Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 15
Fréttir 15Helgarblað 7.–10. mars 2014
Frænka ráðherra
fékk stöðuna
n Ekki á meðal þeirra sem lögregluskólinn mat hæfasta n Með minni reynslu en aðrir
B
irna Guðmundsdóttir tók
við stöðu lögreglufulltrúa
við framhaldsdeild Lög-
regluskóla ríkisins þann 1.
mars síðastliðinn. Ríkis-
lögreglustjóri skipaði hana í starfið
þrátt fyrir að hún hefði ekki nema
tveggja ára starfsreynslu, sem er
mun minna en margir aðrir um-
sækjendur. Þá var hún ekki á lista
þeirra þriggja sem Lögregluskólinn
mat hæfasta til þess að sinna starf-
inu. Í starfi sínu mun Birna fara fyrir
símenntun og endurmenntun allra
lögreglumanna á landinu.
DV hefur lista umsækjendanna
átján undir höndum. Á meðal þeirra
voru konur og karlar, með 10–20 ára
starfsreynslu úr lögreglunni, sum
með víðfeðma framhaldsmenntun
á háskólastigi, svo sem afbrota-
fræðingar, viðskiptafræðingar og
lögfræðingar. Töluverðrar óánægju
gætir á meðal þeirra umsækjenda
sem DV hefur rætt við en ljóst er að
skipun Birnu gekk gegn áliti Lög-
regluskólans.
Við vinnslu þessarar fréttar feng-
ust engin svör frá embætti ríkis-
lögreglustjóra varðandi það hvers
vegna hún var álitin hæfust þvert
á álit Lögregluskólans. Haraldur
Johannessen er ríkislögreglustjóri.
Embætti hans heyrir undir innan-
ríkisráðuneyti Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttir. Skipun Birnu í starfið
veldur ekki síður óánægju á meðal
lögreglumanna í ljósi þess að ráð-
herrann og Birna eru systkinabörn.
Starfsmenn innanríkisráðuneytis-
ins, þar á meðal Hanna Birna, sæta
nú lögreglurannsókn, vegna leka
minnisblaðs ráðuneytisins á fjöl-
miðla.
Mælt með öðrum
Af þeim átján umsækjendum sem
sóttu um stöðuna dró einn um-
sókn sína til baka. Þá uppfylltu
tveir umsækjenda ekki hæfiskilyrði
til skipunar. Á meðal þeirra fimmt-
án sem eftir stóðu var fólk með
víðfeðma reynslu innan úr lög-
reglunni, sem og menntun á ýms-
um sviðum. Í 14. grein reglugerðar
um starfsstig innan lögreglunnar
kemur fram að við ákvörðun um
veitingu starfs í hærra starfsstigi
skuli höfð til hliðsjónar hæfni lög-
reglumanns, starfsaldur, þekking,
menntun, starfsreynsla og kyn.
Í auglýsingu þar sem staða lög-
reglufulltrúa við Lögregluskóla rík-
isins var auglýst kom fram að reynsla
af verkefnastjórnun væri góður
kostur. Þá var einnig tekið fram að
„kennaramenntun, reynsla af fjar-
kennslu, eða önnur framhalds-
menntun sem nýtist í starfinu,“ væri
góður kostur sem og „önnur reynsla
af þjálfun eða kennslu.“ Með hlið-
sjón af þessum atriðum mælti lög-
regluskólinn sérstaklega með þrem-
ur umsækjendum sem skólinn mat
hæfasta. Í rökstuðningi skólans kom
fram að umsækjendurnir hefðu víð-
tæka rannsóknarreynslu, viðbótar-
menntun sem og færni sem myndi
nýtast í skólanum.
Víðfeðm reynsla annarra
Birna var ekki á meðal þeirra sem
skólinn valdi en eftir því sem DV
kemst næst hefur hún hvorki
reynslu af verkefnastjórnun, fjar-
kennslu eða annarri kennslu. Í 14.
grein reglugerðar um starfsstig inn-
an lögreglunnar segir jafnframt að
til þess að hljóta skipun í starf lög-
reglufulltrúa þurfi umsækjandi að
hafa starfað sem lögreglumaður í
að minnsta kosti tvö ár frá því hann
lauk prófi frá Lögregluskóla ríkis-
ins. Birna útskrifaðist úr lögreglu-
skólanum árið 2009 en hún hefur
starfað í rúm tvö ár hjá lögreglunni.
Á þeim tíma hefur hún aðallega
starfað í almennri löggæslu á höf-
uðborgarsvæðinu og Suðurnesjum,
sem og í landamæradeild lögreglu-
stjórans á Suðurnesjum. Þá starfaði
hún lítillega hjá rannsóknardeild
sama lögregluembættis.
