Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 21.–24. febrúar 201430 Umræða Umsjón: Henry Þór BaldurssonTvær stjórnarandstöður „Harður en sanngjarn“ Oddviti Bjartrar framtíðar vill flugvöllinn burt úr Vatnsmýri, þéttari byggð og ábyrga fjármálastjórn Sigurður Ingi R Guðmundsson Er einhver möguleiki á því næturvagnar verði teknir í notkun en líka aðgengi að strætisvögn­ um fyrir skólafólk verði bætt t.d. með lækkun verðs á nemakortum?  S. Björn Blöndal Sæll, ég held að það sé ekki raunhæft að næturvagnar fari að keyra á höfuðborgarsvæðinu á næstu árum. Við erum með áætlanir um að bæta helgarakstur, og það verður að vera fyrsta skref. Varðandi verð á nemakortum þá finnst mér verðið á þeim vera hagstætt. Ef þú miðar við að reka bíl þá kostar það t.d. ca. 60 þúsund á mánuði, en nemakortið kostar 42.500 fyrir árið. Sá saman­ burður er allavega hagstæður. Aðalsteinn Kjartansson Stefnir BF að áframhaldandi samstarfi við Samfylkinguna eftir næstu kosningar, verði það möguleiki?  S. Björn Blöndal Já, ef við fáum meirihluta finnst mér það eðlileg­ asti kosturinn. Við höfum átt gott samstarf við Samfylkinguna og ég hef enga ástæðu til að halda að það muni breytast. Aðalsteinn Kjartansson Hvaða verkefni eru mest aðkallandi í Reykjavík á næsta kjörtímabili?  S. Björn Blöndal Sæll Aðalsteinn. Það eru mörg aðkallandi verkefni í Reykjavík. Húsnæðismál , velferðar­ mál, klára hverfaskipulag, halda áfram skólaþróun. Mér finnst líka mikilvægt að menningarmál verði áfram höfð í hávegum í borginni. En það sem er kannski mikilvægast er að viðhalda pólitískum stöðugleika í borginni og ábyrgri fjármálastjórn. Þá er mikilvægt að Björt framtíð fái sem besta kosningu til að það gangi eftir. Sölvi Eysteinsson Hver er afstaða þín til áframhaldandi tilveru Reykjavíkurflugvallar?  S. Björn Blöndal Sæll Sölvi. Ég er á því að flugvöllurinn muni fara af núverandi stað. Hann er farinn að hamla framþróun borgarinnar og höfuðborgarsvæðisins alls, og þar með alls samfélagsins í landinu. Nú er að störfum nefnd skipuð gáfuðu og vel gerðu fólki, undir stjórn Rögnu Árnadóttur, sem er að skoða möguleg flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun skila af sér í árslok og ég hef trú á þeirri vinnu. Það er mikilvægt að hafa greiðar samgöngur milli lands­ byggðar og höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg mun taka þátt í að leysa það. Helgi Hallgrímsson Nú ríkir neyðarástand í húsnæðismál­ um í Reykjavík með háu leiguverði og litlu framboði. Hvaða aðgerðir hafið þið á prjónunum til að bregðast við þessu?  S. Björn Blöndal Það er rétt að leigumarkaðurinn er óheilbrigður. Í nýju aðalskipulagi – adalskipulag. is – er gert ráð fyrir þéttingu byggðar sem er mjög mikilvæg í þessu samhengi. Við erum líka með í skoðun möguleika á að koma með beinum hætti að uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga, kallast Reykjavíkurhúsin. Þar erum við að leita eftir samvinnu við stúdentasamtök, stéttarfélög, Búseta, Félagsbústaði og fleiri. Það er þegar búið að úthluta þó nokkrum lóðum til félaga sem eru að byggja leiguhúsnæði og það mun halda áfram. Besti flokkurinn hefur staðið sig vel í að hreinsa upp gömul skipulagsklúður og þannig liðkað fyrir uppbyggingu í borginni. Hallgrímur Þór Gunnþórsson Af hverju telur þú þig eiga meira erindi í stól borgarstjóra en aðrir frambjóðendur?  S. Björn Blöndal Tja, það er nú góð spurning. Ég á kannski ekkert meira erindi en aðrir, en ég býð mig hins­ vegar fram í það, sem ekki allir gera. Svo hef ég verið í stífri starfsþjálfun í tæp fjögur ár, þannig að ég þekki starfið ágætlega. Kristinn Traustason Hvernig ná þær breytingar sem gerðar eru á skipulagi Úlfarsár­ dals þeim markmiðunum sem stefnt er að í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur?  