Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Qupperneq 18
18 | Fréttir 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað því er það mat stjórnar Fasteigna- félags Íslands ehf. að hag félags- ins sé best borgið með því að halda áfram rekstri Smáralindar undir núverandi eignarhaldi enn um sinn, en að leita jafnframt annarra sölutækifæra síðar.“ Brunaútsalan ekki hafin Af þessum sökum, vegna þess að bankarnir halda ennþá svo mikl- um eignum sem ekki hafa verið seldar, hafa uppkaup fjárfesta og annarra fyrirtækja á eignum eftir hrun ekki verið eins mikil og ætla mætti miðað við hversu mikið af eignum hefur endað inni á borði bankanna. Brunaútsalan sem tal- að hefur verið um að myndi eiga sér stað eftir hrun hefur því í reynd ekki hafist þó ýmsar eignir hafi nú þegar verið seldar út úr bönk- unum. Þeim mun lengri tími sem líður frá hruninu, og þeim mun lengur sem bankarnir sitja á fyrir- tækjum og fasteignum, þeim mun ólíklegra er að þessar eignir fáist fyrir lítið. Þegar eignirnar verða seldar bíða hins vegar ýmsir fjárfestar á hliðarlínunni með fjármagn sem þeir vilja nota til fjárfestingar hér á landi. Þetta eru bæði fjárfestar sem hafa gert sig gildandi í fjárfesting- um hér á landi eftir hrunið, fjár- festar sem eru landsþekktir vegna viðskipta sinna á Íslandi í góðær- inu og eins einstaklingar sem enn hafa ekki byrjað að fjárfesta hér á landi en leita að tækifærum. Eitt af helstu einkennum þeirra fjárfesta sem hvað mest hafa látið til sín taka hér á landi eftir hrunið er að þeir annaðhvort auðguðust erlendis eða seldu eignir sínar á Ís- landi fyrir hrunið. Þetta á til dæm- is við um Skúla Mogensen, Árna Hauksson, Hallbjörn Karlsson, Kristin Aðalsteinsson og systkin- in Guðmund Jónsson og Berglindi Jónsdóttur. Skúli umsvifamestur Skúli Mogensen er vafalítið sá fjár- festir sem hefur verið mest áber- andi í íslensku fjármálalífi eftir efnahagshrunið. Hann hefur verið mjög umsvifamikill við kaup á fyrir tækjum og stofnun nýrra eftir að hann sneri aftur til Íslands frá Kanada í kjölfar hrunsins með fulla vasa fjár – „Tilbúinn með fjóra milljarða“, eins og sagði í við- tali Viðskiptablaðsins við Skúla í árslok 2009. Síðan þá hefur Skúli meðal annars fjárfest í MP banka, Securi- tas, tölvuleikjafyrirtækinu Caoz, gagnaverinu Thor og undirbýr nú stofnun flugfélagsins WOW Air. Þá keypti hann verðmætar jarð- ir í Hvalfirði af Orkuveitu Reykja- víkur fyrr í haust. Skúli var sömu- leiðis efstur á lista yfir greiðendur hæstu auðlegðarskatta á Íslandi í fyrra: Hann og kona hans, Margrét Ásgeirsdóttir, eiga samtals tæpa átta milljarða króna samkvæmt út- reikningum út frá greiddum auð- legðarskatti. Tækifærin í krísum Skúli súmmeraði ágætlega upp viðhorf margra fjárfesta til þeirra tækifæra sem geta falist í efna- hagskrísum í viðtali við Morgun- blaðið, eftir að kaup hans og með- fjárfesta hans í MP banka lágu fyrir í apríl. Skúli sagði að hann hefði spurt sig hvort það væri klókt að kaupa banka á Íslandi á þessum tíma en að hann liti svo á að krísur, sem óhjákvæmilega fylgja hruni eins og því sem varð á Íslandi árið 2008, gætu leitt af sér tækifæri. „Ég hef spurt sjálfan mig að því hvað ég sé að koma mér út í en mín reynsla er sú að það sé kannski einmitt í krísum sem tækifærin skapast. Og það er alveg ljóst að það er mun gáfulegra að kaupa banka í dag heldur en árið 2007.