Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 6
6 Fréttir Helgarblað 7.–10. mars 2014 Helmingur vill tollfrjálsan innflutning Tæplega helmingur landsmanna, eða 48,9 prósent, er fylgjandi því að heimilt verði að flytja inn landbúnaðarvörur án tolla til Íslands. Frá þessu greindi Við­ skiptablaðið á fimmtudag en blaðið lét MMR framkvæmda könnun þar sem spurt var um þetta. 31,7 prósent aðspurðra sögðust andvíg tollfrjálsum inn­ flutning landbúnaðarvara. Af þeim sem tóku afstöðu var 61,1 prósent fylgjandi innflutningi án tolls en 38,9 prósent á móti. Alls var fjöldi þátttakenda 1.013 og var svarhlutfall 90,4 prósent. Í niðurstöðunum kemur fram að fólk á landsbyggðinni er síður fylgjandi tollfrjálsum innflutningi en íbúar á höfuðborgarsvæðinu. Spara rúmar hundrað milljónir Reykjavíkurborg mun spara á bilinu 130–150 milljóna króna á ári með því að taka eingöngu við reikningum á rafrænu formi frá birgjum. Borgarráð hefur sam­ þykkt yfirlýsingu þess efnis og taka reglurnar gildi frá og með næsta ári. Stærri birgjar sem senda borginni reglulega reikninga þurfa að aðlagast breytingun­ um á uppgefnum tíma, en þeir sem eiga í minni viðskiptum gefst hálft ár aukalega til þess að venj­ ast nýjum starfsháttum. Í yfirlýsingu Reykjavíkur­ borgar segir að ávinningur raf­ rænna reikninga sé ekki aðeins í formi sparnaðar því líta megi á rafræna reikninga sem „grænt skref“ og afar umhverfisvæna lausn. Tekur við arði Eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar tekur við arði upp á rúmlega 21 milljón út af hlutabréfaeigninni í N1. Bjarni fær 21 milljón í arð Bjarni Ármannsson á hlutabréf í N1 sem greiðir háan arð L andsýn, eignarhaldsfélag Bjarna Ármannssonar, fær ríf­ lega 21 milljón króna í arð vegna hlutabréfaeignar sinnar í olíufélaginu N1 í fyrra. Líkt og kom­ ið hefur fram ætla hluthafar N1 að greiða sér 1.650 milljónir króna í arð vegna rekstrar rekstrarársins 2013. Bjarni, sem er fyrrverandi bankastjóri Glitnis, eignaðist skulda­ bréf á N1 sem var 100 til 200 millj­ óna króna virði, líkt og hann sagði í viðtali við DV í maí árið 2011. „Ég á skuldabréf á N1, eða félag í minni eigu, að nafnvirði 100 til 200 milljón­ ir króna.“ Eftir að kröfuhafar N1 tóku félagið var kröfunum breytt í hlutafé í olíufélaginu og hefur Bjarni haldið eftir hlutabréfum félags síns í því. Fé­ lag Bjarna er nú á lista yfir 20 stærstu hluthafa N1. Í ársreikningi Landsýnar fyrir árið 2012 er hlutabréfaeign félags­ ins skráð á rúmar 500 milljónir króna. Hlutabréfin í N1 eru þar á meðal. Arðgreiðslan út úr N1 er miklu hærri en hagnaður félagsins á síð­ asta ári en hann nam 638 milljón­ um króna. Framtakssjóður Íslands er stærsti hluthafi N1 með rúmlega 20 prósent hlutafjár og Lífeyris­ sjóður verslunarmanna er næst stærstur með 10 prósenta hlut. N1 var í eigu Benedikts og Einars Sveinssona á árunum fyrir hrun. Olíufélagið var mjög skuld­ sett eftir hrunið og var yfirtekið af kröfuhöfum þess sem breyttu kröf­ um sínum í hlutafé og stýra nú fé­ laginu. n ingi@dv.is Stórfé afskrifað eftir brask bæjarfulltrúans n Böðvar Jónsson átti fasteignafélag í Reykjanesbæ n Tóku 35 milljónir í arð L andsbankinn þurfti að af­ skrifa rúmlega 331 milljónar krónu kröfu sína á hendur eignarhaldsfélaginu Leiðar­ enda ehf. sem var í helm­ ingseigu Böðvars Jónssonar, bæj­ arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Leiðarendi ehf. er fasteignafélag sem meðal annars ætlaði sér að byggja verslana­ og þjónustumiðstöð í Reykjanesbæ. Frá skiptalokum félagsins er greint í Lögbirtingablaðinu. Sigurður V. Ragnarsson átti félagið á móti Böðvari. Engar eignir fundust í þrota­ búi félagsins. Böðvar, sem lenti í öðru sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­ flokksins í Reykjanesbæ í síðustu viku, segir hins vegar aðspurður að Landsbankinn hafi verið búinn að taka eignir félagsins upp í skuldir. „Bankinn tók bara þær eignir sem eftir voru.