Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 38
Helgarblað 7.–10. mars 201438 Neytendur
Svona velurðu gott vín
n Yfirleitt er aðeins dýrara vín betra n Áfengisgjald hátt hlutfall af verðinu
N
eytendur verða að átta sig á
því að innkaupsverðið fyr-
ir vín sem kosta um 1.500
krónur er með því lægsta
sem hægt er að fá eða í kring-
um 1 til 1,5 evrur vegna þess að áfeng-
isgjaldið og öll hin gjöldin og álagn-
ingar verða svo stór hluti af verðinu,“
segir Dominique Plédel Jónsson, eig-
andi Vínskólans, en DV bað hana um
að taka saman lista yfir bestu vínin í
kringum 1.500 krónur í Vínbúðinni.
„Um leið og komið er yfir 1.700 til
1.800 krónu markið eru vínin miklu
betri og öruggari. Þá er innkaups-
verðið orðið tvær evrur og munurinn
er meiri en menn gera sér grein fyr-
ir.“ Dominique hefur haft vínfræðslu
að aðalstarfi síðan 2003 og stofnaði
Vínskólann í lok 2005. Hún er stofn-
meðlimur Vínþjónasamtaka Íslands
og hefur verið vínrýnir Gestgjafans
síðan 2006.
Hún segir erfitt að velja bestu vín-
in í þeim verðflokki sem DV bað um
en fékkst þó til þess. Hún segir val-
ið miða við lágt verð, að vínið sé ekki
frá stórum samsteypum og að það sé
með „karakter“, áberandi einkenni frá
því héraði eða landi sem það kemur
frá. Í þessu samhengi talar hún um
hnattvæðingu bragðlaukanna.
„Þá á ég við að þú getur orðið feng-
ið vín sem smakkast eins hvort sem
það kemur frá Ástralíu, Suður-Afríku
eða Argentínu, vegna þess að reiknað
er með að allir séu komnir með sömu
bragðlaukana, ég kalla það líka Coca-
Cola kynslóð. Vínið er svo „bragð-
bætt“ til að gera það öðruvísi en önn-
ur. Þetta eru svona iðnaðarvín,“ segir
hún. n
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Dominique Plédel Jónsson Eigandi Vínskólans og vínrýnir. MynD DV
Rauðvín
nafn Framleiðsluland Prósent Lýsing Verð
n Vina Maipo Cabernet Merlot (Chile) 11,5% Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, mild tannín. Rauð ber, krydd. 1.399 kr.
n Lamadoro Primitivo (Ítalía) 12% Rúbínrautt. eðalfylling, ósætt, mild sýra, miðlungstannín. Sólbakaður ávöxtur, brómber, plóma, krydd. 1.650 kr.
n Santa Alvara Cabernet Sauvignon (Chile) 13,5% Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Sólber, jörð, krydd. 1.699 kr.
n Cuvée Bouchard Ainé Bourgogne (Frakkland) 12,5% Kirsuberjarautt. Létt fylling, þurrt, ferskt, lítil þroskuð tannín. Léttur, rauður ávöxtur. 1.699 kr.
n Villa Real Terras de Alleu (Portúgal) 12,5% Rúbínrautt. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Rauð ber, plóma. 1.792 kr.
n Cono Sur Cabernet Sauvignon Bicicleta (Chile) 13% Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk og rauð ber, sveit, krydd. 1.899 kr.
n Chapoutier Marius (Frakkland) 13,5% Fjólurautt. Meðalfylling, þurrt, mild sýra, miðlungstannín. Dökk ber, bláber, brómber, sólbakaður ávöxtur. 1.999 kr.
n A Mano Primitivo (Ítalía) 13,5% Rúbínrautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, þroskuð tannín. Sætur ávöxtur, rauð ber, krydd, lyng. 1.999 kr.
Hvítvín
nafn Framleiðsluland Prósent Lýsing Verð
n Allianca Vinho Verde (Portúgal) 10% Fölgult. Létt fylling, hálfþurrt, sýruríkt. Sítrusávextir, græn epli, snarpt. 1.499 kr.
n Trivento Tribu Chardonnay (Argentína) 13% Ljóssítrónugult. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra. Sítrus, suðrænn ávöxtur. 1.599 kr.
n Fuzion Torrontes (Argentína) 13% Fölsítrónugult. Létt fylling, þurrt, mild sýra. Ferskja, ferskjusteinn, stjörnuávöxtur. 1.681 kr.
n Cuvée Bouchard Ainé Blanc de Blancs (Frakkland) 12,5% Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Epli, pera, ljós ávöxtur. 1.699 kr.
n Baron de Ley bianco (Spánn) 12,5% Ljóssítrónugult. Létt meðalfylling, þurrt, mild sýra. Epli, pera, melóna, krydd. 1.699 kr.
n Librandi Ciro (Ítalía) 13,5% Ljóskirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, blóðappelsína. 2.050 kr.
n Pares Balta Blanc de Pacs (Spánn) 11,5% Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Greip, stjörnuávöxtur. 2.199 kr.
„ „Þá á ég við að þú
getur orðið feng-
ið vín sem smakkast eins
hvort sem það kemur frá
Ástralíu, Suður-Afríku eða
Argentínu.
