Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Side 18
18 Sport 24. júní 2013 Mánudagur
Tiger búinn að toppa
n Fyrrverandi þjálfari Tiger Woods segir hann heillum horfinn
Í
byrjun keppnistímabilsins í golfi
í vetur mátti sjá endurnærðan
Tiger Woods sem greinilega hafði
tekið sig saman í andlitinu eftir
að hafa gefið verulega eftir á síðasta
ári og meðal annars leyft Norður-Ír-
anum unga Rory McIlroy að stimpla
sig inn sem besta kylfing heims það
árið. Greinilegt var að Woods ætlaði
ekki að leggjast flatur alveg si-sona
og kom sterkur til leiks í vetur, bar
sigur úr býtum á fjórum PGA-mótum
með skömmu millibili og sendi öðr-
um skýr skilaboð; að Tiger væri kom-
inn aftur.
En hörmuleg frammistaða Woods
á Opna bandaríska mótinu fyrir
rúmri viku þar sem hann endaði á
versta skori, -13 yfir pari, á ferlinum
hefur vakið spurningar hjá mörgum
hvort allt púst sé strax úr honum.
Það telur fyrrverandi þjálfari
hans, Hank Haney, sem segir að því
fari fjarri að Woods sé að standa sig
og ekki sé útlit fyrir að hann nái lang-
þráðu markmiði sínu, að jafna met
Jack Nicklaus og vinna átján risamót
á ferlinum. Woods, sem orðinn er 38
ára, vantar enn fjögur mót til að jafna
það met.
Vandamálið, segir Haney vera að
Woods sé ekki lengur að leggja sig
fram. Þau mót sem hann hafi unnið í
vetur hafi hann unnið á grínunum en
leikur hans að öðru leyti verið mjög
lélegur. Woods undirbúi sig illa fyrir
mót, æfi lítið og taki aðeins níu holu
æfingahringi fyrir stórmót.
Tölfræðin styður orð Haney.
Woods hefur lengi vel verið númer
eitt eða tvö á PGA-túrnum til að
koma bolta sínum inn á grín í rétt-
um höggafjölda en er meðalmaður
nú. Þá segir Haney stutta spilið hjá
Woods mun lakara nú en áður. Hann
sé ekki að smyrja boltanum upp að
stöng á grínum lengur eins og hann
gerði nánast sjálfkrafa á árum áður.
Að vinna næstu fjögur stórmót
og jafna Jack, segir Haney verða
stórt vandamál fyrir Tiger að sínu
mati. „Hvað þá að vinna mót númer
nítján og bæta metið. Ef hann kemst
nokkurn tíma svo langt.“ n
Spánn á
toppnum
áfram
Hinn eiturharði Ryan Giggs,
leikmaður Manchester United,
segir enga þjóð líklega til að etja
kappi að einhverju ráði við Spán-
verja næstu fimm til sex árin að
minnsta kosti. Spánn sé í algjörum
sérflokki bæði hvað leikmanna-
hóp og ekki síður leikstíl, sem tæki
önnur landslið langan tíma að til-
einka sér, varðar. Giggs segir í við-
tali við hið spænska Marca ennþá
óvíst hvenær hann ákveði að láta
staðar numið í fótboltanum og
segist ekki tilbúinn til að ákveða
það. Giggs lék sína fyrstu leiki með
United árið 1991 og hefur því leik-
ið með liði sínu í 22 ár. Geri aðrir
betur.
Messi og Ney
mar smellpassa
Andrés Iniesta, leikmaður
Barcelona og Spánar, telur enga
hættu á að tvær helstu stjörnur
félagsliðs síns skyggi hvor á aðra.
Þar á hann við þá Leo Messi og
hinn nýkeypta Neymar en þótt
þeir séu ólíkir séu að nokkru leyti
leika þeir sama hlutverk hjá liðum
sínum. Spekingar hafa haft á orði
að upp úr geti soðið og benda
til dæmis á að markahrókurinn
David Villa hafi lítið fundið sig við
hlið Leo Messi. Iniesta segir þetta
óþarfa áhyggjur. Báðir leikmenn
séu fyrsta flokks og stórkostlegir
í einu og öllu en viti líka vel að
ekkert félagslið nær árangri án
samvinnu.
