Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 49
Skrýtið 49Helgarblað 7.–10. mars 2014
Gæludýrið er
þvottabjörn
Hjónin Phill og Liz eiga 20 gæludýr
Gæfur þvotta-
björn Zella er hvers
manns hugljúfi.
Baldur Eiríksson
baldure@dv.is
Dalaboðflennan
n Órar Richards einkenndust af ofbeldi og kynlífi n Honum nægðu ekki fantasíur og tók hann til sinna ráða n 14 fórnarlömb á 16 mánuðum
henni með felgulykli og þurfti 478
spor til að tjasla saman á henni
hársverðinum.
Sjöunda júlí skaust Richard í
Monterey Park. Á heimili þar fann
hann rúmlega sextuga konu sof
andi og myrti hana með hnefa
höggum og spörkum. Eftir að hafa
ekið um nágrennið sneri hann
aftur til Montery Park og valdi þá
heimili Sophie Dickman, 63 ára.
Hann reyndi að nauðga henni
en neyddist til að gefa það upp á
bátinn. Þess í stað stal hann öllu
steini léttara og neyddi Sophie
síðan til „sverja við Satan“ að
ekkert fleira fémætt fyrirfyndist í
íbúðinni.
Þrettán dögum síðar keypti
Richard sér sveðju. Maxon og
Lela Kneiding sváfu svefni hinna
réttlátu þegar hann ruddist inn í
svefnherbergi þeirra og hjó þau
sem óður væri áður en hann myrti
þau með skoti í höfuðið. Síðan lét
hann greipar sópa um heimilið.
Nokkrum klukkustundum síð
ar braust hann inn á heimili í Sun
Valley. Þar skaut hann Chainar
ong Khovananth til bana, nauðg
aði eiginkonu hans, Somkid, ít
rekað og fleygði átta ára syni
þeirra fjötruðum inn í skáp. Síðan
snéri hann sér að gripdeildum og
Somkid þurfti að sverja við Satan
að hann væri búinn að fá allt fé
mætt.
Endalok í ágúst
Richard hélt uppteknum hætti
í ágúst og þann 6. þess mánað
ar lentu Chris og Virginia Peter
son í Northridge í klónum á hon
um. Þau héldu lífi þrátt fyrir að
hafa bæði verið skotin í höf
uðið. Tveimur dögum síðar var
Richard staddur á heimili Elyas
og Sakinu Abowath í Diamond
Bar. Elyas var umsvifalaust skot
inn til bana og Sakina síðan
neydd til að framselja allt fé
mætt áður en henni var nauðgað.
Þriggja ára sonur hjónanna vakn
aði við lætin og Richard fjötr
aði hann og hélt síðan áfram að
nauðga Sakinu. Richard þyrmdi
þó lífi mæðginanna.
Richard færði sig nú um set
og lá leið hans frá Los Angeles til
San Francisco. Peter Pan, 66 ára,
og eiginkona hans Barbara, 62
ára, voru myrt á heimili sínu 18.
ágúst.
Næst á dagskránni var heim
ili Bills Carns og unnustu hans
Carole Smith í Mission Viejo suð
ur af Los Angeles. Þau lifðu bæði
af; hann var skotinn þrisvar í höf
uðið og hún barin heiftarlega, en
þegar Richard ók á brott sá þrett
án ára nágrannadrengur sama
„undarlega svartklædda ná
ungann“ og hann hafði séð fyrr
um kvöldið. Drengurinn, James
Romero, ákvað að skrifa nið
ur eins mikið af bílnúmerinu og
hann mundi.
Nánast tekinn af lífi
Þegar tíðindin af árásinni bárust
út sagði James foreldrum sínum
frá því sem fyrir augu hans hafði
borið. Þeir höfðu án tafar sam
band við lögregluna, lýstu fyr
ir henni bílnum og gáfu upp bíl
númerið – eða það sem James
hafði náð að skrifa niður. Carole
Smith gat gefið lögreglu lýsingu á
ódæðismanninum.
Bíllinn fannst 28. ágúst og fann
lögreglan eitt nothæft fingrafar.
Það fannst síðar í gagnagrunni
lögreglunnar – lögreglan var,
loksins, komin á sporið. Tekin
var sú ákvörðun að gera opin
bera mynd af Richard Ramirez
sem lögreglan átti í skrám sín
um og hafði verið tekin 1984 og
á blaðamannafundi var gefin út
tilkynning: „Við vitum hver þú
ert og brátt munu allir aðrir vita
það einnig. Þú munt hvergi geta
dulist.“
Það voru orð að sönnu því
innan tíðar gat að líta þessa ljós
mynd alls staðar og Richard vissi
ekki fyrr en hann var kominn á
flótta. Síðasta dag ágústmánað
ar 1985 mátti Richard hreinlega
þakka fyrir að vera ekki tekinn af
lífi án dóms og laga þegar hann
reyndi að draga konu úr bíl með
það fyrir augum að flýja á bíln
um. Hann þekktist og það varð
honum til happs að lögregluþjón
bar að áður en verr fór og hand
tók hann.
