Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 14
14 Fréttir Helgarblað 7.–10. mars 2014
M
ig langaði til að fá hann
til að játa þetta allt,“
sagði ungur maður fyrir
Héraðsdómi Norður-
lands vestra á fimmtu-
dag þegar aðalmeðferð fór fram
í máli tveggja ungra manna sem
grunaðir eru um að hafa ráð-
ist á tónlistarmanninn Hallbjörn
Hjartar son í febrúar 2013, og veitt
honum mikla áverka. Drengirnir
segja báðir að Hallbjörn hafi mis-
notað þá kynferðislega og segja að
ástæða þess að þeir fóru að heimili
hans, Brimnesi á Skagaströnd, hafi
verið til að fá Hallbjörn til játa þær
sakir sem þeir bera á hann. Í sam-
tölum blaðamanns við aðstand-
endur og ákærðu kemur fram að
málið hafi tekið mikið á alla og sjá
má kvíða í augum ungmennanna
sem fyrir dóminn komu. Dóm-
salurinn er lítill og rúmar varla
tvo blaðamenn, verjendur, réttar-
gæslumenn, saksóknara, ákærðu
og aðstandendur.
Barnabarn
Í dómsal á fimmtudag komu ungir
mennirnir, og systir eins þeirra, og
svöruðu fyrir um ýmsar ákærur þar
á meðal ákæruna gegn Hallbirni.
Annar mannanna er barnabarn
Hallbjörns, hann verður hér eftir-
leiðis kallaður Arnar en samverka-
maður hans Halldór. Báðir segj-
ast hafa orðið fyrir kynferðis legu
ofbeldi af hendi Hallbjörns. Vert
er að geta þess að Hallbjörn hefur
verið ákærður fyrir kynferðis brot
gegn tveimur mönnum sem báð-
ir tengjast honum fjölskyldubönd-
um. Hallbjörn hefur neitað því að
hafa beitt þá kynferðislegu ofbeldi
í skýrslutökum. Málið gegn Hall-
birni var þingfest klukkan tvö á
fimmtudag, en það þinghald er lok-
að. Hallbjörn er ekki ákærður fyrir
kynferðisbrot gegn Halldóri, en í
skýrslutökum héraðsdóms greindi
Halldór frá meintum brotum.
Báðir ölvaðir
Samkvæmt því sem fram hefur
komið í skýrslutökum voru ungu
mennirnir, sem eru æskuvinir og
báðir um tvítugt, að skemmta sér
þetta kvöld. Eftir skemmtunina
ræddu þeir ásakanir sem fram hafa
komið á hendur Hallbirni. Hall-
dór greindi Arnari frá því að hann
hefði verið beittur ofbeldi. Arnari
brá mjög, þeir urðu báðir mjög
reiðir og ákváðu að fara að heimili
Hallbjörns. Þegar þangað var kom-
ið brutu þeir sér leið inn í húsið og
réðust, báðir, á Hallbjörn. Sögum
sakborninganna og Hallbjörns ber
ekki saman að öllu leyti, nema því
að þeir réðust á Hallbjörn. Þeir segj-
ast báðir hafa verið mjög ölvaðir og
það hafi áhrif á minni þeirra af at-
burðunum.
Kom aldrei aftur
Í skýrslutökum í héraðsdómi
greindu þeir báðir frá því að þetta
kvöld hefðu þeir rætt hvað hefði
komið fyrir þá og í kjölfarið farið að
Brimnesi. Verjandi Halldórs spurði
hvernig andlegt ástand þeirra hefði
verið fyrir árásina. „Ég var kannski
ekki í góðu skapi. Þegar hann ját-
aði þetta allt fyrir okkur varð ég
bara mjög brjálaður.“ Hann segir
að Hallbjörn hafi leitað á sig þegar
hann var ungur og sagði það hafa
tekið mjög á sig. „Nógu slæmt til
að ég kom aldrei þarna aftur,“ sagði
Halldór um alvarleika brotanna.
