Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Qupperneq 22
Helgarblað 7.–10. mars 201422 Fréttir
hræddur þegar við sögðum nei að
hann hljóp í burtu. En við létum for-
eldra okkar vita og það var leitað að
bílnum hans.
Nokkrum árum seinna lenti ég í
því í gufunni í Vesturbæjarlauginni
með þessari sömu vinkonu minni að
þangað kom allsber maður með titt-
linginn beinstífan upp í loftið. Við
hlupum bara út. Þetta var svo absúrd,
ég hef oft velt því fyrir mér hvaðan
hann var að koma og hvernig honum
tókst að komast þangað óséður, hvort
hann gekk allsber út úr búningsklef-
anum og yfir alla laugina eða hvað.“
Nýfráskilinn og hömlulaus
Diljá: „Mér finnst ég líka hafa horft
upp á menn bíða eftir að hópurinn
nái ákveðnu ölvunarstigi áður en þeir
fara að athafna sig. Á árshátíð um
daginn horfði ég á þó nokkra kýla í sig
áfengi áður en þeir fóru að hrósa pí-
unum. Einn háttsettur í fyrirtækinu
stóð við hliðina á konunni sinni þegar
hann sagði samstarfskonu sinni að
hann langaði að barna hana. Í kjölfar-
ið pantaði hún fund með honum og
sagði að hann hefði farið yfir mörk-
in. Það væri ekki að bæta kvöldið fyr-
ir neinum að tala svona, taka „dirty
dancing“, hvísla hrósi í eyru kvenna
og kyssa þær. Ég er ekki frá því að
samskiptin hafi batnað í kjölfarið og
meiri virðing sé borin fyrir konum á
vinnustaðnum.
Annars staðar var ég búin að
vinna í tvo mánuði þegar yfirmaður
yfirmannsins míns byrjaði að áreita
mig. Hann sendi mér blóm sem mig
langaði ekki að fá, var stanslaust að
tala við mig á MSN, sem var og hét,
og í meðvirkni minni reyndi ég að
setja honum mörk en þorði því ekki
alltaf. Þetta er alltaf erfitt í samskipt-
um yfirmanns og undirmanns. Viku
fyrir haustfagnað fyrirtækisins á Úlf-
ljótsvatni vissi hann að ég væri að fara
út að borða með vini mínum og kom
þangað óboðinn. Í því fólst ekki ógn
um að hann ætlaði að nauðga mér
eða berja mig en þetta var svo langt
yfir mörkin að mér leist ekki á blik-
una. Hann gat greinilega ekki haft
hemil á sér og var farinn að elta mig.
Þá fékk ég nóg.
Ég lá andvaka þessa nótt að hugsa
um hvað var að fara að gerast á Úlf-
ljótsvatni? Var hann að stóla á að
ég yrði dauðadrukkin? Þótt ég væri
sannfærð um að hann ætlaði sér
ekkert illt þá var nóg að þessi spurn-
ing héldi fyrir mér vöku. Verst var
samt að þegar ég gerði það sem fæst-
ir gera og tilkynnti áreitni á vinnu-
stað og sagði að þetta væri ekki í lagi,
mér væri að einhverju leyti ógnað, þá
fékk ég að heyra að hann væri nýfrá-
skilinn og liði svo illa, hann væri ekki
alveg búinn að ná sér og þetta væri
svolítil ringulreið. Átti ég að taka
ábyrgð á því?“
Bankastjórarnir
Vera: „Þetta er miklu flóknara þegar
um er að ræða yfirmenn eða fyrir-
menni. Samfélagið er svo sjúkt af
meðvirkni. Það vill ekki trúa því að
þeir geti gerst sekir um ofbeldi og
þegar þeir verða uppvísir að því þá
er það af því að þeir eru í einhverjum
vanda greyin með áfengi, eru að skilja
við eiginkonuna eða eitthvað, afsak-
anirnar eru alltaf tíndar til. Og við eig-
um að umbera þetta.
Ég get sagt svona sögu af skólan-
um mínum í París, Sorbonne-há-
skólanum. Þar var mjög algengt að
karlkyns kennarar væru að áreita
kvenkyns nemendur. Það var ekki fyrr
en á síðasta árinu sem ég sá að það
var komið skilti upp á skrifstofunni
þar sem nemendur voru hvattir til að
láta vita ef eitthvað væri að. Það þurfti
örugglega alveg rosalega mikið til að
þetta skilti kæmist upp. Ein stelpa í
bekknum okkar kvartaði og það end-
aði með því að hún hætti í skólanum.
