Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Blaðsíða 8
8 Fréttir 5.–7. apríl 2013 Helgarblað Neyddi eiturlyf ofan í stúlku n Í einangrun eftir að hafa brotið á 15 ára barni kynferðislega H æstiréttur staðfesti á fimmtudaginn gæsluvarð­ haldsúrskurð yfir manni sem sakaður er um frelsis­ sviptingu, ofbeldi og kynferðis­ brot gegn fimmtán ára stúlku. At­ vikið átti sér stað á fimmtudaginn í síðustu viku en manninum er gert að sitja í varðhaldi og einangrun til klukkan 16 í dag, föstudag. Lögreglan var kölluð að húsi um klukkan 18.30 fimmtudaginn 28. mars. Þar var fimmtán ára stúlka og vinur hennar og þau voru í miklu uppnámi, hún með áverka á andliti og hálsi og hann einnig með áverka á sér. Þau sögð­ ust bæði hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu hins dæmda en hann hafði sakað þau um að stela af sér pen­ ingum og heimtaði að þau borg­ uðu honum. Maðurinn mun hafa hótað að drepa stúlkuna. Samkvæmt frásögn stúlkunnar skipaði hinn dæmdi henni að setja LCD­pappírsbút undir tungu sína og neyddi í kjölfarið am­ fetamínkristala ofan í hana – sem hún náði reyndar að frussa út úr sér. Hann neyddi hana úr fötun­ um, káfaði á henni og setti fingur inn í leggöng hennar. Einnig stakk hann hana með penna í andlit og brjóst. Annar maður reyndi á þessum tímapunkti að róa manninn niður og náði hann að hleypa stúlkunni og vini hennar út úr húsinu. Þá tókst þeim að hafa samband við lögregluna og flutti hún fórnar­ lömbin á slysadeild. n simon@dv.is eignirnar gætu glatast á Kýpur n Kýpur hefur verið vinsælt skattaskjól hjá íslenskum fjárfestum F jölmargir íslenskir fjárfestar hafa í gegnum tíðina notast við skattaskjólið Kýpur í við­ skiptum sínum. Kýpur komst nýlega í heimsfréttirnar vegna fjárhagsörðugleika banka þar í landi sem urðu til þess að Evrópusam­ bandið, Evrópski seðlabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þurftu að útvega ríkisstjórn landsins neyðarlán upp á 10 milljarða evra. Kýpur rambaði á barmi gjaldþrots um miðjan síðasta mánuð. Fyrir liggur að innistæðueigendur á Kýpur – allir sem eiga meira en 100 þúsund evrur – munu tapa fjár­ munum vegna erfiðleikanna í efna­ hagskerfi landsins. Í lok síðasta mánaðar var greint frá því að þess­ ir innistæðueigendur í Kýpurbanka, stærsta banka landsins, og í Laiki­ bankanum, þeim næststærsta, gætu tapað allt að 60 prósentum af inni­ stæðum sínum í bönkum landsins. Hugsanlegt er að einhverjir íslenskir fjármagnseigendur séu þar á meðal. Samherji umsvifamest Útgerðarfyrirtækið Samherji er um­ svifamest íslenskra aðila á Kýpur en félagið á tvö kýpversk félög, Fidelity Bond Investments og Miginato Holdings Limited, sem halda utan um útgerð sem Samherji á í Afríku. Í lok árs 2010 voru eignarhlutirn­ ir í þessum tveimur dótturfélögum metnir á rúmlega 71 milljón dollara, rúmlega átta milljarða króna á þeim tíma. Eignir þessara tveggja dóttur­ félaga Samherja eru átta verksmiðju­ togarar sem útgerðarfélagið notar til veiða í Afríku. Ástæðan fyrir því að Samherji er með eignarhaldið á Afríkuút­ gerðinni á Kýpur er líklega fyrst og fremst hagstætt skattaumhverfi. Arð­ ur Samherja af veiðum verksmiðju­ togara félagsins í Afríku er ekki skatt­ lagður þar í landi. Líkt og komið hefur fram í DV eru arðgreiðslur er­ lendra eignarhaldsfélaga þar í landi ekki skattskyldar og skipafélög á Kýpur þurfa heldur ekki að greiða skatt. Þetta kemur fram í yfirliti um skattaumhverfið á Kýpur sem endur­ skoðendaskrifstofan Deloitte hefur unnið og aðgengilegt er á vefsíðu fyrir tækisins. Í yfirliti Deloitte kemur fram að tekjur og arður af starfsemi fyrirtækja utan Kýpur sem eru í eigu eignarhaldsfélaga þar í landi séu undanþegnar skatti. Tekjuskattur á fyrirtæki nemur almennt 10 prósent­ um á Kýpur en þetta á ekki við þegar tekjur fyrirtækisins eru tilkomnar í öðru landi. Orðrétt segir um þetta í yfirlitinu þar sem rætt er um skil­ yrði fyrir því að fyrirtæki þurfi ekki að greiða skatt: „Tekjur frá fyrirtækjum utan Kýpur.