Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Page 48
48 Skrýtið Sakamál Helgarblað 7.–10. mars 2014 Dalaboðflennan n Órar Richards einkenndust af ofbeldi og kynlífi n Honum nægðu ekki fantasíur og tók hann til sinna ráða n 14 fórnarlömb á 16 mánuðum Í ljósi bernsku- og unglingsára Richards Ramirez er kannski bjartsýni að ætla að lífshlaup hans hefði getað orðið annað en raunin varð. Hann fæddist 29. febrúar, 1960, í El Paso í Texas í Bandaríkjunum. Hann var yngstur fimm barna Julians og Mercedez og var Julian, faðir hans skap- hundur sem vílaði ekki fyrir sér að beita hnefunum innan veggja heimilisins. Ekki nóg með að Ric- hard sætti ofbeldi af hendi föður síns heldur hlaut hann einnig ung- ur að árum alvarlega höfuðáverka og fékk iðulega flogaköst, sem þó heyrðu sögunni til þegar hann nálgaðist unglingsaldur. Tólf ára var Richard undir mikl- um áhrifum af frænda sínum, Miguel „Mike“ Ramirez, græn- húfukappa úr Víetnamstríðinu sem hafði verið heiðraður fyrir framgöngu sína þar. Mike sagði Richard sögur af hetjudáðum sín- um þar og sýndi honum ljósmynd- ir af fórnarlömbunum; myndir af Mike að nauðga konum og einnig myndir sem sýndu Mike halda á afhöggnum höfðum kvenna sem hann hafði nauðgað. Ofbeldisfullar, kynferðislegar fantasíur Richard tengdist Mike undarleg- um böndum sem styrktust með hverri frásögn Mikes. Mike kenndi Richard ýmislegt sem hann hafði lært af bardögum í Víetnam, þar á meðal hvernig átti að bana mann- eskju á öruggan og snöggan máta. Um þetta leyti tók Richard upp á því að sofa í kirkjugarði skammt frá heimili sínu til að forðast skapofsaköst föður síns. Þann 4. maí, 1973, varð Ric- hard vitni að því þegar Mike myrti eiginkonu sína, Jessie, með því að skjóta hana í andlitið með .38 kalíbera skammbyssu – ástæðan var einfalt rifrildi. Mike fékk fang- elsisdóm og í kjölfarið dró Ric- hard sig inn í skel sína og fjarlægð- ist fjölskyldu og vini. Seinna það ár flutti hann inn til systur sinnar, Ruth, og eiginmanns hennar, Ro- bertos. Roberto var stjórnsamur gluggagægir – ekki jólasveinninn – og tók Richard iðulega með sér í næturleiðangra. Richard kynnt- ist LSD og ræktaði með sér áhuga á satanisma, hrökklaðist úr skóla í níunda bekk og hugsanir hans urðu samsuða ofbeldis og kynferð- islegra óra, sem innihéldu fjötra og nauðganir. Mike birtist á ný Á meðan Richard var enn í skóla fékk hann starf á Holiday Inn og gat þar stundað gægjur af mikl- um móð auk þess sem hann stal af gestunum. Störfum hans þar lauk eftir að hann hafði fjötrað konu eina og var í þann mund að nauðga henni þegar eiginmann hennar bar að. Eiginmaðurinn lét Richard finna til tevatnsins svo um munaði, en þar sem hjónin bjuggu ekki í fylkinu og vildu ekki bera vitni var málið látið niður falla. Af Mike frænda var það að segja að hann afplánaði fjögurra ára vistun á geðdeild, sem var rök- studd með vísun í geðheilsu hans, ekki síst vegna lífsreynslu hans úr Víetnamstríðinu. Eftir að hann losnaði endurnýjaði hann kynn- in við Richard og gerðist á ný sá áhrifavaldur sem hann hafði verið á árum áður. Tuttugu og tveggja ára að aldri settist Richard Ramirez að í Kali- forníu og