Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Qupperneq 10
10 Fréttir Helgarblað 7.–10. mars 2014 Öryrkjabandalagið vill lagabreytingu n Skoruðu á ráðherra árið 2011 n Lífeyrisþegar á sjúkrahúsum í vandræðum V ið höfum óskað eftir endur- skoðun á lögunum og jafn- framt að þeim verði breytt. Við höfum unnið að því með Landssambandi eldri borgara, elli- lífeyrisþegar lenda oft í þessu. Slíkt mál hefur hins vegar aldrei kom- ið inn á borð til okkar,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabanda- lags Íslands. Málið sem hún vísar til er frásögn Guðnýjar Lindu Óla- dóttur, sem er öryrki vegna lungna- sjúkdóms. Hún bíður eftir því að fá lungu ígrædd í Gautaborg í Svíþjóð, en þar sem lungun eru orðin mjög slæm telja læknar það best að hún verði á spítalanum þar til kallið kemur frá Gautaborg. Hún greindi frá því í bréfi að hún hafi ekki fengið örorku- bætur vegna sjúkrahússlegunnar, en rökin fyrir því voru þau að ríkið héldi henni upp með húsaskjóli og mat. Guðný þarf samt sem áður að standa skil á reikningum og reka húsnæði, en dóttir hennar býr hjá henni. Tryggingastofnun ríkisins sendi frá sér fréttatilkynningu á miðviku- dag þar sem greint var frá því að vegna misvísinda upplýsinga hefðu breytingar á lífeyrisgreiðslum átt sér stað fyrr en til stóð. Guðný get- ur fengið framlengingu á bótunum vegna afborgana og reksturs á hús- næði, en þó aðeins í sex mánuði. Í fyrra voru bætur 46 einstaklinga stöðvaðar vegna sjúkrahúsvistar og bætur 43 árið á undan. Þegar lífeyris greiðslur falla niður er heim- ilt að greiða vasapeninga, sem eru að hámarki 51.800 krónur. „Árið 2011 fórum við fram á það við ráðherra að starfshópur yrði stofnaður um breytingar á þess- um lögum, en það varð ekkert af því þá,“ segir Ellen Calmon, en þá var Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra. ÖBÍ hefur nú sent Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðis- málaráðherra, tillögu um skipun starfshópsins svo fyrirkomulagið verði þannig að vasapeningar verði afnumdir og lífeyrisþegar haldi líf- eyrisgreiðslum sínum. n rognvaldur@dv.is Guðný Linda Óladóttir Sendi bréf til ráðherra vegna þess að hún missir örorku- bætur við sjúkrahúslegu. ÖBÍ hefur aldrei fengið slík mál inn til sín. Mynd SiGtryGGur Ari Ósátt við Eygló „Við erum ekki sátt við þessa ákvörðun en að sjálfsögðu virðum við hana,“ segir Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri afreks- og fjármálasviðs Íþrótta- sambands fatlaðra, í samtali við Vísi. Ólafur á þarna við þá ákvörðun Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráð- herra, um að verða ekki viðstödd setningarhátíð Ólympíuleika fatlaðra í Sochi í Rússlandi. Tveir íslenskir keppendur taka þátt á leikunum að þessu sinni. Í yfirlýsingu sem Eygló sendi frá sér vegna ákvörðunarinnar sagði hún meðal annars: „Vegna þróunar mála í Úkraínu síðustu daga er það hins vegar mat mitt, að höfðu samráði við utanríkis- ráðuneytið, að það sé ekki rétt að ég heimsæki Rússland á þessum tíma.