstarfsverkefni leikhússins
Republique í Kaupmannahöfn,
Norræna hússins og Dill veitinga-
staðar. Sýningin byggir á ævafornum
textum Völuspár og norrænni matar-
menningu. Um er að ræða sýningu
þar sem skilningarvitin spila saman,
sjón, heyrn og tilfinning ásamt
bragði og ilman. Hefst klukkan 20 og
kostar 19 þúsund krónur.
Skálmöld á Nasa
Þungarokkssveitin Skálmöld
heldur tónleika á skemmtistaðn-
um Nasa. Auk hljómsveitarinnar
koma fram á tónleikunum Otto
Katz Orcheztra og þeir Hilmar Örn
Hilmarsson og Steindór Andersen.
Húsið er opnað klukkan 22 og
aðgangseyrir er 2.000 krónur.
Blótgoðar
Einleikur Þórs Tulinius, Blótgoðar,
er sýndur á sögulofti Land-
námsseturs í kvöld. Í leikritinu
bregður hann fram skemmtilegum
myndum af því sem fram hefði
getað farið á Alþingi dagana fyrir
og eftir að ákveðið var að taka upp
kristni á Íslandi. Sýningin hefst
klukkan 20 og miðaverð er 3.500
krónur.
Bubbi í Grindavík
Söngvarinn Bubbi Morthens heldur
tónleika í Grindarvíkurkirkju í kvöld.
Tónleikarnir eru liður í hausttónleika-
ferð Bubba um landið. Hann flytur
gamlar og góðar perlur í bland við
ný lög. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og það kostar 2.500 krónur inn.
Jón Jónsson á Akranesi
Söngvarinn og sjarmörinn Jón
Jónsson heldur tónleika á Akranesi
í kvöld. Jón er á ferð um landið og
spilar lög af plötu sinni Wait for
Fate sem kom út í sumar. Tónleik-
arnir byrja klukkan 21 og miðaverð er
2.000 krónur.
Útgáfutónleikar
Sveins Dúu
Útgáfutón-
leikar Sveins
Dúu Hjörleifs-
sonar, Værð,
verða haldnir
í Salnum í
Kópavogi, í
dag. Hann syngur þar þjóðþekkt lög
úr bókinni Íslenskt söngvasafn eða
Fjárlögum, auk laga eftir Sigvalda
Kaldalóns, Pál Ísólfsson og Björgvin
Guðmundsson. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20 og aðgangseyrir er 2.500
krónur.
Bubbi í Njarðvík
Bubbi Morthens spilar í Ytri-Njarð-
víkurkirkju í kvöld. Tónleikarnir eru
liður af tónleikaferðalagi hans um
landið. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og miðaverð er 2.500 krónur.
36 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað
„Fyndin, áferðarfalleg
og verulega ógeðsleg“
„Við gengum bæði skæl-
brosandi út af myndinni“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Raunir unglingsins
Headhunters
Kvikmynd
Midnight in Paris
Kvikmynd
A
nna Svava segir að
sér hafi fundist það
erfitt að vera ung-
lingur, kannski eins
og öllum finnist. „Ég
var eiginlega of venjuleg. Ég
var aldrei nein týpa en lang-
aði það alveg rosalega. Ég var
mjög venjuleg í útliti en var
alltaf að reyna að standa upp
úr, en það gekk ekkert. Ég var
hvorki sæt né ljót, bara ofur-
venjuleg. Ég reyndi allt til að
breyta því. Ég reyndi að fara
í svakalega megrun en það
gekk ekki upp hjá mér. Náði
að halda það út í tíu daga en
gafst svo upp,“ segir Anna
Svava og skellir upp úr. Leik-
ritið sem ber nafnið Dagbók
Önnu Knúts – helförin mín
er byggt á dagbókarskrifum
hennar og annarra ráðvilltra
unglinga frá þessum við-
kvæma aldri í lífi fólks. „Við
Gunnar Björn Guðmunds-
son skrifuðum þetta upp úr
dagbókunum mínum frá því
ég var 13, 14 og 15 ára,“ en
Gunnar Björn er líka leik-
stjóri sýningarinnar. „Síðan
fengum við líka lánaðar dag-
bækur frá öðrum frá þessum
tíma og það var alveg ótrúlega
skemmtilegt að sjá að þetta
var eins og það væri sama
manneskjan að skrifa þetta
allt.“
Umfjöllunarefni sýningar-
innar er raunir og hugarheim-
ur unglingsins. Aðallega út
frá hennar eigin hugarheimi
en Anna Svava eyddi sínum
unglingsárum í Fossvogin-
um. „Við erum að tala um
kraftgalla, hvítar gallabuxur,
landabrúsa og þetta helsta,“
segir hún um sín unglingsár
og tekur það fram að þetta sé
þó engin unglingasýning og
alls ekki fyrir viðkvæma.
