Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Blaðsíða 2
ný Vitni hafa stigið
fram í iKEa-málinu
2 Fréttir 24. júní 2013 Mánudagur
Elítunemendur standa sig ekki betur
n Skiptir ekki máli hvaðan þú útskrifast
L
ítill munur er á einkunnum
nemenda við Háskóla Íslands
þegar búið er að greina
þær eftir framhaldsskólum.
Þetta kemur fram í samantekt frá
Kennslusviði Háskólans. Meðal-
einkunn nemenda á grunnskóla-
prófi sem hefja nám í framhalds-
skólum landsins er mjög misjöfn.
Á meðan sumir skólar gera einung-
is kröfu um lágmarkseinkunn á
tíundabekkjarprófi þegar þeir velja
inn nemendur gera vinsælustu
skólarnir kröfur um mjög háar
einkunnir. Eins og komið hef-
ur fram í DV vildi rúmlega þriðj-
ungur tíundu bekkinga sem út-
skrifaðist í vor komast inn í fjóra
vinsælustu framhaldsskólana,
Verslunarskólann, Menntaskólann
við Hamrahlíð, Kvennaskólann og
Menntaskólann í Reykjavík. Inn í
þessa skóla er lítil von fyrir grunn-
skólanema sem eru með undir átta í
meðaleinkunn á tíundabekkjarprófi
að komast. Það mætti því draga þá
ályktun að nemendum sem út-
skrifast úr þessum skólum hljóti að
vegna mun betur í námi við HÍ en
þeim sem koma úr öðrum skólum.
Þeir standa sig ágætlega, eru í flest-
um greinum með hærri einkunn en
meðaltalið segir til um, en munur-
inn er ekki ýkja mikill.
Kennslusvið Háskóla Íslands
hefur skoðað dreifingu einkunna
grunnnema við skólann frá 2008
til 2011. Í rannsókninni voru loka-
einkunnir í námskeiðum rúmlega
16 þúsund einstaklinga skoðaðar.
Lögfræðin hefur í áranna rás ver-
ið ein af vinsælli greinunum í Há-
skólanum. Meðaleinkunn í grein-
inni var 5,70. Þegar einstakir skólar
eru skoðaðir eru nemendur sem
útskrifuðust úr MR með hæstu
meðaleinkunnina 6,42 en á hæla
þeim koma stúdentar sem útskrif-
uðust úr Fjölbrautaskóla Norð-
urlands vestra með 6,22. Lægstu
meðaleinkunnina áttu hins vegar
nemendur sem útskrifuðust úr
frumgreinadeild Keilis, 4,11. Með-
aleinkunn í íslensku og menningar-
deild var 6,87. Lægsta einkunn var
6,14, hana áttu nemendur sem út-
skrifuðust úr Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ. Hæsta meðaleinkunnin
var meðal nemenda sem útskrif-
uðust frá MR 7,60, á hæla MR-inga
koma nemendur sem útskrifuð-
ust frá Menntaskólanum á Ísafirði
með 7,45 og nemendur sem út-
skrifuðust frá Menntaskólanum á
Akureyri með 7,40. n
Lítill munur Nemendum sem útskrifast
sem stúdentar frá elítuskólunum fjórum
vegnar álíka vel í háskólanámi og öðrum
stúdentum.
T
vö vitni hafa gefið sig fram við
lögreglu og sagt frá samskipt-
um sínum við meinta höfuð-
paura stóra IKEA-málsins.
Bæði vitnin hafa átt í nánu
sambandi við annan höfuðpaurinn
sem starfar enn sem héraðsdómslög-
maður þrátt fyrir ásakanir um alvar-
leg brot.
Lögregla hefur enn ekki gefið út
ákæru en málið er á lokastigi og til
umfjöllunar á ákærusviði. Vænta má
niðurstöðu bráðlega.
Var beitt blekkingum
Annað vitnið hefur rætt við DV um
reynslu sína og fór í kjölfar þess sam-
tals og lét lögreglu í té vitnisburð sinn.
Þetta staðfestir talsmaður lögreglu.
