Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Blaðsíða 22
22 Menning 24. júní 2013 Mánudagur
Máttug nútímadæmisaga
M
aður veit aldrei hvað mann
eskjan á undan í röðinni í
Hagkaup hefur gengið í gegn
um,“ sagði ung þriggja barna
móðir með krabbamein í viðtali
við DV á dögunum og hvatti til um
burðarlyndis.
Ef manneskjan í röðinni í Hag
kaupum væri Ove, 59 ára, fokillur og
beiskur karlfauskur, myndi reyna all
verulega á náungagæskuna. En svo
sannarlega myndi hún borga sig á
endanum.
Bók Fredrik Backman Maður sem
heitir Ove er óður til kærleikans.
Nafnið rímar auðvitað við ástina á
ensku og er skemmtilegur leikur að
orðinu. Það vantar nefnilega aðeins
upp á ástina í lífi Ove sem hefur allt á
hornum sér.
Ove er sjálfskipaður eftirlits
maður í hverfinu sínu og sér til þess
að nágrannarnir fylgi stífum reglum
af hörku, hann er eins konar Georg
Bjarnfreðarson, þótt lesandinn kom
ist að því þegar ævi Ove er rifjuð upp
að á bak við hörkulegt yfirborðið
felast fágætir mannkostir og góð
mennska. Höfundur leikur sér nefni
lega að því að útbúa aðalsöguhetj
una kostum sem eru nauðsynlegir til
þess að kærleikurinn dafni. Tryggð
og heiðarleika. Úr verður stórkostleg
andhetja.
Reglan í lífi hins bráðilla Ove riðl
ast þegar nýir nágrannar flytja inn í
hverfið og gera það sem enginn hefur
gert áður; sýna honum umburðar
lyndi. Horfa fram hjá vægast sagt and
styggilegum athugasemdum hans og
fruntalegri hegðun. Upp frá því hefst
mögnuð, bráðfyndin og spennandi
atburðarás þar sem Ove glímir við
bæði sjálfan sig og kerfið og er allt í
einu í sporum hetjunnar sem gengur
fyrir fylktu liði.
Maður sem heitir Ove er stórkost
leg saga. Hún grætir og kætir.
Þetta er þó ekki væmin bók, langt
því frá. Frásagnarmátinn er hnyttinn
og frumlegur, hraður og grípandi. Það
er engin furða að bók þessi hafi selst í
bílförmum um heiminn hún er mátt
ug nútímadæmisaga. Þörf lexía um
ástina. Við erum nefnilega öll eins og
Ove, það vantar herslumuninn. n
A
ðalheiður S. Eysteins
dóttir myndlistarkona
hélt tíu sýningar sam
tímis á Akureyri um
helgina. Um var að ræða
lokin á viðamiklu verkefni Aðal
heiðar sem hún nefndi Réttar
dagur. Verk efnið hefur staðið yfir
síðan í júní 2008 og snerist um
að setja upp 50 sýningar á fimm
árum. Sýningarnar fjalla allar, á
einn eða annan hátt, um íslensku
sauðkindina.
Gjörningar og tónlist
„Markmiðið var að fara með sýn
ingarnar eins víða og ég hefði
tök á. Ég hef sýnt í fimm löndum
og fleiri en eina sýningu í hverju
landi fyrir sig. Flestar sýningarnar
voru þó hér heima og síðustu tíu í
röðinni á Akureyri nú um helgina,“
segir Aðalheiður.
Mikið var um dýrðir í Listagil
inu svokallaða. Fluttir voru gjörn
ingar, sungið og spiluð tónlist en
Aðalheiður fékk fjölda manns til
liðs við sig.
Reisn mannsins
„Ég hef alltaf fengið alls konar fólk
til að krydda sýningarnar mínar.
Ég leita til listamanna sem hafa
unnið að svipuðum efnistökum
og ég. Þá er ég að tala um ís
lensku sauðkindina og þá menn
ingu sem skapast hefur í kringum
hana. Ég leita alltaf til heimafólks.
Fólks á þeim stöðum sem ég hef
verið að sýna á. Það hefur skapast
skemmtileg stemning í kringum
það samstarf.“
Verk Aðalheiðar eru oft tengd
dagatali sauðkindarinnar, svo
sem sauðburði á vorin og slátrun
á haustin. En hvernig skilgreinir
Aðal heiður list sína?
