Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Page 40
Helgarblað 21.–24. febrúar 201440 Lífsstíll
Heimur
Hendrikku
Fyrir skömmu skellti ég mér á sól-
arströnd og pakkaði að sjálfsögðu
niður bikiníi og stuttum sumar-
kjólum.
Ég hafði keypt mér allt of marga
tíma í alls konar líkamsmeðferðir
nokkru áður en ferðin var áætluð.
Já, ég er „shallow“ og ekki bara
pínu heldur sjúklega óheilbrigt
mikið. Þessar líkamsmeðferðir
samanstóðu af vægu raflosti, plast-
vafningum og fitusugu.
Fitusuga er ekki ósvipað
ryksugu. Henni er komið fyrir utan
á líkamanum og síðan er bara
sogið af öllu afli. Útkoman á að
vera sléttari og stinnari húð. Þetta
kostar morðfjár og maður mæt-
ir samviskusamlega í þetta annan
hvern dag og trúir því að maður
verði eins og Barbie á eftir. Það er
hægt að selja sumum konum hvað
sem er. Ekki sér maður karla hanga
yfir tilboðum í fitusugur og húð-
meðferðir sem eiga að láta mann
líkjast fóstri … eða allt að því.
Átta vikum síðar var mín mætt
á ströndina og klár í bikiní … eða
það hélt ég. Lærin voru eins og of
þykkur hafragrautur og maginn
(sem hefur mátt þola fitusog inn-
an frá) passaði alls ekki við þessa
brunahana. Ég var eins og ofvaxin
miðaldra Barbie-dúkka og það er
akkúrat ekkert flott við það!
Djöfull er ég óaðlaðandi í
sundfötum í birtu og sól. Innan-
dyra í pínu rökkri slepp ég þokka-
lega fyrir horn. Ég ákvað að halda
mig bara sem mest ofan í lauginni
og sjónum til að njóta mín sem
best. Að halda að maður geti bara
lagað líkamann á nokkrum vikum
eftir áralangt sukk og svínarí er
bara heimska!
Ég sá fjölda annarra kvenna í
þessari ferð sem voru þykkari en
ég og geisluðu af öryggi og þokka
svona almennt. Ég er farin að hall-
ast að því að fegurðin komi innan
frá og að það sé ekki bara slang-
ur sem ljótt fólk notar. Konur sem
bera sig vel þrátt fyrir aukakíló hér
og þar, geta verið miklu flottari en
þær sem teljast vera fitt og flott.
Svo ég geti verið fyrir ofan
sjávar mál í næstu ferð hef ég
ákveðið að temja mér hollari lífs-
stíl og hætta þessum ýkjum í einu
og öllu. Einhver sagði „góðir hlutir
gerast hægt.“ Ég ét allt annað ofan í
mig og hefst nú langavitleysan.
Skinka með
slöpp læri
Heitasta herraklippingin í ár
Skilin á milli stuttu og löngu lokkanna ekki jafn áberandi og undanfarin ár
R
akað að aftan og á hliðunum
með meira hári að ofan – en
skilin á milli verða ekki jafn
greinileg og undanfarin ár.
Klassísk herragreiðsla.“
Svona lýsir hárgreiðslumaður,
með áralanga reynslu, þeirri hár-
greiðslu sem mun verða mest áber-
andi í ár. Hárið að ofan getur verið
allavega, en það þykir einstaklega
fallegt að setja í það vax eða gel
og greiða það aftur. Hárgreiðslan
minnir á herramenn frá síðustu öld
og er jafnan kölluð „old school bar-
ber“ eða gamaldags herraklipping.
Undanfarin ár hefur verið vin-
sælt að vera með greinileg skil á
milli stuttu og löngu lokkana. Ein-
hverjir hafa safnað síðu hári á
hvirflinum og sett það í snúð, en
hárgreiðslumenn segja þá greiðslu
vera orðna barn síns tíma. „Það er
komið gott af þeirri greiðslu.““ n
ingolfur@dv.is
Það heitasta í ár Þessi hárgreiðsla er
áberandi í miðborginni um þessar mundir.
Snyrtileg Hártískan í ár einkennist af
herramennsku.
Vinátta lykillinn að
farsælu sambandi
H
efurðu fundið konu drauma
þinna? Er þetta karlmaður-
inn sem þú vilt að verði fað-
ir barnanna þinna? Ef þið
hafið fundið hvort annað,
ekki sleppa. Raunveruleikinn er sá
að í öllum samböndum þarf að yfir-
stíga vandamál. Nate Bagley, sem
skrifaði bókina Loveumentary, fjall-
aði, í tískutímaritinu GQ, um atriði
sem eru mikilvæg til þess að eiga í
farsælu og langlífu ástarsambandi.