„Ég vil gera það rétta í málinu,“ sagði
annað vitnið, áður en hún fór til lög-
reglu til að skýra sína hlið málsins.
Hún sagði manninn hafa beitt
hana blekkingum. Hún hafi skilaði
fyrir hann vörum í IKEA en aldrei
grunað hann græsku. „Ég vissi ekki
hvað hann var að gera,“ útskýrði hún
og brast í grát. „Ég treysti honum og
mér datt aldrei í hug að hann væri að
stela.“
Hitt vitnið sem um ræðir hefur
lánað lögmanninum umtalsvert fé
sem hann hefur ekki greitt til baka.
Hún tók aldrei þátt í þjófnaði úr versl-
unum IKEA en er til vitnis um nokkra
þeirra.
Höfða mál á hendur bræðrum
IKEA á Íslandi hefur stóraukið öryggi
í verslun sinni eftir að upp komst um
skipulagðan, langvarandi þjófnað í
versluninni fyrr á árinu. Nú stendur
öryggisvörður við kassann og fylgist
með viðskiptavinum.
„Allt er reynt til þess að halda í
skilaregluna. IKEA vill treysta við-
skiptavinum sínum og skilareglan
verður ekki tekin út nema í algerri
neyð. Það er dapurlegt ef til þess kem-
ur,“ segir Þórarinn Ævarsson, fram-
kvæmdastjóri IKEA og segist ætla að
höfða einkamál á hendur meintum
þjófum. DV fjallaði fyrst um málið
og lýsti þá nákvæmlega atferli þjóf-
anna en meðal kærðu voru fram-
kvæmdastjóri, héraðsdómslögmaður
og hjúkrunarfræðingur.
Mun IKEA beina einkamáli sínu
sérstaklega að höfuðpaurunum
tveimur sem eru hálfbræður. Nú er
komið á daginn að flestir þeirra sem
eru viðriðnir málið tengjast sterkum
fjölskylduböndum og þótt fleiri úr
fjölskyldu þeirra tengist málinu verða
þeir ekki kærðir af fyrirtækinu enda
leikur sterkur grunur á að þeir bræð-
ur hafi beitt víðtækum blekkingum til
þess að fá aðra fjölskyldumeðlimi og
ástkonur til að taka þátt í meintum
þjófnaði.
Grunlausir ættingjar
Flestir þeirra sem DV ræddi við og
tengjast bræðrunum fjölskyldu-
böndum sögðust algerlega grun-
lausir um athæfi þeirra. Fyrrver-
andi eiginkona lögfræðingsins, sem
er jafnframt eigandi lögfræðistofu,
sagði enga heiðarlega manneskju
geta gert sér svona nokkuð í hugar-
lund.
„Ég trúi þessu ekki upp á hann,
ég skil þetta ekki,“ sagði enn frem-
ur aldraður faðir framkvæmdastjór-
ans og sagðist hafa vakað heila nótt
og hugleitt gjörðir sonar síns. Sjálfur
er hann sagður hafa höndlað þýfi. „Ef
þetta er allt saman rétt þá vona ég að
hann sjái að sér,“ sagði faðirinn.
Eins og áður hefur komið fram
er talið er að brotin nái sex ár aftur
í tímann og fólust þau einkum í því
að strikamerki á ódýrum vörum
voru sett á dýrar vörur og þeim síð-
an skilað fyrir inneignarnótur. Inn-
eignarnóturnar voru síðan notaðar
til þess að kaupa vörur eða þeim
breytt í gjafabréf sem auðveldlega
var hægt að koma í verð. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
n Meintir höfuðpaurar eru hálfbræður n Vitni lýsa ofbeldi og kúgun
6.–7. maí 2013
Mánudagur
og Þriðjudagur
6.–7. Maí 2013
50. tölublað
103. árgangur
leiðb. verð 429 kr.