S. Björn Blöndal Helsta markmiðið í nýju aðalskipulagi er að þétta byggðina og gera hana hagkvæm­ ari. Það mun að sjálfsögðu nýtast íbúum Úlfarsárdals eins og öðrum borgarbúum. Hverfið Úlfarsárdalur er minna en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir, en hverfið er ekki síður góður staður til að búa á eftir þær breytingar, þar er verið að vinna markvisst að uppbyggingu skóla og íþróttamannvirkja. Við munum leggja okkur fram við að áætlanir um þá uppbyggingu standist. Axel Egilsson Nú þekkja þig fáir, en margir hafa eflaust séð þig standa fyrir aftan Gnarrinn á margri myndinni. Hvað hefur þú til brunns að bera? Og af hverju hefur þú ekki reynt að kynna þig betur þegar ljóst var að þú myndir veita BF forystu í Reykjavík?  S. Björn Blöndal Það er nú ekki al­ veg rétt. Ég á held ég næstum 1.000 vini á Facebook. Ég er almennt ágætlega gerð manneskja, faðir, eiginmaður og frekar duglegur. Ég er að vinna í að kynna mig eins og aðrir frambjóðendur en aðalatriðið er að kynna allt það góða fólk sem er að bjóða sig fram á lista Bjartrar framtíðar. Svo vil ég líka kynna þau góðu verk sem við höfum staðið fyrir síðustu 4 ár. En ég tek þetta bara sem brýningu og skal spýta í lófana með að plögga sjálfum mér. Er Smartland kannski málið? Guðmundur Alfreð Gíslason Og verður framhald af skipulagshryðjuverkum eins og er á Hofsvallagötu, Borgartúni og Snorrabraut?  S. Björn Blöndal Það verður áfram­ hald á uppbyggingu hjólreiðastíga og bættum aðstæðum fyrir gang­ andi. Við erum með metnaðarfulla hjólreiðaáætlun sem mun breyta miklu fyrir samgöngur hér í borginni og á höfuðborgarsvæðinu öllu. Það er markmiðið að draga úr umferðar­ hraða og auka hlut annarra sam­ göngumáta en einkabílsins. Það er algjört lykilatriði fyrir höfuðborgar­ svæðið. Hofsvallagatan var líklega svokallað „overkill“, fuglahúsin voru ekki að gera neitt sérstaklega mikið gagn, en hugmyndin á bak við breytingu götunnar er góð og hefur reynst ágætlega eftir að tekið hafði verið tillit til góðra ábendinga. Ef við höldum áfram að byggja stærri umferðarmannvirki fjölgar bílunum bara í samræmi og við leysum engan vanda. Það er mikilvægast að bæta almenningssamgöngur og aðstæð­ ur fyrir hjólandi og gangandi. Haraldur Karlsson Nú er árið 2014 og Reykjavík verður ekki talin sérlega „snjöll“ borg miðað við þá tækni sem er í boði í dag. Hefur þú, eða munt þú, eitt­ hvað skoðað kosti eins og að snjallvæða hluti eins og götulýsingu og umferðar­ ljós? T.d. hefur hefur verið sýnt fram á allt að 80% orkusparnað við að setja upp snjallstýringu á ljósastaura, sem hefði getað sparað Reykjavíkurborg 144 milljónir árið 2011. Umferðaröryggi og ­flæði má einnig stórbæta með því að hleypa tækninni aðeins í umferðarljósin okkar :)  S. Björn Blöndal Þetta eru spennandi hugmyndir Haraldur. Ég væri til í að setjast niður með þér og ræða þessar hugmyndir. Ástasigrún Magnúsdóttir Hvernig borgarstjóri myndir þú vilja vera?  S. Björn Blöndal Góður, réttlátur og skemmtilegur. Harður en sann­ gjarn. Matthías Matthíasson Sæll Björn. Hver er þín skoðun á því sem Jón Gnarr hefur stundum velt upp varðandi sameiningu bæjarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu?  