Nate er sálfræðingur að mennt og
ferðaðist um öll Bandaríkin til þess
að vinna að bók sinni, sem fjallar um
sama málefni, og tók viðtöl við yfir 70
hamingjusöm pör sem búa við mis-
munandi aðstæður. Atriðin hér að
neðan vísa í þann fróðleik sem Nate
sankaði að sér í viðtölum sínum.
Vertu stuðningsmaður
númer eitt
Það lenda allir í vandræðum á
lífsleiðinni. Makar geta gert hrapal-
leg mistök í mannlegum samskipt-
um við annað fólk og málað sig út í
horn í vinahópum. Sama hvað bját-
ar á skaltu taka afstöðu með maka
þínum og hjálpa honum að finna
lausnir við vandamálunum. Flestir
eru fullmeðvitaðir um eigin mistök
og því er algjör óþarfi fyrir þig að
vera sífellt að benda maka þínum á
þau. Þú ert ekki að ala upp lífsföru-
naut þinn.
Hugsaðu um vináttuna,
en ekki rómantíkina
Grundvallaratriði farsæls og langlífs
sambands er góð og heilbrigð vin-
átta. Fjölmiðlar fjalla reglulega um
gömul hjón sem eru búin að vera
saman í háa herrans tíð og undan-
tekningarlaust eru þau spurð um
lykilinn að farsælu sambandi. Þrátt
fyrir að svörin séu jafn fjölbreytt og
þau eru mörg er alltaf haft á orði
hversu mikilvæg góð vinátta er. Er
því ekki tilvalið að rækta vináttuna
við maka þinn? Rómantíkin kemur
í kjölfarið.
Ræktaðu sjálfan þig
Í hamingjusömu sambandi eru
tveir heilbrigðir einstaklingar sem
njóta velgengni í sínu persónu-
lega lífi. Þegar þú hvílist vel, neytir
hollrar fæðu og leggur áherslu á að
sinna eigin áhugamálum blómstr-
ar þú enn frekar í sambandinu þínu.
Manneskja sem líður vel kvartar ekki
og kveinar eða rífst yfir smámunum
við maka sinn. Ef þér líður vel ertu
líklegri til þess að gefa frá þér góða
strauma.
Búið til minningar
Gerðu eitthvað spennandi með
maka þínum. Leggðu bílnum utan
vegar í úrhellisrigningu og njóttu
ásta með maka þínum á renn-
votu grasinu. Takið mynd af ykkur
í Vestur bæjarís, með samtvinnaðar
hendur, að mata hvort annað með
ís. Stígið út fyrir þægindarammann
og búið til minningar sem gaman
verður að rifja upp um ókomna tíð.
Þegar þú kyssir maka þinn í kveðju-
skyni skaltu láta kossinn vara lengur
en alla jafna.
Ekki vera fífl
Það á ekki einu sinni að þurfa að
nefna þetta. Lífsförunautur þinn
á skilið alla heimsins virðingu af
þinni hálfu. Ekki kalla maka þinn ill-
um nöfnum eða hækka róminn við
hann. Ef þú lætur öll leiðindi eiga
sig mun það koma margfalt til baka
í formi gleðilegra augnablika og vera
til þess að sambandið bíður ekki
hnekki. n
Sálfræðingurinn Nate Bagley ferðaðist um öll Bandaríkin til að leita svara
Hlæið saman
Góð vinátta í
sambandi er
gulls ígildi.
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is
Dekstur á
konudag
Konudagur er fyrsti
dagur góu, sem er
sunnudagurinn í 8.
viku vetrar. Rétt eins
og fyrsti dagurinn í
þorra er bóndadagur-
inn. Þann dag minntust bænd-
ur og eiginmenn húsfreyjunnar
með þvi að fagna góu, sem færir
með sér vaxandi birtu og vor,
konudaginn ber ávallt upp á
sunnudag. Í seinni tíð er vinsælt
að dekstra við konur á þessum
degi með blómum, sætindum,
kökum og ýmsu öðru. Þeir
sem vilja gera eitthvað annað
en gefa rósir, ættu að prófa að
föndra svolítið. Þessi sleikip-
innablóm er auðvelt að búa til.