Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Qupperneq 51

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Qupperneq 51
Helgarblað 7.–10. mars 2014 Menning 51 skólans og aðeins fimmtán nem­ endur stunduðu þar nám og því var það svo að áfram ríkti ákveðin kyrrð í lífi fjölskyldunnar. Seinna fluttu þau á Lauga­ bakka við Miðfjörð þar sem Ásgeir uppgötv aði tónlistina. „Þar eignaðist ég vini sem ég tengdist, fann tónlistina og einhver tengsl við náttúruna. Foreldrar mín­ ir gáfu mér mikið frelsi. Ég mátti eyða tímanum í það sem ég vildi og oftast fór ég vel með það frelsi. Mér var aldrei stýrt í aðra átt. Ég gat líka alltaf talað við þau, alltaf áttu þau svörin. Þau voru auðvitað kennar­ ar,“ segir hann og brosir. „Því sem þau gátu ekki svarað, leitaði ég sjálf­ ur svara við.“ Íslandsmeistari í spjótkasti Þótt tónlistin hefði gripið Ásgeir traustataki í Miðfirðinum var hann í öllum mögulegum íþróttum sem barn og hélt áfram að stunda íþrótt­ ir fram á fullorðinsár. Fáir vita að Ásgeir setti fjölda meta í frjálsum íþróttum og á enn eitt Íslandsmet síðan hann var fjórtán ára í spjót­ kasti. „Ég byrjaði sex ára í frjálsum íþrótt­ um, þegar ég var orðinn tíu ára þá bættust fótbolti og körfubolti við og í rauninni allt sem var í boði. Þrettán ára ákvað ég að spjótið yrði í aðalhlut­ verki og ég fékk mikinn áhuga á þeirri íþrótt. Ég var með kennara sem ég leit mikið upp til og það hafði áhrif. Sami kennari kenndi mér á gítar. Hann var eins og stóri bróðir minn, við eyddum mörgum klukkutímum saman á dag við þjálfun. Ég keppti í íþróttinni til átján ára aldurs og þótt mörg meta minna hafi verið slegin á ég enn eitt sem ég setti fjórtán ára. Það er reynd­ ar einn efnilegur núna sem gæti bætt það og ég fylgist spenntur með.“ Fantastic Power og draumur í sveit Fyrstu hljómsveitina stofnaði Ásgeir tíu ára. Reyndar komst hann ekki lengra með hljómsveitina en að finna á hana nafn og ákveða hljóð­ færaskipan. „Við vorum fullir metnaðar, ætli við höfum ekki verið að hugsa um útrás því við fundum nafn á ensku. Ákváðum fyrst að í nafninu skyldi vera orðið „power“, flettum svo upp orðinu „fantastic“ og fannst það eiga vel við fyrir framan. Sveitin hlaut því nafnið Fantastic Power. Þrátt fyrir nafnið þá gerðum við ekki mikið annað en að tala um hvað okkur dreymdi um að gera.“ Það var ekki fyrr en hann var 12 ára að tónlistin öðlaðist stærri sess í lífi hans. „Ég kynntist trommuleik­ ara í sveitinni sem ég gat spilað með. Ég spilaði fyrst á klassískan gít­ ar og hann á trommur, það var auð­ vitað svolítið kostulegt því auðvitað heyrðist ekkert í gítarnum. Mamma gaf mér svo gamlan rafmagnsgítar og magnara og þá varð meira fjör. Við sprengdum reyndar magnarann eftir viku. Við vorum með mjög sérs­ taka upptökutækni tókum upp heilu æfingarnar á kassettutæki. Þær eru enn þá til einhvers staðar. Í tvö til þrjú ár spiluðum við oft tónlist eftir skóla langt fram á kvöld.