Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 4
4 Fréttir Helgarblað 7.–10. mars 2014 Notar þú gleraugu? Bubble optical gleraugun eru sérstaklega hönnuð fyrir þá sem að þurfa að nota gleraugu. Dýptin og breiddin er meiri en í venjulegum skíðagleraugum. Erum einnig með skíðahjálma fyrir unga sem aldna, bakbrynjur og sólgleraugu fyrir þá bjartsýnu. Skíðagleraugu skíðahjálmar, sólgleraugu, bakbrynjur ofl ofl www.sportvik.com Snjólaug M Jónsdóttir snjoa.m@sportvik.com H ann tilkynnti mér að hann myndi gera það og gerði það svo. Ég var mjög ósáttur við það,“ segir Stefán Thors, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, aðspurður um ástæður þess að áminning sem hann veitti Hrafnhildi Ástu Þorvalds­ dóttur skrifstofustjóra hafi verið dreg­ in til baka af umhverfisráðherra, Sig­ urði Inga Jóhannssyni. „Ég hugsaði minn gang eftir þetta, hvort ég ætti að hætta og fara að gera eitthvað annað, en ég ákvað að halda áfram þarna.“ Áminningin sem Stefán Thors hafði veitt Hrafnhildi Ástu í starfi var vegna samstarfsörðugleika við annan starfs­ mann. Hrafnhildur Ásta, sem er náfrænka Davíðs Oddssonar, var svo ráðin sem forstjóri Lánasjóðs íslenskra náms­ manna í lok árs í fyrra. Illugi Gunnars­ son, menntamálaráðherra og fyrrver­ andi aðstoðarmaður Davíðs, skipaði Hrafnhildi Ástu í starfið þrátt fyrir að stjórn Lánasjóðsins hefði metið ann­ an umsækjanda hæfari. Hrafnhildur Ásta var einn af þremur umsækjend­ um sem stjórnin mat hæfasta. Loka­ ákvörðunin um hvern skyldi ráða var hins vegar hjá Illuga Gunnarssyni og fylgdi hann ekki mati stjórnarinnar. Ljóst er að Hrafnhildur hefði ekki getað fengið starfið hjá LÍN með áminningu fyrir brot í starfi á bakinu. Í viðtali við DV í lok árs í fyrra sagði Illugi Gunnarsson að hann liti ekki svo á að Hrafnhildur Ásta hefði feng­ ið áminningu í starfi þar sem áminn­ ingin var dregin til baka. Boðin sérverkefni Stefán Thors lét af störfum í um­ hverfisráðuneytinu síðastliðinn föstu­ dag eftir að Sigurður Ingi tilkynnti honum að heppilegast væri að hann hyrfi til annarra starfa á vegum hins opinbera. Að sögn Stefáns kallaði Sig­ urður Ingi hann á sinn fund eftir að hann kom nýverið aftur til landsins frá Japan og spurði hann hvort hann vildi stíga til hliðar sem ráðuneytisstjóri. „Hann spurði mig hvort ég vildi stíga til hliðar sem ráðuneytisstjóri og fara í sérverkefni. Ég hafnaði því. Ef það var hans vilji að ég myndi stíga til hlið­ ar þá vildi ég frekar fara í námsleyfi því það var greinilega hans vilji að ég myndi hætta.“ Þegar Stefán er spurður hvaða skýringar Sigurður Ingi hafi gefið fyrir því að hann vildi að hann færi í sér­ verkefni segir hann að engar skýringar hafi verið gefnar sem sneru að honum sjálfum persónulega. „Ég spurði hann að þessu og hann gaf engar skýringar aðrar en að hann væri ekki sáttur við vinnubrögðin í ráðuneytinu. Hann sagði jafnframt að þetta væri ekki mér að kenna.“ Stefán segist því ekki vita af hverju hafi átt að setja hann í sérverkefni. Rannsókn vinnusálfræðings Þegar Stefán tók við störfum í ráðu­ neytinu í apríl í fyrra var hafin rann­ sókn á máli Hrafnhildar Ástu sem vinnusálfræðingur sá um og ræddi hann meðal annars við fjölmarga starfsmenn ráðuneytisins. Rannsókn­ in byggði á kvörtun frá starfsmanni samkvæmt heimildum DV. Hrafnhildi Ástu var boðið að hætta í ráðuneytinu eftir að niðurstaða lá fyrir í rannsókn­ inni en hún þáði ekki það boð. Stefán Thors segist ekki geta rætt um rannsóknina en að hann geti stað­ fest að hann áminnti Hrafnhildi Ástu í kjölfar hennar. „Það sem ég get stað­ fest er að já, ég áminnti hana vegna samstarfsörðugleika. Meira get ég ekki sagt.