Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Blaðsíða 16
16 Neytendur 24. júní 2013 Mánudagur
D
V hefur tekið hér saman
nokkur af bestu tjaldsvæð-
um landsins samkvæmt
stjörnugjöf sem finna má á
tjalda.is en þar hafa ferða-
langar og lesendur síðunnar gefið
svæðunum stjörnur. Hér má sjá
nokkur af þeim bestu á hverjum
landshluta en nokkur þeirra fá fullt
hús stiga eða fimm stjörnur.
Í þessari samantekt er einungis
verð fyrir gistinguna en misjafnt er
hvort tekið sé gjald fyrir þjónustu svo
sem sturtu. Á flestum stöðum er þó
tekið gjald fyrir rafmagn og notkun á
þvottavélum þar sem sú aðstaða er
fyrir hendi.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
WC Klósett
Kalt vatn
+ / -
Heitt og kalt vatn
Rafmagn
Sturta
Leiktæki
3G 3G
Eldunaraðstaða
Þvottavél
Aðstaða til losunar affalls-
vatns og seyru af húsbílum
Internet
Þetta eru bestu tjaldstæðin
n Sjáðu nokkur af bestu tjaldstæðunum í hverjum landshluta n Á sumum tjaldstæðum er gisting gjaldfrjáls
10 Básar í Þórsmörk
Tjaldsvæðið er allt í kring um skála
Útivistar og hægt er að tjalda á flötum
ellegar í lautum í skógi vöxnu lands-
laginu.
Verð:
Á mann: 1.100 kr.
Þjónusta:
WC
4 Hraunborgir
Gott fjölskyldutjaldstæði sem er alveg
við þjónustumiðstöð Hraunborga. Á
svæðinu er fjölbreytt afþreying í boði, til
dæmis sundlaug, golfvöllur, mini-golf,
körfuboltaaðstaða, leiktæki fyrir börn,
leikherbergi, sjónvarp og útsýnisskífa.
Verð:
Á tjald, hjólhýsi, tjaldvagn,
fellihýsi eða húsbíl: 1.900 kr.
Þjónusta:
WC
3G
+ / -
6 T-bær
Gróið svæði fyrir fjölda tjalda en svæðið
tekur um 40–50 tjöld. Á tjaldsvæðinu
er einnig lítið hús þar sem boðið er upp á
svefnpokagistingu fyrir 3–4 og vinalegt
kaffihús þar sem lögð er áhersla á
persónulega þjónustu í afar fallegu um-
hverfi. Mikil náttúrufegurð er í Selvogi.
Verð:
Fullorðnir 700 kr.
Þjónusta:
WC
9 Þorlákshöfn
Tjaldstæðið er staðsett rétt við
Íþróttamiðstöðina og kirkjuna en við
sundlaugina er einnig gervigrasvöllur,
leikvöllur og frjálsíþróttavöllur. Ágætis
aðgengi fyrir fatlaða, bæði er svæðið
sjálft slétt en svo er salerni fyrir fatlaða.
Verð:
Fullorðnir: 900 kr.
Ellilífeyrisþegar og öryrkjar: 600 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Þjónusta:
+ / -
WC
1 Akranes
Tjaldsvæðið á Akranesi er staðsett í
Kalmansvík sem er í útjaðri bæjarins.
Kalmansvík er falleg vík með fallega
fjallasýn til norðurs. Göngustígar liggja
um svæðið til allra átta. Svæðið er
einnig áhugavert svæði fyrir fugla-
áhugamenn, bæði sjófugl og landfugl.
Verð:
Fullorðnir 500 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Verð á tjald, hjólhýsi, tjaldvagn,
fellihýsi og húsbíl: 500 kr.
+ / -
WC
WC
2 Búðardalur
Tjaldsvæðið stendur í miðju Búðardals
í fallegum trjálundi og er á vinstri hönd
þegar komið er inn í Búðardal úr suðri
eftir þjóðvegi númer 60. Aðstaða fyrir
tjöld er góð. Runnar skipta tjaldsvæð-
inu í nokkur svæði svo allir ættu að fá
skjólgott pláss.
Verð:
Fullorðnir 750 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
Þjónusta:
WC
3G
3 Fljótstunga
Tjaldsvæðið í Fljótstungu er stórt en
látlaust og afar rólegt og kyrrlátt og þar
er boðið upp á hellaferðir með leiðsögn í
hraunhellinn Víðgelmi.
Verð:
10 ára og eldri: 800 kr.
Þjónusta:
WC
5 Hverinn,
Kleppjárnsreykjum
Tjaldsvæðið býður upp á 80–100 stæði
fyrir tjöld, húsbíla og aðra ferðavagna.
