Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Side 27
Umræða 27Helgarblað 5.–7. apríl 2013 Við bjóðum góða þjónustu islandsbanki.is | Sími 440 4000 E N N E M M / S ÍA / N M 5 11 4 2 Vilborg pólfari átti sér þann stóra draum að ganga á suðurpólinn og hún gerði hann að veruleika með því að setja sér markmið. Íslandsbanki býður viðskiptavinum upp á frábæran fyrirlestur með Vilborgu þar sem hún segir frá því hvernig lítil markmið geta á endanum orðið að stórum sigri. Hér býðst unglingum og foreldrum kjörið tækifæri til að hlusta saman á uppbyggilegan fróðleik. #svaltmarkmið Það er svalt að setja sér markmið Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari Við bjóðum þér að hlusta á Vilborgu pólfara í Háskólabíói: mánudaginn 8. apríl kl. 18 miðvikudaginn 10. apríl kl. 18 Skráðu þig á islandsbanki.is/fyrirlestur og þú mátt taka einn vin með. „Ég fann sjálfa mig á fjalli“ Vill gera stjórnmál skemmtilegri greiðslu án umræðu. Við setjum þetta mál mjög á oddinn og setjum það sem skilyrði fyrir samstarfi við aðra að þetta mál verði klárað með þjóðaratkvæðagreiðslu. Stefán Kristinsson: Viljið þið banna verðtryggingu lána til einstaklinga?  Heiða Kristín Helgadóttir Verð­ trygging er til staðar vegna þess að við búum við ónýtan gjaldmiðil og mikla verðbólgu. Þú hefur kost á því í dag að taka þér óverðtryggt lán. Það sem þarf er stöðugur gjaldmiðill sem gerir verðtryggingu óþarfa. Steindór Halldórsson: Hvenær kemur sú tíð að fólk sjái lánin sín lækka við hverja og eina afborgun??  Heiða Kristín Helgadóttir Þegar við búum við stöðuga efnahagsstjórn og stöðugan gjaldmiðil. Sem sagt þegar Björt framtíð kemst til valda :) Helgi Ólafsson: Sæl vertu. Mig langaði að spyrja þig um heilbrigðismál, sjáið þið ykkur fært að auka fjármagn til heilsugeirans og hvernig þykir ykkur ástand spítalanna vera í dag? Ólafur Skúlason: Sæl, hver eru áherslumál ykkar í heilbrigðiskerfinu? Hver er ykkar skoðun á nýjum Landspítala? Hvert á þjónustustig heilbrigðis­ kerfisins á landsbyggðinni að vera að ykkar mati? Hvernig ætlið þið að jafna kynbundinn launamun á milli ríkisstarfsmanna?  Heiða Kristín Helgadóttir Ástandið er ekki gott. En við teljum mjög mikilvægt að sam­ hliða uppbyggingu Landspítalans verði farið í mjög öfluga uppbyggingu á heilsugæslu úti um allt land. Við erum fylgjandi byggingu nýs Landspítala því hún hefur í för með sér gríðarlega hagræðingu í rekstri spítalans sem gæti þá frekar farið í þjónustu. Fjórðungs­ sjúkrahús og öflug heilsugæsla úti um allt land með stuðningi frá öflugu þjóðarsjúkra­ húsi er e­ð sem við lítum til til framtíðar. Í dag erum við að vísa fólki í mjög dýr úrræði. Það er að okkar mati sóun á fjármunum og hæfileikum. Það þarf til dæmis að skoða miklu betur hvernig fjarskiptatækni getur leyst vanda – samskipti við fagfólk þurfa ekki öll að fara fram „físískt“. Við verðum að vera óhrædd við að leita ólíkra leiða og prófa blandað form af t.d. rekstri – það þarf þó alltaf að vera tryggt að aðgangur sé jafn. Kristján Haraldsson: Af hverju á fólk frekar að kjósa Bjarta framtíð en Samfylkinguna? Hannes Hall: Hver er helsti munurinn á Bjartri framtíð og Samfylkingunni?  