Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2013, Qupperneq 56
Var bón-
orðið
nokkuð í
gríni?
Sölvi til Asíu
n Fjölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason lagði á miðvikudaginn
af stað í ferðalag til Asíu. Litlu
mátti þó muna að hann hætti
við. „Hætti næstum við í dag
þegar ég áttaði mig á því að ég
mun missa af heilum mánuði af
æsispennandi umræðu um Al-
þingiskosningar. En maður verður
stundum að standast
freistingar. Adios!“
skrifaði Sölvi af
þessu tilefni á
Facebook-síðu
sína og greina
mátti kaldhæðni í
orðum hans.
„Ekkert vesen“
n Birgitta Jónsdóttir, alþingiskona
og oddviti Pírata í Suðvesturkjör-
dæmi, lenti í New York-borg í
Bandaríkjunum á miðvikudags-
kvöldið. Hún mun dvelja þar fram
yfir helgi til þess að taka þátt í við-
burði til stuðnings Bradley Mann-
ing, sem hefur verið í haldi síðan í
maí 2010 fyrir að leka skjölum til
Wikileaks.
Gögnin urðu meðal annars til þess
að Wikileaks birti myndskeið úr
herþyrlu Bandaríkjamanna, þar
sem skotið er á óvopnaða borgara.
Birgitta hefur, ásamt fleiri stuðn-
ingsmönnum Wikileaks, verið
rannsökuð af bandarískum yfir-
völdum fyrir þátttöku
sína í starfsemi sam-
takanna. Birgitta
sendi sms-skila-
boð til Íslands eft-
ir að hún steig út
af John F. Kenn-
edy-flugvellinum:
„Ekkert ves-
en:)“ skrifaði
þingkonan.
Pólfari kennir
unglingum
n Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari
hefur skrifað undir samstarfs-
samning við Íslandsbanka. Vilborg
Arna mun halda fyrirlestraröð fyrir
unga viðskiptavini bankans á aldr-
inum 14 til 20 ára en á fyrirlestrun-
um mun hún fjalla um markmiða-
setningu og leiðir til að vinna að
settum markmiðum.
„Markmiðasetning er góð leið til
að láta drauma sína rætast og ná
lengra í lífinu. Það er gott að brjóta
stór markmið niður í minni verk-
efni. Ef maður missir aldrei sjón-
ar af stóra markmiðinu og fagnar
litlum sigrum þá kemur að því að
maður nær því sem lagt var upp
með,“ segir Vilborg Arna um málið.
Líkt og kunnugt er er Vilborg
Arna fyrsta íslenska konan
sem farið hefur í
skíðaleiðangur á
suðurpólinn, og
fyrsti Íslendingur-
inn sem farið
hefur í slíka
ferð einn síns
liðs. Gangan
tók hana
60 daga.
H
ún var alltaf að tala um að
við þyrftum að fara að gifta
okkur þannig ég ákvað að
kýla bara á það þarna,“ segir
Björn Steinar Stefánsson sem gerði
sér lítið fyrir og bað sinnar heittelsk-
uðu, Huldu Alfreðsdóttur, á átjándu
holu á golfvelli.
Þau Björn og Hulda voru stödd í
páskaferð á Islantilla með Vita golf-
ferðum þegar Björn ákvað að láta
verða af því að biðja Huldu. „Mér datt
þetta bara í hug því hún var nýbyrjuð
í golfi með mér og við að fara í þessa
páskaferð,“ segir Björn sem hafði
skipulagt bónorðið. Hringinn keypti
hann heima á Íslandi. „Ég geymdi
hann í læstri hirslu í vinnunni þang-
að til við fórum út þá geymdi ég hann
í jakkavasanum og lét svo Ragga vin
minn geyma hann.“
Raggi þessi var einmitt í golf-
ferðinni með þeim ásamt eiginkonu
sinni og þau hjálpuðu til við að koma
hringnum fyrir á 18. holu og þar fann
Hulda hringinn. „Við pössuðum vel
upp á að hún fattaði ekki neitt, Raggi
fór þarna á undan og setti hringinn
ofan í. Svo gætti hann þess vel þegar
hann tók sína kúlu upp úr að taka
ekki boxið með. Síðan þegar hún
náði í sína kúlu þá sá hún eitthvað
ofan í holunni og tók boxið upp úr.
Hún fattaði þetta alveg um leið,“ segir
Björn. Þegar Hulda hafði fundið box-
ið tók hann það af henni og fór niður
á hnén. „Ég tók af henni hringinn og
skellti mér á hnén,“ segir hann hlæj-
andi. Hulda játaðist honum og ætla
þau að gifta sig þann 6. september
næstkomandi. n
viktoria@dv.is
Skellti sér á skeljarnar á 18. holu
n Björn Steinar bað sinnar heittelskuðu á golfvelli á Spáni
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 5.–7. Apríl 2013 38. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
rómantík Björn hafði skipulagt bónorðið
fyrirfram og lét til skarar skríða á „gríninu“.