Dagbækurnar skrifaði
hún þegar henni leið vel eða
illa. „Það var eiginlega eng-
inn millivegur. Annaðhvort
var ég stórkostlega glöð eða
þá að eitthvað hræðilegt
var að gerast. Það var aldrei
bara: „Já, það er góður dagur
í dag,“ heldur alltaf eitthvað
rosalegt. Annaðhvort „Ég
hata mömmu mína í dag“
eða „ég er svo ástfangin að ég
get ekki labbað og strákurinn
er með annarri,“ segir hún
hlæjandi.
Ekki stressuð yfir
skaupinu
Anna Svava útskrifaðist úr
Leiklistarskólanum árið 2007.
Síðan þá hefur hún tekið sér
ýmislegt fyrir hendur. „Ég
var í ár á Akureyri, var síðan
í ár í Stundinni okkar og lék
þar Fransínu mús. Síðustu
tvö ár hef ég síðan mest verið
að skrifa. Mér finnst ótrú-
lega skemmtilegt að skrifa.
Vinnuferlið í leiklistinni hefur
mér alltaf fundist skemmti-
legasti hlutinn, þegar maður
er að skapa persónurnar og
svona. Það er svolítið líkt því
að skrifa,“ segir Anna Svava
en hún er einmitt einn af
handritshöfundum síðustu
tveggja áramótaskaupa ásamt
því næsta. Hún segir vinnuna
við skaupið mjög skemmti-
lega þó vissulega fylgi mikil
pressa því að vera höfundur
þessa vinsælasta sjónvarps-
efnis ársins. „Maður getur
alltaf falið sig á bak við það
að við erum sex að skrifa
þetta,“ segir hún hlæjandi og
bætir við að þetta hafi verið
mest stressandi fyrsta árið.
„Það var mesta pressan þá.
Ég þorði ekki einu sinni að
horfa á skaupið með fjöl-
skyldunni minni. Fór bara
ein til vinkonu minnar. Svo
gekk það svo vel að ég er
ekkert stressuð núna,“ segir
hún. Handritið að áramótas-
kaupinu 2011 er tilbúið. „Við
vorum að skila handritinu
í síðustu viku,“ segir hún og
er leyndardómsfull um inni-
haldið. „Það er best að segja
bara ekki neitt. Þetta er eins
og með jólapakkana, það má
ekkert segja.“
Þó að handritið sé tilbúið
er samt gert ráð fyrir auka-
tökudögum ef eitthvað stór-
fenglegt gerist þessa síðustu
tvo mánuði ársins. „Tökur
hefjast núna 10. nóvember en
svo er gert ráð fyrir tveimur
tökudögum í enda desember
sem eru yfirleitt notaðir líka.“
Erfitt að kveðja börnin
Anna Svava upplifði mikið
ævintýri í sumar þegar hún lét
langþráðan draum rætast og
fór í hjálparstarf til Tógó í Afr-
íku. „Ég fór ásamt Ástu Briem
vinkonu minni og kvikmynda-
gerðarkonu. Við vorum að
vinna í þrjá mánuði á barna-
heimili á vegum samtakanna
Spes. Það voru 102 börn á
heimilinu og ég veit að það er
kannski klisjukennt að segja
Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir slær í gegn í gamanleik sem fjallar um líf hennar
sem venjulegrar unglingsstúlku sem þráir að standa upp úr að einhverju leyti. Síðustu tvö
ár hefur hún einbeitt sér meira að skriftum en leik og er meðal annars ein af höfundum
síðustu tveggja áramótaskaupa ásamt skaupi þessa árs.
Viðtal
Viktoría
Hermannsdóttir
„Ég var eiginlega
of venjuleg.
Ég var aldrei nein
týpa en langaði það
alveg rosalega.
Venjulegur unglingur Anna
Svava segist hafa verið mjög
venjulegur unglingur. Hvorki sæt né
ljót og hún þráði að skara fram úr.
Ekki stressandi lengur
Anna Svava er ekki lengur
stressuð yfir viðbrögðum
við skaupinu þar sem hinum
tveimur hafi verið vel tekið.