honum héldu engin bönd – ferillinn var stuttur en blóði drifinn. Sannkallað morðæði Fyrsta morðið framdi Richard 10. apríl, 1984, en þá fannst níu ára stúlka, Mei Leung, látin í kjallara hótels sem Richard bjó á. Það varð þó ekki fyrr en 2009 sem hann var bendlaður við það með DNA-sýn- um. Fjölmiðlar gáfu honum viðurnefnið Dalaboðflennan, enda má segja að hann hafi verið haldinn óslökkvandi morðþorsta. Þann 28. júní, 1984, fannst illa leik- ið lík 79 ára konu, Jennie Vincow, í íbúð hennar, en síðan leið tæpt ár þar til Richard lét til skarar skríða á ný. Í mars 1985 skaut Richard Maríu Hernandez, 22 ára, í and- litið en vinkona hennar, Dayle Oka zaki, 34 ára, heyrði skothvell- inn og leitaði skjóls á bak við sófa. Richard beið í rólegheitunum þar til Dayle athugaði hvort hann væri farinn og skaut hana til bana. Það varð Maríu til lífs að kúlan sem henni var ætluð kastaðist af lykla- kippu sem hún hélt á er hún bar hönd fyrir höfuð sér. Innan við klukkutíma síðar dró Richard þrítuga konu, Tsai-Lian Yu, út úr bíl hennar og skaut hana tvisvar í höfuðið. Hún lést síðar á sjúkrahúsi. Mars og maí Í mars 1984 hafði Richard brotist inn á heimili í Whittier, og ári síð- ar, 27. mars, endurtók hann leik- inn. Í það skiptið skaut hann hús- ráðanda, Vincent Zazzara, þar sem hann svaf og sneri sér síðan að eiginkonunni, Maxine. Hann lumbraði á henni og batt og krafð- ist upplýsinga um verðmæti. Á meðan hann leitaði tókst Maxine að losa sig og beindi að Richard óhlaðinni haglabyssu. Það hleypti illu blóði í Richard sem skaut hana í þrígang, fann síðan eldhúshníf og skeytti skapi sínu á líkinu og krækti meðal annars úr henni augunum og hafði á brott með sér. Skothylki á vettvangi færðu lögreglu heim sanninn um að raðmorðingi væri kominn á kreik og fékkst það staðfest um miðj- an maí þegar Richard myrti Bill Doi og nauðgaði fatlaðri eigin- konu hans, Lillian. En maí var ekki liðinn og 29. stöðvaði Richard stolna Mercedes-bifreið sína fyrir utan heimili systranna Mabel Bell og Florence Lang, sem báðar voru á níræðisaldri. Þar fékk hann útrás fyrir óra sína en áður en hann yfir gaf heimili þeirra teiknaði hann fimmarma stjörnu á mjöðm Mabel. Systurnar fundust tveim- ur dögum síðar, á lífi en meðvit- undarlausar. Mabel lést síðar af völdum áverkanna. 30. maí laumaðist hann inn á heimili Carol Kyle, 42 ára. Hann fjötraði hana og ellefu ára son hennar. Eftir að hafa safnað saman verðmætum misþyrmdi hann Carol ítrekað kynferðislega, en þyrmdi þó lífi mæðginanna. Blóðugur júlí Annan júlí valdi hann hús af handahófi. Íbúinn ólánsami var 75 ára ekkja, Mary Louise Cannon. Hann barði hana nánast til ólífis með lampa og lauk svo verkinu með ótal hnífstungum. Þremur dögum síðar slapp 16 ára stúlka í Sierra Madre með skrekkinn. Richard gekk í skrokk á „Dauðinn fylgir lífinu. Ég sé ykkur í Disney-landi. Richard Ramirez Stundaðióhæfuverk sín um fjórtán mánaða skeið. Ofbeldisseggur Richard fékk viðurnefnið Dalaboðflennan, enda átti hann það til að birt- ast inni á heimilum fólks þegar það var í fastasvefni – hann tók síðan til óspilltra málanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.