Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Blaðsíða 34
34 4.–6. nóvember 2011 Helgarblað Sakamál 1982 Peter Sutcliffe, sem fékk viðurnefnið The York­shire­Ripper, framdi sitt fyrsta morð aðfaranótt 30. október árið 1975. Fórnar­ lamb Peters var 28 ára vænd­ iskona, Wilma McCann að nafni. Þannig var mál með vexti að Wilma hafði kvöldið áður skilið börn sín ein eftir heima og farið á kráarrölt í Leeds. Á skömmum tíma tókst henni að þræða allmargar krár og var að lokum komin á krána Room At The Top þar sem hún kneifaði um stund áður en hún yfirgaf staðinn rétt fyr­ ir klukkan eitt eftir miðnætti. Eitthvað voru fætur Wilmu orðnir óhlýðnir og hún ákvað að húkka sér far heim og hafði erindi sem erfiði þegar Peter Sutcliffe, sem einnig hafði setið að drykkju þetta kvöld, bauð henni far. Wilma sá að hún gæti jafn­ vel orðið sér úti um skotsilfur og falbauð sig. Sutcliffe var ekki fráhverfur tilboði Wilmu og ók á afvikinn stað, skammt frá heimili Wilmu, sem var orðin óþolinmóð og krafði hann um fimm sterlingspund fyrir greiðann. Það leist Sutcliffe ekki á en stakk eftir smá umhugsun upp á því að þau nýttu sér grasflöt við bílinn. Þegar hann lagði kápu Wilmu á jörðina sá hún ekki að hann hélt á hamri í hægri hendi. „Komdu nú,“ sagði Wilma óþolinmóð við Sut­ cliffe, „komum þessu frá.“ Sutcliffe sagði henni að hafa engar áhyggjur og sló hana nokkrum sinnum í höf­ uðið með hamrinum. Lík Wilmu fannst rétt fyrir klukkan átta um morguninn þegar mjólkurpóstur átti leið um ásamt bróður sínum. Peter Sutcliffe virtist aftur á móti vera kominn á bragðið því þegar hann var handtek­ inn 1981 hafði hann þrettán mannslíf á samviskunni. Fyrsta morð morðingjans í Jórvíkurskíri M akedónski blaðamaður­ inn Vlado Taneski dó ekki ráðalaus í viðleitni sinni til að slá í gegn sem frétta­ haukur. En því miður þurfti annað fólk að gjalda fyrir metnað hans með lífi sínu. Taneski var enginn nýgræðingur í blaðamennsku, bjó að tuttugu ára starfsreynslu og und­ ir lok starfsferils hans voru fáir kollegar sem stóðu honum á sporði hvað varðaði rannsóknarblaðamennsku. Taneski var tromp eins virtasta dag­ blaðs Makedóníu, Nova Mekedonija, og kom með hvert skúbbið á fætur öðru inn á ritstjórn blaðsins. Þefvísi hans og dugnaður í fréttaöflun voru starfsfélög­ um hans á öðrum blöðum mikið undr­ unarefni, því á sama tíma og þeir gátu einungis fjallað um klárar staðreyndir virtist sem hann hefði aðgang að hinum minnstu smáatriðum. Fréttir hans voru forsíðuefni Nova Mekedoija og hann hafði svörin við öllum þeim spurningum sem kollegar hans veltu vöngum yfir. Bar við trúnaði Sérsvið Vlados Taneski voru glæpafrétt­ ir og árið 2005 þegar raðmorðingi lét til skarar skríða í Kicevo, bæ í vesturhluta Makedóníu, í um 112 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Skopje, var Taneski fljótur til og gaf morðingjanum viður­ nefnið Varmennið frá Kicevo. Taneski sló öllum öðrum blaða­ mönnum við í umfjöllun um morðin; var fyrstur til að taka viðtöl við aðstand­ endur fórnarlambanna, fyrstur að lýsa vettvangi morðanna, fyrstur með öll hryllileg smáatriði. Þegar starfsfélagar hans inntu hann eftir því hvernig stæði