S. Björn Blöndal Takk Matthías, ég hélt að enginn ætlaði að spyrja um þetta. Ég er mjög mikill áhugamaður um sameiningu sveitarfé­ laga á höfuðborgarsvæðinu, en umfram allt bætt samskipti og aukna samvinnu. Ég held að þessi sveitarfélög séu of mörg. Það er kannski of bratt að ætla að sameina þau öll í eitt, en kannski væri hægt að byrja á að hafa tvö öflug sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Mér dettur í hug, svona alveg út í loftið, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfells­ bær sem eitt og Kópavogur, Garðabær og Hafnarfjörður sem annað! Sigfús Höskuldsson Sæll Björn. Ég er einn af þeim foreldrum sem eiga börn á leikskóla hér í borg. Nú var farið í umdeildar sameiningar á leikskóla­ einingum árið 2012. Á fundi sem við sátum saman í Hlíðarskóla þar sem málin voru kynnt, vorið 2012, þá var þar lofað að allar sameiningar yrðu endurmetnar fljótlega eftir breytingar. Nú hefur kom í ljós að endurmat verkefnisins fer ekki fram fyrr en 3 árum eftir sameiningu. Hvað er það? Allir sem létu málin sig varða þá verða hættir með sín börn á þeim tíma, þar með talinn ég sjálfur. Þetta er ekki það sem lofað var á téðum fundi.  S. Björn Blöndal Heildarendurmat verkefnisins tekur 3 ár, það er sá tími sem er talið að þurfi til að almennileg reynsla fáist. Þessar sameiningar voru vissulega umdeildar, en mér sýnist að þetta hafi almennt gengið vel. Þetta mun til lengri tíma skila okkur öflugra kerfi. Natan Kolbeinsson Eru Besti flokkurinn og Björt framtíð það sama?  S. Björn Blöndal Nei, það er nú ekki alveg þannig. Besti flokkurinn er hugarástand en Björt framtíð er lýðræðislegur stjórnmálaflokkur, byggður á því hugarástandi. Við í Besta flokknum vorum öll sammála um að það fyrirbæri ætti bara að lifa í stuttan tíma og þess vegna ákváðum við að þetta ágæta hugarástand myndi ganga inn í Bjarta framtíð. Þannig náum við því besta úr báðum. Kristinn Traustason Hvernig hyggst BF að standa að úthlutun lóða í borginni?  S. Björn Blöndal Við þurfum að skoða blandaða leið í lóðaúthlutun­ um. Það er hægt að fara útboðsleið, sem hefur bæði gefist vel og síður vel. Svo getur verið möguleiki í einhverjum tilfellum að leggja lóðir inn í húsnæðissamvinnufélög til að styrkja leigumarkað. En við höfum ekki fullmótað okkar hugmyndir í þessu. Axel Egilsson Myndirðu ráða Jón Gnarr sem aðstoðarmann þinn?  S. Björn Blöndal Já, við höfum rætt þetta og mín tilfinning er sú að hann sé verulega áhugasamur. Hann hefur reyndar ekki sagt það beinum orðum, en ég „sensa“ ákveðinn spenning. Ingi Hauksson Nú er borgin mjög skuldug. Hvar viltu skera niður eða hækka gjöld/skatta til að bregðast við því?  S. Björn Blöndal Orkuveita Reykjavíkur er mjög skuldug og þar með borgin. Borgarsjóður sem slíkur er hins vegar ekki mjög skuldugur og stendur mjög vel undir sínum skuldbindingum. Við höfum brugð­ ist mjög ákveðið við skuldastöðu Orkuveitu Reykjavíkur á þessu kjörtímabili og munum gera það áfram. Áframhaldandi pólitískur stöðugleiki og ábyrg fjármálastjórn eru lykillinn að því að ná árangri. Einar Steingrímsson Er þörf fyrir embætti borgarstjóra? Af hverju? (Borgarstjóraembætti voru aflögð í Svíþjóð fyrir 40 árum eða svo.)  S. Björn Blöndal Ég er á því að það sé þörf fyrir borgarstjóra já. Það er nú ekki allt stórkostlegt sem er gert í Svíþjóð. Sigfús Höskuldsson Björn, takk fyrir svarið en það var ekki það sem var lofað, að staðan yrði metin mun fyrr. Það eru til einingar þar sem sameining hefur tekist illa til, ekki ætlar þú þér að sópa yfir þetta með einni niðurstöðu eftir 1 ár?  S. Björn Blöndal Það verður ekki sópað yfir neitt, það tekur bara ein­ faldlega lengri tíma að meta þetta en við vorum að vonast til þegar þetta loforð var gefið. Það þarf að aðlaga sig að raunveruleikanum. Niðurstaða þessa mats verður líka betri og ábyggilegri. Nafn: S. Björn Blöndal Aldur: 44 ára Staða: Oddviti Bjartrar framtíðar í Reykjavík Menntun: Hefur ekki framhaldsmenntun Könnun Hvað finnst þér um viðtal Gísla Marteins? n Gísli Marteinn stóð sig mjög illa n Gísli Marteinn stóð sig illa n Gísli Marteinn stóð sig vel n Gísli Marteinn stóð sig mjög vel 3713 ATKvæðI 59,7% 14,4% 7,2% 18,7%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.