“ Spilaði undir í söngvakeppni í fjögur ár Á þessum tíma keppti Ásgeir í Mús­ íktilraunum. „Óli Palli var stjarna í mínum augum og keppnin var ótrú­ leg upplifun. Þarna vorum við strák­ arnir úr sveitinni komnir á alvöru svið og með alvöru áhorfendur og við gátum safnað í reynslubank­ ann.“ Bandið þróaðist með heldur óvanalegum hætti, Ásgeir og fé­ lagar ákváðu að sjá um söngva­ keppni sem haldin var í bæjarfé­ laginu á Hvammstanga á hverju ári. Það gerðu þeir í fjögur ár og spil­ uðu undir fyrir keppendur í söngva­ keppni í Grunnskólanum. „Þetta var sætt, keppendur komu með disk og nafnið á laginu og svo spiluðum við undir og æfðum í 2–3 vikur. Þetta var í fyrsta skipti sem við fengum borg­ að. Fengum 15 þúsund krónur sem okkur fannst heilmikill peningur.“ Var á leið í kraftlyftingakeppni Fyrsta plata Ásgeirs, Dýrð í dauða­ þögn, kom með látum í íslenska tónlistarheiminn. Árið 2012 var árið sem þjóðin fékk að kynnast tón­ list hans og svo sannarlega hans ár. Það var fyrir algjöra tilviljun að Ás­ geir varð frægur. Hann var að klára framhaldsskólann á þessum tíma og hugsaði helst um þátttöku sína í kraftlyftingakeppni sem var fram undan. „Mig langaði að taka upp eitt lag, til að heyra hvernig það kæmi út og gerði það. Svo heyrði fólk í kring­ um mig upptökuna, einn af þeim var Kiddi í Hjálmum og boltinn fór að rúlla. Ég var beðinn um meira og ákvað að grípa tækifærið. Þrem­ ur mánuðum seinna, eftir lotu í upp­ tökum, var platan Dýrð í dauðaþögn komin út. Ég varð rosalega ruglaður. Ég var ekki búinn undir þessar góðu viðtökur og lífið snerist auðvitað á hvolf. Ég hugsaði um að mig langaði að verða tónlistarmaður einhvern tímann – en ég hafði ekki það mikla trú á minni tónlist að mig grunaði að mér myndi ganga vel. Ég hélt ég myndi kannski starfa sem tónlistar­ kennari eða fá að eiga hlutdeild í tónlist annarra. Velgengni mín var langt frá því sem ég vænti en auðvit­ að hvíldi draumurinn einhvers stað­ ar djúpt innra með mér. Síðustu önnina í framhaldsskóla var ég í stúdíói en tókst að útskrifast frá félagsfræðibraut. Ég var ekki með hugann við tónlistina þegar mér bauðst tækifærið. Áður en ég fór í upptökuverið var ég að undirbúa mig fyrir keppni í kraftlyftingum og var með allan hugann við það,“ seg­ ir hann og hlær og segir átökin sem fylgdu í kjölfar frægðarinnar líklega hafa jafnast á við slíka keppni. Peningar skipta miklu máli Fjárhagurinn vænkaðist að sjálf­ sögðu töluvert en Ásgeir hefur ávallt hugsað til framtíðar hvað varðar þær tekjur sem verða til af sölu platna. Tekjurnar eru fjárfesting til framtíðar og þær eyðast hratt upp á tónleikaferðalögum og í upptök­ um. „Ég er þakklátur, þetta eru tekj­ ur sem gera mér kleift að gera ýmis­ legt sem ég hefði ekki annars getað gert í tónlistinni. En samt eru þetta bara tölur sem fara upp og niður. Ég er svo mikill bjáni að ég læt peninga ekki skipta mig of miklu máli.