Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Page 4
4 Fréttir 24. júní 2013 Mánudagur
Kallar á bjölluhljóm
n Vill stöðva umræður um hagsmunatengsl þingmanna
R
agnheiður Ríkharðsdóttir,
þingkona Sjálfstæðisflokksins,
fór mikinn á dögunum og
krafðist þess að forseti tak-
markaði málfrelsi þeirra sem
vændu þingmenn um að „hafa eitt-
hvað að fela eða hygla hagsmun-
um annarra en þjóðarinnar.“ Þetta
kom fram í ræðu hennar eftir að
Bjarkey Gunnarsdóttir, þingkona
Vinstri grænna, hafði haldið því fram
að ríkis stjórnin bæri kjör útgerðar-
manna fyrir brjósti fremur en hag
heimilanna. „Þetta er ekki boðlegt
og ef það kallar ekki á bjölluhljóm
er ekki mikið sem það gerir,“ sagði
Ragnheiður.
Eins og DV hefur fjallað ítarlega um
að undanförnu hafa ýmsir þingmenn
hagsmuna að gæta í þeim málum
sem eru til umræðu á Alþingi eða til
stendur að leggja fyrir þingið. Hér má
nefna Pál Jóhann Pálsson, þingmann
Framsóknarflokksins, sem er einn af
eigendum stórútgerðarinnar Vísis hf.
Eins og fram hefur komið er fyrirtæki
þingmannsins annað af þeim tveimur
útgerðarfélögum sem fá hlutfalls-
lega mesta lækkun ef frumvarpið um
breytingu og lækkun sérstaka veiði-
gjaldsins verður samþykkt. Þá hefur
DV greint frá því að fjölskylda Harald-
ar Einarssonar, sem einnig situr á þingi
fyrir Framsóknarflokkinn, hefur fjár-
hagslegra hagsmuna að gæta af virkj-
anaáformum í neðri hluta Þjórsár. n
johannp@dv.is
RefiRniR látniR
éta selkópana
n Kópunum í Húsdýragarðinum alltaf lógað í lok sumars n „Blekkingarleikur“
J
á, þetta er gert á hverju hausti.
Við höfum bara pláss fyrir
ákveðinn fjölda sela í þessari
laug,“ segir Sigrún Thorlaci-
us, aðstoðarforstöðumaður
Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Nú
svamla um selalaugina þrír nýfædd-
ir selskópar en í enda sumars verð-
ur þeim lógað vegna plássleysis. Ref-
irnir eru svo fóðraðir með kjötinu. Að
sögn Sigrúnar er þeim lógað á hverju
hausti vegna þess að ekki er pláss fyrir
fleiri seli í selalaug garðsins.
Kjötið notað í fóður
Elsti kópurinn fæddist 6. júní og
hinir tveir stuttu á eftir. Þeir fá að
lifa með mæðrum sínum út sum-
arið. „Við erum bara með litla laug
og ef við létum þá alltaf lifa þá væri
svolítið þröngt á þingi. Þetta er bara
eins og annars staðar í búskap í
raun og veru,“ segir Sigrún.
Hún segir kjötið af kópunum
ekki fara til spillis. „Við höfum not-
að kjötið í fóður hérna, refirnir hafa
étið það. Við höfum nýtt það svona
innanhúss handa hinum dýrun-
um,“ segir Sigrún.
Aðspurð hvort ekki væri hægt að
sleppa kópunum lausum að hausti
segir hún það ekki vera hægt þar
sem selir sem aldir eru á þennan
hátt kunni ekki að bjarga sér sjálf-
ir í þannig aðstæðum. „Nei, svona
selir kunna ekki að bjarga sér í nátt-
úrunni.“
Mikill blekkingarleikur
Árni Stefán Árnason, lögfræðingur
og dýraverndunarsinni, segir þetta
fyrirkomulag hafa farið í taugarnar
á sér í mörg ár. „Þetta varðar ekki
við dýraverndunarlög en þetta er
siðferðisleg spurning hvort það eigi
að gera þetta yfir höfuð. Dýravin-
ir eru alveg sammála um að það
er ekki nema hálfur sannleikurinn
sagður á vorin. Það á sér stað mikill
blekkingarleikur í Húsdýragarðin-
um – sérstaklega í garð barna. Mér
finnst ömurlegt að það sé verið að
gera út á það á vorin að það séu
að fæðast lömb, kálfar, geitur og
selskópar en það er síðan ekkert
sagt um framhaldið. Þau enda öll í
sláturhúsi um haustið.“
„Misnota dýr í hagnaðarskyni“
Árni segir ekki heiðarlega stað-
ið að þessu. „Mér finnst þetta ekki
sanngjörn og heiðarleg framkoma.
