Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2011, Side 56
Er hún
Golíat?
Davíð iðrast
n Guðfræðingurinn Davíð Þór Jóns
son bað pistlahöfundinn Maríu Lilju
Þrastardóttur afsökunar á því að
hafa hótað að stefna henni fyrir
meiðyrði. „Ég iðrast þeirrar hót-
unar,“ skrifaði Davíð á bloggsíðu
sína á fimmtudag og birti þar langa
afsökunarbeiðni þar sem hann út-
skýrði af hverju hann vildi stefna
Maríu Lilju og af hverju hann féll
frá þeirri ákvörðun.
Allt hófst þetta með
pistli Davíðs Þórs í
Fréttablaðinu um
samtökin Stóru
systur og svari
Maríu við skrifum
Davíðs.
Linda fer á
Miss World
n Fegurðardrottningin Linda Péturs
dóttir verður um helgina viðstödd
keppnina Miss World í London. Á
sunnudaginn ræðst hver hreppir
kórónuna eftirsóttu og þar með titil-
inn fegursta kona heims. Linda er ein
þriggja íslenskra kvenna sem hlotið
hafa titilinn. Hinar eru Hólmfríður
Karlsdóttir og Unnur
Birna Vilhjálms
dóttir.
Að þessu sinni
er það Sigrún Ár
mannsdóttir, 18
ára, sem keppir
fyrir hönd Íslands.
Sigrún er frá
Akranesi
og þykir
eiga góða
mögu-
leika í
keppn-
inni.
Rómantísk
hjón í Róm
n Útvarpsmaðurinn Heimir Karls
son í Bítinu á Bylgjunni sló heldur
betur í gegn hjá eiginkonu sinni,
Rúnu Hjaltested Gunnarsdóttur kenn-
ara í listasögu, þegar hann bauð
henni í ferð til Rómar. Hjónin urðu
bæði fimmtug á árinu. Í sínu eigin
afmæli fékk Heimir Egil Ólafsson,
uppáhaldssöngvara eiginkonunnar,
til þess að syngja henni til heiðurs
og fól söngvaranum jafnframt að
tilkynna henni um
Rómarferðina.
Hjónin komu frá
Róm í vikunni
eftir að róman-
tíkin hafði fengið
að blómstra í einni
af háborgum lista
og menn-
ingar.
É
g þarf að kaupa iPad-inn minn,
sem ég hef átt í um það bil ár, aft-
ur og ég veit ekki af hverjum ég er
að kaupa hann,“ segir Páll Árna-
son en hann varð fyrir því óhappi að
gleyma iPad-inum sínum í vél JetBlue
á leið frá Orlando til New York fyrir
skemmstu. Páll lét starfsfólk strax vita
en fékk þau skilaboð að ekki væri unnt
að fara aftur inn í vélina til að leita að
tækinu. Þegar hann kom til Íslands
sendi hann flugfélaginu tölvupóst en
fékk þau svör um hæl að tækið hefði
ekki fundist. Stuttu síðar fékk hann
aðra tilkynningu um að iPad-inn væri
kominn í leitirnar. Til að fá hann send-
an þyrfti hann hins vegar að gefa upp
kortanúmer sitt.
Stuttu seinna kom starfsmaður
Icetransport með iPad-inn til Páls og
reikning upp á 18.000 krónur fyrir virð-
isaukaskatti og tolli á tækinu. „Ég átti
iPad-inn skuldlaust og var með kvittun
og því ósköp einfalt að sýna fram á að
ég hefði keypt hann fyrir ári. Hann tók
það þó ekki gilt og tók tækið aftur með
sér,“ segir hann en bætir við að að lok-
um hafi hann fengið tækið afhent.
Þar með var sögunni ekki lokið
því Páll fékk svo reikning frá óskila-
munadeild JFK-flugvallar upp á tæpar
58.000 krónur. „Þar stendur að reikn-
ingurinn sé vegna kaupa á iPad-in-
um,“ segir Páll sem íhugar að leita til
lögreglu þar sem búið er að taka upp-
hæðina af VISA-kortinu hans. „Ég hef
verið í tölvusamskiptum við JetBlue en
hef ekki fengið nein svör af viti. iPad-
inn sem kostaði mig 499 dollara er nú
kominn í yfir 1.000 dollara.“
gunnhildur@dv.is
Þarf að kaupa iPad sem hann gleymdi
n Þarf að borga fullt verð fyrir iPad sem hann gleymdi í flugvél
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 4.–6. nóVeMBeR 2011 127. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Páll og iPadinn Svo virðist sem
óskilamunadeild JFK-flugvallar sé að reyna
að selja Páli hans eigin iPad.