Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Síða 20
20 Lífsstíll 24. júní 2013 Mánudagur
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Framandi kjöt
getur verið
hættulegt
Matvælaeftirlitið í Bretlandi hef
ur miklar áhyggjur af neyslu fólks
á framandi kjöti og segir slíkt
geta beinlínis verið hættulegt.
Talsvert hefur færst í aukana að
Bretar leggi sér til munns dýr á
borð við lamadýr, rottur, mauræt
ur og apa, sem hingað til hafa
ekki talist til hefðbundins ætis.
Þessum dýrategundum er gjarn
an smyglað ólöglega til lands
ins en kjöt þeirra er oft sligað af
sjúkdómum og fellur ekki undir
breskar reglugerðir um matvæli.
Óvenjuleg heilsulind
opnuð á Hverfisgötu
Í
dag verður opnuð ný og óvenjuleg
heilsulind á Hverfisgötunni, Fish
Spa Iceland. Um er að ræða heilsu
lind sem byggir meðferðir sínar á
því að láta smáa fiska narta í húðina.
Hún verður sú fyrsta sinnar tegundar
hérlendis en sambærilegar heilsulind
ir finnast þó víða um heim og hafa slík
ar meðferðir til dæmis verið stundaðar
í Tyrklandi svo öldum skiptir.
Vinsælt um allan heim
Stofnandi og framkvæmdastjóri fyrir
tækisins er Hallgrímur Andri Ingvars
son. Hann segir hugmyndina hafa
kviknað eftir að hann sjálfur upplifði
þægindin við þessa meðferð erlendis.
„Ég fór í svona spa erlendis og líkaði
mjög vel. Á seinustu árum hefur þetta
orðið vinsælt um allan heim og mér
fannst þetta vanta hérna á Íslandi.“
Fiskarnir sem um ræðir eru af
tegundinni Garra Rufa en hafa fengið
viðurnefnið „læknafiskar“ (e. Doctor
Fish) vegna hæfileika sinna við að
sjúga burt dauðar húðfrumur auk
þess sem þeir hafa lengi verið not
aðir við meðferð á fólki sem þjáist
af sóríasis. Garra Rufa er tannlaus
ferskvatnsfiskur sem á rætur sínar að
rekja til Norður og MiðAusturlanda,
svo sem Tyrklands, Sýrlands, Íraks
og Írans, en hann hefur verið notað
ur við húðmeðferðir í mörg hundruð
ár. „Úti er mikið af fólki með sóríasis
eða önnur sambærileg vandamál sem
nýtir sér þetta og meðferðin er að virka
mjög vel gegn því.“
Jafnast á við hand-
eða fótsnyrtingu
Hallgrímur segir fiskana leita eftir
taugaendum og því sé meðferðin
róandi fyrir allan líkamann auk þess
sem hún auki blóðflæði.
„Garra Rufafiskarnir eru elskaðir
út um allan heim einmitt vegna þess
að þegar þú setur löppina ofan í vatn
ið þá byrja þeir strax að narta í húðina.
Þeir narta alla dauða húð af og skilja
líka eftir ensím sem heitir dítranól. Það
endurnýjar húðina og gerir hana bæði
mjúka og slétta,“ segir hann og bætir
við að „Fish Spa“meðferð geti jafnast
á við að fara í hand eða fótsnyrtingu.
„Við erum að vinna að því að bjóða
upp á þessa meðferð fyrir hendurnar
en eins og er þá er bara hægt að setja
tásurnar ofan í.“
Mikið hreinlæti
„Það var ákveðið ferli að fá leyfi fyrir
starfseminni og innflutningi á fiskun
um. Ég vann þetta í samstarfi við Mat
vælastofnun og heilbrigðiseftirlitið,“
segir Hallgrímur, spurður út í undir
búning opnunarinnar. Hann segist
leggja mikla áherslu á hreinlæti í
heilsulindinni. „Búrin okkar eru með
sírennsli og hreinsibúnað sem dauð
hreinsar vatnið. Svo hreinsum við
búrin reglulega þannig að hreinlætið
er mjög mikið.“
Á vefsíðu Fish Spa Iceland má finna
reglur sem gestir heilsulindarinnar
verða að fylgja til að hreinlæti sé tryggt.
