Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 21.–24. febrúar 201452 Menning G amlinginn er nokkurs konar Forrest Gump Norðurlanda- búa, maður sem ferðast vítt og breytt um sögu 20. ald- ar og hefur óvart áhrif á helstu viðburði hennar. En á meðan Gump átti sér þá ósk heitasta að gift- ast henni Jenny sinni, þá hefur gam- linginn helst áhuga á að sprengja hluti í loft upp, hvort sem það er meðal sænskra vopnaframleiðenda, í spænska borgarastríðinu eða að hjálpa Bandaríkjamönnum að finna upp kjarnorkusprengjuna. Þetta ætti að bjóða upp á gott grín, og í fyrstu gerir myndin einmitt það. Norður-Evrópa virðist nú algerlega á valdi skandinavískra krimmahöf- unda, en sænski rithöfundurinn Jonas Jonasson tókst að koma nýrri bókmenntagrein inn á metsölulista, bókum sem fjalla um skrítna gamla karla. Hefur til dæmis Fredrik Back- man fylgt í kjölfarið með Maðurinn sem hét Ove. Þessi grein er reynd- ar ekki svo ný í Svíþjóð en myndin Ævin týri Picasso frá 1978, sem fjallar um annan skrýtinn gamlan karl sem rambar fram og aftur um 20. öldina, er enn þann dag í dag einhver fyndn- asta mynd sem gerð hefur verið. Svíar voru í raun fremur áhorf- endur en þátttakendur að 20. öldinni og ef til vill lýsa þessar sög- ur dulinni þrá þeirra til að hafa gert eitthvað meira en að horfa á meðan heimurinn í kringum þá brann. Þegar upp er stað- ið er myndin um gamlingj- ann þó afar meinlaus gam- anmynd, fyndin framan af en þynnist heldur út þegar líða tekur á öldina. Á meðan Gump tókst að heilla mann með einlægni sinni og á sama tíma segja eitthvað um brostnar vonir 68-kyn- slóðarinnar, er erfiðara að tengja við einstakling sem aðeins vill sprengja hluti upp og minnir helst á skets í Prúðuleikurunum. Vel má hafa gaman af gamlingjanum, en maður vildi helst að sagan hefði gert aðeins meira til að takast á við sögusvið sitt í stað þess að nota hana aðeins sem „props“ í bakgrunninum. Það sama má kannski segja um Svía almennt. n (Stundum) sprenghlægilegir Svíar Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Dómur Gamlinginn IMDb 7,2 Leikstjóri: Felix Herngren Aðalhlutverk: Robert Gustafsson, Jens Hultén Saga: Jonas Jonasson 114 mínútur Vegabréf Sigmundar Líklega er hvergi meiri sundurgerð að finna á meðal nokkurrar þjóðar og Banda- ríkjamanna. Í þessu mikla landi, sem er 90 sinnum stærra en Ísland og raunar litlu minna en Evrópa, ægir saman þjóðarbrotum af öllu tagi – og þar af leiðandi er frá- leitt að alhæfa um þegna þess. Boston í norðaustri og Fönix í suðvestri eru svona álíka ólík- ir bæir og Tálknafjörður og Timbuktú – og eitthvað ámóta verður sagt um Seattle í efra og New Orleans í neðra. Hér verður staldrað við í þeirri síðastnefndu; við ósa Mississippi, sjálf- um fæðingar- stað jazzins og fjölmenn- ingarlegasta grautar- potti mann- eskjunnar. Og þarna var ég staddur fyrir tíma Katrínar miklu, sem seinna felldi bæ- inn í byl – og allt stóð enn í ljóma; lífið og músíkin, matur- inn og galsinn. Undir garðinum mikla, sem kenndur er við Louis Armstrong, dáðasta son borg- arinnar, liggur frægasta hverf- ið í plássinu – og ef til vill væri nær að segja það vera það al- ræmdasta, að minnsta kosti það skrautlegasta. Og sei, sei, jú, mikil ósköp, hefði Kiljan sagt af minna tilefni. Franska hverfið í New Orleans, sem Bourbon-stræti sker eins og dísæta tertu um miðjuna endilangt, er líklega glaðasta gata heims. Þar þagnar tón- listin aldrei. Og þar slitnar heldur ekki röðin af fólki sem skvettir út lendunum í eilífum dansi sem liggur um götur og stíga, svalir og hæðir. Yfir öllu vokir rekjan og mollan sem er einkenni þessa stærsta ósasvæðis álfunnar – og þegar við bætist sú sterka angan af kreóla-matnum, sem leggur af hverju húsi, er ekki laust við að skynfærin rugli hvert annað. Þarna eru engir barir án dans. Og yfirleitt er honum þannig háttað að fá- klæddar konur fara ögrandi skrefum um örmjótt og upp- hækkað svið sem teiknar sig eitthvert um salinn. Seint hverfur úr minni mínu myndin af gömlu hjón- unum sem sátu inni á einni svona búllu; við borð fyrir tvo undir sviðssporðinum, eins og þar hefðu þau staðnæmst á morgungöngunni. Klukkan var vart yfir hádegi – og kraumandi hitinn var við það að kæfa stund og stað. Hvít- hærð frúin, með hárið fléttað upp í sátur, sat og prjónaði í gríð og erg, á meðan gamli húsbóndinn, kominn í keng og kryppu af einhverri ævi, góndi án afláts á ungu dans- dömurnar sinna daglauna- vinnu sinni á sviðinu. Ekki mátti á milli sjá