Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 7.–10. mars 201446 Sport
Kunnugleg lið í
toppbaráttunni
n Tveir mánuðir þar til Pepsi-deildin hefst n Davíð Snorri leggur mat á stöðu liðanna
N
ú eru aðeins tveir mánuð-
ir þar til keppni í Pepsi-
deild karla hefst og eru
liðin því nokkuð langt á
veg komin í undirbún-
ingi sínum fyrir komandi átök. DV
fékk Davíð Snorra Jónasson, ann-
an tveggja þjálfara Leiknis, til að
leggja mat á stöðu liðanna. Hann
býst við að kunnugleg nöfn; KR,
FH og Breiðablik, verði í toppbar-
áttunni í sumar og segir að brugð-
ið geti til beggja vona hjá liðum
eins og Stjörnunni og Fram. n
Almarr Ormarsson í KR
Eftir sex keppnistímabil hjá Fram leitaði
hugurinn annað. Rúnar Kristinsson, þjálf-
ari KR, sannfærði Almar um að ganga í
raðir Vesturbæjarliðsins og verður fróðlegt
að sjá hann fóta sig í alþekktri, svarthvítri
treyju félagsins. Almarr hefur verið einn af
máttarstólpum Framliðsins undanfarin ár
og í fyrra hafði Breiðablik mikinn áhuga á
að klófesta kappann. Hann er þeim eigin-
leikum gæddur að geta leyst flestar stöður
vallarins af hólmi með glæsibrag og mun
það eflaust reynast nýjum vinnuveitend-
um hans vel.
Stefán Gíslason
í Breiðablik
Stefán hefur þrálát-
lega verið orðaður við
heimkomu undanfarin
ár og nú er ljóst að hann
kemur til með að leika í iðjagrænni treyju
Breiðabliks. Að sögn Ólafs Kristjánssonar,
þjálfara liðsins, mun Stefán leika í hjarta
varnarinnar, en þeir fjórir sem skipuðu
varnarlínuna mestmegnis á síðasta tímabili
eru horfnir á braut. Reynsla Stefáns kemur
til með að nýtast Breiðablik all verulega að
uppbyggingu nýrrar varnarlínu og nái Stef-
án sér á strik er aldrei að vita nema Íslands-
meistaratitillinn rati aftur í Kópavoginn.
Jóhannes Karl Guðjónsson í Fram
Miðjumaðurinn snjalli sætti mikilli
gagnrýni á síðastliðnu keppnistímabili
þegar hann fór fyrir fallliði Skagamanna.
Hvort það hafi verið réttmæt gagnrýni skal
ósagt látið, en enginn efast um hæfileika
Jóhannesar. Hann þekktist boð Framara
eftir að hafa verið undir smásjánni hjá
stærstu liðum Pepsi-deildarinnar og kemur
til með að leika undir stjórn Bjarna, bróður
síns. Jóhannes er með frábært auga fyrir
samleik og sparkviss með eindæmum.
Stærstu félagaskiptin
Ingólfur Sigurðsson
ingolfur@dv.is Heitir
Breiðablik „Breiða-
blik ætlar sér eflaust stóra
hluti. Ég held að Stefán
Gíslason gefi Blikunum
mikið þegar hann kemur inn. Ólafur
Kristjánsson, þjálfari þeirra, vill halda
boltanum niðri og rúlla honum hratt á
milli manna. Það skín alveg í gegn þegar
maður sér Blikana spila. Ég er mjög
hrifinn af leikstíl Breiðabliks og finnst
skemmtilegt að sjá þá spila. Þeir verða í
toppbaráttunni.“
FH „Það verður
forvitnilegt að sjá hvernig
þeir leysa hlutverkið sem
Björn Daníel var í og hverjir
munu standa vaktina í
vörninni þegar mótið hefst. Góðir
leikmenn sem koma frá öðrum félögum í
efstu deild virðast þurfa að taka sér góðan
tíma til þess að komast inn í hlutina hjá FH.
Liðið virðist vera eins og vél sem mallar og
er þokkalega stabílt í öllu sem það gerir.“
KR „Þeir verða alltaf í
toppbaráttunni. Það
verður gaman að sjá
hvernig þeir takast á við
að missa Bjarna, Brynjar
Björn og Hannes Þór. Bjarni hefur verið
fyrirliði og leitt þá í gegnum þessa miklu
velgengni. Ég get ímyndað mér að þeir séu
miklir leiðtogar innan liðsins. Atli Sigurjóns-
son hefur verið að stjórna spilinu þeirra í
vetur. Við vitum að það er aðeins ein krafa í
Vesturbænum og hún er að vinna.“
Stjarnan „Það er
spennandi verkefni í gangi
hjá Stjörnunni. Þeir unnu
Fótbolta.net-mótið og hafa
byrjað vel í Lengjubikarnum.