Segja Hallbjörn hafa játað
Halldór greindi frá því að hann
hefði reynt að stöðva Arnar og telja
honum hughvarf, það er að fara
ekki að heimili Hallbjörns. „Ég
sagði honum að hugsa sig tvisvar
um, svo ég fór með honum niður
eftir að Brimnesi,“ segir Halldór.
En Arnar var mjög ákveðinn og
saman fóru þeir að Brimnesi. „Það
fór víst allt úr böndunum,“ sagði
Halldór og viðurkenndi að hafa
brotið glugga á heimili Hallbjörns
og hafa farið inn í húsið. Þegar þeir
komu inn mætti Hallbjörn þeim.
Samkvæmt framburði Halldórs
fór Arnar til móts við Hallbjörn og
kýldi hann í andlitið. „Það voru ein-
hverjar stimpingar þarna. Ég spurði
hann hvort þetta væri allt satt og
hann játaði. Þá reiddist ég og gaf
honum (Hallbirni) eitt eða tvö hné-
spörk,“ sagði Halldór. „Þegar hann
játaði þetta fyrir okkur varð ég bara
brjálaður.“
Reiði og sorg
Piltarnir réðust að Hallbirni í eld-
húsinu á Brimnesi. Arnar, dóttur-
sonur Hallbjörns, segir að hann
muni lítið frá atburðum þessa
kvölds. Báðir voru þeir mjög ölvað-
ir. „Við fórum þarna inn og lömd-
um hann eitthvað,“ sagði Arnar og
kvaðst hafa talið að afi hans væri
sofandi þegar þeir komu að heimili
hans. Hann taldi afa sinn hafa átt-
að sig strax á því hverjir væru þarna
komnir þegar hann rumskaði. Arn-
ar sagðist hafa grátið mikið, hon-
um hefði liðið illa og hann upplifað
bæði reiði og sorg.
Kýldu hann
„Svo man ég að við vorum að
skiptast á að kýla hann eitthvað, í
höfuðið.“ Hann gat ekki sagt frá því
hversu mörg högg hann hefði veitt
Hallbirni. Eftir árásina hringdi
hann svo í móður sína, dóttur Hall-
björns. „Svo hringdi ég í mömmu
og sagði henni að koma niður eftir.
Svo man ég ekki alveg,“ segir hann,
en foreldrar hans komu báðir að
heimili Hallbjörns í kjölfarið sam-
kvæmt því sem faðir Arnars greindi
frá. „Þá sagði hann mér það, hann
var hágrátandi meira og minna í
mikilli geðshræringu. Hann sagði
að þeir hefðu verið að ræða mik-
ið saman á ballinu. Þeir hefðu ætl-
að í kirkjugarðinn, en þeir fóru
að ræða karlinn, hvað hann hefði
gert. Halldór sagði þá Arnari að
karlinn hefði áreitt hann. Arnar
sagðist hafa truflast og viljað bera
þetta upp á karlinn,“ sagði faðir
Arnars í skýrslutöku.
Arnar sagði frá því að sér hefði
liðið mjög illa eftir árásina. „Ég sé
eftir þessu,“ segir hann og sagði
vanlíðunina einnig tengjast brot-
um afa síns. Hann hefur verið í
læknismeðferð eftir árásina til að fá
aðstoð. „Sumir dagar eru verri en
aðrir,“ sagði hann.
Var sofandi
Hallbjörn kom sjálfur fyrir dóminn
og lýsti árásinni. Hann kvaðst hafa
verið sofnaður þetta kvöld þegar
að hann heyrði barið harkalega á
dyrnar. Hallbjörn heyrði svo rúður
brotna og ákvað því að fara inn í
eldhús og reyna að ræða við þá sem
þar voru að verki. Þegar hann kom
þangað flaug eldhúshurðin upp og
ungu mennirnir komu inn í húsið.
Þjótandi inn
„Þá koma þeir þjótandi inn, báðir
öskrandi og æpandi og segja við
ætlum að drepa þig, við ætlum að
drepa þig. Þeir sögðu þetta af og til
allan tímann á meðan þeir voru að
lemja mig og berja mig,“ sagði Hall-
björn og komst í talsvert uppnám.
