Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Page 13
Fréttir 13Mánudagur 24. júní 2013
„Þú vissir upp á þig skömmina“
n Dómarinn lét Jeremy Forrest heyra það fyrir sambandið við nemanda sinn
Þ
rítugur kennari, Jeremy
Forrest, játaði fyrir dómi að
hafa sofið hjá 15 ára nem-
anda sínum, sem hann flúði
með til Frakklands eftir að upp um
samband þeirra komst heima fyrir
– í Bretlandi. Fyrir að hafa numið
barnið á brott, reyndar með vilja
stúlkunnar, fékk hann eins árs
fangelsisdóm og fyrir kynlíf með
ólögráða barni fékk hann fjögurra
og hálfs árs dóm. Samtals hlaut
hann því fimm og hálfs árs dóm.
Mál Forrest hefur vakið mikla
athygli í Bretlandi og víðar. Það
var í september sem hann flúði
til Bordeaux í Frakklandi ásamt
stúlkunni. Í átta daga voru þau á
flótta en þau stungu af frá Bret-
landi þann 27. september. Maður-
inn sótti um vinnu hjá bareiganda
í Frakklandi – en sá bar kennsl á
manninn og leiddi hann í gildru
lögreglunnar.
Eins og DV greindi frá á dögun-
um var Forrest með böggum hild-
ar vegna aldurs stúlkunnar áður en
hann svaf hjá henni í fyrsta sinn.
Svo mjög að hann rýndi í lögin
fyrir fyrstu samfarirnar. Þau voru
að sögn, og samkvæmt textaskila-
boðum hvors til annars, yfir sig
hrifin hvort að öðru – þrátt fyrir að
Forrest væri giftur. Fyrir dómi köll-
uðust þau á og sögðust elska hvort
annað. „Mér þykir þetta svo leitt,“
sagði Forrest við stúlkuna sem var
ekki viðstödd þegar dómurinn var
upp kveðinn.
„Hegðun þín yfir þetta fjögurra
mánaða tímabil stjórnaðist af
sjálfselsku og skaðaði alla í kring-
um þig: fjölskyldu þína, fjölskyldu
hennar, nemendur og kennara
við skólann auk þess sem virðing
fyrir kennarastöðunni hefur bor-
ið álitshnekki vegna framferðis
þíns. Þetta skaðaði þig líka og nú
þarft þú að gjalda fyrir það,“ sagði
dómarinn þegar hann kvað upp
dóminn. Sem kennari hefði hann
átt að reyna að draga úr hrifningu
stúlk unnar, en ekki ýta undir hana.
„Athugun þín á afleiðingum gjörða
þinna sannar að þú vissir upp á þig
skömmina.“ n
baldur@dv.is
Hnípinn Forrest var
svipbrigðalaus þegar
dómurinn var kveðinn upp.
n Landsvirkjun vill virkja í Þjórsárverum n „Þetta er bara til skammar“
Neikvæð áhrif
hlýNuNar á þorsk
n Rannsókn á lífríki við norðanverða austurströnd Bandaríkjanna
B
reytingar á hitastigi sjávar
við norðanverða austur-
strönd Bandaríkjanna og
Kanada hafa leitt til þess
að þorskur hefur flutt bú-
svæði sitt á norðlægari slóðir. Í nýrri
grein, sem birtist nýlega í Progress in
Oceanography, kemur einnig fram
að sterkt samband sé á milli ástands
stofnsins og lífmassa ákveðinna
tegunda dýrasvifs.
Gríðarleg ofveiði
Það er Kevin Friedland hjá North east
Fisheries Science Center sem leiddi
rannsóknina þar sem skoðuð voru
áhrif hitabreytinga á dýrasvif á þeim
svæðum þar sem þorskstofnar hafa
hrunið á landgrunninu við norðaust-
urströnd Bandaríkjanna og Kanada.
Dýrasvif er mikilvæg fæða fyrir
þorsklirfur en þessar hitabreytingar
og ofveiði seinni part tuttugustu ald-
ar leiddi til þess að þorskstofninn
á þessum slóðum hrundi. Á árun-
um 1980 til 1990 voru Kanadamenn
að veiða á bilinu 450.000–560.000
tonn og Bandaríkjamenn í kringum
50.000 tonn samkvæmt gögnum frá
Matvælastofnun Sameinuðu þjóð-
anna (FAO). Í dag eru Kanadamenn
að veiða á bilinu 20.000–30.000 tonn
og Bandaríkjamenn á bilinu 10.000–
20.000 tonn.
Lengi að ná sér
Í rannsókninni var skoðaður þéttleiki
þorsklirfa á ákveðnum svæðum og
hann borinn saman við þéttleika
þess dýrasvifs sem þorsklirfur nær-
ast helst á. Á þeim svæðum þar sem
lífmassi dýrasvifs hafði dregist saman
hafði lífmassi þorsklirfa einnig dreg-
ist saman. Því hefur þorskurinn átt
mjög erfitt með að ná sér á strik eftir
mikla ofveiði á þessum slóðum.
