Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Page 15
Slagurinn tók
á mig
Þeir ætla að
breyta til
Er ekki lengur
jómfrú
Gísli Marteinn um slaginn um borgina 2005. – DVÁrni Johnsen hættir með brekkusönginn. – DV.is Jóhanna María Sigmundsdóttir hélt sína fyrstu ræðu á Alþingi. – Facebook
Eigum Snowden skuld að gjalda
Spurningin
„Down and Out in Paris and
London eftir George Orwell.“
Stefán Bragi Guðnason
25 ára næturvörður
„The Once and Future King eftir
T. H. White.“
George Whipple
79 ára ellilífeyrisþegi
„I Capture the Castle eftir Dodie
Smith.“
Rachel Walters
20 ára þjónn
„Wuthering Heights eftir Emily
Brontë.“
Desiree Walters
22 ára bílstjóri
„Barist til sigurs eftir Jan
Terlouw.“
Guðný Atladóttir
46 ára framkvæmdastjóri
Hver er uppá-
haldsbókin þín?
1 Sælkeri sækir um skilnað Sælkerinn Nigella Lawson er sögð
undirbúa formlegan skilnað frá
eiginmanni sínum Charles Saatchi.
2 „Valdið meiri usla en svart-sýnustu menn spáðu.“
Björn Valur Gíslason segir hvern
skandalinn á fætur öðrum hafa sett
mark sitt á fyrstu vikur nýrrar stjórnar.
3 Ritstjóri vill að ríkið hætti rekstri RÚV
Davíð Oddsson hefur horn í síðu RÚV og
segir ekki hægt að réttlæta ríkisrekinn
fjölmiðil lengur.
4 Síðasti sólardagurinn suð-vestanlands í bili
Veðurspár gera ráð fyrir vætu í næstu
viku.
5 Snowden á leið til Íslands? Uppljóstrarinn Edward Snowden sem
eftirlýstur er af hálfu bandarískra
yfirvalda er sagður hafa yfirgefið
Hong Kong.
6 Á gjörgæslu eftir gas-sprengingu
Sprenging varð í heimahúsi í Stórholti í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags.
Mest lesið á DV.is
S
amkvæmt skoðanakönnunum tel-
ur meirihluti Bandaríkjamanna
að Edward Snowden hafi gert rétt
í því að upplýsa fjölmiðla – upp-
haflega Washington Post og Guardian
– um njósnir á vegum Þjóðaröryggis-
stofnunar Bandaríkjanna, NSA, og Al-
ríkislögreglunnar, FBI, á notendum
internetsins. Leynileg njósnaáætlun,
svokölluð PRISM-áætlun, hafi gengið út
á að samkeyra upplýsingar um fólk bæði
frá símafyrirtækjum og netfyrirtækjum
(s.s. Google, Yahoo, Facebook, Skype,
Youtube, Microsoft og svo framvegis).
Nánast samstundis eftir að þessar
upplýsingar komu fram í dagsljósið var
Snowden, sem starfað hafði að verkefn-
um innan þessarar áætlunar, úthróp-
aður sem svikari og þjóðníðingur, svo
vitnað sé til orða John Boehners, leið-
toga repúblikana í fulltrúadeild þingsins.
Sem betur fer hefur fjöldi þingmanna
risið upp til varnar Snowden og herma
fjölmiðlar að hver sem örlög hans verða
þá sé eitt víst að nánar verður fylgst með
heimildum yfirvalda til að fylgjast með
þegnunum. Og sem áður segir eru þeir í
minnihluta sem gagnrýna hann á meðal
almennings í Bandaríkjunum.
Úr varð að Snowden flúði til Hong
Kong en fregnir hafa borist frá honum
um að hann gæti hugsað sér að fá land-
vistarleyfi á Íslandi. Ég tel að Alþingi eigi
að vera opið fyrir þessu og þegar í stað
taka málið til umræðu á slíkum grund-
velli í Allsherjarnefnd þingsins.
Grafa undan réttindum annarra
Einnig þarf Utanríkismálanefnd að
fylgjast grannt með þessu máli. Ekki er
úr vegi að horfa til Evrópusambands-
ins hvað þetta mál varðar. Þannig lítur
Evrópusambandið svo á að hér sé ekki
á ferðinni neitt einkamál Bandaríkja-
manna. Þetta kom berlega fram í bréfi
sem Viviane Reding, dómsmálastjóri
ESB, sendi Eric Holder, dómsmála-
ráðherra Bandaríkjanna. Þar krafðist
hún upplýsinga um net- og síma njósnir
Bandaríkjamanna. Í bréfinu mun hafa
komið fram að svar Holders gæti haft
áhrif á samskipti Evrópusambandsins
og Bandaríkjanna. Hér væri á það að
líta að netheimurinn væri alþjóðlegur
og ef bandarísk lög gengju lengra en lög
annarra ríkja til að afla upplýsinga og
jafnvel njósna um einstaklinga þá græfi
það undan réttindum í viðkomandi
löndum - ekki aðeins í Bandaríkjunum.