Því að börnunum er sýnt þetta og
kennt að umgangast dýrin. Svo
meira að segja leggjast foreldr-
ar gegn því að tala um hvað gerist
því það má ekki særa börnin,“ segir
hann. „Þarna er Húsdýragarðurinn
að misnota dýr í hagnaðarskyni að
mínu mati. Þessir selkópar myndu
ábyggilega vilja lifa áfram ef þeir
yrðu spurðir að því.“
Aðspurður hvort hann haldi að
hægt væri að koma í veg fyrir að
lóga þyrfti dýrunum segir Árni svo
vera. „Mér finnst bara að það eigi
ekki að leyfa urtunum að kæpa.
Það er hægt að koma í veg fyrir það
með því að fjarlægja karldýrið á
fengitíma eða aðskilja þau.“ n
Lógað vegna pláss-
leysis Selkóparnir sem
nú synda um laugina fá
aðeins að synda þar í
sumar en verður svo lógað
í haust vegna plássleysis.
Siðferðisleg spurning Árni segir ekki um
brot á dýraverndarlögum að ræða en þetta sé
spurning um siðferði. Honum finnst að koma
eigi í veg fyrir að urturnar fjölgi sér með því að
aðskilja þær frá karldýrunum á fengitíma.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
„Við höfum bara
pláss fyrir ákveðinn
fjölda sela í þessari laug.
„Ekki boðlegt“ „Þetta er ekki
boðlegt og ef það kallar ekki á bjöllu-
hljóm er ekki mikið sem það gerir,“
sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir í
umræðum á þingi.
Garðklippur
og fíflabani
Í dag, mánudag, mun maður
að nafni Friðrik Helgason ríða
í mótmælaskyni niður að Al-
þingishúsi með skilaboð til ríkis-
stjórnarinnar. Friðrik hyggst
mæta á Austurvöll kl. 11 þar sem
hann mun afhenda Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni forsætis-
ráðherra bréf þar sem hann lýsir
óánægju sinni með núverandi
ástand og hvetur ríkisstjórnina
til að standa við gefin loforð um
uppbyggingu. Auk bréfsins mun
Friðrik afhenda Sigmundi tvær
gerðir garðáhalda, annars vegar
klippur „til að klippa á þá strengi
sem halda þér og losa þig við þá
strengi sem stýra þér“ og hins
vegar fíflabana „til að losa þig við
þau fífl sem stýrt hafa strengjun-
um og standa í vegi fyrir að þú
standir við gefin loforð.“
Auka kröfur
til allra
Við brautskráningu kandídata frá
Háskóla Íslands á laugardaginn
sagði Kristín Ingólfsdóttir rektor
að samfélagið þyrfti nauðsynlega
aukna verðmætasköpun til að
mæta breyttri aldurssamsetn-
ingu og auknum kröfum um
samfélagslega þjónustu. Eina
raunverulega leiðin til að ná
þessu fram væri að fjárfesta í
menntakerfinu og auka kröfur
til allra skólastiga. Í ræðu sinni
fjallaði hún einnig um nokkur
atriði sem nauðsynlegt væri að
vinna að, svo sem að vekja áhuga
barna og unglinga fyrr á raun- og
tæknitengdum greinum og að
endurnýja kennsluaðferðir á öll-
um skólastigum til að tryggja að
kennarar hafi getu til að vinna
með nýjustu upplýsingatækni.