Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Qupperneq 17
Neytendur 17Mánudagur 24. júní 2013
Þetta eru bestu tjaldstæðin
n Sjáðu nokkur af bestu tjaldstæðunum í hverjum landshluta n Á sumum tjaldstæðum er gisting gjaldfrjáls
13 Hólar í
Hjaltadal
Einn merkasti sögu- og menningarstað-
ur landsins. Í Hólaskógi eru afskapleg
falleg rjóður sem veita gott skjól fyrir
tjöld og vagna. Ótal gönguleiðir eru um
svæðið, auk þess sem góð þjónusta er
á svæðinu til dæmis veitingastaður og
sundlaug.
Verð:
Fullorðnir 1.100 kr.
(1.100 krónur fyrir fyrstu nóttina,
900 krónur fyrir næstu nætur)
Ellilífeyris- og örorkubótaþegar 900 kr.
(900 krónur fyrir fyrstu nóttina,
700 krónur fyrir næstu nætur)
11 ára og yngri frítt
Þjónusta:
+ / -WC 3G
14 Lífsmótun
Tjaldsvæði Lífsmótunar er kyrrðartjald-
stæði. Tjaldsvæði Lífsmótunar er það
eina sinnar tegundar hér á landi. Í stað
þess að koma sér einhvers staðar fyrir
á opnu svæði leigir hver gestur sér sinn
bás. Flestir básanna eru á bilinu 80–100
fermetrar og því má auðveldlega koma
fleiri en einu tjaldi eða hjólhýsi fyrir á
hverjum bás kjósi menn það. Trjágróður
og runnar afmarka básana sem allir eru
grasi vaxnir.
Verð:
Fullorðnir 750 kr.
(2 fullorðnir frítt með hverjum bás)
Börn 6–12 ára 250 kr.
(2 börn frítt með hverjum bás)
Verð á bás 2.500 kr.
Þjónusta:
+ / -WC
15 Lundur
Lundur er með rúmgott tjaldsvæði í fal-
legu umhverfi. Birkiskógur er umhverfis
tjaldsvæðið og gefur gott skjól.
Verð:
Fullorðnir 1.100 kr.
Frítt fyrir 14 ára og yngri
Þjónusta:
+ / -WC
16 Varmahlíð
Fjölskylduvænt svæði með ótal
afþreyingarmöguleikum í nágrenninu.
Það er skógi vaxið og því mjög skjólgott.
Tjaldsvæðið er í misstórum básum sem
eru afmarkaðir með trjábeltum. Stutt er
í alls kyns afþreyingu. Tveir fótbolta-
vellir eru við tjaldsvæðið og aðeins 250
metra ganga eftir fallegum skógarstíg
að sundlaug ásamt heitum potti. Að
auki er sér barnalaug sem er heitari,
með lítilli rennibraut fyrir allra minnstu
gestina.
Verð:
Fullorðnir 1.100 kr.
(1.100 krónur fyrir fyrstu nóttina,
900 krónur fyrir næstu nætur)
Ellilífeyris- og örorkubótaþegar 900 kr.
(900 krónur fyrir fyrstu nóttina,
700 krónur fyrir næstu nætur)
11 ára og yngri frítt
Þjónusta:
3G
+ / -WC
17 Fáskrúðsfjörður
Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við
fallegt lón rétt innan við byggðina.
Verð:
Tjald/tjaldvagn/fellihýsi/húsbíll/hjólhýsi
1.000 kr.
Þjónusta:
WC
18 Seyðisfjörður
Tjaldsvæðið er í hjarta bæjarins, umgirt
trjágróðri og hólfað niður með kjarri. Það er
vel staðsett í bænum, en í næsta nágrenni
eru matvöruverslun, handverksmarkaðir,
sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð,
sána og heitir pottar.
Verð:
Fullorðnir 1.100 kr.
Frítt fyrir 14 ára og yngri
Eldri borgarar og öryrkjar 650 kr.
Þjónusta:
WC + / -
3G
20 Fjalladýrð
Verð:
Fullorðnir 1.100 kr.
Frítt fyrir börn 14 ára og yngri
Þjónusta:
WC
+ / -
19 Svartiskógur
Tjaldsvæðið er í skógi vöxnu landi og er
góður áningarstaður fyrir einstaklinga
og hópa. Vel staðsett til skoðunarferða
um Austurland og nágrenni.
Verð:
Fullorðnir 1.000 kr.
Frítt fyrir börn
Þjónusta:
WC + / -
Perlur sem vert er að
heimsækja í sumar
Þakgil
Frábær staðsetning og umhverfi.
Kerlingarfjöll
Fært fyrir alla og nauðsynlegt að upplifa
hálendi Íslands.
Dæli, Víðidal
Góð aðstaða á góðu tjaldsvæði. Um að gera
að skoða Kolugljúfur í leiðinni.
Hamragarðar
Rosalega skemmtilegt svæði við Seljalands-
foss. Nauðsynlegt að láta sig hafa það að
vaða ískalda ána við tjaldsvæðið og skoða
fossinn Gljúfrabúa inni í gljúfrinu.
Hólaskjól
Svæðið er í um það bil klukkustundar aksturs
fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri og er á mörk-
um láglendis og hálendis. Fólk kemst þangað
á fólksbílum en ekki lengra. Tjaldsvæðið er
alveg í hrauninu og er rosalega skemmtilegt.
10
14
15
16
17
18
19
20
13