Heiða Kristín Helgadóttir Björt framtíð er nýr flokkur. Við erum búin að vera til í eitt ár – en höfum verið að vinna í þessu í tvö ár. Við erum frjálslyndur flokkur og viljum að fólk fái jöfn tækifæri – hvernig það fer svo með þau tækifæri er á þeirra ábyrgð. Við erum opinn og nútímalegur flokkur sem leggur áherslu á að nota netið til samskipta og skoðanaskipta í stað leiðinlegra funda. En fyrir utan allt þetta þá talar fólk í Samfylkingunni saman á sænsku og syngur maístjörnuna þegar það hittist – það gerum við ekki. Agnar Þorsteinsson: Hvernig hafið þið hugsað ykkur að taka á kennitöluflakki, skattaundanskotum, peningaundan­ skotum til skattaskjóla, skúffufyrirtækjum í kringum hlutabréf og lán, því að fjárfestar borgi ekkert til sveitarfélaga vegna fjármagnstekna auk annars hefðbundins sóðaskapar og spillingar íslensks viðskiptalífs?  Heiða Kristín Helgadóttir Við höfum ekki mótað okkur stefnu í þessu málum. Ég hvet þig til þess að fara inn á heimasidan.is og koma með tillögu að lausn og þannig getum við hin kynnt okkur þetta betur. Birgir Olgeirsson: Ef framtíð heimsbyggðarinnar myndi ráðast af þinni ákvörðun um að velja annaðhvort Sjálfstæðisflokkinn eða Hægri græna til stjórnarsamstarfs, hvor yrði fyrir valinu?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég hef ekki hugmynd um það:) Sævar Magnússon: Hvað þýðir „minna vesen“? Er þetta ekki frekar almenn og ómarkviss yfirlýsing?  Heiða Kristín Helgadóttir Nei, alls ekki. Það er mjög hár vesensþröskuldur í þessu litla samfélagi. Við höfum um margt flækt hlutina fyrir okkur. Að greiða götur fólks í lífinu á að vera hlutverk hins opinbera – ekki að þvælast fyrir og búa til rugling. Það er t.d. óhemju flókið að stofna hér lítið fyrirtæki. Mannanafnanefnd er dæmi um óþarfa vesen. Páll Sveinsson: Hver er afstaða þín til menntamála á Íslandi? Þá sérstaklega grunnskólans?  Heiða Kristín Helgadóttir Mér finnst við þurfa að vera óhrædd við að prófa nýjar leiðir í skólastarfi. Við þurfum að horfast í augu við það að okkur er ekki að takast að mennta unga fólkið okkar. Brottfall úr framhalds­ skóla er hærra hér en í öðrum Vesturlöndum. Sú þróun byrjar í grunnskóla. Drengjum leiðist í skóla. Við megum ekkert bíða og sjá – við verðum að bregðast við. Það eru vísar að þessu víða í kerfinu í dag, en við þurfum að gera þetta mun markvissara og vera óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir. Hjalti Atlason: Er Björt framtíð með einhverja stefnu sem snýr að húsaleigumarkaðnum, margt fólk er á leigumarkaðnum í dag og vill oft gleymast í allri umræðunni um skuldavanda heimilanna?  Heiða Kristín Helgadóttir Hjartanlega sammála þér þar Hjalti. Þetta er mjög týndur hópur. Við viljum að hér komist á heilbrigður húsaleigumarkaður. Breytingar á húsnæðis­ bótakerfinu eru t.d. mjög mikilvægar. Nú þegar er verið að færa húsaleigubætur nær vaxtabótum í skrefum og það er mikilvægt að það haldi áfram. Eins er mjög mikilvægt að skipulagsyfirvöld hjá sveitarfélögum skipuleggi byggð þannig að tiltekinn hluti íbúða skuli vera undir leiguhúsnæði. Það er t.d. stefna núverandi meirihluta í Reykjavík. Þetta er mikilvægt. Bjorn Steinbekk: Hæ Heiða, hvernig getum við Framsóknarmenn hætt að pissa í skóinn okkar?  Heiða Kristín Helgadóttir Það er til svona tæki hjá Eirberg með skynjara sem pípir mjög hátt þegar þú ert við það að fara að pissa. Ég mæli eindregið með því að þið fjárfestið í svona græju. Baldur Kristjánsson: Hvernig ætlar Björt framtíð að taka á vörugjaldafrum­ skóginum til hagsbóta fyrir íslenska neytendur?  