Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2013, Side 27
Fólk 27Mánudagur 24. júní 2013
Heldur á vit ævintýranna í Ameríku
n Jóhanna Margét kveður Stöð 2 sátt
F
réttamaðurinn Jóhanna Margrét
Gísladóttir hefur brátt nám við
Duke-háskólann í Norður-Karó-
línu í Bandaríkjunum. Jóhanna
Margrét hefur undanfarin tvö og hálft
ár starfað sem fréttamaður Stöðvar 2
en lýkur brátt störfum þar og heldur
utan til náms.
„Ég var búin að ákveða fyrir löngu
að ég ætlaði í nám á þessum tíma-
punkti,“ segir Jóhanna Margrét í sam-
tali við DV.is en hún mun nema rekstr-
arverkfræði við Duke- háskólann. „Ég
vinn út næstu viku. Ég er að gera síð-
ustu fréttina mína,“ segir Jóhanna
Margrét.
Jóhanna Margrét er á 24 ára en hún
lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla
Íslands árið 2007. Þaðan lá leið henn-
ar í Háskóla Reykjavíkur áður en hún
gerðist fréttamaður hjá Stöð 2 í jan-
úar árið 2011. Með því að hefja nám
við Duke-háskólann fetar Jóhanna
Margrét í spor ekki ómerkari manna
en Richards Nixon, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, pókerspilarans
Vanessu Rousso, sem er betur
þekkt sem Lady Maverick, leikar-
ans og læknisins Ken Yeong, uppi-
standarans og leikkonunnar Rettu
og körfuknattleiksmannanna Shane
Battier, Carlos Boozer, Luol Deng, Gr-
ant Hill og Danny Ferry.
Jóhanna Margrét er mikil afreks-
kona enda afrekaði hún það fyrr í
þessum mánuði að ganga á topp
Hvannadalshnúks í góðum félagsskap
enda fór kærasti hennar, Ólafur Sigur-
geirsson, með henni. Ólafur þessi er
mikill handknattleikskappi og fagnaði
hann bikarmeistaratitli með meistara-
flokki ÍR í handknattleik síðastliðinn
mars en þetta var í annað skiptið sem
karlalið ÍR-inga fagnar bikarmeist-
aratitli í handknattleik. Síðast var það
árið 2005.
Jóhanna Margrét segist kveðja
fréttastofu Stöðvar 2 sátt um leið
og hún heldur á vit nýrra ævin-
týra í Bandaríkjunum og eru klár-
lega spennandi tímar framundan hjá
þessari ungu og hæfileikaríku konu. n
S
igurbjörg Þrastardóttir,
rithöfundur og einn leik-
manna FC Ógnar, var flutt
illa slösuð með sjúkrabif-
reið af styrktarleik liðsins
í síðustu viku.
Sigurbjörg lenti í samstuði við
annan leikmann, nánar tiltekið
Hreim Örn Heimisson söngvara.
Strax varð ljóst að hún hafði brotn-
að það illa á hendi að nauðsyn-
legt var að kalla tafarlaust á aðstoð.
Hreimur Örn fékk hins vegar gula
spjaldið fyrir tæklinguna.
Sigurbjörg var flutt á sjúkrahús
þar sem gert var að brotinu sem
reyndist það alvarlegt að henni var
haldið yfir nótt á slysadeild til eftir-
lits og læknar íhuguðu aðgerð.
Hún bar sig hins vegar afar vel
eftir slysið að íþróttamanns sið
„Þetta þykir mér nú ekki fréttnæmt.
Þetta er tilfært úlnliðsbrot og það
átti að gera aðgerð á mér daginn
eftir. Það var hins vegar ekki gert og
nú á að sjá til með hvernig brotið
grær. Ef vel gengur þarf ég ekki í að-
gerð og verð með gifsið í 3–6 vikur.
Leikurinn hélt áfram
Leikurinn hélt áfram án Sigur-
bjargar, af þeim mikla keppnisanda
sem einkennir liðið og mikið af fé
safnaðist til Ágústu Amalíu Sigur-
björnsdóttur, þriggja barna móður
sem berst við Hodgkins-sjúkdóm-
inn. „Við erum enn að telja saman
söfnunarféð og enn er að bætast
við það,“ sagði Rakel Garðars-
dóttir, framleiðandi Vesturports,
knattspyrnustjóri og eigandi FC
Ógnar. Meðal annarra leikkvenna
liðsins eru Vala Garðarsdóttir forn-
leifafræðingur, Guðrún Katrín
hjúkrunarfræðingur, Bára Krist-
geirsdóttir, grafískur hönnuð-
ur, Rósa, verslunarstjóri í Laura
Ashley, Nína Dögg, leikkona og
mágkona Rakelar, og Þorbjörg
Helga leikkona.
