Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 2
2 Fréttir Helgarblað 7.–10. mars 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Þ
etta eru erfiðir tímar, þetta
er leiðinlegt en við ætlum að
reyna að komast í gegnum
þetta,“ segir Sveinbjörn Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
verktakafyrirtækisins Sveinbjörns
Sigurðssonar og alnafni stofnanda
þess, í samtali við DV. Fyrirtækið fór
fram á greiðslustöðvun á dögunum
en það er elsta verktakafyrirtæki Ís-
lands. Fyrirtækið er búið að vera í
rekstri sömu fjölskyldunnar í sjötíu
og tvö ár. Félagið hefur átt í fjárhags-
erfiðleikum síðastliðin ár en Svein-
björn rekur það til eins verkefn-
is. „Það má rekja þetta sérstaklega
til erfiðleika við eitt stórt verkefni,“
segir hann. Hann segir stjórnendur
fyrirtækisins stefna að því að forð-
ast gjaldþrot sem og uppsagnir.
Í fullum rekstri
Að sögn Sveinbjörns stefnir ekki í
gjaldþrot fyrirtækisins þrátt fyrir að
farið hafi verið fram á greiðslustöðv-
un. „Gjaldþrot er ekkert sem er á
stefnuskránni, alls ekki, langt í frá.
Við stefnum á að komast í gegnum
þetta með kröfuhöfunum. Við erum
búnir að vera í rekstri í sjötíu og tvö
ár sama félagið í eigu sömu aðil-
anna. Við stefnum á að keyra í gegn-
um þetta með okkar ágætu birgjum
og undirverktökum,“ segir Svein-
björn. Hann leggur mikla áherslu
á að fyrirtækið sé enn í rekstri sem
og að ekki komi til uppsagna að svo
stöddu. „Ástæðan er rekstrarerfið-
leikar sem hafa verið síðustu miss-
eri. Félagið er samt í fullum rekstri
áfram og það er endurskipulagn-
ing með kröfuhöfum í gangi. Félag-
ið er í fjárhagslegri endurskipulagn-
ingu og eigendur og stjórnendur
eru að vinna að fullum krafti að því
að leysa núverandi fjárhagslegan
vanda félagsins. Uppsagnir eru ekki
fyrirsjáan legar,“ segir hann.
Eitt verkefni setti
strik í reikning
Séu ársreikningar fyrirtækisins
skoðaðir sést að rekstrarvandi Svein-
björns Sigurðssonar hf. er fremur
nýr af nálinni og má sennilega rekja
til rekstrarársins 2012. Samkvæmt
ársreikningi þess árs tvöfölduðust
skammtímaskuldir fyrirtækisins en
heildarskuldir þess það ár voru tæp-
lega níu hundruð milljónir króna.
Sama ár var hagnaður fyrirtækisins
um átján milljónir króna. Ársreikn-
ingur fyrir árið 2013 hefur ekki ver-
ið birtur. Sveinbjörn segir að rekja
megi erfiðleika fyrirtækisins til eins
ákveðins verkefnis sem hann vill þó
ekki nefna. Telja má líklegt að um
sé að ræða eitthvert þeirra verkefna
sem fyrirtækið vann að á árinu 2012.
Meðal þeirra verkefna sem fyrirtæk-
ið vann að á því ári má nefna stúd-
entaíbúðir við Sæmundargötu, fé-
lagsmiðstöð í Spönginni og íbúðir
við Fagraberg fyrir eldri borgara.
Kann að vera að umrætt verkefni
sé íbúðirnar við Fagraberg þar sem
Sveinbjörn Sigurðsson hf. sá um
fjármögnun framkvæmda og sölu
íbúða. Auk þess gekk erfiðlega að fá
lóðarfyrirgreiðslu frá Reykjavíkur-
borg sem tafði verkefnið.
Rekið á sömu kennitölu í 70 ár
Verktakafyrirtækið var stofnað árið
1942 er Sveinbjörn Sigurðsson hóf
eigin rekstur. Það hefur verið rek-
ið á sömu kennitölunni frá upp-
hafi. Fyrst um sinn byggði Svein-
björn eingöngu íbúðarhús en með
árunum fór hann að færa út kvíarnar
og hefur meðal annars unnið mörg
verk fyrir Reykjavíkurborg í gegnum
tíðina, þar á meðal um tuttugu og
fimm leikskóla síðastliðin fjörutíu
ár. Sveinbjörn eldri hætti öllum af-
skiptum af rekstri árið 1990 og tóku
synir hans þá við; Árni, Sigurður
og Sveinbjörn. Framkvæmdastjóri
fyrir tækisins er sonur Sigurðar. n
72 ára fyrirtæki í
greiðslustöðvun
n Sveinbjörn Sigurðsson hf. er elsta verktakafyrirtæki landsins
Kynslóðaskipti Sveinbjörn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, stendur
fyrir framan alnafna sinn og stofnenda fyrir-
tækisins Sveinbjörns Sigurðssonar hf.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Það má rekja
þetta sérstaklega
til erfiðleika við eitt stórt
verkefni.