Ekki er æskilegt að koma í meðferð ef
viðkomandi er með fóta eða tánagla
svepp, vörtu, sár eða smitandi húð
sjúkdóm á fótum auk þess sem ekki
má koma ef minna en fjórar klukku
stundir eru síðan viðkomandi bar
á sig brúnkukrem, fjórtán klukku
stundir síðan viðkomandi setti nagla
lakk á táneglurnar eða tólf klukku
stundir síðan viðkomandi rakaði eða
vaxaði á sér fætur.
Misjöfn verðlagning
Hjá Fish Spa Iceland kostar 20 mínútna
meðferð 4.990 kr. en einnig er hægt að
fara í lengri og dýrari meðferðir auk
þess sem allt að fjögurra manna hóp
ar geta komið saman í meðferð. Hall
grímur segir verðlagninguna afar mis
jafna eftir löndum. „Þú getur fundið
þetta ódýrara á Taílandi og fleiri stöð
um, en ég held að til dæmis í Noregi sé
þetta dýrara. Á Benidorm er svo sam
bærilegt verð og við erum með,“ segir
hann og bætir við að Fish Spa Iceland
sé heilsulind sem bjóði upp á dekur og
að allt sé gert til að láta viðskiptavinum
líða sem best. Þetta sé ekki síður hugs
að sem afslappandi meðferð.
Einstök upplifun
Hallgrímur er mjög spenntur fyrir
opnuninni og segir viðbrögðin hingað
til hafa verið jákvæð. „Allir sem hafa
komið til okkar og prófað finnst þetta
bara algjör snilld.“
Hann segir fiskameðferðina eins
taka upplifun. „Þetta er ótrúlega
skemmtilegt. Fyrst kitlar þetta svolítið
og sumir eiga í erfiðleikum með að
setja fæturna ofan í vatnið til að byrja
með. Þetta er gaman og það er mikið
hlegið. En svo um leið og fólk er búið
að venjast þessu örnuddi frá fiskunum
þá er þetta bara þægilegt.“ Hann segir
meðferðina róa allan líkamann. „Þetta
er algjört heilsuspa. Fólk fer út alveg
endurnært og með bros á vör.“ n
n Fish Spa Iceland notar fiska til að narta burt dauðar húðfrumur
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Gott við ýmsum húðvandamálum
Hallgrímur segir meðferðina virka vel gegn
sóríasis og öðrum húðvandamálum.
Afslappandi Hallgrímur segir meðferðina
ekki síður hugsaða sem afslappandi dekur.
„Garra Rufa-fisk-
arnir eru elskaðir
út um allan heim einmitt
vegna þess að þegar þú
setur löppina ofan í vatn-
ið þá byrja þeir strax að
narta í húðina.Snyrtivörulína
fyrir karlmenn
Bandaríski tískuhönnuðurinn
Tom Ford hyggst senda frá sér
snyrtivörulínu fyrir karlmenn.
Línan, sem er væntanleg í haust,
mun innihalda allt frá rakakremi
til hyljara og sólarpúðurs. Ford
segir hugmyndina hafa kviknað
þegar hann vann við afgreiðslu
hjá Avonsnyrtistofu. Hann segir
marga karlmenn hafa komið til
að „kaupa sjampó“ og spurt síð
an út í hyljara eða meik til að
fela bólur og jafna húðlitinn. „Ég
gat ekki annað en fundið til með
þessum mönnum, sem skömm
uðust sín augljóslega fyrir að
vilja heldur nota smá hyljara en
að fara í gegnum daginn meðvit
aðir um bólurnar sínar.“