Í rökstuðningi ríkislögreglu-
stjóra fyrir skipun Birnu í starfið
kemur fram að menntun vegi þungt
við mat á hennar hæfni. Þetta vek-
ur athygli í ljósi þess að ekki var
gerð krafa um háskólamenntun
þegar starfið var auglýst, en einnig
vegna þess að á meðal umsækj-
enda var fólk með sambærilega og/
eða meiri menntun sem og mun
lengri og víðfeðmari starfsreynslu
innan lögreglunnar. Embætti ríkis-
lögreglustjóra vísar einnig til mark-
miðs jafnréttislaga við ákvörðun
sína en ekki fæst séð að þau eigi við
í þessu tilviki þar sem svo virðist
sem hæfari einstaklingar, með tilliti
til menntunar og reynslu, hafi verið
sniðgengnir.
Skipuð í skugga lekamáls
Eins og fyrr segir eru Birna Guð-
mundsdóttir og Hanna Birna Krist-
jánsdóttir systkinabörn. Skipun
Birnu kemur til á sama tíma og inn-
anríkisráðuneytið sætir lögreglu-
rannsókn vegna leka minnisblaðs
ráðuneytisins á fjölmiðla. Theódór
Kristjánsson, bróðir Hönnu Birnu,
er yfirmaður tæknideildar en hún
fer með tölvurannsóknir hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Heimildarmaður DV hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
segir hann „mjög valdamikinn“.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri hef-
ur ekki viljað svara því hvort undir-
menn hans komi að rannsókninni.
Mágur Hönnu Birnu, Ágúst
Svansson, er einnig hátt settur hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þessi fjölskyldutengsl Hönnu Birnu
við aðila í æðstu stöðum innan lög-
reglunnar valda þeim lögreglu-
mönnum sem DV hefur rætt við
áhyggjum. „Margir lögreglumenn
sem hafa komið nærri þessu [rann-
sókn lekamálsins] eru ekkert allt
of hrifnir af því að þetta skuli vera
inni á borði hjá embættinu,“ sagði
einn heimildarmaður blaðsins
sem starfar hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu. Sagði hann lög-
reglumenn hjá embættinu ræða sín
á milli, hversu óþægilegt það væri
„að vera með mál til rannsókn-
ar sem snertir á svona mörgum
áhrifapunktum.“
„Tögl og hagldir“
Á meðal verkefna Birnu sem lög-
reglufulltrúi við framhaldsdeild
Lögregluskóla ríkisins, verður að
annast skipulagningu og fram-
kvæmd starfsþróunarnámskeiða
fyrir lögreglumenn og eftir atvikum
annarra starfsmanna lögreglunnar.
Hluti af starfsskyldum hennar felst
í kennslu tiltekinna námskeiða auk
þess sem henni kann að verða falið
að sinna verkefnum í grunnáms-
deild eða öðrum verkefnum innan
stofnunarinnar. Þeir umsækjendur
sem DV hefur rætt við, sem og al-
mennir lögreglumenn, eru hissa á
því að manneskja með svo takmark-
aða starfsreynslu hafi verið ráðin til
þess að sinna svo mikilvægu verk-
efni. Einn viðmælandi blaðsins seg-
ir ráðninguna þó ekki koma sér á
óvart. Ríkislögreglustjóri hafi „tögl
og hagldir“ í starfsmannamálum
og það sé löngu orðið ljóst að réttu
sjónarmiðin ráði ekki alltaf för.
Ríkislögreglustjóri skipaði Ernu
Sigfúsdóttur þann 1. febrúar sem
lögreglufulltrúa við í grunndeild
lögregluskóla ríkisins. Ólíkt Birnu er
Erna með 23 ára starfsreynslu inn-
an lögreglunnar en hún lauk prófi
frá Lögregluskóla ríkisins árið 1993.
Hún hefur víðtæka reynslu innan
lögreglunnar, hefur starfað við al-
menna löggæslu á höfuðborgar-
svæðinu og við lögreglurannsóknir
í fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík. Þá hefur Erna starfað
sem lögreglufulltrúi frá árinu 2001,
meðal annars við rannsóknir efna-
hagsbrota, í alþjóðadeild ríkislög-
reglustjóra og á stjórnsýslusviði
embættisins. Síðastliðið ár hef-
ur hún gegnt starfi deildarstjóra á
peningaþvættisskrifstofu embættis
ríkis lögreglustjóra. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Réð frænku Haraldur Johannes-
sen er ríkislögreglustjóri en embætti
hans heyrir undir innanríkisráðu-
neyti Hönnu Birnu Kristjánsdóttir.
Haraldur skipaði frænku Hönnu
Birnu í starfið og fór þannig gegn
áliti Lögregluskólans. Mynd SigTRygguR ARi
Tveggja ára reynsla Birna Guðmunds-
dóttir hefur starfað hjá lögreglunni í rúm
tvö ár en margir umsækjendur hafa 10–20
ára starfsreynslu.
„Töluverðrar
óánægju gætir
á meðal þeirra umsækj-
enda sem DV hefur rætt
við en ljóst er að skipun
Birnu gekk gegn áliti
Lögregluskólans.
Ráðuneytið rannsakað Skipun Birnu
kemur til á sama tíma og innanríkisráðu-
neytið sætir lögreglurannsókn vegna leka
minnisblaðs ráðuneytisins á fjölmiðla.