“ Eins og sést á yfirlitinu yfir þá fjárfesta sem stórtækastir hafa verið í eignakaupum á Íslandi eftir hrunið er aðallega um að ræða einstaklinga sem ekki voru fremstir í flokki í útrásinni eða ís- lensku atvinnulífi á árunum fyrir hrun. Um er að ræða tiltölulega fáa einstaklinga sem hafa fjárfest í stórum eignarhlutum í dýrum fyr- irtækjum eða í fleiri en einu fyrir- tæki. Þessi hópur fjárfesta mun stækka eftir því sem bankarnir selja frá sér fleiri fyrirtæki og fast- eignir á næstu árum. Fleiri bætast við Einhver kynni einnig að spyrja sig af hverju fleiri þekktir kaupsýslu- menn úr útrásinni hafi ekki keypt upp eignir hér á landi eftir hrun. Eitt svarið við því kann að vera að fjárhagsstaða margra þeirra hafi versnað til muna á meðan ann- að er að þeir vilji halda athygl- inni frá sér í nokkurn tíma eftir íslenska efnahagshrunið. Þessir einstaklingar, til dæmis Bjarni Ár- mannsson, Hreiðar Már Sigurðs- son, Hannes Smárason og fleiri, gætu þó gerst umsvifameiri hér á landi eftir því sem lengra líður frá hruni og fleiri fyrirtæki verða seld frá bönkunum. Nokkrir einstaklingar sem einnig hafa verið nefndir til sög- unnar sem líklegir fjárfestar hér á landi eftir hrunið eru Heiðar Már Guðjónsson, sem hugðist kaupa Sjóvá ásamt Sjólaskipsfjölskyld- unni í fyrra, Örvar Kjærnested, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá FL Group, og Siglfirðingurinn Ró- bert Guðfinnsson, sem unnið hef- ur að mikilli uppbyggingu á Siglu- firði með fjármagni sem hann varð sér úti um með erlendum fjárfestingum. Nokkur fyrirtæki sem bankarnir hafa selt eftir hrun Fyrirtæki Hvenær selt Kaupandi 1. Árvakur Ársbyrjun 2009 Guðbjörg Matthíasdóttir, Samherji, Óskar Magnússon og fleiri 2. Hertz-bílaleiga Mars 2010 Hópur fjárfesta, meðal annars Sigfús R. Sigfússon í Heklu 3. Alp-bílaleiga Júní 2010 Hópur fjárfesta, meðal annars stjórnendur Alp 4. Skeljungur Júní 2010 49 prósenta hlutur seldur til Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur 5. Hekla Febrúar 2011 Friðbert Friðbertsson og Franz Jezorski 6. Steypustöðin Mars 2011 S.T. eignarhaldsfélag, í eigu Alexanders Ólafssonar 7. 66° Norður Júní 2011 50 prósenta hlutur seldur. Stefnir hf., Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66° Norður og Bjarney Harðardóttir 8. Dominos Pizza Júlí 2011 Birgir Bieltvedt 9. Hagar Febrúar og október 2011 44 prósenta hlutur seldur til Búvalla, félags í eigu Árna Haukssonar, Hall- bjarnar Karlssonar og lífeyrissjóða 10. 