“ Með í eftirliti á Krímskaga Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra hefur ákveðið að senda fulltrúa á vegum íslenskra stjórnvalda til að taka þátt í al- þjóðlegu eftirliti á vegum Ör- yggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Úkraínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utan ríkisráðuneytinu. Þar kem- ur fram að íslenski fulltrúinn hafi verið kominn til Oddessa og verið væntanlegur til Krímskaga á fimmtudag. Stjórnvöld í Úkra- ínu hafa boðið þátttökuríkjum í ÖSE að senda eftirlitsmennina til Krímskaga til að kanna að- stæður. „Það er mikilvægt að sitja ekki við orðin tóm vegna að- gerða Rússa og eftirlit ÖSE-ríkj- anna er mikilvægt til að leiða í ljós hvernig málum er háttað á Krímskaga. Nú reynir á það fyr- irkomulag sem ÖSE hefur þróað til að framfylgja alþjóðlegum skuldbindingum um frið og ör- yggi. Það er ábyrgð okkar sem þátttökuríki í ÖSE að taka þátt í þessu starfi þegar mest á reynir,“ segir Gunnar Bragi í tilkynningu. Eftirlitið byggir á svokölluðu Vínarskjali sem veitir þátttöku- ríkjum ÖSE heimild til að bjóða ríkjum sem lýst hafa yfir áhyggj- um af hernaðarumsvifum að kynna sér frá fyrstu hendi að- stæður á staðnum. Gert er ráð fyrir að allt að 20 af 57 ríkjum ÖSE taki þátt í eftirlitinu sem stendur til 12. mars næstkom- andi. Kaupfélag kaupir jarðir Stjórnarformaður Héraðsvatna segir byggingu virkjana í Skagafirði aðeins borga sig fyrir orkufrekan iðnað K aupfélag Skagfirðinga hef- ur keypt upp jarðir sem eru á fyrirhuguðu virkjana- svæði í Skagafirði. Félag- ið hefur á síðustu tveimur árum keypt tvær jarðir sem bera heitið Villinganes sem eru í ná- grenni fyrirhugaðrar Villinganes- virkjunar í Lýtingsstaðahreppi. Félagið sem heldur utan um jarð- irnar heitir Kaupsæld ehf. og var stofnað árið 2011. Líkt og DV greindi frá á þriðju- daginn þá eignaðist kaupfélagið 50 prósenta hlut RARIK í fyrirtæk- inu Héraðsvötnum ehf. sem held- ur utan um eignarhald á tveimur virkjanakostum í Skagafirði, Vill- inganesvirkjun og Skatastaðavirkj- un. Kaupfélagið keypti eignarhlut- inn á 134 milljónir króna í gegnum dótturfélag sitt Norðlenska orku ehf. í lok árs 2012. Kaupfélagið, eða dótturfélag þess, Norðlensk orka ehf., nýtti sér þar með for- kaupsrétt sem félagið. Kaupfélagið átti veð í jörðinni Í mars árið 2012 keypti þetta eignarhaldsfélag Kaupfélags Skag- firðinga aðra jörðina á rúmlega 36 milljónir króna. Kaupfélagið hafði átt veð í jörðinni sem hvíldi á tveimur fyrstu veðréttum hjá þá- verandi eiganda hennar, Sigurjóni Valgarðssyni. Í ágúst í fyrra afsalaði Sigurjón sér svo 1.000 fermetra landspildu á Villinganesjörðinni til Kaupfélags- ins en sú lóð hafði verið í útleigu þegar hann seldi kaupfélaginu jörðina árið áður. Báðar þessar virkjanir eru í bið- flokki samkvæmt rammaáætlun og hefur ekki verið rætt um að færa þær í nýtingarflokk, að minnsta kosti hefur sú umræða ekki farið fram opin berlega. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auð- lindaráðherra, hefur talað fyrir breytingum á rammaáætlun um virkjanakosti og hefur hann lýst vilja til byggingu virkjana. Ráðherrann hefur fyrst og fremst verið áhugasamur um byggingu virkjana í Þjórsá. Í ræðu á aðalfundi Samorku þann 21. febrúar síðastliðinn sagði hann til dæmis að hann hefði orðið fyr- ir vonbrigðum þegar aðeins einn virkjanakostur í Þjórsá hefði verið færður í nýtingarflokk: „Það urðu mér því mikil vonbrigði þegar