STÓRA
IKEA-
MÁLIÐ
n Hálaunafólk kært fyrir milljónaþjófnað
n Lögfræðingar þar á meðal n Stóð yfir í sex ár n Tóku börnin með
SvonA gERÐu þAu þAÐ
Sonurinn
fæddur
Hrafn eignast sitt sjötta barn
n „Hann bara brosti og skríkti“
23
Svona lætur þú
fötin þín endast
n Þú getur sparað stórfé n 14 góð ráð 16
Sparisjóðirnir
blóðmjólkaðir
Högnuðust á eigin lagabreytingum
n Ný bók varpar ljósi á „sukkið“
8–9
2–3
10
Erla Bolladóttir sá leikverkið Hvörf
Tárvot
eftir frum-
sýningu
n Sárt að sjá fjölskylduharmleik á sviði
n Ánægð með útkomuna
„Þetta var erfitt
FjöLSKyLduFÓLK MEÐ þAuLSKIpuLAgÐA FLéTTu
Vitni tengjast höfuðpaurum Bæði
vitnin sem hafa stigið fram og lýst sam-
skiptum sínum við höfuðpaura IKEA-máls-
ins segja annan höfuðpaurinn hafa beitt
þau ofbeldi og kúgunum.
Blekkingar Héraðsdómslögmaður,
annar meintra höfuðpaura í IKEA-
málinu, beitti víðtækum blekkingum
að sögn ættingja og aðstandenda.
Hann starfar enn sem lögmaður.
Agnar hefur
fyrirgefið Helgu
Agnar Kristján Þorsteinsson seg-
ist hafa fyrirgefið Helgu Sigur-
rós Valgeirsdóttur, aðstoðarkonu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, fyrir mistök sem hún gerði
við tölvupóstsendingu í síðustu
viku. Líkt og fram hefur komið
sendi Helga yfirmanni Agnars,
sem starfar hjá Reiknistofnun Há-
skóla Íslands, afrit af fundarboði
vegna fundar við Sigurð Inga Jó-
hannsson, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, en Agnar er
annar þeirra sem standa á bak við
undirskriftasöfnun og mótmæli
vegna áætlunar um afnám veiði-
gjalds. Hann segir í bloggfærslu
sinni á DV.is að Helga hafi gefið
honum eðlilegar skýringar á mis-
tökunum sem og afsökunarbeiðni
og að málinu sé nú lokið af hans
hálfu.
DV hefur sent Helgu Sigur-
rós ítrekaðar fyrirspurnir um
hvernig mistökin hafi átt sér
stað en enn hafa engin svör
borist.
Snowden ekki á
leið til Íslands
Bandaríski uppljóstrarinn Edward
Snowden hefur sótt um pólitískt
hæli í Ekvador. Snowden lenti í
Moskvu í morgun þar sem hann
átti fund með sendiherra Ekvador
í Rússlandi. Samtökin WikiLeaks
hafa staðfest að hann sé nú á
leið til Ekvador en það staðfestir
Ricardo Patiño, utanríkisráðherra
landsins, einnig á Twitter-síðu
sinni.
Um helgina bárust fréttir af því
að Snowden væri á leið til Íslands,
en það var Øystein Jakobsen, full-
trúi Pírata í Noregi, sem hélt því
fram að Snowden væri á leið til
Noregs og að þaðan myndi hann
fljúga til Íslands. Að sögn rúss-
neskra fjölmiðla mun hann hins
vegar fljúga til Havana á Kúbu í dag
og þaðan til Caracas í Venesúela.
Bandarísk stjórnvöld gáfu á
dögunum út ákæru á hendur
Snowden sem og handtökuskipun,
en hann er meðal annars ákærður
fyrir njósnir eftir að hafa afhjúpað
njósnir bandarískra stjórnvalda og
Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkj-
anna (NSA) um almenna borgara.
Þá var lögð fram beiðni af hálfu
bandarískra stjórnvalda að yfir-
völd í Hong Kong myndu handtaka
Snowden og framselja til Banda-
ríkjanna.
Greint hefur verið frá því í fjöl-
miðlum að Snowden hafi lýst yfir
áhuga á því að fá hæli hér á Íslandi.
Stjórnvöld hafa hins vegar ekki
brugðist við því og sagði Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra að Snowden myndi ekki
fá sérmeðferð og þyrfti að sækja
um hæli á sama máta og aðrir.