Notalegt og rólegt, kjarri vaxið umhverfi
með fjölbreyttri afþreyingu og þjónustu
fyrir alla aldurshópa.
Verð:
Tjald 1.800 kr.
Fellihýsi, hjólhýsi, tjaldvagn eða húsbíll
2.500 kr.
Þjónusta:
+ / -WC
7 Borðeyri
Tjaldsvæðið á Borðeyri er ágætlega
slétt grasflöt með alllöngum skjólvegg
fyrir norðanátt. Það er staðsett mjög
nálægt fjöru og er vel til þess fallið að
fara í fjöruferð að morgni eða að kvöld-
lagi, þegar hvað lygnast er í firðinum.
Fuglalíf er fjölskrúðugt og selir sjást
nokkuð oft.
Verð:
Fullorðnir 1.000 kr.
Frítt fyrir 14 ára og yngri
Þjónusta:
+ / -WC
8 Tálknafjörður
Tjaldsvæðið á Tálknafirði er staðsett
við hlið sundlaugarinnar, miðsvæðis í
þorpinu.
Verð:
Fullorðnir 1.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
40 prósenta afsláttur
er fyrir elli- og örorkulífeyrisþega
Fjórða hver nótt er frí
Þjónusta:
+ / -WC
3G
11 Tungudalur,
Ísafjörður
Staðurinn er frá náttúrunnar hendi afar
hentugur, skjólsæll og fagur. Talsverður
trjágróður er á tjaldsvæðinu. Bunárfoss
gnæfir yfir svæðið og Buná liðast um
svæðið og skiptir tjaldsvæðinu í tvo
hluta.
Verð:
Á mann 1.300 kr.
Frítt fyrir 18 ára og yngri
Þvottavél og þurrkari taka klink
Þjónusta:
+ / -WC
3G
12 Urðartindur,
Norðurfirði
Tjaldsvæðið stendur á tveimur stórum
túnum í Norðurfirði með einstakt útsýni
yfir fjörðinn og fjallahringinn allt í kring.
Stutt er niður á fallega sandströnd þar
sem sjávarniðurinn berst um fjörðinn.
Verð:
Fullorðnir 1.000 kr.
Frítt fyrir börn
Þjónusta:
+ / -WC
Frí gisting
Samkvæmt síðunni tjald.is eru nokkur
tjaldsvæði þar sem ekki þarf að greiða fyrir
gistingu en þau eru:
Tjaldsvæðið Ófeigsfirði
í Árneshreppi
Salerni og rennandi vatn
Frítt að gista en tekið er við frjálsum
framlögum
Tjaldsvæðið Breiðdalsvík
Staðsett í miðju þorpinu og þar er aðstaða
með heitu og köldu vatni, salerni og palli
með vaski og krana.
Tjaldsvæðið Garði
Salerni og rafmagn.
Tjaldsvæðið Kópaskeri
Aðstaða með sturtu og fleiru.
Tjaldsvæðið Raufarhöfn
Sturta og rafmagn fyrir ferðavagna.
Tjaldsvæðið við Skagasel
á Sauðárkróki
Tjaldsvæðið Götu Þorlákshöfn
Tjaldsvæði með salernum, rennandi heitu
og köldu vatni í vöskum og sturtur. Veitingar
seldar á staðnum.
Hvar má
tjalda
Á síðunni camping.is má finna upplýsingar
um hvar má og hvar má ekki tjalda:
n Leyfilegt er að tjalda við aðalvegi og á
óræktuðu landi yfir nótt. Ef tjalda á nærri
húsi þarf að fá leyfi landeigenda. Alltaf þarf
leyfi ef tjöldin eru fleiri en þrjú og tjalda á
lengur en í þrjá daga.
n Leyfilegt er að tjalda við vegi utan hins
almenna vegakerfis ef ekki gilda sérstakar
reglur um svæðið sem ferðast er um.
n Leyfilegt er að tjalda nálægt þjóðvegi á
óræktuðu landi.
n Ef á að tjalda á ræktuðu landi þá þarf
alltaf að fá leyfi landeigenda.
n Alltaf ber að fylgja reglum hvers tjald-
svæðis ef þær eru til.
n Landeigendur geta bannað ferðamönn-
um að tjalda á viðkvæmum svæðum þar
sem hætta er á jarðvegsskemmdum.
n Ef landeigendur eru með tjaldsvæði á
landi sínu hafa þeir heimild til þess að rukka
fyrir þá þjónustu.
n Alltaf ber að skilja við tjaldsvæði í sama
ástandi og að því var komið.
1
2
4
6
7
9
12
3
5
8
11