“ Stefán segir að áminningin hafi átt rétt á sér. Í kjölfar áminningarinnar reyndi Hrafnhildur Ásta að fá hana dregna til baka. Við það naut hún aðstoð­ ar Jóns Steinars Gunnlaugssonar, lögmanns og fyrrverandi hæstaréttar­ dómara. Stefán tók hins vegar ekki gildar athugasemdir Jóns Steinars og Hrafnhildar Ástu. Þegar Stefán lét sér ekki segjast þá var leitað til Sigurðar Inga Jóhannssonar umhverfisráð­ herra sem dró áminninguna til baka. Ráðuneytisstjórinn var ósáttur við þá ákvörðun, líkt og áður segir. Refsing? Sjaldgæft er að áminningar sem veitt­ ar eru af ráðherra eða ráðuneytis­ stjóra séu dregnar til baka. Katrín Jakobs dóttir dró til baka áminningu sem tiltekinn skólameistari hafði fengið árið 2010 en sú ákvörðun byggði á úrskurði umboðsmanns Al­ þingis sem taldi að áminningin hefði ekki átt að rétt á sér. Í því tilfelli var afturköllunin því byggð á úrskurði eftirlitsaðila. Einnig er sjaldgæft að ráðuneytisstjórar láti af störfum með svo skömmum fyrirvara og á sam­ bærilegum forsendum. Þegar Stefán er spurður að því hvort hann telji að verið sé að refsa honum, og hvort sá möguleiki sé ekki fyrir hendi að fyrst hægt sé að fá áminningu í ráðuneyti afturkall­ aða þá sé einnig hægt að hafa áhrif á mannval í þessu sama ráðuneyti, seg­ ir hann: „Ég veit það ekki […] Þetta eru þín orð en það má alveg spyrja.“ Stefán fer nú í námsleyfi í eitt ár. Hann segist ekki íhuga að leita réttar síns í málinu. „Ég er ekki fæddur í gær þannig að ég lifi þetta alveg af.“ DV óskaði eftir svörum frá um­ hverfisráðuneytinu um orsakir þess að setja átti Stefán af sem ráðuneytis­ stjóra en blaðið fékk ekki svör. DV hafði samband við umhverfis­ ráðuneytið til að spyrjast fyrir um ástæður starfsloka Stefáns Thors í ráðuneytinu. Í svari frá upplýsinga­ fulltrúa ráðuneytisins, Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, segir: „Ástæðan er sú að Stefán óskaði eftir námsleyfi sem ráðherra veitti honum.“ Miðað við orð Stefáns sjálfs voru ástæður starfsloka hans hins vegar aðeins flóknari en svo. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Ég áminnti hana vegna sam- starfsörðugleika. n Stefáni boðið að hætta í ráðuneytinu n Fékk ekki skýringar á uppsögn Dró áminninguna til baka Sigurður Ingi Jóhannsson dró til baka áminninguna sem Hrafnhildur Ásta fékk í óþökk Stefáns Thors. Engar ástæður nefndar Stefán Thors segir að engar ástæður hafi verið nefndar þegar hon- um var boðið að hætta sem ráðuneytisstjóri. Íhugaði að hætta eftir að áminningin var ógilt Umdeilt leikfang selt á Íslandi Fjölmiðlar í Bandaríkjunum greindu frá því á dögunum að leik­ fang frá leikfangaframleiðandanum Fisher Price geti mögulega ofhitnað og brennt börn. Leikfang þetta, sæ­ hestur sem nefnist Sooth and Glow, er ætlað ungabörnum. Fréttamiðlar vestanhafs hafa greint frá kvörtun­ um foreldra sem segja rafhlöðu­ hólfið hitna óhóflega og þá hafa einhverjir orðið varir við reyk þegar þeir skiptu um rafhlöður í leik­ fanginu. Sæhesturinn er seldur á Íslandi, meðal annars í Hagkaupum og Húsgagnaheimilinu. Leikfangið var nýlega sett á fimmtíu prósenta afslátt í Hagkaupum en ekki náðist í framkvæmdastjóra verslunarinnar við vinnslu fréttarinnar. Fjóla Þorleifsdóttir, annar eig­ andi Húsgagnaheimilisins, segir að versluninni hafi borist kvörtun vegna ofhitunar leikfangsins. „Það sem ég man eftir var að það hef­ ur verið hringt í okkur út af því að ljósið hefur hitnað. Sá ræddi ekki við mig svo ég get ekki ábyrgst ná­ kvæmlega hvað fór á milli. Við höf­ um ekki fengið neina afgerandi kvörtun. Þegar maður fær ekki formlega kvörtun, það er að segja einhver kemur með vöruna svo hægt sé að sjá hvort hún hafi ver­ ið keypt hjá mér, þá getum við lítið gert,“ segir Fjóla. Fisher Price­fyrir­ tækið hefur ekki vilja innkalla þessa vöru en sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem það sagði leikfangið vera öruggt. Guðfinna kjörin formaður Guðfinna S. Bjarnadóttir fram­ kvæmdastjóri mun taka við for­ mennsku í stjórn Hörpu á hlut­ hafafundi sem haldinn verður fimmtudaginn 13. mars. Hún tekur við af Helgu Jónsdóttur sem baðst lausnar vegna starfa erlendis. Í til­ kynningu segir Guðfinna að hún hlakki mikið til að taka við starfinu í Hörpu, enda sé verkefnið verð­ ugt. Guðfinna hefur áður verið al­ þingismaður og er auk þess fyrsti rektor Háskólans í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.