Heiða Kristín Helgadóttir Þetta er einmitt e­ð sem myndi heyra undir áherslu okkar um minna vesen – þetta heftir og flækir sem er ekki gott og gerir fólki erfiðara fyrir að vera ábyrgir neytendur. Níels Ársælsson: Takk fyrir svarið áðan. Hvernig hyggist þið tryggja nýliðun í kvótakerfinu og eruð þið fylgjandi nýtingarsamningum núverandi kvótahafa til 20 ára eins og kom fram í frumvarpi SJS?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég verð að viður­ kenna að ég er ekki sérfræðingur Bjartrar framtíðar í sjávarútvegsmálum. Árni Múli, oddviti okkar í Norðvesturkjördæmi, veit hins vegar allt um sjávarútvegsmál. Ég mun mælast til þess að hann verði næsti maður okkar hér í Beinni línu. Inga Skuladottir: Sæl Heiða, hvernig ætlið þið að stuðla að jafnrétti kynjanna og útrýma kynbundnum launamun?  Heiða Kristín Helgadóttir Þar spilar margt inn í. Meðal annars það að vera fyrirmynd. Björt framtíð er mjög jafnréttissinnaður flokkur og það sýnum við meðal annars með því að vera með tvo formenn – af báðum kynjum. Ég er ekki með töfralausn til að útrýma kynbundnum launamun en tel þó að þar þurfi að koma inn sértækar aðgerðir og fjármagn með mjög markvissum hætti og mér finnst það mjög réttlætanlegt því án þess búum við ekki við fjölbreytt samfélag. Konur og karlar eiga að fá sömu laun fyrir sambærileg störf. Ægir Sævarsson: Getur þú nefnt nákvæmlega, þ.e. gefið dæmi um, hvað eigið við með orðunum að „búa til betra samfélag“? Þetta segir eiginlega ekki neitt.  Heiða Kristín Helgadóttir Samskipti eru mikil lykilbreyta í þessu samhengi. Samfélag sem er byggt upp á frekju, yfirgangi og sérhagsmunum er ekki gott samfélag. Björt framtíð leggur áherslu á að koma vel fram og taka þátt í málefnalegri gagnrýni. Björt framtíð er ekki tengd við sérhagsmuni aðra en þá að gera eins vel og við getum. Þetta kann að hljóma eins og ómerkilegt þvaður. En þetta er ekki fyrir hendi og er meðal annars það sem gerir þetta samfélag ekki eins gott og það gæti verið. Mér finnst t.d. betra að búa í Reykjavík núna, en fyrir fimm árum þegar borgarpólitíkin logaði í bakstungum og rugli. Astridur Jonsdottir: Getur Björt framtíð aukið traust almennings á Alþingi?  Heiða Kristín Helgadóttir Já. Adam Hoffritz: Er Björt framtíð alvarlegri flokkur en Besti flokkurinn? Hvernig er húmorinn öðruvísi?  Heiða Kristín Helgadóttir Besti flokkurinn er hugarástand. Björt framtíð er stjórnmála­ flokkur sem byggir á þessu hugarástandi. Edda Kentish: Sæl Heiða, hefur Björt framtíð mótað sér stefnu varðandi hugverkaréttindi sem hluta af efnahagsmálum?  Heiða Kristín Helgadóttir Nei, ekki beint. En þetta er áhugaverð pæling sem mig langar mjög að sjá sem hugmynd frá þér inni á heimasidan.is. Sigurður Traustason: Á RÚV að vera á auglýsingamarkaði?  Heiða Kristín Helgadóttir Nýverið hefur verið samþykkt að draga úr áhrifum RÚV á auglýsingarmarkaði – sem mér finnst jákvætt skref. Sjálfri finnst mér ástæða til að skoða þetta mun betur og jafna stöðuna. Jón Reynisson: Í kjarna stefnunnar ykkar er „minni sóun“. Geturðu nefnt sértækt dæmi um hvernig þið munið minnka sóun og hversu mikill sparnaðurinn af því verður?  