Ég myndi halda að Stjarnan vilji vinna
titla, en að sama skapi ætla þeir að spila
á ungum leikmönnum. Er hægt að gera
bæði í einu? Það verður gaman að sjá
hvort staðið verður við að tefla ungu
mönnunum fram. Ég er ekki viss um að
þeir séu með sterkara lið núna en þeir
voru með í fyrra.“
Volgir
Fram „Það er léttara
yfir öllu hjá Fram og
vonandi koma fleiri á
völlinn í ár. Spurningin er
hversu mikil þolinmæði
verður í Safamýrinni þegar komið er út í
mót. Það getur brugðið til beggja vona í
þessum unga hóp og þá reynir á reyndu
leikmennina á borð við Jóhannes Karl og
Viktor Bjarka. Þeir munu hugsanlega fara
inn í mótið með það í huga að þeir hafi
engu að tapa. Ég myndi giska á að
Framliðið verði fyrir miðju deildarinnar.“
Keflavík „Það er lítið
um mannabreytingar.
Keflvíkingar ætla að
spila á heimamönnum
og eru góðir fram á við.
Ég efast ekki um að þeir verði í fínum
málum. Í fyrra náðu þeir að búa til
góða stemningu og Kristján Guð-
mundsson, þjálfari liðsins, pælir mikið
í andstæðingnum og verður mjög vel
undirbúinn fyrir leiki. Það er jákvætt
andrúmsloft í Keflavík.“
ÍBV „Það verður
spennandi að sjá hvern-
ig Sigurði Ragnari tekst
til í Vestmannaeyjum.
Hann tók Dean Martin
með sér og ég held að þeir myndi ágætis
teymi. Þeir hafa verið að fá nokkra
útlendinga sem hafa litið ágætlega út.
Ég held að þeir verði um miðja deild.
Þeir eru hvorki að fara í toppbaráttu né
að berjast um sæti í deildinni.“
Valur „Það eru
margir fínir leikmenn
í Val, en mér finnst
vanta stemningu.
Ég held að þeir
muni nú ekki vinna
titilinn í ár og komi
frekar til með að vera í miðjumoði. Það
bendir fátt til þess að það verði einhver
stórkostleg bæting á liðinu. Ég held því
að þetta verði endurtekið efni frá því í
fyrra hjá Valsmönnum.“
Kaldir
Þór „Lárus Orri er
orðinn aðstoðarþjálfari
og kemur til með að
hjálpa Páli aðalþjálfara
svakalega með skipulag á varnarleikn-
um. Síðast þegar þeir komu upp féllu
þeir, en í fyrra náðu þeir að halda sér uppi.
Þeir koma því reynslunni ríkari til leiks í
sumar. Gildi Þórsara verða enn þau sömu:
Að deyja fyrir klúbbinn.“
Fylkir „Ásmundur er
búinn að vera lengi í
þjálfun og er góður
þjálfari. Í gamla daga
voru mikil læti og
stemning í kringum uppalda Fylkismenn.
Það kom slík stemning á lokametrunum í
fyrra og þeir þurfa klárlega að hafa hana í
sumar. Það þarf að vera miklu meiri
stemning í Árbænum yfirhöfuð, en hefur
verið undanfarin ár.“
Víkingur R. „Þeir
þurftu að styrkja sig fyrir
átökin í efstu deild og
eru búnir að því. Ég held
það sé alltaf pressa í
Víkinni. Þeir ætla ekkert að fara aftur niður
og töluðu um það strax eftir að hafa
komist upp, að bæta við leikmannahóp
sinn. Sveinbjörn Jónasson er kominn í
framherjastöðuna og er með mikið
markanef. Það voru gæði í spilamennsku
Víkings í fyrra, þó það hafi komið skrítnir
leikir inn á milli.“
Fjölnir „Leikstíll Fjölnis
gengur út á gott varnar-
skipulag en það er spurning
hvort þeir nái að þróa leik sinn
meira frá því í fyrra. Það gekk í
1. deild en gæðin á sóknar-
mönnum í efstu deild eru meiri. Þeir hafa
ekki verið að bæta miklu við sig og verða að
fara þetta mikið á samstöðu og baráttu.
Fólk í Grafarvoginum þarf að styðja liðið
meira og mæta almennilega á völlinn. Það
er alveg klárt að Fjölnir mun liggja til baka
og beita skyndisóknum. Þeir verða í
baráttunni í neðri hluta deildarinnar.“
Samherjar
Bjarni og Jóhannes
Karl Guðjóns-
synir eru komnir í
Safamýrina, Bjarni
sem þjálfari en
Jóhannes sem
leikmaður. Það
verður spennandi
að fylgjast með
liðinu í sumar.