Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 28
28 Viðtal 5.–7. apríl 2013 Helgarblað
Jón Gnarr hefur nú setið rúm-
lega 1.000 daga í stóli borgar-
stjóra Reykjavíkur, eða lengur
en síðustu sjö borgarstjórar
á undan honum. Hann hefur
verið sakaður um taka starf
sitt ekki alvarlega, enda grínisti
að upplagi. Jón situr hins vegar
sem fastast. Hann er stoltur af
framlagi sínu sem borgarstjóri
en nú eru hins vegar blikur á
lofti, Jón er kominn í framboð til
Alþingis fyrir Bjarta framtíð.
Þ
að var sólríkan vetrardag sem við hitt-
um borgarstjórann á skrifstofu hans
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Jón Gnarr var
nýbúinn að ljúka fundi en var vel
upplagður, flissandi eina stundina
en alvarlegur þá næstu. Hann seg-
ist heldur ekki taka sig of alvarlega og er líklega
stjórnmálamaður sem á engan sinn líka. En
hann tekur starfi sínu alvarlega og segist vera
stoltur af því að vera borgarstjóri.
1.000 daga í borgarstjórastóli
„Ég er í raun stoltur af mjög mörgu. Ég er til
dæmis stoltur af því hvernig okkur hefur tek-
ist að leysa úr nokkrum flóknum málum. Að-
gerðaáætlun til að leysa vanda Orkuveitunn-
ar sem dæmi. Ég er mjög stoltur af því. Síðan
er fullt af hlutum sem ég hef gert sem virðast
smávægi legir, en ég er samt stoltur af þeim. Ég
er til dæmis mjög stoltur af því að keyra Lækjar-
götuna og sjá höggmyndina af Vatnsberanum á
horninu við Bankastræti. Það fyllir mig gleði að
sjá verkið þar. En engu að síður er ég bara stoltur
af því að hafa komist hingað. Ég er búinn að
vera borgarstjóri í meira en 1.000 daga, og er þar
með búinn að vera lengur borgarstjóri en nokk-
ur annar síðan 2003. Lengur en Hanna Birna og
Ólafur F. Magnússon til samans! Auðvitað er ég
stoltur af því að þetta hafi tekist. Við vissum lítið
hvað við vorum að gera en þetta tókst.“
Hefur reynt að vera auðmjúkur
Þegar Jón var í framboði voru fáir sem tóku
hann alvarlega. Þegar fylgi Besta flokksins jókst
var annað uppi á teningnum. Mótframbjóðend-
ur vissu vart í hvorn fótinn átti að stíga og bentu
í sífellu á að Jón væri grínisti og að starf borgar-
stjóra væri ekkert grín. Fór það fyrir brjóstið á
Jóni?
„Nei, í raun ekki. Ekki í kosningabaráttunni
að minnsta kosti, þá átti ég einfaldlega von á
því. En nú orðið finnst mér oft dónalegt hvern-
ig komið er fram við Besta flokkinn, eftir allt sem
við erum búin að gera. Framboð okkar hefur
vakið alþjóðlega athygli og þetta var algerlega
einstakt. Fulltrúar annarra stjórnmálaflokka láta
enn að því liggja að við séum bara bjánar. Það
fer stundum í mig. Hugsaðu þér, þetta framboð
leiddi til þess að Óttarr Proppé er orðinn stjórn-
málamaður. Það er varla til betri stjórnmála-
maður en einmitt hann! Þá spyrja sumir hvort
brandarinn sé ekki búinn, ég svara því bara að
hann sé rétt að byrja.“
En er eitthvað sem þú hefðir getað gert betur?
Hafa gagnrýnendur þínir haft rétt fyrir sér að
einhverju leyti?
„Nei, mér finnst það ekki. Ég hef alltaf reynt
að gera mitt besta. Mér finnst ég hafa verið
Brandarinn rétt að byrja
„Ég myndi
skilgreina
sjálfan mig á
næsta bæ við
öfgafemínista
Björn Teitsson
bjorn@dv.is
Viðtal