“ Hótellífið Hann hefur vanist hótellífinu og stöðugum ferðalögunum þótt honum hafi fundist álagið full mik­ ið til að byrja með. „Það er gaman að ferðast á milli ólíkra staða og ég hafði til dæmis aldrei komið til Asíu áður, svo það var spennandi. Singapúr var æðisleg borg og mikil upplifun að fara þangað. Hins vegar þá er svo mikið að gera á hverjum áfangastað að oft sé ég lítið af líf­ inu í kringum mig. Fer kannski beint á hótelið og síðan beint á tón­ leikastað. Nú þegar stendur til að ferðast um Bandaríkin er líklegt að við ferðumst um í rútu. Hingað til hef ég helst gist á hótelum. Það er örugglega gott að blanda þessu tvennu saman. Ég hef mikla þörf fyrir gott næði og held ég eigi eft­ ir að vilja hvíla mig á hóteli öðru hverju, svona til að fara í almenni­ lega sturtu og svona,“ segir hann og hlær. Lífið breytt Ásgeir segist stundum sakna þess að vera ekki í venjulegri vinnu. Sér í lagi þegar hann verður þreyttur á ferðalögunum. „Þetta er mín ákvörðun, mig langaði að starfa við tónlist og það gefur mér mikið. Annað myndi ekki meika sens. En stundum, þegar ég er þreyttur eða einmana, þá sakna ég þess að vera í einfaldri rútínu. Vinna á pósthúsi,“ segir hann og brosir. Stundum langar mig að geta skipulagt frítíma minn betur. Nú er líf mitt svo breytt, það eru gerðar kröfur til mín. Sem er gott, en öðru­ vísi.“ Hann saknar oft Íslands þótt tón­ listin sé hans ástríða. „Ég er oft einn á ferðalagi og ef söknuðurinn grípur mig þá minni ég mig á að halda ein­ beitingu og muna mikilvægi þess að standa mig vel.“ Eitthvað sem enginn veit … Ásgeir er ekkert mikið fyrir það að veita viðtöl. Hann hefur þó heldur betur fengið eldskírn í þeim bransa. Úti fer hann stundum í tugi viðtala á dag. „Að fara í viðtal er skrýtin upplif­ un, ég er ekki beint feiminn eða slíkt. En mér finnst skrýtið að segja sömu hlutina um líf mitt trekk í trekk. Ég verð þreyttur á sjálfum mér, á því að endurtaka mig. En þetta er hluti af vinnunni og ég hef slípast aðeins í þessu,“ segir hann og hlær. Þá lætur blaðamaður reyna á það og biður hann að segja sér eitt­ hvað um sig sem enginn veit. Hann hlær og hugsar sig um. „Já, ég hlýt að geta þetta,“ segir hann. „Jú. Hér kemur það. Stóra uppljóstrunin,“ segir hann í gamni sínu. „Ég svaf með dúkku þangað til ég var ellefu, tólf ára, svarta dúkku sem heitir Sambó. Ég var svo myrkfælinn og þurfti að hafa öll ljósin kveikt langt fram eftir aldri. Þegar vinirnir komu í heimsókn þá faldi ég dúkkuna undir sæng.“ Hefur hann þroskast mikið á þessum tíma? „Já, að einhverju leyti, ég hef feng­ ið að gea svo margt og látið reyna á mig. Ferðalögin gera mig víð­ sýnni og ég er að vinna í því sem mig hefur alltaf dreymt um. Það er ákveðinn þroski falinn í því að nýta þau tækifæri sem ég fæ og ég reyni að fara eins vel með þau og ég get. Ég hef þroskast að einhverju leyti vegna þess að ég hef verið að gera öðruvísi hluti en flestir eru að gera og hef ferðast endalaust út um allt og verið að kynnast nýjum hlutum. En þroskinn er ekki endilega á öðru stigi en hjá jafnöldrum mínum. Ég er alltaf sami vitleysingurinn,“ segir Ásgeir. n „Ég svaf með dúkku þangað til ég var ellefu, tólf ára „Ég var svo myrkfæl- inn og þurfti að hafa öll ljósin kveikt langt fram eftir aldri m y n d S ig tr y g g u r a r i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.