Hann kvaðst hugsa til þessa dags
alla daga, það reyndi á hann mjög
andlega. „Þessi orð eru skráð í huga
mér það mikið að þegar ég hugsa til
þeirra á degi hverjum þá finnst mér
eins og þau hafi verið sögð við mig
í gær. Það tekur ákaflega á mig að
hugsa um þessi orð. Við ætlum að
drepa þig, við ætlum að drepa þig.“
Fannst hann þurfa að kæra
Hallbjörn segir höggin hafa hætt
þegar að foreldrar Arnars komu
að Brimnesi. Faðir Arnars fór með
Arnar út og þeir ræddu saman um
það sem hafði gerst. Sjálfur fór
Hallbjörn inn á baðherbergi til að
jafna sig.
„En þá stend ég upp af stólnum
og fer inn á klósett og lít þar í spegil-
inn og þá sé ég að allt anditið á mér
er afmyndað, allt blóðugt og ég all-
ur, allur blóðugur meira og minna
niður á tær. Mér leist ekki á þetta,“
segir hann. Hann fór í sturtu og svo
lagðist hann niður. Stuttu síðar hr-
ingdi hann á lögregluna og óskaði
eftir aðstoð. „Mér fannst ég þurfa
að kæra þetta.“
Áverkar
Hallbjörn hlaut margvíslega áverka
við árásina.
Í ákærunni segir svo um áverka
Hallbjarnar: „Afleiðingar árásar-
innar urðu þær að Hallbjörn hlaut
útbreitt mar og yfirborðsáverka í
andlit og á höfuð, skurð á vinstra
eyra sem sauma þurfti saman,
glóðarauga á vinstra auga, litla ut-
anbastsblæðingu vinstra megin í
heila, lítils háttar innanbastsblæð-
ingu hægra megin í heila, brot á
nefbeini, vinstra augntóftarbeini,
vinstra kinnholsbeini og vinstra
kinnbeini auk þess sem gervitenn-
ur brotnuðu.“
Varaður við
Verjendur ungu mannanna spurðu
Hallbjörn hvort hann vissi hver
ástæða árásarinnar hefði verið
eða hvort að piltarnir hefðu sagt
eitthvað við hann og gefið honum
ástæðu. Þá svaraði Hallbjörn:
„Þeir sögðust vera að hefna fyrir
X [annað barnabarn Hallbjörns].
Það var eitthvað sem ég átti að hafa
gert X, kynferðislega held ég, sem
að ég man ekki svo glöggt.“
Þegar svo var komið minnti
dómari Hallbjörn á að hann þyrfti
ekki að svara spurningum frekar en
hann vildi, líkt og önnur vitni. Hann
þyrfti að hafa í huga að svör hans
gætu haft áhrif á dómsmálið gegn
honum sem þingfest var stuttu eft-
ir að Hallbjörn bar vitni. Ákæran
gegn Hallbirni var því ekki rædd
frekar og hann ekki spurður að því
hvort hann hefði játað að hafa beitt
ungu mennina ofbeldi eins og þeir
hafa greint frá. Aðspurður hvort
árásarmennirnir hefðu verið grát-
andi þegar þeir réðust á hann sagð-
ist Hallbjörn ekki muna það. „Það
voru það mikil læti í þeim, öskur. Ég
geri mér ekki grein fyrir því.“
Aðalmeðferð í máli Hallbjörns
mun fara fram fljótlega, en sam-
kvæmt heimildum DV hefur Hall-
björn neitað því að hafa brotið gegn
barnabörnum sínum. n
„Ég sÉ eftir þessu“
n Hallbjörn segist aldrei gleyma árásinni n „Þegar hann játaði varð ég bara mjög brjálaður“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
„Þá koma þeir
þjótandi inn, báðir
öskrandi og æpandi og
segja við ætlum að drepa
þig, við ætlum að drepa þig.
Gleymir ekki Hallbjörn segist ekki gleyma þessum degi. Það tók augljóslega mikið á hann að greina frá atburðunum.
„Þeir sögðust
vera að hefna