“ Lánin tekin hjá sparisjóðnum Félagið hefur ekki skilað ársreikn­ ingi síðan árið 2007. Þá var félag­ ið með fimm verk í vinnslu, fjög­ ur í Reykjanesbæ og eitt á Flúðum. Böðvar var framkvæmdastjóri fé­ lagsins sem átti bókfærðar eign­ ir upp á nærri 300 milljónir í árs­ lok 2007. „Þetta er félag sem var í byggingarstarfsemi, fasteignafé­ lag. Félagið byggði eignir, keypti eignir og var með þær í útleigu. Lán þess urðu einfaldlega hærri en verðmæti eignanna.“ Böðvar, sem er forseti bæjar­ stjórnar í Reykjanesbæ, segir að­ spurður um skuldir félagsins að Leiðarendi hafi upphaflega tekið lán hjá Sparisjóðnum í Keflavík. „Við áttum í viðskiptum við Lands­ bankann, eða Sparisjóðinn í Keflavík, og síðar Landsbankann.“ Hann segir að félagið hafi með­ al annars tekið gengistryggð lán sem hafi haft sitt að segja í starf­ semi þess. 26 milljarða kostnaður Nokkur tengsl voru á milli Sjálf­ stæðisflokksins í Reykjanesbæ og Sparisjóðsins í Keflavík á árunum fyrir hrunið en Þorsteinn Erlings­ son, annar bæjarfulltrúi Sjálfstæð­ isflokksins, var um tíma stjórn­ arformaður sjóðsins og Steinþór Jónsson bæjarfulltrúi sat einnig um tíma í varastjórn hans. Kostnaður skattgreiðenda vegna falls Sparisjóðsins í Keflavík var um 26 milljarðar króna en Landsbankinn tók við eignasafni hans eftir fall hans. Síðustu tvö árin fyrir fall sparisjóðsins færði hann niður lán upp á 18 milljarða króna og afskrifaði sjö milljarða. Spari­ sjóðnum í Keflavík hefur verið lýst sem „stjórnlausum“ af fréttastofu RÚV en lánveitingar út úr sjóðn­ um til alls kyns fjárfestingarver­ kefna í Reykjanesbæ voru með nokkrum ólíkindum. Segja má af fullri sanngirni að fá fjármálafyrir­ tæki á Íslandi, ef eitthvert, hafi ver­ ið eins illa rekin og Sparisjóður­ inn í Keflavík og endurspeglast sú staðreynd meðal annars í kostnaði almennings af falli hans og öllum þeim skuldaafskriftum sem af því hafa hlotist. Tóku 35 milljóna arð Í ársreikningi Leiðarenda fyrir árið 2007 kemur fram að á því ári og ár­ inu á undan, 2006, hafi hluthaf­ ar félagsins greitt sér 35 milljóna króna arð út úr því. Líkt og áður segir var staða félagsins vissulega góð á þessum tíma og var eigin­ fjárstaða félagsins jákvæð og því skilyrði fyrir útgreiðslu arðs. Þessi staða breyttist svo verulega um og eftir íslenska efnahagshrunið 2008. Þeir Böðvar og Sigurður halda eftir þeim arði þrátt fyrir gjaldþrot félagsins. Athygli vekur í ársreikningi fé­ lagsins árið 2007 að Leiðarendi vann meðal annars að byggingu núverandi heimilis Böðvars að Guðnýjarbraut í Njarðvík en í reikninginn er bókfærð skuld vegna þess verkefnis. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Við áttum í við- skiptum við Landsbankann, eða Sparisjóðinn í Keflavík, og síðar Landsbankann. Forseti bæjarstjórnar Böðvar er forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ og lenti í öðru sæti í nýafstöðnu prófkjöri flokksins.Mynd STeFÁn KarLSSon Tóku arð út úr félaginu Böðvar Jónsson og viðskiptafé- lagi hans tóku 35 milljóna arð út úr félaginu fyrir hrunið 2008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.