Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Page 3
Fréttir 3Mánudagur 24. júní 2013
2.300 nemar
útskrifuðust
Á laugardaginn brautskráðust 1.859
kandídatar frá Háskóla Íslands.
Brautskráningin fór fram í Laugar-
dalshöll en alls luku 1.257 manns
grunnnámi og 602 framhaldsnámi.
Auk þess brautskráði Háskóli Ís-
lands 466 kandídata í febrúar síðast
liðnum og því hafa samtals 2.307
kandídatar útskrifast frá skólanum
það sem af er ári.
Brautskráningarathafnir voru
tvær, líkt og undanfarin ár. Á fyrri
athöfninni voru brautskráðir
kandídatar sem hafa lokið diplóma-
og viðbótarnámi á framhaldsstigi,
meistaranámi og kandídatsnámi
en á þeirri seinni voru brautskráðir
þeir sem lokið hafa grunnnámi.
Í ár voru í fyrsta sinn braut-
skráðir meistaranemar í þver-
fræðilegu námi í miðaldafræðum,
ritlist, ráðstefnutúlkun og nytja-
þýðingum frá Hugvísindasviði auk
þess sem nemar hlutu í fyrsta sinn
viðbótardiplóma á meistarastigi í
námsleiðinni heilbrigði og heilsu-
uppeldi við Menntavísindasvið.
Á gjörgæslu
eftir sprengingu
Einn var fluttur á slysadeild
með brunasár eftir að gas-
sprenging varð í heimahúsi í
Stórholti í Reykjavík aðfaranótt
sunnudags. Lögreglu barst til-
kynning um sprenginguna á
þriðja tímanum umrædda nótt,
en svo virðist sem um gaskút
hafi verið að ræða. Nánari til-
drög slyssins eru ókunn en lög-
regla rannsakar nú málið. Mað-
urinn sem bjó í íbúðinni var
fluttur á gjörgæslu en nánari
upplýsingar um líðan hans
liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Þrýst á HB Granda
vegna hvalveiða
Þ
rýst er á þýsku matvöru-
keðjuna Edika að hætta að
kaupa fisk frá HB Granda.
Alþjóðlegu baráttusamtökin
Avaaz hafa nú hafið undir-
skriftasöfnun á vefsíðu sinni þar sem
Edika er hvatt til þess að hætta við-
skiptum við fyrirtækin Deutsche See
og Iceland Seafood þar sem bæði
þessi fyrirtæki kaupi fisk frá HB
Granda. Fullyrt hefur verið að Edika
sé þegar búið að grípa til aðgerða til
að bregðast við þessum þrýstingi.
Það hefur þó hvorki fengist staðfest
frá Edika né frá forsvarsmönnum HB
Granda.
Stefna að 150 þúsund
undirskriftum
Yfir 60 þúsund manns höfðu skrifað
undir á sunnudag en Avaaz stefnir
að því að ná 150 þúsund undirskrift-
um. Vísar Avaaz til tengsla Kristjáns
Loftssonar sem er bæði stjórnar-
formaður HB Granda og stærsti eig-
andi Voga hf. sem fer með 40 pró-
senta hlut í HB Granda.
Eins og kunnugt er hóf Hvalur
hf. hvalveiðar sínar nú um miðjan
júní eftir tveggja ára hlé en mörg
alþjóðleg dýraverndunarsamtök
hafa harðlega gagnrýnt veiðarnar
að undanförnu. „Það væri ánægju-
legt ef Edika myndi hætta að kaupa
fisk frá HB Granda,“ segir Astrid
Fuchs hjá þýsku hvala- og höfr-
ungaverndunarsamtökunum WDC
sem hafa vakið athygli á átaki Avaaz
á heimasíðu sinni auk þess sem
WDC hafa sjálf verið með þrýsting
á heimasíðu sinni gegn hvalveiðum
Íslendinga.
Avaaz beitt þrýstingi frá 2011
Avaaz hafa allt frá árinu 2011 bent á
tengslin á milli HB Granda og Krist-
jáns Loftssonar. Þá reyndu samtökin
einnig að beita þrýstingi sínum
árið 2012 þegar Ólympíuleikarnir
voru haldnir í London. Nú í byrjun
júní afhentu þau utanríkisráðherra
Hollands um 1,1 milljón undirskrifta
þar sem hollensk stjórnvöld voru
hvött til þess að koma í veg fyrir að
hvalkjöt frá Íslandi færi um höfnina
í Rotterdam.
