Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Blaðsíða 15
Slagurinn tók á mig Þeir ætla að breyta til Er ekki lengur jómfrú Gísli Marteinn um slaginn um borgina 2005. – DVÁrni Johnsen hættir með brekkusönginn. – DV.is Jóhanna María Sigmundsdóttir hélt sína fyrstu ræðu á Alþingi. – Facebook Eigum Snowden skuld að gjalda Spurningin „Down and Out in Paris and London eftir George Orwell.“ Stefán Bragi Guðnason 25 ára næturvörður „The Once and Future King eftir T. H. White.“ George Whipple 79 ára ellilífeyrisþegi „I Capture the Castle eftir Dodie Smith.“ Rachel Walters 20 ára þjónn „Wuthering Heights eftir Emily Brontë.“ Desiree Walters 22 ára bílstjóri „Barist til sigurs eftir Jan Terlouw.“ Guðný Atladóttir 46 ára framkvæmdastjóri Hver er uppá- haldsbókin þín? 1 Sælkeri sækir um skilnað Sælkerinn Nigella Lawson er sögð undirbúa formlegan skilnað frá eiginmanni sínum Charles Saatchi. 2 „Valdið meiri usla en svart-sýnustu menn spáðu.“ Björn Valur Gíslason segir hvern skandalinn á fætur öðrum hafa sett mark sitt á fyrstu vikur nýrrar stjórnar. 3 Ritstjóri vill að ríkið hætti rekstri RÚV Davíð Oddsson hefur horn í síðu RÚV og segir ekki hægt að réttlæta ríkisrekinn fjölmiðil lengur. 4 Síðasti sólardagurinn suð-vestanlands í bili Veðurspár gera ráð fyrir vætu í næstu viku. 5 Snowden á leið til Íslands? Uppljóstrarinn Edward Snowden sem eftirlýstur er af hálfu bandarískra yfirvalda er sagður hafa yfirgefið Hong Kong. 6 Á gjörgæslu eftir gas-sprengingu Sprenging varð í heimahúsi í Stórholti í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Mest lesið á DV.is S amkvæmt skoðanakönnunum tel- ur meirihluti Bandaríkjamanna að Edward Snowden hafi gert rétt í því að upplýsa fjölmiðla – upp- haflega Washington Post og Guardian – um njósnir á vegum Þjóðaröryggis- stofnunar Bandaríkjanna, NSA, og Al- ríkislögreglunnar, FBI, á notendum internetsins. Leynileg njósnaáætlun, svokölluð PRISM-áætlun, hafi gengið út á að samkeyra upplýsingar um fólk bæði frá símafyrirtækjum og netfyrirtækjum (s.s. Google, Yahoo, Facebook, Skype, Youtube, Microsoft og svo framvegis). Nánast samstundis eftir að þessar upplýsingar komu fram í dagsljósið var Snowden, sem starfað hafði að verkefn- um innan þessarar áætlunar, úthróp- aður sem svikari og þjóðníðingur, svo vitnað sé til orða John Boehners, leið- toga repúblikana í fulltrúadeild þingsins. Sem betur fer hefur fjöldi þingmanna risið upp til varnar Snowden og herma fjölmiðlar að hver sem örlög hans verða þá sé eitt víst að nánar verður fylgst með heimildum yfirvalda til að fylgjast með þegnunum. Og sem áður segir eru þeir í minnihluta sem gagnrýna hann á meðal almennings í Bandaríkjunum. Úr varð að Snowden flúði til Hong Kong en fregnir hafa borist frá honum um að hann gæti hugsað sér að fá land- vistarleyfi á Íslandi. Ég tel að Alþingi eigi að vera opið fyrir þessu og þegar í stað taka málið til umræðu á slíkum grund- velli í Allsherjarnefnd þingsins. Grafa undan réttindum annarra Einnig þarf Utanríkismálanefnd að fylgjast grannt með þessu máli. Ekki er úr vegi að horfa til Evrópusambands- ins hvað þetta mál varðar. Þannig lítur Evrópusambandið svo á að hér sé ekki á ferðinni neitt einkamál Bandaríkja- manna. Þetta kom berlega fram í bréfi sem Viviane Reding, dómsmálastjóri ESB, sendi Eric Holder, dómsmála- ráðherra Bandaríkjanna. Þar krafðist hún upplýsinga um net- og síma njósnir Bandaríkjamanna. Í bréfinu mun hafa