Kemur okkur öllum við
Auðvitað á þetta einnig við um okkur
eins og reyndar öll þau sem skipta við
umrædd fyrirtæki á netinu. Velflest nýt-
um við okkur þjónustu þeirra fyrirtækja
sem eru umsvifamest á netinu og þar
með eigum við á hættu að liggja undir
smásjá bandarískra yfirvalda.
Þetta minnir okkur á að netinu, sem
býður upp á gríðarlega möguleika fyrir
upplýsinga- og lýðræðissamfélagið, má
hæglega snúa upp í andhverfu sína þar
sem ríkið og stórfyrirtæki safna upp-
lýsingum um okkur og grafa þannig
undan friðhelgi einstaklingsins og lýð-
ræðinu. Út á þá braut hafa bandarísk
yfir völd haldið.
Manning og Snowden
Það á ekki af bandarískum yfirvöldum
að ganga enda kannski ekki við öðru að
búast þegar samviskan er slæm. Þannig
eru aðstandendur Wikileaks hundeltir
fyrir að hafa miðlað upplýsingum sem
komu bandarískum hermálayfirvöld-
um illa, til dæmis myndböndin af árás-
um úr lofti í Bagdad sumarið 2007 og
tveimur árum síðar í Afganistan. Auk
þess lak Manning miklu magni af leyni-
plöggum.
Auðvitað urðu forsvarsmenn hersins
og utanríkisþjónustunnar bandarísku
æfir en heimurinn sýndi þessum upp-
lýsingum áhuga og hygg ég að flest fólk
hafi talið þær eiga erindi til okkar. Þau
sem ekki hefðu viljað vita af ofbeldis-
verkum bandarískra hermanna í Írak
myndu sennilega fara leynt með þá af-
stöðu sína og segir það sína sögu.
Yfirvöld í Bandaríkjunum reyna nú
allt hvað þau geta til að dæma sendi-
boða slíkra upplýsinga til þagnar. Um
það snúast réttarhöldin yfir Bradley
Manning í Bandaríkjunum um þessar
mundir en það var hann sem kom upp-
lýsingum á framfæri við Wikileaks eins
og frægt varð, sem síðan miðlaði efninu
áfram.
Í skjól á Íslandi
Í vetur var rifjað upp á Alþingi og í fjöl-
miðlum þegar bandarískir lögreglu-
menn frá FBI, bandarísku alríkislög-
reglunni, komu hingað til lands í ágúst
2011 til að reyna að tæla íslensk lög-
regluyfirvöld til samstarfs í aðförinni
að Wikileaks. Þeim var gert ljóst að þeir
hefðu ekki heimild til að athafna sig
hér á landi með þeim hætti sem þeir
hugðu, enda lá ekki fyrir heimild til
þess eða beiðni þar um.
Hitt er svo annað mál að ekki hefðu
þeir fengið heimild hjá Innanríkisráðu-
neytinu á þeim tíma til að athafna sig
hér á landi í tengslum við tilraunir að
snara Wikileaks.
Í mínum huga voru hvorki
Wikileaks og Bradley Manning né nú
Edward Snowden siðferðilega sek.
Þvert á móti hafa þessir aðilar unnið
mannréttindum gagn og eiga þakkir
skilið Og fyrir vikið eigum við öll þeim
skuld að gjalda. Nú þarf að taka um það
ákvörðun hvort sú skuld verður ekki
best endurgoldin með landvistarleyfi á
Íslandi.
Laxveiðar í borg Það getur verið notalegt að gleyma sér í veiðiskap, hálfan dag eða svo, jafnvel í miðri höfuðborginni, eins og þessi veiðimaður í Elliðaánum.
Mynd: SiGtryGGur Ari
Myndin
Umræða 15Mánudagur 24. júní 2013
Kjallari
Ögmundur
Jónasson
„ Í mínum huga voru
hvorki Wikileaks og
Bradley Manning né nú Ed-
ward Snowden siðferðilega
sek. Þvert á móti hafa þessir
aðilar unnið mannréttindum
gagn og eiga þakkir skilið.