“ Sama við um arðgreiðsl­ ur frá fyrirtækjum sem ekki eru skráð á Kýpur. Stofnuðu félag á Kýpur Af öðrum íslenskum fjárfestum sem notað hafa kýpversk eignarhalds­ félög til viðskipta sinna má nefna Björgólf Thor Björgólfsson, sem meðal annars átti í félaginu Bell Global auk þess sem bjórverk­ smiðjan Bravo var stofnuð á grunni eignarhaldsfélaga sem skráð voru á Kýpur; Magnús Pálma Örnólfsson, fyrrverandi starfsmann Glitnis, og fjórmenningana sem ákærðir hafa verið fyrir gjaldeyrisbrask í hinu svokallaða Aserta­máli. Magnús Pálmi er stjórnarmaður og framkvæmdastjóri íslenska eignarhaldsfélagsins Storm Capital sem stofnað var árið 2009. Í árs­ reikningi félagsins kemur fram að tilgangur félagsins sé „verðbréfa­ eign, kaup og sala verðbréfa, rekstur fasteigna, fjármálaráðgjöf og lána­ starfsemi“. Þá segir: „Félagið er að öllu leyti í eigu Meritzi ltd.“ Þetta félag Meritzi ltd. er skráð á Kýp­ ur og á Storm Capital kröfu á þetta móðurfélag sitt upp á meira en 144 milljónir króna. Íslenska félagið á því hagsmuna að gæta hjá kýp­ verska félaginu upp á meira en 144 milljónir. Í Aserta­málinu stofnuðu fjór­ menningarnir, þeir Markús Máni Michaelsson, Karl Löve, Gísli Reyn­ isson og Ólafur Sigmundsson, eignarhaldsfélag á Kýpur sem talið er að hluti ágóða þeirra af gjaldeyris­ viðskiptunum, sem þeir eru ákærðir fyrir, hafi runnið til. Um er að ræða 656 milljónir króna sem talið er að fjórmenningarnir hafi fengið fyrir viðskiptin. Um þetta segir í ákærunni: „Fyrirliggjandi sakargögn sýna að ákærðu gerðu a.m.k. ráðstaf­ anir til þess að láta slíkan ávinning renna til aflandsfélags eða – félaga í endanlegri eigu eða undir raunveru­ legri stjórn ákærðu. Sakar gögn sýna einnig að sakborningar létu stofna félag á Kýpur, sem var í endanlegri eigu þeirra, í þessu skyni.“ Nokkrir íslenskir aðilar eiga því verulegra hagsmuna að gæta á Kýpur. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Nokkrir íslensk- ir aðilar eiga því verulegra hagsmuna að gæta á Kýpur. Umsvif í gegnum Kýpur Fjölmargir íslenskir fjárfestar og kaupsýslumenn hafa í gegnum tíðina notast við Kýpur í viðskiptum sínum. Meðal þeirra eru Samherji Þorsteins Más Baldvinssonar, Björgólfur Thor Björgólfsson og Markús Máni Michaelsson, sem nýlega var ákærður fyrir stórfelld brot á gjaldeyrishaftalögum. Hótaði með blóðugri sprautunál „Viljið þið að ég stingi ykkur með nál,“ spurði tuttugu og þriggja ára kona lögreglumenn sem reyndu að fá hana til að færa sig út úr for­ stofu Hjálpræðishersins í byrjun janúar á þessu ári. Konan var á fimmtudag dæmd í 15 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík­ ur fyrir þjófnað, umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Kon­ an kom í slagtogi við annan mann í forstofuna og hreiðruðu þau um sig þar. Þau munu hafa ætlað að gista þar um nóttina. Þegar hús­ vörður tók eftir þeim sá hann strax að fólkið var undir áhrifum vímu­ efna. Maðurinn reyndist mjög ógnandi í framkomu og húsverðin­ um gekk illa að koma parinu út. Hann hringdi því á lögregluna sem á vettvangi var hótað af konunni með blóðugri nál og maðurinn tók í sama streng og kvaðst eiga nóg af nálum. Lögreglan kallaði eftir liðs­ auka og var parið yfirbugað eftir mikinn mótþróa. Konan rauf með brotum sínum skilorð og er dómur hennar nú því óskilorðsbundinn. Vínþjófar handteknir Á miðvikudagsmorgun var til­ kynnt um innbrot á veitingahús­ ið Cornero við Skólaveg í Vest­ mannaeyjum. Þjófarnir höfðu brotist inn um nóttina og haft á brott með sér töluvert magn af áfengi. Var þetta í annað skiptið á nokkrum dögum sem brotist var þar inn en síðdegis á miðvikudag handtók lögreglan í Eyjum þrjá menn grunaða um innbrotið. Við húsleit hjá einum þeirra fannst hluti áfengisins sem talinn er vera úr innbrotinu.Tveir af þessum þremur viðurkenndu aðild að síð­ ara innbrotinu, annar er 16 ára en hinn 19, en báðir hafa komið við sögu lögreglu áður. Þeir könn­ uðust ekki við að hafa tekið þátt í fyrra innbrotinu og var þeim sleppt að lokinni yfirheyrslu. Káfaði á stúlku og stakk hana Mað- urinn neyddi stúlkuna til þess að innbyrða eiturlyf, neyddi hana úr fötunum, káfaði á henni og setti fingur inn í leggöng hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.