Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Síða 21
Fréttir 21Helgarblað 21.–24. febrúar 2014
nokkrum vígstöðvum n Skjárinn sækir í sig veðrið
leyndarmál“ íslensks viðskiptalífs
er að 365 er til sölu fyrir „rétt verð“
eins og Ari Edwald hefur orðað það.
Þetta rétt verð er sagt vera í kringum
átta milljarða króna en komið hefur
fram að sex milljarða króna tilboði í
fjölmiðlafyrirtækið hafi verið hafn-
að. Einn af þeim aðilum sem skoðaði
kaup á 365 á sínum tíma var Sigmar
Vilhjálmsson, og viðskiptafélagi hans
Jóhannes Ásbjörnsson, líkt og DV
greindi frá sínum tíma. Verðið sem
beðið var um fyrir fjölmiðlafyrirtækið
var hins vegar svo hátt að enginn að-
ili hefur verið reiðubúinn til að borga
það.
Einn af heimildarmönnum DV
orðar það svo að 365 sé „ undirbúið
fyrir sölu“ og hafa aðgerðir stjórn-
enda fyrirtækisins á síðustu mánuð-
um og á árinu miðað að því að gera
félagið eins fýsilegt og hugsast getur.
Meðal annars hefur reynslumiklum,
dýrari starfsmönnum verið sagt upp
í nokkrum mæli. Afar ólíklegt verður
hins vegar að teljast að einhver muni
kaupa 365 á því verði sem eigendurn-
ir telja sig geta fengið fyrir það. Með
nýju landslagi á sjónvarpsmarkaði og
aukinni samkeppni við aðrar stöðvar
og öðru sjónvarpsformi, til dæmis
eins og Netflix, má líka ætla að mark-
aðshlutdeild Stöðvar 2 minnki og þar
með verðmæti stöðvarinnar.
Gerjunin á sjónvarpsmarkaði
undirstrikar vel þau vandræði sem
365 er komið í, meðal annars vegna
tilkomu nýrrar tækni eins og Netflix.
365 er ennþá risinn á markaðnum en
verður það varla mikið lengur þar sem
áskrifendafjöldi Skjásins og Netflix
er farinn að nálgast áskrifendafjölda
365. 365 gæti því orðið risaeðlan á
markaðnum þar sem grunnurinn
í sjónvarpsdagskránni sem félagið
býður upp á er ennþá línuleg.
„Frábært að sjá“
Þegar Sigmar Vilhjálmsson er spurð-
ur að því hvernig hann meti stöðuna
á sjónvarpsmarkaðnum á Íslandi í
dag segir hann að það sé „frábært
að sjá“ gerjunina sem er í gangi. „Ég
held að þetta sé gott fyrir iðnaðinn í
heild: Þetta er gott fyrir sjónvarpsfólk,
kvikmyndargerðarfólk, leikara, aug-
lýsendur. Ég held að allar svona hrær-
ingar og uppstokkun og nýjungar séu
alltaf af hinu góða. Fyrirtækin sem
eru búin að vera að keppa innbyrð-
is hvert við annað í gegnum árin eru
komin aftur í strigaskóna. Ég held að
þetta örvi bara alla. Það er bara gott,
ég held það, ég held að það sé ekki
spurning. Þetta er bara eins og með
annan iðnað að ef það myndast áhugi
í kringum iðnaðinn þá blómstrar allt í
kringum hann,“ segir Sigmar.
Ari segir að það sé ekkert nýtt að
það sé hörð samkeppni á fjölmiðla-
markaðnum á Íslandi. Hann segir að
stærsti keppinautur 365 verði áfram
RÚV vegna samkeppninnar á aug-
lýsingamarkaði. Ari segist líka ekki
leggja trúnað á áskriftartölur Skjásins.
„ Okkar helsti samkeppnisaðili verð-
ur áfram RÚV með skattpeninga að
vopni. Ég legg ekki trúnað á þess-
ar áskriftartölur frá Skjánum, ekki að
þetta séu greiðandi áskrifendur. Ég
til dæmis, sem áskrifandi Morgun-
blaðsins, er endalaust að fá tilboð um
að gerast áskrifandi að Skjánum frítt.
Þannig að ef það er verið að bjóða
áskriftir frítt, stærri hópum en eru nú-
verandi áskrifendur, þá trúi ég ekki að
það gangi vel að selja áskriftir. Þannig
að ef menn koma stabbanum yfir 20
þúsund þá er það ekki vegna þess að
það gangi vel að selja áskriftir heldur
vegna þess að þær hafa verið gefnar.
Og ég veit vel að það er ekkert sérstak-
lega erfitt að gefa áskriftir,“ segir Ari
en þessi orð súmmera ágætlega upp
stemninguna sem ríkir á sjónvarps-
markaðnum á milli samkeppnisað-
ila. n
Nýr veruleiki Samkeppnin á sjónvarpsmarkaði hefur harðnað eftir tilkomu Netflix og
berst Stöð 2 á nokkrum vígstöðvum. Stöðin er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, eiginkonu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar.
Skjárinn Áskrifendur Skjásins eru nú komnir yfir 20
þúsund að sögn Friðriks Friðrikssonar framkvæmdastjóra.
365 miðlar Ari Edwald segir að sá aukni
kraftur sem settur hefur verið í Popptíví sé tilkom-
inn vegna stofnunar Stórveldisins.
Stórveldið Sigmar Vilhjálmsson er
framkvæmdastjóri og einn af eigendum Stórveldisins.
„Ég held
að þetta
sé gott fyrir
iðnaðinn í heild
Kaka ársins
2014
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunudaga 8.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
• Dalbraut 1