komið fram að svar Holders gæti haft áhrif á samskipti Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Hér væri á það að líta að netheimurinn væri alþjóðlegur og ef bandarísk lög gengju lengra en lög annarra ríkja til að afla upplýsinga og jafnvel njósna um einstaklinga þá græfi það undan réttindum í viðkomandi löndum - ekki aðeins í Bandaríkjunum. Kemur okkur öllum við Auðvitað á þetta einnig við um okkur eins og reyndar öll þau sem skipta við umrædd fyrirtæki á netinu. Velflest nýt- um við okkur þjónustu þeirra fyrirtækja sem eru umsvifamest á netinu og þar með eigum við á hættu að liggja undir smásjá bandarískra yfirvalda. Þetta minnir okkur á að netinu, sem býður upp á gríðarlega möguleika fyrir upplýsinga- og lýðræðissamfélagið, má hæglega snúa upp í andhverfu sína þar sem ríkið og stórfyrirtæki safna upp- lýsingum um okkur og grafa þannig undan friðhelgi einstaklingsins og lýð- ræðinu. Út á þá braut hafa bandarísk yfir völd haldið. Manning og Snowden Það á ekki af bandarískum yfirvöldum að ganga enda kannski ekki við öðru að búast þegar samviskan er slæm. Þannig eru aðstandendur Wikileaks hundeltir fyrir að hafa miðlað upplýsingum sem komu bandarískum hermálayfirvöld- um illa, til dæmis myndböndin af árás- um úr lofti í Bagdad sumarið 2007 og tveimur árum síðar í Afganistan. Auk þess lak Manning miklu magni af leyni- plöggum. Auðvitað urðu forsvarsmenn hersins og utanríkisþjónustunnar bandarísku æfir en heimurinn sýndi þessum upp- lýsingum áhuga og hygg ég að flest fólk hafi talið þær eiga erindi til okkar. Þau sem ekki hefðu viljað vita af ofbeldis- verkum bandarískra hermanna í Írak myndu sennilega fara leynt með þá af- stöðu sína og segir það sína sögu. Yfirvöld í Bandaríkjunum reyna nú allt hvað þau geta til að dæma sendi- boða slíkra upplýsinga til þagnar. Um það snúast réttarhöldin yfir Bradley Manning í Bandaríkjunum um þessar mundir en það var hann sem kom upp- lýsingum á framfæri við Wikileaks eins og frægt varð, sem síðan miðlaði efninu áfram. Í skjól á Íslandi Í vetur var rifjað upp á Alþingi og í fjöl- miðlum þegar bandarískir lögreglu- menn frá FBI, bandarísku alríkislög- reglunni, komu hingað til lands í ágúst 2011 til að reyna að tæla íslensk lög- regluyfirvöld til samstarfs í aðförinni að Wikileaks. Þeim var gert ljóst að þeir hefðu ekki heimild til að athafna sig hér á landi með þeim hætti sem þeir hugðu, enda lá ekki fyrir heimild til þess eða beiðni þar um. Hitt er svo annað mál að ekki hefðu þeir fengið heimild hjá Innanríkisráðu- neytinu á þeim tíma til að athafna sig hér á landi í tengslum við tilraunir að snara Wikileaks. Í mínum huga voru hvorki Wikileaks og Bradley Manning né nú Edward Snowden siðferðilega sek. Þvert á móti hafa þessir aðilar unnið mannréttindum gagn og eiga þakkir skilið Og fyrir vikið eigum við öll þeim skuld að gjalda. Nú þarf að taka um það ákvörðun hvort sú skuld verður ekki best endurgoldin með landvistarleyfi á Íslandi. Laxveiðar í borg Það getur verið notalegt að gleyma sér í veiðiskap, hálfan dag eða svo, jafnvel í miðri höfuðborginni, eins og þessi veiðimaður í Elliðaánum. Mynd: SiGtryGGur Ari Myndin Umræða 15Mánudagur 24. júní 2013 Kjallari Ögmundur Jónasson „ Í mínum huga voru hvorki Wikileaks og Bradley Manning né nú Ed- ward Snowden siðferðilega sek. Þvert á móti hafa þessir aðilar unnið mannréttindum gagn og eiga þakkir skilið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.