Þetta var of mikið fyrir hana. Þetta var
alveg dæmigert.“
Inga Magnea: „Samt þarft þú að
vera alveg rosalega sterk ung kona
til að fara í yfirstjórn og kvarta und-
an svona framkomu. Ég var að vinna
í flugbransanum sem var „kynjað-
asti“ vinnustaður í heimi á þeim
tíma. Ég mætti í flugrútuna þar sem
flugstjórarnir sátu fremst og svo rað-
ast þetta eftir „hírarkí“ og það náði
alla leið. Þegar ég byrjaði var talað
um bankastjórana, þá sem bönkuðu
alltaf upp á í vafasömum hugleiðing-
um þegar við vorum stopp einhvers
staðar. Svo var náttúrlega kjaftur á
þeim í flugstjórnarklefanum og ein-
hverjir voru fjölþreifnir, allt í einu
komnir með höndina upp á milli læra
kvenna. Það sem bjargaði mér var að
pabbi minn var að fljúga og ég var
undir hans verndarvæng. Það þorði
enginn að vera dónaleg-
ur við dóttur hans því
hann var góður karl
og vel liðinn.“
Hildur: „Mér
finnst svo sér-
stakt þegar við
þurfum að nota
kærasta sem af-
sökun: Nei, ég er
á föstu, annars
mættir þú áreita
mig. Eða að þú
hafir verið ör-
ugg í skjóli
pabba þíns. Þá
máttu
menn ekki vera of ágengir, annars
væru þeir að brjóta á rétti hans, eða
kærastans.“
Diljá: „Karlmennskan. Það má ekki
særa hana.“
Káfandi yfirmaður
Hildur: „Af því að við vorum að tala
um áreitni á vinnustað. Ég var að
vinna í bíó sem unglingur og það var
svakalegt. Þar urðu unglingsstelp-
ur fyrir mikilli áreitni frá körlunum
á vinnustaðnum. Það var oft verið að
drekka með yfirmönnunum og karl-
arnir voru að káfa á stelpunum.
Sýningarstjórinn var verstur. Ein
vinkona mín stóð yfir poppvélinni
og var að beygja sig fram þegar hann
sagði: Ég þarf ekki nema að rífa nið-
ur um þig nærbuxurnar og ríða þér.
Hann var mjög grófur og það var búin
að ganga mjög mikið á þegar það var
kvartað undan honum. En þetta var
alveg skemmtilegur karl, hress og al-
mennt var bara hlegið að honum.
Það sem þessir gaurar eru að gera er
að bjóða upp á eitthvað og tékka á
viðbrögðunum. Hvað ef einhver
tekur vel í það? Akta þeir á það?
Ég lenti í einum sem var
ótrúlega mikið að káfa mér,
meira að segja fyrir fram-
ann kærastann minn og allan
starfshópinn. Ég var sautján
ára og við sátum sex saman
og hann var að reyna að káfa
á píkunni á mér. Ég fór alveg
í kleinu, reyndi að hlæja en
fór svo bara. Þetta var mjög
óþægilegt og asnalegt. Það
var verið að gera lítið
úr mér. En ég tók
ábyrgð á að-
stæðunum og
ég man að ég
skammaðist
mín mjög mikið fyrir þetta. Það er
mjög skrýtið.“
Fulli karlinn
Diljá: „Ég velti því líka fyrir mér af
hverju ég hef verið hrædd við að
bregðast öðruvísi við en með hlátri.
Hvað er það sem maður vill ekki að
gerist? Er þetta ótti við að eyðileggja
partíið?“
Vera: „Að það sé hlegið meira að
manni.“
Diljá: „Já. Svo þegar ég hugsa til
baka og fer ofan í eigin fordóma þá
held ég að ég hafi ekki viljað vera talin
ein af reiðu femínistunum. Af því að
hluti af minni meðvirkni er þörfin
fyrir að vera vinsæl og vel liðin.“
Inga Magnea: „Svo hef ég
stundum fengið nóg. Ég tók brjál-
aða femínistann í brúðkaupi í sum-
ar. Þetta var óformlegt brúðkaup
þannig að fulli kallinn gat verið að-
eins meira fullur og aðeins meira
hress og þarna var hann,
fjölþreifinn og
óþolandi.
Hann gekk
um og sló
konur í
rassinn.
Ég bað
eigin-
mann
minn
um að
tala að-
eins við
þennan
mann.
Þeir fóru afsíðis og maðurinn minn
útskýrði fyrir honum að þetta væri
ekki í lagi og þannig gekk þetta allt
kvöldið, það var alltaf verið að fara
með hann afsíðis, en hann hætti
aldrei. Ég bað veislustjórann um að
bregðast við, því þetta var hættuleg-
ur maður og engin leið að vita hvern-
ig það myndi enda ef einhver myndi
slysast ein með honum út.