Blatter
áhyggjulaus
Sepp Blatter, forseti FIFA, missir
ekki svefn yfir óeirðum í vel-
flestum borgum Brasilíu en í yfir-
lýsingu sem samtök hans hafa
sent frá sér kemur fram að stjórn
þeirra sé ekki í vafa um að stjórn-
völd í Brasilíu verði búin að lægja
öldurnar þegar Heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu fer fram
næsta sumar. Sem kunnugt er hafa
mikil mótmæli í landinu komið
þarlendum stjórnvöldum veru-
lega á óvart. Mótmælendur segja
fráleitt að eyða tugmilljörðum í
undirbúning fyrir knattspyrnu-
keppni á sama tíma og verðlag á
mat og nauðsynjum hækki jafnt
og þétt. Þá þykir mörgum stjórn-
völd gjörspillt og vilja breytingar
til batnaðar.
Tiger Woods Spilaði
sitt versta golf á ferlin-
um á Opna bandaríska
um daginn og fyrrver-
andi þjálfari segir Woods
í raun búinn að vera.
Í
dag, mánudag, er stóri dagurinn!
Seinnipartinn verður Josep „Pep“
Guardiola, hinn eftirsótti fyrrver-
andi þjálfari Barcelona, kynntur
formlega sem nýr þjálfari Bayern
München í Þýskalandi. Hafi einhvern
tíma verið hægt að tala um að taka
við góðu búi á það sannarlega við
um þá útgerð sem Spánverjinn tekur
við hér. Bayern er þrefaldur meistari;
bikarmeistari, deildarbikarmeistari
og Evrópumeistari. Pressan verður
vart meiri en þetta.
Ég fer í fríið
Framhaldssagan um Pep Guardiola
hefur verið vinsæl hjá íþróttafrétta-
mönnum um tæplega eins árs skeið,
síðan þjálfarinn sigursæli hætti fyrir-
varalaust með stórlið Barcelona í júní
í fyrra til þess eins að taka sér frí. Alls-
endis makalaus yfirlýsing geysivin-
sæls þjálfara á hátindi ferilsins með
eitt allra besta knattspyrnulið sem
fram hefur komið. Ekki síst ef haft er
í huga að það var Guardiola sjálfur
sem skapaði það lið Barcelona sem
hvert einasta félagslið og sennilega
landslið líka miða sig nú helst við.
Undir feldi en þó ekki
Næst fréttist af Guardiola í New York
í Bandaríkjunum þar sem hann
dvaldi með fjölskyldu sinni en Spán-
verjinn forðast fjölmiðla eins og
heitan eldinn og þrátt fyrir miklar
tilraunir fékkst aldrei í raun uppgef-
ið hvað Guardiola væri að gera í New
York. Margir settu spurningarmerki
við staðsetninguna og töldu víst að
hann væri að semja um stóra hluti í
MLS-deildinni bandarísku. Svo var
þó alls ekki eins og kemur fram í
stórfróðlegri úttekt þýska tímaritsins
Spiegel þar sem meðal annars kemur
fram að Guardiola sjálfur kom fyrir-
varalaust að máli við forráðamenn
Bayern hálfu ári áður en hann hætti
sem þjálfari Barcelona og lýsti yfir
áhuga sínum.
Málin skýrast
Guardiola sjálfur hefur ekki gefið yf-
irlýsingu eða viðtal eftir að staðfest
var að hann yrði næsti þjálfari Ba-
yern þó vera kunni að hann geri það
við kynninguna í dag. En Karl-Heinz
Rummenigge, einn æðstu stjórn-
enda Bayern München, segist hafa
nánast misst málið þegar Guardiola
hafði orð á því á óvæntum fundi
þeirra í desember 2011 að hann hefði
áhuga að þjálfa Bayern. Spánverjinn
lét Þjóðverjann hafa sitt persónulega
farsímanúmer áður en hann hvarf á
braut og Rummenigge vissi vart hvort
hann átti að taka þetta alvarlega eða
ekki. Málið fór í salt um tíma.