„Ég er alltaf að fást við mannleg
samskipti. Hversdaginn, líðandi
stund og samskipti fólks. Það búa
allir yfir reisn, bæði menn og dýr,
sér í lagi ef fólk fær að vera í friði í
sjálfu sér – ekki í fangelsi eða þrælk
un,“ segir Aðalheiður og bætir við:
„Kannski er ég að reyna að benda
samborgurum mínum á hvað við
erum öll stórkostleg ef að er gáð!“
Ferðalag á enda
Aðalheiður er Siglfirðingur en hóf
feril sinn í myndlistinni á Akur
eyri. Hún segir því viðeigandi að
ljúka þessu viðamikla verkefni á
þeim stað þar sem hennar vegferð
í heim lista hófst.
„Það er ekki tilviljun að ég enda
þetta hér. Ein sýningin er meira
að segja á gömlu vinnustofunni
minni þar sem ég starfaði fyrstu
árin eftir útskrift. Svo er aðstaðan
til sýningahalds hér á Akureyri
líka framúrskarandi. Að geta sýnt
samtímis á svona mörgum stöð
um er afar spennandi.“
Ný tækifæri
Sýningar Aðalheiðar verða opnar
eitthvað fram eftir sumri. Gestir og
gangandi geta heimsótt Sjónlista
miðstöðina, Deigluna og Ketils
húsið, Mjólkurbúðina, Populus
Tremulu og Sal myndlistarfélags
ins og notið verka Aðalheiðar.
„Það er léttir og ánægjutilfinn
ing að ljúka settu marki,“ segir
Aðal heiður. „Að gera 50 sýningar
er mikið átak og ég hef þurft að ýta
mörgum hugmyndum til hliðar til
að klára þetta verkefni. Nú hefst
kannski nýr tími og ég er spennt
fyrir nýjum tækifærum.“ n
n Hélt 50 sýningar á fimm árum n Lokapunkturinn á Akureyri
Spennt fyrir nýjum
tækifærum
Myndlist
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Eitt af verkum Aðalheiðar Myndlist
hennar tengist íslensku sauðkindinni og
sveitamenningu. MyNd: ARNAR ÓMARssoN.
Andri Snær á
Þingvöllum
Rithöfundurinn Andri Snær
Magnason leiddi gesti og gang
andi um Þingvelli á fimmtu
daginn í síðustu viku. Þema
göngunnar var tekið úr bók
hans – Engar smá sögur, en þar
er saga um mann sem leggst
á gröf Jónasar Hallgrímsson
ar á Þingvöllum í von um að
öðlast skáldgáfu. Andri Snær
ræddi um skáldskap, kristni og
heiðni, frelsi og kúgun og fegurð
og hrylling. Gangan lagðist vel
í fólk og las Andri Snær líka úr
eigin verkum. Til dæmis þetta
textabrot hér: „Taktu þetta blað
og stingdu því ofaní sauðarlegg.
Á Jóns messu nótt skaltu fara
með legginn og leggjast á gröf
Jónasar Hallgrímssonar á Þing
völlum. Ef þér tekst að vera þar
heila nótt þar til fyrsta túristar
úta morgunsins kemur mun
skáldgáfa hans hlotnast þér.“
Independence
Day 2 staðfest
Kvikmyndin Independence
Day eða Þjóðhátíðardagurinn
sló rækilega í gegn þegar hún
var frumsýnd fyrir hartnær 20
árum. Myndin gerist á þjóðhá
tíðardegi Bandaríkjamanna,
þann 4. júlí, þegar geimverur
ráðast á jörðina. Will Smith lék
aðalhlutverkið og Bill Pullman
lék forseta Bandaríkjanna sem
stígur upp í orrustuflugvél og
tekur þátt í orrustunni. Nú hef
ur kvikmyndaframleiðandinn
Fox staðfest að framhaldsmynd
sé í bígerð. Hún verði frumsýnd
árið 2015 og þýski leikstjórinn
Roland Emerich verði aftur við
stjórnvölinn. Það er þó engin
skortur á framhaldsmynd
um sumarið 2015. Avengers 2,
Pirates of the Caribbean 5, Man
of Steel 2 og Jurassic Park 4 eru
meðal þeirra mynda sem frum
sýndar verða – auk þess sem
Star Warsserían mun ganga í
endurnýjun lífdaga.
Bókmenntir
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Maður sem heitir Ove
Höfundur: Fredrik Backman
Útgefandi: Veröld
383 bls.
stórkostleg andhetja Bók Fredrik Backman Maður sem heitir Ove er óður til kærleikans.
Nafnið rímar auðvitað við ástina á ensku og er skemmtilegur leikur að orðinu. Það vantar
nefnilega aðeins upp á ástina í lífi Ove sem hefur allt á hornum sér.