Heiða Kristín Helgadóttir T.d. í heilbrigðis­ kerfinu, eins og ég nefndi að framan. Fólki er beint í mjög dýr úrræði – til sérfræðinga eða álíka – í stað þess að heilsugæslan virki sem skyldi og skimi betur. Það er líka mikil sóun á hæfileikum fólks að við séum ekki með menntakerfi sem sinnir betur fjölbreytni samfélagsins, samanber brottfall úr fram­ haldsskólum sem skerðir möguleika fólks til atvinnu í framtíðinni og lífsgæða. Einnig er mikil sóun fólgin í því að þær auðlindir sem við erum að nýta í dag skila okkur margar ekki auði. Við teljum að þetta allt megi nýta mun betur. Ég er ekki með tölu í kollinum um hvað þetta þýðir í krónum. Viktoría Hermannsdóttir: Hvaða flokki eða flokkum gæti Björt framtíð helst hugsað sér að starfa með?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég hef sagt það áður að það skiptir miklu máli hvernig næstu vikum vindur fram og hvernig fólk hagar sér í aðdraganda kosninga. Þar að auki finnst okkur skipta máli að geta séð fyrir okkur að samstarfsflokkurinn sé til í að taka á erfiðum málum og óhræddur við að gera það sem þarf að gera. Svo setjum við aðildarviðræður við ESB og stjórnarskrána á oddinn líka. Þannig að þeir sem standast þessar kríteríur eru „golden“. Guðmundur Baldursson: Telurðu koma til greina að laun verði verðtryggð?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég þekki það ekki. Verkefnið er að búa til grunn þar sem verðtrygging er óþörf. Haraldur Kjartansson: Hvernig samfélag viltu sjá á Íslandi?  Heiða Kristín Helgadóttir Fjölbreytt, opið og skapandi samfélag sem er bæði bjart og best. Ólafur Guðmundsson: Hefur þú eða þinn flokkur einhverjar tillögur/úrlausnir til þess að bæta mögulegan framtíðarvinnustað þinn þ.e.a.s. Alþingi? Kristjana Gudbrandsdottir: Hvernig líst þér á vinnustaðinn Alþingi?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég var dáldið smeyk við vinnustaðinn Reykjavíkur­ borg fyrir þremur árum síðan. Í dag finnst mér þetta besti vinnustaður sem ég hef unnið á. Þar starfar ótrúlega fjölbreytt, áhugavert og hæfileikaríkt fólk – það bara náði ekki að láta ljós sitt skína út af öllum þessum leiðindum sem tóku of mikið pláss. Ég hef trú á því að enginn vilji hafa Alþingi á þeim stað sem það er núna – alveg óháð flokkum. Það þarf bara einbeittan vilja til að takast á við vandamálin með öðrum leiðum en óvirðingu. Þann vilja höfum við og höfum líka ljóslifandi dæmi fyrir framan okkur í Reykjavík. Vinnu­ staðir standa og falla með fólkinu sem þar er og hvernig fyrirmyndir það er fyrir aðra á vinnustaðnum. Mér finnst það hafa tekist vel með tilkomu Besta flokksins í Reykjavík að sýna að gleði er ekki merki um heimsku – heldur miklu frekar hæfni í mannlegum samskiptum. Hordur Agustsson: Eru nógu margir á Alþingi búnir að horfa á The Wire að þínu mati?  Heiða Kristín Helgadóttir Ég á eftir að gera hausatalningu. En það er forgangsmál. Ég er frekar hrædd um að niðurstaðan verði ekki Wire í hag. En það er nægur tími fram að kosningum til að halda vídeókvöld í þinginu. Vésteinn Gauti Hauksson: Sæl Heiða. Hvaða von gefur Björt framtíð Íslendingum?  Heiða Kristín Helgadóttir Að bráðum komi betri tíð! Nafn: Heiða Kristín Helgadóttir Aldur: 29 Menntun: Stjórnmála­ fræðingur. Starf: Framkvæmdastjóri Besta flokksins og stjórnar­ formaður Bjartrar framtíðar. M y N d IR SIG TR y G G u R A R I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.