Ítrekar áhugann
Í lok árs 2012, hálfu ári eftir að
Guardiola hafði fyrirvaralaust hætt
með Barcelona sem einn allra sig-
ursælasti þjálfari heims og arkitekt-
inn að stórkostlegri knattspyrnu
liðsins, fékk Rummenigge skila-
boð á nýjan leik. Að þessu sinni
frá bróður Guardiola sem einnig er
umboðsmaður hans. Guardiola var
að ítreka áhuga sinn og vildi við-
ræður. Um svipað leyti var þjálf-
ari Bayern, Jupp Heynckes, bú-
inn að opinbera að hann hygðist
hætta þjálfun að tímabilinu loknu.
Forsvarsmenn Bayern hugsuðu
málið og gengu loks til leynilegra
viðræðna við Guardiola. Samning-
ur var handsalaður og klár á sama
tíma og fjölmiðlar kepptust um að
fjalla um áhuga hinna og þessara
stórliða á að fá Guardiola sem
þjálfara.
Hvað var Guardiola að hugsa?
Áður en Guardiola segir sjálfur sína
sögu er aðeins hægt að giska á hvers
vegna hann hættir á hátindi ferils-
ins með Barcelona og ber víurnar í
þýska liðið sem þrátt fyrir að vera
hátt skrifað var varla eitt af þeim
allra stærstu í Evrópu. Rummen-
igge sjálfur segir að Guardiola hafi
þegar óvæntur fundur þeirra átti
sér stað þegar verið búinn að kort-
leggja allt mögulegt varðandi Ba-
yern. Spánverjinn hafi meira að
segja gert sér ferð til að skoða æf-
ingasvæði félagsins. „Ég veit ekki
ástæðuna en mér segir svo hugur
að honum finnist hann þurfa að
sanna sig sem þjálfari. Hann vilji
sanna að það hafi ekki bara verið
tilviljun að hann gerði Barcelona
að besta liði Evrópu. Sem sumir
geta túlkað sem tilviljun í ljósi þess
mannskaps sem Barcelona hefur
yfir að ráða.“
Hefnd Heynckes
Það sem Guardiola og forráðamenn
Bayern vissu ekki þegar skrifað var
undir samning var að fráfarandi
þjálfari, Jupp Heynckes, myndi stýra
Bayern til þeirra besta keppnis-
tímabils í langan tíma og gera liðið
að þreföldum meistara árið 2013.
Á sama tíma hefur hann tryggt sér
nokkra góða leikmenn sem til liðsins
koma á næsta tímabili og pressan á
nýja þjálfarann gæti ekki verið meiri.
Guardiola þarf að minnsta kosti
að jafna þrennu Heynckes á næsta
keppnistímabili. Ellegar er hætt við
að aðdáendur líti á ráðningu hans
sem mistök. Hann sjálfur sennilega
líka. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
sagður vilja sanna
sig sem þjálfari
Þjálfaraferill
Pep Guardiola
Barcelona B-lið frá júní 2007 til júní 2008
67% vinningshlutfall
Barcelona A-lið frá júní 2008 til júní 2012
72% vinningshlutfall
Spænskir meistaratitlar: 3
Konungsbikarinn: 2
Spænskur bikarmeistari: 3
Spænskir meistarar meistaranna: 3
Meistaradeildarbikar Evrópu: 2
Meistarabikar Evrópu: 2
Heimsbikar félagsliða: 2
n Bayern München valdi ekki Guardiola – Guardiola valdi Bayern
Vinsæll og veit
af því Pep Guardiola
verður formlega
kynntur sem nýr þjálf-
ari Bayern München
síðar í dag.
Aldrei meiri pressa Guardiola samdi
um að taka við Bayern nokkru áður en Jupp
Heynckes gerði liðið að þreföldum meistara.
Þar með eykst pressan á Spánverjann til
mikilla muna.
„Ég veit
ekki
ástæðuna