Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Page 26
26 | Viðtal 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað S ævar og Sóley kynntust haustið 1996 en þá stóð bar­ átta Sævars fyrir endurupp­ töku málsins sem hæst. Þau eignuðust saman tvö börn, Victor Blæ og Lilju Rún, og fór fjöl­ skyldan ekki varhluta af fordómum samfélagsins í garð Sævars. Honum hafði verið stillt upp sem forhertum glæpamanni, gefið að sök að hafa myrt tvo menn. Framkoma almenn­ ings var eftir því. Fjölskyldan átti erf­ itt með að fá leigt húsnæði og Sævari gekk illa að fá vinnu vegna forsögu sinnar. Almenningsálitið var á þess­ um tíma þó farið að snúast honum í vil. Árið 1981 sviptu yfirvöld hann ís­ lenskum ríkisborgararétti, en hann var bæði með íslenskan og banda­ rískan ríkisborgararétt. Ríkisborg­ araréttinn endurheimti hann þó árið 2008. Reynir að láta ekki reiðina taka völdin „Ég get bara sagt eitt um þetta; rétt­ arkerfið, það grýtti Sævar til dauða. Þetta er gífurleg ábyrgð sem réttar­ kerfið ber á þessu öllu,“ segir Sóley. Hún tekur á móti blaðamanni á fal­ legu heimili sínu í Vesturbænum á köldum októbermorgni. Það er ekki orðið bjart af degi og hún hef­ ur kveikt á kertum í rökkrinu. Stór mynd af Sævari blasir við í hillu fyr­ ir ofan sjónvarpið. Hann er ungur á myndinni og virðist hamingjusamur. Þarna átti hann ennþá vonina sem hann síðar missti. Þrátt fyrir að Sóley vandi íslensku réttarkerfi ekki kveðjurnar þá segist hún reyna að láta reiðina ekki her­ taka sig. „Ég spurði Sævar út í það hvort hann hefði ekki verið reiður í garð rannsóknaraðilanna þegar hann kom úr fangelsinu en hann sagði að þetta væru þeirra gjörðir og þeirra karma. Þeir þyrftu að taka afleiðingum gjörða sinna. Það var mjög sérstakt hvernig hann náði að komast í gegnum þetta án þess að vera reiður. Ég er búin að vera mjög reið en fyrst hann gat komið að þessu máli með svona miklu æðru­ leysi þá hlýt ég að geta gert það líka,“ segir Sóley sem reynir að taka Sævar sér til fyrirmyndar. Syninum veittir áverkar í skólanum „Ef ég tala um hvernig þetta hefur snúið að mér, þá hafa fordómarn­ ir verið mjög miklir í samfélaginu. Börnin mín hafa orðið fyrir miklum fordómum og aðkasti og ég varð til dæmis að taka þau úr skóla þar sem ég bjó áður. Þar var kona sem starf­ aði sem gangavörður sem lagði fæð á börnin mín mjög lengi,“ segir Sól­ ey. Hún tekur þó fram að erfitt sé að sanna athugasemdir og orðaskipti sem fóru fram á milli barnanna og gangavarðarins. Hins vegar gerði það útslagið þegar umrædd kona réðst á drenginn hennar og veitti honum áverka. „Á þessum tímapunkti var ég búin að fá nóg. Ég ræddi við skólastjórn­ endur og menntasvið en þessari konu var ekki vikið úr starfi á með­ an málið var rannsakað. Ég þurfti að taka drenginn minn úr skólanum. Ég reyndi allt sem ég gat en ég kom alls staðar að lokuðum dyrum. Það var bara eins og þeim hefði þótt allt í lagi að þetta hefði átt sér stað.“ Sól­ ey flutti í kjölfarið og börnin henn­ ar fóru í skóla í Vesturbænum þar sem viðmótið hefur verið allt annað. Victor Blær og Lilja Rún voru upp­ haflega skráð Sævarsbörn en eftir lífsreynsluna í skólanum lét hún þau taka upp ættarnafnið sitt, Jensen. Fyrirframmótaðar hugmyndir Sjálf hefur Sóley oft fundið fyrir for­ dómum í sinn garð. Fólk hefur haft fyrirframmótaðar hugmyndir um hana og hennar hagi án þess að þekkja nokkuð til. Sóley tekur sem dæmi að af því hún er yngsta barns­ móðir Sævars, þá hafi fólk stundum spurt hana hvort hún hafi misnotað fíkniefni eða áfengi. Raunin er hins vegar sú að Sóley hefur aldrei mis­ notað áfengi eða önnur fíkniefni. Hún einfaldlega hitti mann sem hún féll fyrir. Hann var fimmtán árum eldri en hún og fortíð hans var þungur baggi að bera, en á þeim tíma var hann ekki óreglumaður. Hún segist aldrei hafa sett fortíð hans fyrir sig. Þegar þau byrjuðu að vera saman hafði hún ekki kynnt sér Guðmundar­ og Geirfinns­ málið almennilega. Það hafði þó verið rætt heima hjá henni eins og líklega á flestum íslenskum heimilum. Hvorki Sóley né fjölskylda hennar hafa nokk­ urn tíma efast um sakleysi Sævars. „Auðvitað var þetta mjög erfitt, að kynnast manni með svona erfiða for­ tíð en hann var þannig að hann hafði svo góða nærværu og svo mikla út­ geislun. Hann var ofsalega sterkur karakter, gríðarlega sterkur. Og líka hæfileikarnir hans, það var alveg sama hvað hann gerði. Hann gat allt. Þá er ég að tala um hvort sem það var tónlist eða myndlist og hann bjó til spakmæli.“ það birtir yfir Sóleyju þeg­ ar hún segir frá eiginleikum Sævars og það er ljóst að hún á margar góðar minningar af þeim saman. Hún segir hann fyrst og fremst hafa verið fallega manneskju. Stolt af Sævari Aðspurð hvort hún telji að Sævari hafi fundist hann bera ábyrgð á for­ dómum fólks í garð fjölskyldu sinn­ ar svarar Sóley því játandi. „Honum leið rosalega illa þegar hann vissi hvað hafði komið fyrir drenginn okk­ ar í skólanum. Það var mjög erfitt fyr­ ir hann að takast á við. Hann sagði: „Börnin mín urðu fyrir aðkasti“ Urðu fyrir fordómum Sóley Brynja og börn þeirra Sævars, Lilja Rún og Victor Blær, hafa mátt þola fordóma. Starfsmaður grunnskóla sem börnin gengu í lagði meðal annars hendur á Victor Blæ. Sóley Brynja Jensen er barnsmóðir og fyrrverandi sambýliskona Sævars Ciesi­ elski. Hún hefur aldrei áður tjáð sig opinberlega um það sem snýr per sónulega að henni og börnunum í umræðunni um Guðmundar­ og Geirfinnsmálið. Eftir að hafa fylgst með umræðunni síðustu vikurnar fannst henni vera kominn tími til að stíga fram og segja sögu sína. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir settist niður með Sóleyju og ræddi um lífið með Sævari, vonina, baráttuna og sorgina. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Viðtal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.