hvort þeirra starði ákafar á áhugamál sitt; konan á prjónana, eða karlinn á nektina. En það var friður yfir hjón- unum; mikil ósköp, einhver friður og lífssætti. Hjónin á búllunni Rýmið lekur Anna Rún Tryggvadóttir heldur sína fyrstu einkasýningu í Montreal A nna Rún Tryggvadóttir myndlistarkona heldur sína fyrstu einkasýningu í Montreal í Kanada í næstu viku, þann 27. febrúar. Sýningin heitir render and react, approach to a subconscious sensory system og er innsetning í 140 fermetra galleríi, nánar tiltekið í MAI-galler- íinu í miðbæ Montreal. Einstaklega líflegu galleríi sem er hluti af stofnun sem rekur bæði gallerí og leikhús og gegnir miklu hlutverki í menningarlífi borgarinnar. Snúið upp á skynjunina Anna Rún segir nánar frá verkinu sem er rannsókn á náttúrulegum ferl- um og hegðun ýmissa efna. „Rýmið lekur. Mig langar að skapa heim sem snýr upp á skynjunina og hægir jafn- vel örlítið á upplifun okkar á tíma. Þetta er sýning þar sem við fáum að fylgjast með umbreytingu tímans eða umbreytingu efna fyrir tilstilli tím- ans - sem að vissu leyti endurspeglar breytingarnar innra með okkur. Verk- ið felur í sér að það fer af stað ferli þar sem að efniviðurinn  ýmist byggist upp, brotnar niður, eða tekur á sig teikningu í einhverju formi. Hið ófyr- irséða er nauðsynlegur hluti verksins, sem í sífelldri hringrás og gefur nýja möguleika. Þetta er  sum sé  mjög lif- andi verk.“ Galleríið sem hún sýnir í er einstaklega heppilegt, þar sem þar er einnig rekið leikhús og því mik- il þekking og búnaður til staðar sem býður upp á öðruvísi útfærslur en flest önnur Gallerí. „Mér finnst það mjög spennandi. Ég hef tæknistjóra sem er að vinna með mér sem að hef- ur gríðarlega reynslu af því að vinna í leikhúsi og við uppsetningu mynd- listasýninga, en það hentar þessari sýningu einstaklega vel.” Leikhúsið er innblástur Anna Rún hefur samhliða mynd- listinni starfað sem leikmynda- hönnuður síðustu ár og segir leik- húsið veita sér sterkan innblástur í vinnu sinni. „Sú vinna tengist mynd- listinni á sterkan en ógreinilegan hátt. Reynsla mín úr leikmyndaheiminum og því að vinna á sviði hefur óneitan- lega veitt mér innblástur hvað varðar að vinna með innsetningar í stærri rýmum. Þessi innsetning sem ég er til dæmis að vinna núna er mjög per- formatív án þess að ég sé með mann- eskjur í hlutverki. Þótt að sýningin sé mannlaus fjallar hún um hreyfingu í rými þar sem efniviðurinn “per- formerar” í rýminu.“ Mælt með skólanum Sýning Önnu Rún- ar er einnig lokaverk- efni hennar í masternámi við Concordia-háskóla í Montreal. „Reynsla annarra listamanna af skólanum var góð, ég heyrði margt gott af hon- um frá Kristínu Eiríks- dóttur, myndlistarkonu og skáldi. Ég var búin að vera talsvert mik- ið í Evrópu og langaði að prófa að flytja lengra í burtu. Kanada þótti mér ákjósanlegur stað- ur og Montreal varð fyrir valinu,“ segir Anna Rún. Fjölskyldan númer eitt Anna Rún hélt utan til Kanada -fyrir nokkru til að sinna undirbúningi. Fjölskyldan er á stöð- ugum þeytingi vegna starfa foreldranna en eiginmaður Önnu Rún- ar, Þorvaldur Örn Arnarson leik- stjóri, er einnig á ferð á flugi með sýningu sína, Niflungunum, í Evrópu. Anna Rún segir vissulega flókið að stilla saman fjölskyldunni og framanum en allt gangi það upp á viljanum. „Það er mjög flókið, en af því við erum bæði að gera það sem okkur langar að gera þá finn- um við alltaf leiðir til þess að hafa fjölskylduna í fyrsta sæti. Fjölskyldulífið okkar er alveg heil- agt og það kemur börnunum alltaf til góða að eiga foreldra sem eru fullnægðir í starfi. Ég skildi strák- ana mína eftir heima hjá pabba sínum í 4 vikur, þeir koma all- ir næsta miðvikudag, daginn fyrir opnun og ég hlakka að sjálfsögðu gríðarlega til.“ n „Það kemur börn- unum alltaf til góða að eiga foreldra sem eru fullnægðir í starfi. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Fjölskyldulífið er heilagt Anna Rún hélt utan til Kanada fyrir nokkru síðan með syni sína tvo til að sinna undirbúningi. Fjölskyldan er á stöðugum þeytingi vegna starfa foreldranna en eiginmaður Önnu Rúnar, Þorleifur Örn Arnarson leikstjóri, er einnig á ferð á flugi með sýningu sína, Niflungana, í Evrópu. Anna Rún segir vissulega flókið að stilla saman fjölskyldunni og framanum en allt gangi það upp á viljanum. Verk eftir Önnu Rún Sýning Önnu Rúnar er einnig lokaverkefni hennar í masternámi við Concordia-háskóla í Montreal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.