K
annski ekki æskilegasta leiðin
að gera einhverja gámabyggð
og auðvitað hætt við að það
verði eins og braggabyggð-
irnar voru og það sé verið að
skapa fátækrahverfi. Hins vegar þarf
að leysa þennan bráðavanda leigj-
enda. Það þarf að koma jafnvægi á
framboð og eftirspurn eftir leigu-
húsnæði,“ segir Hildigunnur Haf-
steinsdóttir, lögfræðingur Neytenda-
samtakanna, en undanfarið hafa
verið kynntar hugmyndir íslenskra
fyrirtækja um innréttingu á flutn-
ingagámum til búsetu. Íbúðirnar yrðu
um 27 fermetrar og áætla forsvars-
mennirnir að leigan gæti verið um 80
þúsund krónur á mánuði.
Í Amsterdam í Hollandi er stórt
hverfi byggt úr gámastæðum og síð-
astliðið haust sagði DV frá slíkri byggð
sem rís nú í London að undirlagi
YMCA.
Íbúðin stenst byggingarreglugerð
að öllu leyti nema því að baðherberg-
ið eru rúmir tveir fermetrar en þyrfti
að vera helmingi stærra. Þar er þó
ágætt rúm fyrir sturtu salerni og vask.
„Ég ætla ekki að vera að tjá mig
um byggingarreglugerðir eða undan-
þágur frá þeim,“ segir Hildigunnur og
bendir á að markmiðið ætti alltaf að
vera blönduð byggð. „En mér finnst
alveg vert að skoða þetta með hliðsjón
af þörfinni. Það er auðvitað lúxus-
vandamál að búa í gámabyggð eða fá-
tækrahverfi miðað við það að búa á
götunni.“
Hún bendir á að sums staðar er-
lendis hafi verið farin sú leið að banna
útleigu á íbúðum til ferðamanna til að
mæta skorti á leiguhúsnæði. Það hafi
til dæmis verið bannað í miðborgum
Amsterdam og Berlínar.
„Ég held að það sé ekki gott ef
svona gámabyggðir eiga að vera fram-
tíðarúrræði en miðað við myndir sem
ég hef séð er þetta bara frekar vist-
legt. Þannig að það eru tvær hliðar á
þessu,“ segir hún. n fifa@dv.is
Gámurinn er betri en gatan
Nýlega hafa verið kynntar tillögur um smáíbúðir í flutningagámum hérlendis
Gámur Myndin
er úr gáma-
byggð sem nú
rís í London.
Verðmætaþoka
villir sýn
Lottóvinningur leysir ekki málin
„Tækniþróun í viðskiptum og
yfirgnæfandi notkun korta og
rafrænna peninga er aðalorsök
verðmætaþoku. Þeir sem venj-
ast á að framkvæma alltaf
sömu hegðun til að fá mismun-
andi vörur, til dæmis rétta fram
debetkort og fá allar sínar vör-
ur í skiptum, er í miklu meiri
hættu á að missa tengingu við
verðmæti vöru og þjónustu.“
Þetta segir í pistli á heimasíð-
unni Skuldlaus.is
þar sem Haukur
Hilmarsson
ráðgjafi fjall-
ar um leiðir til
skuldleysis.
Þar segir
einnig: „Verðmæta-
þokan villir sýn þegar fólk hirð-
ir ekki um eigur sem gleym-
ast í íþróttahúsum og skólum.
Það er ekki tilfinningin að tapa
verðmætum sem vaknar held-
ur tilhugsunin um vesenið að
þurfa að sækja óskilamuni og
að viðurkenna gleymsku sína.
Tími virðist dýrmætari en var-
an. Þar sem að viðkomandi
tengir ekki við verðmæti óskila-
munanna þá er auðveldara að
segja „Æi, þú mátt bara gefa
þetta“ af því við notum bara
kortið til að fá annað,“ segir
hann.
„Verðmætaþokan hjálpar
kaupmönnum að
selja mjög dýra
vöru á auð-
veldan hátt.
Fólk hlustar á
þörf sína fyrir
nýjum hlutum
án þess að meta
verðgildið rétt. Merkjavara og
tískuvara verður auðseljanleg
þeim sem skynja ekki verð-
mæti. Álit annarra er orðið dýr-
mætara.
Verðmætaþokan hefur
einnig áhrif á tekjurnar okkar
en í stað þess að glata verð-
gildi peninga þá missum við
verðgildi á tíma. Við missum
tengingu við hvað við fáum
mikið greitt fyrir vinnuframlag
okkar. Við vitum ekki hvað tím-
inn kostar.“
Hann segir að þegar fólk
þjáist af verðmætaþoku sé al-
gengt að fólk hugsi í einfeldni
að hlutirnir reddist einhvern
veginn, jafnvel
með lottóvinn-
ingi. Hann segir
aðstæður þeirra
sem lifa í slíkri
þoku ekki breyt-
ast fyrr en tekið er
á vandanum.
„Hafa ber í huga að hér er
ég ekki að gera lítið úr neinum
heldur benda á að vani getur
fært okkur frá skynseminni. Ég
hef ekki enn hitt einstakling
sem ekki er hægt að aðstoða út
úr fjárhagsvanda. Það breytist
ef fólk fær tíma og tækifæri til
að læra að stjórna peningunum
sínum og tíma.
Besta ráð sem til er gegn
verðmætaþoku er að við vökn-
um til vitundar um hvað við
fáum í tekjur og hvað við ger-
um svo við þær. Við spyrjum
okkur nokkrar einfaldar spurn-
ingar: Hvaða pening fáum við?
Hvert fer sá peningur? Þarf
hann að fara þangað? Vil ég
að hann fari þangað? Þegar þú
svarar þeim þá ertu vakandi.“
Óskilamunir Algengt er að fólk geri sér
ekki grein fyrir verðmæti óskilamuna.