Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Side 26
26 Fólk 24. júní 2013 Mánudagur
Johnny Depp hættur að drekka
J
ohnny Depp er hættur að
drekka. Þetta sagði leikarinn
í viðtali við bandaríska
tímaritið Rolling Stone á
dögunum. Leikarinn, sem hefur
nú verið edrú í nánast hálft annað
ár, segist ekki lengur hafa líkam-
lega þörf fyrir áfengi. Hann hafi
kannað heim Bakkusar afar vel,
jafnvel of vel, og hafi komist að því
að honum og áfengi hafi ef til vill
komið of vel saman.
Á síðasta ári sleit Depp sam-
vistir við kærustu sína til 14 ára,
hina frönsku Vanessu Paradis, og
segist leikarinn hafa haldið sér
edrú meðan á sambandsslitun-
um stóð. Hann viðurkennir þó að
hafa drukkið of mikið í gegnum
tíðina og segir stóra ástæðu fyr-
ir því hafa verið skrautlegan fé-
lagsskap, en af drykkjufélögum
Depp má til dæmis nefna Rolling
Stones-stjörnuna Keith Richards,
tónlistar goðið Bob Dylan og God-
father-stjörnuna Marlon Brando.
horn@dv.is
Glæný brjóst
n Courtney Stodden, 18 ára, er fræg
fyrir að hafa gifst leikaranum Doug
Hutchinson, 52 ára, þegar hún var
aðeins 16 ára. Hún hefur þver-
tekið fyrir þær sögusagnir að hún
sé með silíkon í brjóstum sínum
þangað til núna. Hún birti myndir
af brjóstastækkunaraðgerð sem
hún fór í á dögunum og skartar nú
ósviknum silíkonbrjóstum.
Mundi ekki
brandarana
n Russell Brand
hélt uppistand í
London á dögun-
um við góðar undirtektir. Það sem
vakti athygli fjölmiðla voru hend-
ur hans sem voru báðar útkrotað-
ar í bröndurum. Þetta þótti ekki
fagmannlegt að mati erlendra
slúðurfjölmiðla.
Erfiðasta meðgangan
n Katie Price á von á sínu fjórða
barni með kærasta sínum Kieran
Hayler. Hún segir þessa fjórðu
meðgöngu vera þá erfiðustu
til þessa. „Ég er mun þyngri en
þegar ég gekk með hin börnin
mín og finn meira fyrir þreytu,“
segir Kate. Þetta mun vera fyrsta
barn Kieran.
Bónorð
n Kanye West,
bað sinn-
ar heittelsk-
uðu, Kim
Kardashian,
nokkrum dögum
eftir að frumburður þeirra fæddist
nú á dögunum. Parið er að plana
brúðkaup í september í París.
Stjörnu
fréttir
Íris Björk
Jónsdóttir
Fölsuð á Twitter
n Femínísk Taylor Swift og hátíðleg Tilda Swinton
n Segist hafa drukkið alltof mikið í gegnum tíðina
Á
stralski leikarinn Russell Crowe
sagði í viðtali á dögunum að
hann hafi átt nokkurs konar elti-
hrelli – nefnilega engan annan
en poppgoðið Michael Jackson.
Crowe var í viðtali við breska götu-
blaðið The Sun þar sem hann sagði frá
því að Jackson hafi margoft gert síma-
at í sér. „Michael Jackson stríddi mér
oft í gegnum símann. Hann hringdi
kannski í mig og sagði að það væri
neyðartilfelli og að ég þyrfti að yfirgefa
bygginguna,“ sagði Crowe. „Þegar ég
spurði hver þetta væri svaraði hann:
„Engar áhyggjur Russell, ég var bara
að grínast. Þetta er Michael“. n
Jackson gerði símaat í Crowe
Orðinn edrú
Depp segir skraut-
legan félagsskap
stóra ástæðu
fyrir mikilli drykkju í
gegnum tíðina.
Lenti oft í símaati
Ástralski leikarinn segir
Michael Jackson hafa
verið mikinn grínista.
K
anye og Taylor Swift eiga lítið
sameiginlegt annað en að
bæði eru dregin sundur og
saman í háði á Twitter. Þar lifa
fölsuð hliðarsjálf þeirra góðu
lífi og eru öfgafemínistar, ólíkt þeim
sjálfum í raunveruleikanum.
Fleiri stjörnur glíma við þennan
óvænta ímyndarvanda. Þar ber helst
að nefna Michael Bay og hátíðlega
Tildu Swinton, Hulk, Justin Bieber og
Will Ferrell.
Femínískir stjörnureikningar
Femínísk Taylor Swift, (@feminist-
tswift), er nýjasti falsaði Twitter-
reikningurinn og hefur vakið storm-
andi lukku. Fölsuðu reikningarnir
eiga það nefnilega sameiginlegt að
þykja öllu skemmtilegri en síður
stjarnanna sjálfra. Í tilfelli Taylor Swift
eru færslurnar eins konar bræðing-
ur á lagatextum hennar og slagorð-
um femínismans. „Happy. Free.
Confused. Oppressed by the patri-
archy. At the same time.“ er dæmi
um bræðing af þessu taki. Fyndn-
astur þykir falsaður reikningur Kanye,
„Feminist Kanye“ og „Feminist Hulk“.
Nýleg færsla frá femíníska Kanye er til
að mynda: „Vitið þið hversu margar
heitar tíkur ég á?/ Enga!“
Á meðan femíníski Kanye velti
fyrir sér hlutgervingu kvenna var
Hulk að hugsa um jörðina og endur-
vinnslu: „Hulk hjartar plánetu jörð,
woah! Stóru Hulk-vöðvar góðir að
bera kassa í endurvinnsluna.“
@NotTindaSwinton
„@NotTildaSwinton“ er djúpt hugs-
andi sjálfbær manneskja sem þrífst á
náttúrunni og orku alheimsins, segir
í lýsingu á fölsuðum Twitter-reikningi
Tildu Swionton. Þar er gert háðulegt
grín að Tildu sem á það til að taka sig
mjög hátíðlega.
Færslurnar eru jafnan truflandi
og furðulegar, til dæmis: „Stattu nak-
inn fyrir framan gluggann. Þegar ná-
granninn lítur til þín, þrýstu lófanum
að glugganum og urraðu hljóðlega.“
@michael_bay_
Hinn raunverulegi Michael Bay er
þekktur fyrir að sprengja dót í tætl-
ur og alls kyns jaðarbrjálæði. Fals-
aði Michael Bay er enn öfgafyllri. „Vá,
fyrir gefið mér, ég vissi ekki að Pomer-
ian-hundar væru eldfimir!“ Einn af
áhangendum falsaða Michael Bay er
sjálfur Bandaríkjaforseti.
@queen_uk
Sjálf Elísabet drottning Breta sleppur
ekki við háðið. Falsaða Elísabet klæð-
ist drykkjubuxunum sínum á föstu-
dögum og fer í ginböð og talsmáti
hennar er óheflaðri en þegnar henn-
ar eiga að venjast. n
kristjana@dv.is
Vinsælli en í raunveruleikanum
Fölsuðu stjörnurnar á Twitter eru
oft vinsælli en þær raunverulegu á
samskiptasíðunni. Barack Obama er
einn aðdáenda falska Michael Bay,
femíníski Kanye og femíníska Taylor
Swift slá í gegn og fölsuð Tilda er
álíka truflandi og í raunveruleikanum.
Sleppur ekki Elísabet
Bretadrottning sleppur ekki við
grínið og klæðist drykkjubux-
unum sínum á föstudögum.