á þessu fengu þeir sígilt svar við slíkri spurningu; allir vita að góður blaðamaður gefur aldrei upp heimildarmenn sína. Svo góður og ítarlegur var frétta­ flutningur Taneskis að jafnvel lögreglan fylgdist með skrifum hans við rannsókn á morðunum. „Þessi Vlado Taneski veit allt. Hann virðist jafnvel búa yfir meiri vitneskju en við,“ var haft eftir háttsett­ um lögreglumanni. Ávallt sama aðferð Varmennið frá Kicevo unni sér lítillar hvíldar. Árið 2005 fundust líkamsleifar Mitru Simjanoska, 64 ára konu, í febrú­ ar 2007 var Ljubica Licoska, 56 ára, myrt og í maí 2008 var Zivönu Temelkoska, 65 ára, fyrirkomið. Varmennið frá Kicevo breytti aldrei aðferð sinni. Hann rændi konunum, nauðgaði þeim, banaði þeim með hníf­ stungu, sundurlimaði lík þeirra og setti líkamshlutana í plastpoka sem hann síðan losaði sig við víða um bæinn. Allar konurnar voru fátækar, ómenntaðar ræstingakonur sem, merki­ legt nokk, var einmitt lifibrauð móður Taneskis og allar höfðu þær þekkt móð­ ur hans persónulega. Sú staðreynd vakti athygli rannsókn­ arlögreglumanns sem hafði kynnt sér fréttaflutning Taneskis í þaula og við nánari athugun komst lögreglumaður­ inn að því að litlir kærleikar voru með móður Taneskis og honum. „Kannski veit hann svona mikið um Varmennið frá Kicevo vegna þess að hann er varmennið,“ stakk rannsóknar­ lögreglumaðurinn upp á. Þögull sem gröfin Grunur lögreglumannsins varð til þess að Vlado Taneski var færður til yfir­ heyrslu og var á honum að sjá að hann væri fyrst og fremst hissa á hugmynd­ um lögreglunnar: „Þið haldið varla að ég …?“ Lögreglan leitaði upplýsinga hjá eiginkonu Taneskis en kom þar að tómum kofunum. Hjónin höfðu búið saman í þrjátíu ár og samband þeirra hafði verið með eðlilegum hætti. „En við höfum ekki búið undir sama þaki í fjögur ár,“ upplýsti eiginkonan lögregl­ una um í lokin. Lögreglan lét rósemd Taneskis ekki slá sig út af laginu, tók lífsýni úr honum og fann samsvörun með því og lífsýnum sem fundist höfðu á líkamsleifum fórn­ arlambanna. Húsleit heima hjá Taneski færði lög­ reglunni frekari vísbendingar um sekt hans. En Taneski, sem var þögull sem gröfin, var handtekinn og ákærð­ ur fyrir morðin. Þremur dögum síðar fannst hann látinn í klefa sínum. Op­ inberlega var sagt að hann hefði fram­ ið sjálfsmorð, sem reyndar var framið með fremur óvenjulegum hætti; hann fannst með höfuðið ofan í fullri vatns­ fötu. Varmennið frá KiCeVo n Vlado Taneski var makedónskur blaðamaður n Hann var ótrúlega vel upplýstur um morð sem framin voru n Lögreglan studdist við fréttaflutning hans við rannsókn mála Til eldri borgara Umfelgun á fólksbíl 4900.- Umfelgun á smájeppa 5900.- Varmennið frá Kicevo Vlado Taneski fór mikinn í fréttaflutningi af morðum sem hann framdi sjálfur. Fyrsta banvæna sprautan Banvæn sprauta var fyrst notuð við aftöku í Bandaríkjunum í desember 1982. Aftakan fór fram í Hunts- ville-fangelsinu í Texas í Bandaríkjunum. Sá sem naut þess vafasama heiðurs að vera sá fyrsti sem tekinn var af lífi með þessum hætti var Charlie Brooks. Brooks hafði verið dæmdur til dauða fyrir morð sem hann framdi 1976.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.