Edika er fjórða stærsta matvæla-
keðjan í Þýskalandi með veltu upp
á nærri átta þúsund milljarða króna
en til samanburðar er það meira en
hundraðföld velta verslunarfyrir-
tækisins Haga í fyrra. Ekki liggur
ljóst fyrir hversu mikið af afurðum
HB Granda er selt hjá Edika en út-
flutningsverðmæti HB Granda nam
um 32 milljörðum króna í fyrra og er
Þýskaland eitt af stærstu markaðs-
svæðum útgerðarfyrirtækisins. Telja
má líklegt að það myndi skaða orð-
spor fyrirtækisins verulega í Þýska-
landi ef Edika lætur undan þrýstingi
frá alþjóðlegum dýraverndunar-
samtökum og hættir sölu á fiski HB
Granda þar í landi.
Kristján Loftsson var harðorður
í garð alþjóðlegra dýraverndunar-
samtaka sem berjast gegn hval-
veiðum þegar DV ræddi við hann
síðasta fimmtudag. „Þetta fólk er
auðvitað bara á launum við þetta.
Veistu hvað ég kalla það? Ég kalla
þetta fólk hvítflibbabetlara. Hefur þú
skoðað vefsíður þessara samtaka?
Alls staðar, hvert sem litið er, sér
maður orðið „donate“,“ sagði Krist-
ján í samtali við DV.
Ráðstefna með forsetanum um
sjálfbærar veiðar
Þess skal getið að á fimmtudaginn
fer fram ráðstefna í Bremerhaven í
Þýskalandi þar sem rætt verður um
ábyrgar fiskveiðar Íslendinga. Er
opinber heimsókn Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, til
Þýskalands tilefni ráðstefnunnar.
Þar mun Karl-Heinz Renz halda
kynningu á sölu Edika á ferskum
íslenskum fiski frá HB Granda og
markaðsstjóri HB Granda mun fjalla
um átakið „Iceland responsible fish-
eries“. Því kemur undirskriftasöfn-
un Avaaz líklega ekki á besta tíma.
DV sendi fyrirspurn til Vilhjálms Vil-
hjálmssonar, forstjóra HB Granda,
og Kristjáns Loftssonar, stjórnar-
formanns HB Granda, þar sem þeir
voru spurðir hvort Edika hefði grip-
ið til aðgerða varðandi sölu á afurð-
um frá HB Granda. Þeir höfðu ekki
svarað þegar DV fór í prentun í gær.
Þá var líka send fyrirspurn til Edika
varðandi málið en henni hafði held-
ur ekki verið svarað. n
n Þýsk matvörukeðja hvött til að sniðganga HB Granda
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Ég kalla þetta fólk
hvítflibbabetlara.
Umdeildar hvalveiðar Mikið
hefur verið þrýst á Íslendinga erlendis
frá á undanförnum árum að hætta
hvalveiðum. Nú hefur verið settur
þrýstingur á þýsku matvörukeðjuna
Edika um að hætta sölu á afurðum
frá HB Granda vegna tengsla Krist-
jáns Loftssonar við HB Granda.
Hvítflibbabetlarar Kristján Loftsson,
stjórnarformaður HB Granda, lét þau orð
falla í samtali við DV síðasta fimmtudag að
alþjóðleg dýraverndunarsamtök sem berjist
gegn hvalveiðum séu „hvítflibbabetlarar“.
Ánægð ef Edika lætur undan
þrýstingi Astrid Fuchs, frá WDC, þýsku
hvala- og höfrungaverndunarsamtökunum.
Ellefu hvalir
á land
Tveimur langreyðum var land-
að í Hvalfirði um helgina og
hafa samtals ellefu hvalir verið
veiddir á yfirstandandi verðtíð
sem hófst þann 18. júní. Veið-
ar á langreyði eru hafnar eftir
tveggja ára hlé og verða afurðirn-
ar að mestu leyti seldar til Japan.
Eins og fjölmiðlar greindu frá
nýlega ætlar ríkisstjórn Hollands
að beita sér fyrir því að flutning-
ur á kjötinu um þarlendar hafn-
ir verði stöðvaður. „Við finnum
alltaf leiðir til að flytja þetta til
Japan,“ sagði Kristján þegar DV
ræddi við hann á dögunum.
Veiðarnar fara fram í skugga
deilna milli hluthafa útgerðar-
félagsins um framtíðarhlut-
verk þess, en Kristján er stærsti
eigandi félagsins. Hann læt-
ur hvorki þess konar deilur né
mótmæli umhverfisverndar-
sinna stöðva ástríðu sína fyr-
ir hvalveiðum. Lengst af hafa
stjórnvöld á Íslandi stutt dyggi-
lega við bakið á Kristjáni. Á ár-
unum 2000 til 2009 lagði íslenska
ríkið til 180 þúsund dollara á
hverju ári til kynningar á afstöðu
Íslands til hvalveiða í Bandaríkj-
unum, en veiðarnar eru litnar
hornauga víða í heiminum.