Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Page 6
6 Fréttir 24. júní 2013 Mánudagur
Gæti hleypt nýju lífi í borgarstjórnarflokkinn
n Stefnir í harða baráttu um leiðtogasætið á lista sjálfstæðismanna
É
g er að hugsa málið. Ég er búinn
að búa að mestu í Reykjavík
undanfarin þrjú ár og farinn að
líta á mig sem hálfgerðan Reyk
víking. Það kemur mér á óvart hversu
margir hafa sett sig í samband við
mig og lýst þeirri ósk sinni að ég færi
fram í borginni,“ segir Halldór Hall
dórsson, formaður Sambands ís
lenskra sveitarfélaga. Halldór var
oddviti sjálfstæðismanna í Ísa
fjarðarbæ um tólf ára skeið, eða frá
1998 til 2010, en ákvað þá að hætta
sem bæjarstjóri og oddviti sjálf
stæðismanna í bæjarstjórn Ísa
fjarðar. Frá árinu 2006 hefur hann
verið formaður stjórnar Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Halldór
segir að það væri í sjálfu sér ekki
óeðlilegt framhald af störfum hans
á vettvangi sveitarstjórna að hann
færi fram í borginni. Hann sé hins
vegar ekki búinn að taka ákvörðun
um hvort að hann blandi sér í
slaginn.
Það stefnir í átök um hver
verði næsti leiðtogi sjálfstæðis
manna í Reykjavíkurborg. Eftir
að Hanna Birna Kristjánsdótt
ir færði sig yfir í landsmálin tók
Júlíus Vífill Ingvars son við foryst
unni í borginni. Hann lýsti því
yfir í viðtali við DV fyrir skömmu
að hann vildi fyrsta sætið á lista
sjálfstæðis manna í næstu borgar
stjórnarkosningum. Hann er hins
vegar ekki einn um hituna því
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir ætl
ar að taka slaginn um fyrsta sætið
og hefur lýst þeirri skoðun sinni í
DV. Kjartan Magnús son, sem er
reynslumesti borgarfulltrúi sjálf
stæðismanna í borgarstjórn hefur
líka hug á leiðtogasætinu.
Nokkrir sjálfstæðismenn sem
DV hefur rætt við telja hins vegar
að það væri gott að fá nýtt blóð í
borgarmálefnin og telja að Hall
dór Halldórsson gæti hleypt nýju
lífi í borgarstjórnarflokkinn. Þeir
benda á að hann hafi yfirgrips
mikla reynslu af sveitarstjórnar
málum bæði sem bæjarstjóri og
einnig sem formaður Sambands
íslenskara sveitarfélaga sem myndi
án efa nýtast honum í borginni.
Annað nafn hefur líka skotið upp
kollinum í umræðunni um leið
togasætið í borginni en það er
nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar.
Hann sat í borgarstjórn Reykja
víkur frá 1998 til 2006. DV sendi
honum fyrir spurn um það hvort
hann hefði í hyggju að snúa aftur í
borgina. Guðlaugur Þór sendi svar
til baka þar sem hann sagðist ekki
ræða við DV.
Ekki liggur fyrir ákvörðun um
hvernig sjálfstæðismenn ætla að
raða á lista í borginni fyrir sveitar
stjórnarkosningarnar næsta vor.
Hvort fulltrúaráð sjálfstæðis
félaganna í borginni kýs á list
ann, hvort farið verður í prófkjör
eða hvort skipuð verði uppstill
ingarnefnd sem raðar saman lista,
verður tíminn að leiða í ljós. n
johanna@dv.is
Eftirsóttur Margir sjálf-
stæðismenn vilja ólmir að
Halldór Halldórsson taki að
sér að leiða lista sjálfstæðis-
manna í borgarstjórnarkosn-
ingunum næsta vor.
„Veit ekki hvenær
kallið kemur“
N
okkrir aðilar hafa haft
samband við hjónin Guð
rúnu Helgu Lárusdóttur og
Ágúst Sigurðsson, eigendur
Stálskipa í Hafnarfirði, með
það fyrir augum að kaupa útgerðina
af þeim. Þetta staðfestir Ágúst í
samtali við DV. „Það hefur verið
hringt í okkur og við spurð hvort
við ætlum að selja. Það eru margir
að hringja,“ segir Ágúst. Aðspurður
hvort þau ætli sér að selja útgerðina
segir Ágúst að það komi til greina ef
gott verð fæst: „Það kemur alveg til
greina ef við fáum nógu gott boð.“
Þau hjónin eru bæði um áttrætt:
Ágúst er fæddur 1931 og Guðrún árið
1933. „Ég er 82 ára og Guðrún verður
80 ára,“ segir Ágúst en þau eiga fyr
irtækið með dætrum sínum. Ágúst
og Guðrún hafa átt og rekið Stálskip
síðastliðin fjörtíu ár. Útgerðin er rek
in á kennitölu frá árinu 1941.