En þetta hélt áfram og þessi mað-
ur káfaði á brúðinni og var enn með
krumlurnar á öllum konum þegar við
vorum að fara. Þetta endaði með því
að ég öskraði á hann af öllum lífs og
sálar kröftum að hann væri ógeðsleg-
ur. Salurinn þagnaði og plötusnúður-
inn hætti að spila. Þarna var bara ég
að öskra á þennan mann. Þegar ég
lyppaðist niður í rútunni eftir þetta
fann ég hvað það var gott að láta loks-
ins í mér heyra, í staðinn fyrir að vera
alltaf að ýta honum frá og láta eins og
ekkert væri.“
Góðu gaurarnir vita ekki
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Inga
Magnea brást illa við kynferðislegri
áreitni. „Ég var að vinna sem þjónn á
Ítalíu þegar ég var ung. Þá kom mað-
ur inn á veitingastaðinn og viðhafði
ummæli um brjóstin á mér. Ég bað
vini hans um að hafa hemil á hon-
um en þegar það gekk ekki henti ég
honum út, alveg brjáluð. Ég skil ekki
hvaðan þessi kjarkur kom.“
Hildur: „Þegar ég var að vinna
á veitingastað gengu karlar greini-
lega á lagið af því að ég var í við-
kvæmri stöðu og fékk borgað fyrir
að þjóna og halda öllum góð-
um. Þeir gengu oft allt of
langt en ég þorði ekki
að gera neitt. Ég upp-
lifði það aldrei þannig
að ég hefði rétt á því
að henda einhverj-
um út. Mér fannst
ég algjörlega varnar-
laus, eins og ég ætti að
taka þessu því ég var
þjónn. Í dag myndi ég
skvetta vatni framan í
þessa menn.“
Vera: „Af hverju
ætli karlar geri
þetta? Er þetta leið
til þess að upp-
hefja sjálfan sig?“
Diljá: „Kannski
er það partur af
því. Ég vil ekki al-
hæfa að þetta sé
alltaf til þess fall-
ið að gera lítið úr
konum. Ég held
að partur af
þessu sé að upp-
lifa sig sem einn
af gaurunum
og finna til
karlmennsk-
unnar.“
Hildur: „Ég
held að þetta
sé sprottið af
sama meiði og
kynferðislegt of-
beldi, skortur á konum í stjórn-
unarstöðum og launamun-
ur kynjanna. Á endanum snýst
þetta alltaf um að konur séu ekki
jafn mikils virði og karlar og það er
ekki borin sama virðing fyrir þeim
og körlum.“
Vera: „Eftir að ég skrifaði grein-
ina sá ég umræðu um að karlar
lenda líka í þessu. Það er alveg rétt,
en ég var ekki að tala um það. Ég
var bara að tala um mína reynslu.“
Hildur: „Þeir strákar sem ég hef
talað við geta kannski nefnt eitt eða
tvö dæmi. Ekki endalaus eins og
við.“
Inga Magnea: „Þeir eru ekki að
kortleggja leiðina heim og eyða
peningum í leigubíla af því að
þeim er ógnað. Það eru alls konar
svona litlir hlutir sem hafa áhrif á líf
manns en aldrei er talað um.“
Vera: „Það kom mér mest á óvart
hversu margir menn virðast ekki vita
af þessu. Frændi minn á þrjár stelp-
ur sem allar hafa lent í einhverju en
hann hafði ekki hugmynd um það.
Hann trúði þessu ekki en ég spurði
konuna hans hvort hún vissi ekki að
þetta væri rétt og jú, hún hafði lent
í ýmsu. Góðu gaurarnir vita ekki af
þessu því þetta er ekki gert þegar þeir
eru nærri.“ n
„Allt niður í sjö ára
strákar spurðu
hvort ég vildi ríða þeim og
kölluðu mig hóru. Í sundi
var allt í einu kominn
putti upp í klofið á mér og
ætlaði inn.
Þarna
voru þær
snertar
Á þeim stöðum sem eru
skyggðir á myndinni hefur
einhver snert konurnar, sem
rætt er við, gegn vilja þeirra.
Kynferðisleg áreitni hefur
margar birtingarmyndir og
getur líka falist í óvel-
komnun aðdróttunum,
bröndurum, athugasemd-
um um útlit og grófum
munnsöfnuði, tvíræðum og
niðurlægjandi tilboðum svo
dæmi séu tekin.