Pikkar með annarri
Sigurbjörg var nýlega útnefnd bæjar-
listamaður Akranes kaupstaðar. Fót-
boltakempan brotna er mikilvirkur
höfundur, hefur gefið út níu ljóða-
bækur og tvær skáldsögur frá því
fyrsta ljóðabókin hennar, Bláloga-
land, kom út 1999. Ljóð hennar
hafa verið þýdd á tólf tungumál og
hún hefur hlotið fjölda verðlauna
og viðurkenninga. Sem betur fer er
hún brotin á vinstri hendi og getur
því áfram sinnt ritstörfum af fullum
móð. „Það kom ekkert fyrir kollinn á
mér alla vega. Ég pikka með annarri,“
segir Sigurbjörg létt í bragði. n
Flutt með sjúkrabíl
af fótboltaleik
n Sigurbjörg Þrastardóttir mölbrotin n Haldið yfir nótt á sjúkrahúsi
Jackson gerði símaat í Crowe
Hreimur fékk gula spjaldið Söngvarinn
Hreimur Örn tæklaði Sigurbjörgu svo illa að
hún brotnaði og var flutt burt með sjúkrabíl.
Mikil útivistarmanneskja
Jóhanna Margrét afrekaði að kom-
ast á topp Hvannadalshnúks fyrr
í sumar. Mynd af Facebook-síðu
Jóhönnu Margrétar.
Jóga væri
líka góður
borgarstjóri
Fyrsti þáttur af fjórum í nýrri þátta-
röð Gauks Úlfarssonar, Pönk í
Reykjavík, var sýndur á sunnu-
dagskvöld á Stöð 2. Í þáttunum er
rýnt í ævi Jóns Gnarr og í þessum
fyrsta þætti var fjallað um æskuárin,
pönkið og vistina á Hlemmi.
Gaukur segir margt við þátta-
gerðina hafa komið sér skemmti-
lega á óvart. „Það kom í ljós að
leiðtogahæfileikar hans voru til
staðar í æsku, frá því segja skólafé-
lagar hans.
Ég var sjálfur búinn að finna það
á samstarfinu við hann að hann
hafði ótvíræða leiðtogahæfileika.
Ef þú færð samansafn af jólasvein-
um eins og eru í Besta flokknum
en nærð að halda þeim á mottunni
og færð að auki alla til að gera sitt
með bros á vör, þá ertu með ríka
hæfileika. Síðan er Jóga, eiginkona
hans, mikilvæg, líka í störfum hans
sem borgarstjóri. Hún væri líka góð-
ur borgarstjóri,“ segir Gaukur frá.
Harðar á vellinum Þær
Nína Dögg og Rakel eru harðar
á vellinum og vaða hér í Hreim,
og Garðar Thor fylgist með.
Illa brotin Sigurbjörg
Þrastardóttir ljóðskáld og
fótboltakempa lengst til
vinstri, lenti í harkalegu
samstuði á styrktarleik FC
Ógnar í síðustu viku.
Fjölgar skatt-
greiðendum
Eva Baldursdóttir, lögfræðingur og
varaborgarfulltrúi Samfylkingar-
innar, á von á barni með kærasta
sínum, Benedikt Smára Skúlasyni,
lögfræðingi, körfuboltaleikmanni
og gítarleikara Búdrýginda.
Þetta tilkynnti Eva á Facebook-
síðu sinni fyrir helgi og fékk fjöl-
margar kveðjur í kjölfarið frá sam-
flokksfólki sínu. „Jæja. Þá er komið
að því að fjölga mannkyninu og
skattgreiðendum landsins. Ekki
veitir af. Við Benni eigum von á
barni þann 2. janúar 2014.“
Pétur Jóhann
er maraþon-
maðurinn
„Ég heiti Pétur Jóhann Sigfússon og
hef aldrei farið út að skokka á æv-
inni, en ég ætla að hlaupa hálfmara-
þon þann 24. ágúst næstkomandi
í Reykjavíkurmaraþoni og í þetta
skipti er ég ekki að grínast,“ segir
uppistandarinn góðkunni. Fylgjast
má með framtaki og þjálfun Péturs
Jóhanns á Facebook-síðunni Mara-
þonmaðurinn. Vinum hans líst ekki
á framtakið og eru hálf uggandi.
„Mér líst ekkert á þetta,“ segir Þor-
steinn Guðmundsson félagi hans.