ný verkefnisstjórn Rammaáætlunar sendi drög að áfangaskýrslu sinni til umsagnar nú nýverið. Í henni var eingöngu lagt mat á virkjana- kostina þrjá í neðri Þjórsá og til- laga nýrrar verkefnis stjórnar var að færa einn af þeim kostum úr biðflokk í orkunýtingarflokk.” tryggja hagsmuni til lengri tíma Sveinn Þórarinsson, stjórnarfor- maður Héraðsvatna ehf., segir að- spurður að lítil starfsemi hafi ver- ið í félaginu síðastliðin ár eftir að fallið var frá virkjanaframkvæmd- um árið 2007. „Þetta liggur í dvala og hefur gert í nokkur ár. Það var hönnuð virkjun við Villinganes sem var 30 megavött. Heima- menn voru tvístígandi og það voru flutningstakmarkanir á rafmagni frá svæðinu. Ég held að mönnum hafi bara ekki þótt að það væru aðstæður til þess að virkja. Það var andstaða við virkjanir í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar. Ég held að menn hafi bara metið það sem svo að það væri betra að bíða. Og það er nú bara staða málsins,“ segir Sveinn en hann sat í stjórninni fyr- ir hönd RARIK þar sem hann var stjórnarformaður á sínum tíma. Sveinn segir að jökulárnar í Skagafirði verði ekki virkjaðar nema fyrir orkufrekan iðnað ef stór notandi kemur til skjalanna. „Þetta er stór virkjanakostur og hann verður ekki virkjaður nema orkufrekur notandi komi til. Heimilismarkaðurinn er ekki næg- ur fyrir þessa virkjun.“ Sveinn seg- ir að þessir virkjanakostir fari ekki neitt og séu áfram til staðar. „Það er ekkert sérstakt á döfinni með þá ennþá. Þessir kostir eru ekkert að fara frá okkur. Ég held að almenna viðhorfið í samfélaginu sé að nóg sé komið af álverum og þeir vilja finna einhverja aðra kosti. Bið- staðan er af þeirri ástæðu líka.“ Í ársreikningi móðurfélags Hér- aðsvatna er hins vegar talað um að virkjanirnar eigi að sjá íbúum í Skagafirði fyrir rafmagni. Sveinn segir að ekki hafi verið haldinn stjórnarfundur hjá Héraðsvötnum síðan fyrir ári síðan. Þegar Sveini er sagt að Kaupfélag Skagfirðinga sé einnig að kaupa upp jarðir á virkjanasvæðinu segir hann. „Þórólfur [Gíslason, kaupfélagsstjóri KS] er öflugur. Það fara ekki allir í sporin hans.“ DV spurðist fyrir um áætlanir umhverfisráðherra varðandi þessa tvo virkjanakosti. Í svari frá upplýs- ingafulltrúa ráðuneytisins, Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur, kemur fram að ráðherra hafi ekki sérstök áform um þessar tvær virkjanir á þessari stundu: „Umræddir virkjanakost- ir í Skagafirði, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, sem höfnuðu í biðflokki við afgreiðslu rammaáætl- unar í fyrra verða meðhöndlaðir af verkefnastjórn þriggja áfanga í sam- ræmi við lög um rammaáætlun. Á þessu stigi eru engin sérstök áform hjá ráðuneytinu varðandi þessa tvo virkjanakosti umfram aðra virkjana- kosti sem höfnuðu í biðflokki síðustu rammaáætlunar. Þeir eru sumsé í hefðbundnu ferli rammaáætlunar líkt og lög og reglur gera ráð fyrir.“ n ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Þórólfur [Gíslason, kaupfélagsstjóri KS] er öflugur. Það fara ekki allir í sporin hans. Kaupir jarðir Kaupfélag Skagfirðinga kaupir jarðir á fyrirhuguðu virkjanasvæði. Þórólfur Gíslason er forstjóri Kaup- félagsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.