10-11 Júní 2011 Árni Pétur Jónsson, fyrrverandi forstjóri Teymis 11. Sjóvá Júní 2011 Rúmur 52 prósenta hlutur seldur til fagfjárfestasjóðs í eigu Arion banka 12. BM Vallá Október 2011 BHV Holding, félag í eigu Björgunar, Jarðefnaiðnaðar, Suðurverks, Gunnars og Gylfa í Bygg og fleiri fjárfesta„Segja má að í ljósi sterkrar stöðu stóru viðskiptabankanna þriggja hafi þeir ægivald yfir atvinnulífinu í dag og séu að því leytinu til ígildi viðskiptablokkar. Ólafur Ólafsson Bakgrunnur: Ólafur Ólafs- son er yfirleitt kenndur við flutningafyrirtækið Samskip. Hann var einn af kaupendum Búnaðarbankans í umdeildri einkavæðingu árið 2003. Ólafur átti hlut í Kaupþingi, eftir sam- einingu þess banka við Bún- aðarbankann, þar til bankinn féll árið 2008. Ólafur heldur Samskipum eftir fjárhagslega endurskipulagningu félagsins en missir hlut sinn í útgerðar- fyrirtækinu Granda yfir til Arion banka svo eitthvað sé nefnt. Ólafur á ennþá heilmiklar eignir á Íslandi, meðal annars stóran hlut í bifreiðaumboðinu Öskju, og umtalsvert af fasteignum. Ólafur hefur ekki fjárfest mikið á Íslandi eftir hrun, aðeins í Límtré Vírneti í heimabæ sínum Borgarnesi, en vitað er að hann á enn miklar eignir, meðal annars út af arðgreiðslum sem hann fékk frá Kaupþingi. Ólafur gæti því aukið umsvif sín hér á landi á næstu árum. Fjárfestingar eftir hrun: n Hlutur í Límtré Vírneti í Borgarnesi Guðbjörg Matthíasdóttir Bakgrunnur: Guðbjörg Matthíasdóttir er eigandi útgerðarfyrirtækisins Ísfélags Vestmannaeyja og er einn auðugasti einstaklingur landsins. Eiginmaður Guðbjargar hét Sigurður Einarsson og lagði hann grunn að auðævum þeirra hjóna með uppkaupum á aflaheimildum og hlutabréfum í Tryggingamiðstöð- inni. Sigurður lést langt fyrir aldur fram árið 2000. Guðbjörg seldi um þriðjungshlut sinn í Trygginga- miðstöðinni fyrir um 18 milljarða króna, 11 milljarðar voru í reiðufé en 7 í hlutabréfum í Glitni sem hún endaði á að tapa að hluta. Guðbjörg stendur gríðarlega vel að velli eftir hrunið þrátt fyrir að hafa tapað hluta bréfa sinn í Glitni. Í ársreikningi Ísfélagsins fyrir árið 2008 kom fram að félagið átti verðbréf upp á 18,3 milljarða króna og ríkistryggð markaðsbréf fyrir 12,4 milljarða. Á móti þessum eignum voru skuldir upp á 8,4 milljarða króna og nemur eigið fé 11,5 milljörðum króna. Ísfélagið á sömuleiðis kvóta fyrir rúma 6 milljarða króna. Fjárfestingar eftir hrun: n Hlutur í Morgunblaðinu n Lýsi – keypt í október 2008 Þorsteinn Már Baldvinsson Bakgrunnur: Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri og einn af eigendum útgerðarfyrirtækisins Samherja. Samherji hefur meðal annars keypt eignir útgerðarfyrirtækisins Brims á Akureyri eftir hrunið. Gengið var frá kaupunum í maí á þessu ári og var kaupverðið 14,5 milljarðar króna. Þá hefur Samherji verið stórtækur erlendis og meðal annars keypt útgerðarfyrirtæki í Færeyjum, Frakklandi og á Spáni. Þorsteinn Már ætlaði sér að kaupa hlut í MP banka fyrr á árinu en hætti við það vegna ósættis um stjórnar- menn í bankanum. Hann vildi fá stjórnarmann í MP banka en ekki samdist um það. Þorsteinn er gjarnan nefndur sem hugsanlegur fjárfestir í hinum og þessum verkefnum og mun örugglega láta meira að sér kveða í eignakaupum hér á landi á næstu árum. Fjárfestingar eftir hrun: n Hlutur í Morgunblaðinu n Eignir Brims á Akureyri fyrir 14,5 milljarða n Ætlaði að fjárfesta í MP banka en hætti við á síðustu stundu Gæðahreinsun Góð þjónusta Þekking Opið: mán–fim 8.00–18.00 föst 8.00–18.30 ÞVOTTAHÚS Ein elsta starfandi efnalaug hér á landi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.