Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Síða 19
Helgarblað 7.–10. mars 2014 Fréttir 19 Dýrustu sveitarfélög lanDsins n Dýrast á hvern íbúa í Fljótsdalshreppi n Kópavogur ódýrastur n Sameining sveitarfélaga vandmeðfarin L angdýrasta sveitarfélag í rekstri er Fljótsdalshreppur á Austur­ landi. Í sveitarfélaginu eru að­ eins 78 íbúar sem þurfa að standa straum af kostnaði við rekstur skrifstofu og kostnaði við rekstur sveitarstjórna og nefnda. Heildarkostnaður er 15,9 milljónir króna sem þýðir að hver íbúi greiðir 204 þúsund krónur í rekstur sveitar­ félagsins. Minnst greiða íbúar í Kópavogi, eða 12.509 krónur á íbúa. Heildarkostnaður við rekstur Kópa­ vogs er rúmar 390 milljónir króna, en sveitarfélagið er það næststærsta á landinu. Sex sveitarfélög Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves og fyrrverandi bæjar stjóri Bolungarvíkur, hefur tekið þessar tölur saman og birt að undan­ förnu á Facebook­síðu sinni. Þar velt­ ir hann því fyrir sér hvort ekki sé hag­ kvæmara fyrir þjóðarbúið að sameina sveitarfélög á landinu öllu þannig að þau verði sex. Í þessum sex sveitar­ félögum verði síðan 16 stjórnsýslu­ hús en rafræn stjórnsýsla myndi svo taka við flestum erindum, „enda er það nútíðin og framtíðin“, segir á síðu Gríms. Hann horfir aðeins á kostnað við yfir byggingu, eins og við skrifstofu og rekstur sveitarstjórnar og nefnda. „Hver hefur eitthvað að sækja í sjálft ráðhúsið? Vilja íbúar ekki bara hafa góða félagsþjónustu, góða skóla­ þjónustu? Þeir sem vilja sækja um eitthvað geta gert það í gegnum netið. Hver er tilgangurinn með því að hafa skrifstofu opna fimm daga vikunnar? Þótt hún sé eitthvað í burtu þá getur hún sinnt íbúum og ef þeir þurfa að fara þangað nauðsynlega þá er hægt að senda fulltrúa reglulega um svæð­ in,” segir Grímur. Ávinningur sameiningar hverfandi Vífill Karlsson er einn af höfundum skýrslu sem kom út árið 2010 en þar var sameining sveitarfélaga á Vestur­ landi í eitt stór sveitarfélag skoðuð. Í samantekt skýrslunnar segir að kostirnir við sameiningu séu að hún verði líklega rekstrarlega hagkvæm, að sveitarfélagið muni búa yfir meiri stöðugleika og að þjónustan verði meiri. Jafnframt sagði þar að bein lýð­ ræðisleg áhrif íbúa myndu aukast. Gallarnir væru hins vegar þeir að lengra þyrfti að fara til að sækja þjón­ ustu og að sérstaklega þyrfti að sjá til þess að flest svæði innan Vesturlands ættu örugga fulltrúa í sveitarstjórn. Þá er tekið fram að allir hagnist ekki jafnt af sameiningu heldur séu það frekar minni sveitarfélög sem hagn­ ast. Þá segja skýrsluhöfundar að mik­ ið af þeirri þjónustu sem er nú þegar í höndum sveitarfélaga muni færast fjær íbúum til einnar miðlægrar mið­ stöðvar á Vesturlandi. Hreinn ávinn­ ingur af sameiningunni er sagður hverfandi lítill og það var heildarmat skýrsluhöfunda að ekki sé ákjósan­ legt að sameina sveitarfélögin, í það minnsta eins og er. Íbúar finna fyrir breyttri þjónustu „Það er mjög erfitt að reyna að mæla hlutina,“ segir Vífill. „Það sem virðist gerast í yfirbyggingunni, er að laun sveitarstjóra sparast en í flestum til­ fellum eru þeir ekki hálaunaðir. Sam­ kvæmt nýjustu mælingum sem við höfum gert kemur fram að miklar lík­ ur séu á því að íbúar stóra sveitarfé­ lagsins finni fyrir aukinni þjónustu, en þeir sem búa í minni sveitarfé­ lögum við sameiningu eru ekki eins ánægðir með þjónustustigið eftir sameiningu,“ segir Vífill og bætir við: „Niðurstaða minna rannsókna bend­ ir ekki til að ekki eigi að fara í sam­ einingu. Það skiptir hins vegar miklu máli hvernig það er gert.“ n Rögnvaldur Már Helgason rognvaldur@dv.is Norðurland eystra Dýrast: tjörneshreppur – 55 íbúar Kostnaður við rekstur skrifstofu: 0 m.kr. Kostnaður við rekstur sveitarstjórnar og nefnda: 5,3 m.kr. Kostnaður per íbúa: 95.873 kr. ÓDýrast: akureyri – 17.875 íbúar Kostnaður við rekstur skrifstofu: 467,3 m.kr. Kostnaður við rekstur sveitarstjórnar og nefnda: 52,6 m.kr. Kostnaður per íbúa: 29.084 kr. austurland Dýrast: Fljótsdalshreppur – 78 íbúar Kostnaður við rekstur skrifstofu: 14,2 m.kr. Kostnaður við rekstur sveitarstjórnar og nefnda: 1,7 m.kr. Kostnaður per íbúa: 204.0 ÓDýrast: Fjarðabyggð – 4.600 íbúar Kostnaður við rekstur skrifstofu: 65.6 m.kr. Kostnaður við rekstur sveitarstjórnar og nefnda: 22,3 m.kr. Kostnaður per íbúa: 19.117 kr. Akureyri Tjörneshreppur dýrastódýrast ódýrast Fjarðabyggð Fljótdalshreppur dýrast Grímur Atlason „Hver hefur eitthvað að sækja í sjálft ráðhúsið? Vilja íbúar ekki bara hafa góða félagsþjónustu, góða skólaþjónustu? Þeir sem vilja sækja um eitthvað geta gert það í gegnum netið.“ Mynd HAlldóR SveinbjöRnSSon vífill Karlsson „Niðurstaða minna rannsókna bendir ekki til að ekki eigi að fara í sameiningu. Það skiptir hins vegar miklu máli hvernig það er gert.“ Mestur kostnaður við sveitarstjóra „Þetta kemur ekki á óvart,“ segir Gunnþórunn Ingólfsdóttir, oddviti í Fljóts- dalshreppi. „Mestur kostnaður er við laun sveitarstjóra, ég er í fullu starfi sem slíkur. Sameining kemur reglulega upp í umræðu og nokkrum sinnum hefur verið kosið. Hingað til hefur íbúum þótt hag sínum betur borgið í óbreyttu sveitarfélagi,“ segir Gunnþórunn. „Þeir sem búa í minni sveitarfélögum við sameiningu eru ekki eins ánægðir með þjónustustigið eftir sameiningu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.