Hiti sjávar stýrir miklu um bú-
svæði og búferla sjávardýra en sjávar-
hiti á þessum slóðum hefur hækkað
töluvert undanfarna áratugi. Mæl-
ingar á sjávarhita hafa staðið yfir á
svæðinu allt frá 1984 en árið 2012
náði sjávarhiti í Maine-flóa hámarki
sem olli því til dæmis að humar á
svæðinu kastaði skel sinni mánuði
fyrr en vanalega og olli það miklum
usla hjá humarveiðimönnum.
Fiskur leitar í kaldari sjó
Ekki er langt síðan að grein birtist
í tímaritinu Nature þar sem rann-
sakendur frá Háskólanum í Bresku
Kólumbíu í Kanada skoðuðu áhrif
hækkandi sjávarhita á helstu fiski-
stofna. Í rannsókn sem gerð var á
vegum háskólans var skoðað sér-
staklega hvaða áhrif hitastigs-
breytingar hefðu haft á árunum 1970
til 2006. Meginniðurstaða rann-
sóknarinnar er ekki ný af nálinni en
hún var sú að hlýsjávartegundir leiti
í sífellt meira mæli í kaldari og dýpri
sjó. Rannsóknin er engu að síður
áhugaverð samantekt á þessari þró-
un sem hefur gert það að verkum að
vissar tegundir leita frá miðbaugi og
í átt til pólanna sem getur haft slæm-
ar afleiðingar fyrir fæðuöryggi á viss-
um svæðum og leitt til harðnandi
samkeppni um fæðu á öðrum.
Breytingar við Ísland
Þó nokkrar breytingar hafa orðið á
lífríkinu við Ísland á undanförnum
áratugum og er stóraukin makríl-
gengd á norðlægum slóðum. Haf-
rannsóknastofnun birti einnig
nýlega niðurstöður Jóns Sólmunds-
sonar þar sem hann skoðaði áhrif
hitabreytinga á botnfisk. Skötuselur,
svartgóma, silfurkóð og litla brosma
eru dæmi um tegundir sem hefur
fjölgað auk þess sem stofn löngu
hefur styrkst. Á móti hefur grálúðu-
stofninn tekið neikvæða sveiflu auk
þess sem nokkrar tegundir mjóra
hafa hopað. Heilt yfir hefur lífmassi í
hafinu við Ísland aukist á tímabilinu
og hafa áhrifin því hingað til verið
jákvæð.
Hægt er að nálgast greinina um
samband dýrasvifs og þorsklirfa
á sciencedirect.com. Hún heitir
„Thermal habitat constraints on
zooplankton species associated with
Atlantic cod (Gadus morhua) on the
US Northeast Continental Shelf.“ n
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
„Á þeim svæðum
þar sem lífmassi
dýrasvifs hafði dregist
saman hafði lífmassi
þorsklirfa einnig dregist
saman.
Rannsóknar-
svæðið Norðanverð
austur strönd Banda-
ríkjanna og Kanada.
Atlantshafsþorskur Hefur
átt erfitt uppdráttar eftir
mikla ofveiði á síðustu öld.
60 dagar án
djúpsvefns
Sérfræðingar í svefnlækningum
segja að Michael Jackson hafi lif-
að í 60 daga án djúpsvefns áður
en hann lést. Það sé lífshættulegt
og slíkt hafi aldrei verið reynt á
manneskju.
Þetta kom fram í réttarhöld-
um sem nú standa yfir þar sem
tónleikafyrirtækið AEG Live
er krafið um skaðabætur af að-
standendum Jackson. Forsvars-
menn AEG Live leituðu til dr.
Conrads Murray sem hef-
ur verið bendlaður við dauða
Jackson til að hjálpa poppgoð-
inu að jafna sig vegna svefn-
leysis. Murray sprautaði þá
Jackson í tvo mánuði fram að
dauða hans með lyfinu propofol
en það tryggir svefn en kemur
í veg fyrir djúpsvefn, REM. Dr.
Charles Czeisler, sérfræðingur
hjá Harvard, segir að ef Jackson
hefði ekki látist vegan of
stórs skammts af lyfjum hefði
djúpsvefnleysið dregið hann til
dauða.
Czeisler sagði fyrir rétti að
rottur á tilraunastofu lifðu í fimm
vikur án REM-svefns en slíkar
tilraunir hefðu aldrei verið fram-
kvæmdar á mönnum enda tald-
ar lífshættulegar. „Þetta er eins
og að gefa einhverjum sellulósa-
töflur í stað matar. Þér liði eins
og þú værir saddur en fengir
engar kaloríur eða nauðsynleg
næringar efni,“ sagði Czeisler.
Einkenni þess að missa
djúpsvefn svo lengi eru væni-
sýki, þunglyndi, slen og fjarlægð
í samskiptum en þetta er allt á
meðal einkenna sem Jackson
er sagður hafa þjáðst af áður en
hann dó.
500 manns
látin
Nú hafa meira en 500 manns
látið lífið í stórflóðum í norður-
hluta Indlands. Flóðin hafa ver-
ið verst í Uttarakhand-héraði,
sérstaklega í kringum bæinn
Kedarnath.
Indverski herinn hefur
reynt að bjarga fólki og koma
nauðsynjum til bágstaddra. Þá
hefur herinn einnig reynt að ná
líkum þeirra sem hafa farist í
flóðunum og fljóta nú um allt.
33.000 manns hefur verið bjarg-
að undanfarna daga en 50.000
eru enn í hættu.