Brotnaði illa
í vélsleðaslysi
Börgunarsveitir frá Hólmavík,
Reykhólum og Búðardal voru
kallaðar út vegna slyss á Þorska-
fjarðarheiði sunnanverðri eftir
hádegi á fimmtudag. Þar slasað-
ist vélsleðamaður nokkuð mikið
þegar hann ók fram af hengju.
Maðurinn var einn á ferð og kall-
aði sjálfur eftir aðstoð. Sagðist
hann vera illa fótbrotinn og að
ástand hans færi versnandi. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var einnig
kölluð út og flutti hún manninn á
sjúkrahús í Reykjavík.
Verðmæt
rafmynt
Gengi íslensku rafmyntarinnar
Auroracoin náði hápunkti síð-
astliðinn þriðjudag. Var verð-
mæti þá á hverja einingu um sjö-
tíu og fimm Bandaríkjadollarar
eða rúmlega átta þúsund krónur.
Botninn datt þó úr því á mið-
vikudag þegar gengið féll niður
í tæplega fimm þúsund krónur
á hverja einingu. Þrátt fyrir það
hefur rafmyntin náð talsverðu
flugi þegar á heildina er litið
miðað við gengi hennar er hún
fór fyrst á markað. Nú er myntin
þriðja verðmætasta rafmynt
heims.
Forsvarsmaður rafmynt-
arinnar sem fer huldu höfðu
hefur sagt að 20. mars næst-
komandi verði þrjátíu og átta
einingum af myntinni dreift til
allra Íslendinga. Ekki er alveg
ljóst hvernig sú dreifing mun
fara fram. Að því gefnu að gengi
myntarinnar falli ekki meir þá
eiga allir Íslendingar von á að fá
rafmynt að verðmæti tæplega
tvö hundruð þúsunda króna eftir
tæpar tvær vikur.
Dulnefni forsvarsmanns Aur-
oracoin er Baldur Friggjar Odins-
son. Hefur hann sagt að markmið
rafmyntarinnar sé að bjóða Ís-
lendingum upp á raunhæfan val-
kost í gjaldeyrismálum. „Ég er að
reyna að taka völd frá ríkinu,“ tísti
hann á þriðjudag.
Fagraberg Íbúðir fyrir eldri borgara
við Fagraberg voru meðal verkefna
fyrirtækisins.
50 milljóna arður Hluthafar Melabúðar-
innar hafa tekið sér 50 milljóna króna arð
síðastliðin tvö ár enda gengur reksturinn
vel. Mynd StEFán KaRlSSon
Melabúðin græddi milljónir
Arðgreiðslur síðustu tveggja ára nema 50 milljónum
H
agnaður hverfisverslunar-
innar Melabúðarinnar á
Hagamel í Vesturbænum
í Reykjavík nam nærri 43
milljónum króna árið 2012. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins
sem samþykktur var í stjórn félags-
ins í september í fyrra. Líkt og DV
hefur greint frá síðastliðin ár hef-
ur hagnaður Melabúðarinnar verið
góður síðastliðin rekstrarár.
Hagnaður búðarinnar árið 2012
var rétt aðeins minni en árið á und-
an þegar hann nam rúmlega 43
milljónum króna. Nú er svo komið
að Melabúðin á nærri 164 milljón-
ir króna í hreina eign, í beinhörðum
peningum.
Melabúðin er fjölskyldufyrir-
tæki sem er í eigu hjónanna Guð-
mundar Júlíussonar og Katrínar
Stellu Briem og sona þeirra Péturs
og Friðriks. Synirnir sjá um rekstur
verslunarinnar og hafa gert um
árabil. Verslunin er ein af fáum
hverfisverslunum sem eftir eru í
Reykjavík og dafnar hún vel þrátt
fyrir samkeppni við stórar smásölu-
keðjur eins og Haga og Norvik, sem
rekur Krónuna.
Melabúðin er með 22 starfs-
menn og námu launagreiðslur
félagsins rúmlega 130 milljón-
um króna. Staða Melabúðarinnar
var það góð árið 2012 að hluthaf-
ar verslunarinnar gátu greitt sér út
25 milljóna króna arð. Hluthafarn-
ir gerðu það einnig árið á undan,
2011. Arðgreiðslur síðustu tveggja
rekstrarára nema því samtals 50
milljónum. n
ingi@dv.is