Þann 20. september, 1989, var
Richard sakfelldur fyrir þrettán
morð og ýmislegt annað. Hans
beið að gefa upp öndina í gas
klefa þegar hans tími kæmi. „Big
Deal,“ sagði hann þegar dóm
ur var kveðinn upp. „Dauðinn
fylgir lífinu. Ég sé ykkur í Disney
landi.“
Richard slapp við gasklefann
því hann dó úr lifrarsjúkdómi 7.
júní 2013. n
H
jónaleysin Phill og Liz
Kirby eiga tuttugu gælu
dýr. Þetta breska par, sem
deilir eftirnafni af tilvilj
un, sættir sig hins vegar
ekki við hinar hefðbundnu heim
ilisdýrategundir heldur hafa þau
sankað að sér fjölbreyttri flóru dýra
hvaðanæva að úr heiminum. Með
al annarra þvottabjörninn Zella,
sem þau keyptu á netinu og fengu
sendan fyrir röskum sex mánuð
um. Zella er hvers manns hug
ljúfi að sögn parsins. „Hún hegð
ar sér bara svolítið eins og hundur.
Við þurfum að fara út með hana á
hverjum degi – hún þráir útiver
una – en við komumst sjaldnast
langt þar eð forvitnir vegfarend
ur stoppa okkur yfirleitt og vilja
gæla við hana,“ segir Liz en bætir
aftur á móti við að Zella þurfi tölu
vert meiri athygli en hundur. „Það
er ekki hægt að skilja neitt eftir á
glámbekk, þá fer hún í það og ým
ist leikur sér með eða skemmir.“
Illa þokkuð dýr
Upplifun parsins af samvistum
við þvottabjörninn hljómar ef
laust undarlega í eyrum margra,
enda þvottabirnir meðal verst
þokkuðu dýrategunda heimsins.
Þvottabirnir eru næturdýr sem
borða allt sem þeir komast í. Nátt
úruleg heimkynni þvottabjarna
eru laufskógar NorðurAmeríku
en aðlögunarhæfni þeirra er slík
að margir hafa tekið sér bólfestu
nærri mannabústöðum þar sem
þeir stelast gjarnan í ruslagáma
eða heim til fólks í leit að æti hvar
þeir skilja iðulega eftir sig slóð
eyðileggingar og hrella íbúa.
Parið fullyrðir hins vegar að
Zella hrelli fáa, utan nokkrar for
pokaðar eldri konur sem séu full
vandar að virðingu sinni að mati
parsins. „Hún er verulega gæf.
Henni finnst best að sitja í kjölt
unni okkar og er sérstaklega þakk
lát sé henni klórað aðeins.“
Zella er að líkindum ekki ein
mana á Kirbyheimilinu enda er
þar fyrir herskari dýra sem áður
greinir – alls tuttugu talsins – með
al annarra skunkur, api og ugla.
Mæta í veislur
En hvers vegna breytti parið heim
ili sínu í dýragarð? „Við áttum eitt
sinn dýrabúð og þannig kviknaði
áhugamálið. Við seldum rekstur
inn en héldum samt áfram að
annast dýr heima hjá okkur. Síð
an færðum við okkur aðeins upp
á skaftið og keyptum tegundir
sem falla tæplega undir skilgrein
inguna á gæludýrum,“ segir Liz og
bætir við að nágrannar hafi fljót
lega sýnt dýrahaldi parsins áhuga
og fengið það til að mæta með dýr
in í barnaafmæli og aðrar veislur.
Nú eru þessar heimsóknir orðnar
að atvinnu þeirra og viðskiptin
eru í blóma. Það er Zella sem vek
ur yfir leitt mesta athygli. „Þvotta
birnir eru mjög gáfaðar skepnur
og sérstaklega Zella. Margir sem
hitta hana segjast í kjölfarið vilja
sinn eigin þvottabjörn en ég segi
þeim að hugmyndin sé betri en
raunveruleikinn, enda fylgir þeim
mikið umstang og vesen.“
Íslenskir þvottabirnir
Það er ekki bara á Bretlandseyjum
sem þvottabjarnahald hefur tíðk
ast. Árið 1932 flutti Ársæll Árna
son inn sjö þvottabirni hingað til
lands og voru tveir þeirra seldir til
Vestmannaeyja en hin dýrin höfð
ust við í kjallara á Sólvallagötunni.
Fátt er vitað um afdrif þeirra. n
Andaktugir áhorfendur
Zella vekur alls staðar athygli.