Stálskip á og rekur einn frysti
togara, Þór HF, en um 25 manns
hafa unnið á honum. Allri áhöfn
inni á Þór var sagt upp störfum í
síðasta mánuði og vísaði Guðrún
þá til þess að uppsagnirnar væru
tilkomnar vegna veiðigjalds fráfar
andi ríkisstjórnar. Boðuð lækkun
núverandi ríkisstjórnar á veiði
gjaldinu mun hins vegar koma sér
einkar vel fyrir Stálskip ef af henni
verður þar sem útgerðin á nær ein
göngu bolfiskkvóta en engan upp
sjávarfisk – veiðigjaldið á bolfiski
lækkar mjög mikið í nýju frumvarpi
ríkisstjórnarinnar.
1000 milljóna lækkun
Boðaðar breytingar á veiðigjaldinu
mun hafa þær afleiðingar fyrir Stál
skip að veiðigjöld útgerðarinnar á
kjörtímabilinu munu lækka úr um
1.400 milljónum króna og niður í um
400 milljónir króna. Sá sem kaupir
Stálskip mun því kaupa útgerð sem
mun njóta mjög ríflegrar lækkunar
á veiðigjaldinu ef frumvarpið verð
ur bundið í lög. Þar að auki er Stál
skip gríðarlega vel rekið fyrirtæki hjá
þeim Guðrúnu og Ágústi en togari
félagsins er veðbandalaus, skuld
irnar eru einungis um 400 milljónir
króna en eignirnar eru um 11 millj
arða króna virði. Eiginfjárhlutfall fé
lagsins er um 96 prósent.
Margir bankað upp á
Ágúst segir að þó þau hjónin séu
ekki orðin þreytt þrátt fyrir að vera
orðin áttræð að hann sé að verða
viljugur til að segja þetta gott og
selja útgerðina. „Maður veit ekki
hvenær kallið kemur. Það getur
komið á morgun eða hinn. Maður
bara veit það ekki,“ segir Ágúst.
Hann segir að það sé frekar
hann en kona hans sem hafi áhuga
á að selja Stálskip. „Það er frekar ég
en hún.“ Hann segir hins vegar að
engar alvarlegar viðræður hafi átt
sér stað. „Það hafa margir bankað
upp á en ég vil ekkert segja hverjir
það eru fyrr en ég veit hvort einhver
alvara er á bak við það.“
Meðal þeirra fyrirtækja sem
nefnd hafa verið til sögunnar sem
hugsanlegir kaupendur Stálskipa
eru FISK Seafood á Sauðárkróki og
reykvíska útgerðin Brim. Ljóst er
að útgerðin er góður biti og að hún
muni ekki fást fyrir lítið. n
n Áhugasamir útgerðarmenn hafa haft samband við eigendur Stálskipa
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Undirbúa sölu Eigend-
ur Stálskipa undirbúa
sölu á útgerðinni. Guðrún
Lárusdóttir er fram-
kvæmdastjóri og einn af
eigendum Stálskipa.
„Það er frekar
ég en hún
Gladdi
grallaraspóann
Hlegið var dátt í þingsal þegar Guð
mundur Steingrímsson, þingmaður
Bjartrar framtíðar, gerði góðlátlegt
grín að þjóðmenningaráherslum
ríkisstjórnarinnar síðastliðinn
föstudag. „Það gladdi óneitanlega
grallaraspóann í sálinni á þessum
sólskinsdegi að heyra hæstvirtan
forsætisráðherra, þrátt fyrir þjóð
menningarlegar áherslur, nota
orðið „sándbæt“ hér í pontu,“ sagði
hann í umræðum um fjárfestingar
áætlun fyrri ríkisstjórnar.
Eftir að ræðu Guðmundar lauk
fann forseti þingsins sig knúinn til
að koma ábendingu á framfæri.
„Það hafði farið fram hjá forseta að
hæstvirtur forsætisráðherra hafði
brugðið fyrir sig enskri tungu úr
ræðustól áðan og vill forseti því að
gefnu tilefni, vegna ábendingar
hæstvirts þingmanns, vekja athygli
á að í fyrstu málsgrein 91. greinar
þingskapa Alþingis segir svo: „Þing
málið er íslenska“.“
Sigmundur Davíð lét sér þetta þó
ekki að kenningu verða því í upp
hafi næstu ræðu sletti hann aftur
ensku: „Herra forseti. Ókei, ég skil
hvað forseti er að segja.“ Þá greip
Einar fram í fyrir honum og sagði
„Ég bið hæstvirtan forsætisráðherra
að íslenska þetta ávarpsorð hér í
upphafi.“ Þrátt fyrir hörð orðaskipti
þingmanna á sumarþingi virðast
þeir ekki hafa glatað hæfileikanum
til að slá á létta strengi.
Róleg helgi hjá
lögreglunni
Laugardagsnóttin var heldur ró
leg hjá lögreglu. Á sjötta tíman
um var einn ökumaður hand
tekinn, grunaður um ölvun við
akstur. Hann var færður á lög
reglustöð en var sleppt úr haldi
að lokinni sýnatöku.
Rétt eftir kl. 6 á sunnudags
morgun var tilkynnt um að bif
reið hafi verið ekið á ljósastaur
við gatnamót Snorrabrautar
og Sæbrautar. Ökumaður bif
reiðarinnar var fluttur á slysa
deild og síðan á lögreglustöð að
skoðun lokinni. Hann er grun
aður um ölvun við akstur og var
því vistaður í fangageymslu.