Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2014, Side 52
Helgarblað 7.–10. mars 201452 Menning n Fumlaus og fáguð uppsetning n Alvörutilfinningar skipa stærstan sess Þ að er ekki ofsögum sagt að óperan Ragnheiður hafi slegið í gegn í Eldborgar- sal Hörpu um síðustu helgi. Við sem urðum vitni að konsertuppfærslunni í Skálholti sl. sumar vissum vel við hverju var að búast eftir að hafa drukkið í okk- ur tónlist Gunnars Þórðarsonar og túlkun söngvara og hljómsveitar. Óskin um að óperan kæmist á svið Íslensku óperunnar var einlægt ákall allra óperuunnenda og því mikið gæfuspor að Stefán Baldurs- son óperustjóri hafi orðið því því. Annað gæfuspor var svo að hann sjálfur með alla sína leikhús- og leikstjórnarreynslu að baki skyldi taka verkefnið að sér og stýra því jafn glæsilega og raun ber vitni. Hinn mikli galdur Sagan um Ragnheiði Brynjólfs- dóttur er auðvitað kjörin fyr- ir óperuformið, hún er drama tísk í meira lagi, helstu átök hennar eru milli feðgina sem minna jafn- vel á gríska harmleiki eins og Antí- gónu Sófóklesar eða Lé konung Shakespears. En saga Ragnheiðar er líka saga af ást í meinum, sumir hafa talað um Rómeó og Júlíu í því sambandi, sem er ekki fjarri lagi, þótt þessum gagnrýnanda finn- ist þáttur feðginanna fyrirferðar- meiri og áhrifaríkari. Reyndar er aðaluppistaðan þríhyrningurinn faðir, dóttir og elskhuginn Daði Halldórsson og það er í sambandi þeirra þriggja sem stærstu tilfinn- ingaátökin eiga sér stað. Og þau eru einmitt einn helsti kostur þessarar óperu, því eins og annar höfundur Ragnheiðar, Friðrik Erlingsson, bendir réttilega á í leikskrá, þá býð- ur óperuformið, umfram önnur frásagnarform, upp á framsetningu á tilfinningum og mun voldugri aðferð til að lýsa þeim og innra lífi persóna en t.d. leikritsformið. Og þar leikur tónlistin aðalhlutverk- ið, hún er hinn „mikli galdur sem hrífur áhorfandann inn í heim og tilfinningar sögunnar,“ svo aftur sé vitnað í Friðrik. Og það er einmitt tónlist Gunnars Þórðarsonar sem tekst þetta, að færa okkur örlaga- ríka sögu Ragnheiðar og tengja hana við tilfinningar eins og ást og reiði, sorg og söknuð eins og alvöru óperur eiga að gera. Allt þetta var til staðar á frumsýningu og meira en það. Þessi gagnrýnandi þurfti að læða fingrum oní kvenveskið sitt til að ná í tissjú fyrir snöktandi sessu- nautinn. Glæsileg frumraun Það leikur enginn vafi á því að óperan Ragnheiður sver sig í ætt við frægar óperur frá liðnum tíma, einkum frá nítjándu öld þegar óperuformið náði fullkomnun sinni með rómantískum óperum Verdis og Puccinis. Vinsældir þeirra má rekja til lagrænna aría sem bera uppi tónlistina ásamt nauðsynleg- um recitatívum eða talsöngsköfl- um. Og allt er það til staðar með hefðbundnum hætti hjá þeim Frið- riki og Gunnari að ógleymdum hljómsveitarþættinum. En þrátt fyr- ir að heyra mætti áhrif frá þekktum tónskáldum eins og bæði Puccini og Mahler, einkum í hljómsveit- arköflunum, kemur tónlistin oft á óvart og stundum bregður fyrir öðr- um áhrifum t.d. úr þjóðlegum hefð- um, rímna- og sálmasöng. Aríur Ragnheiðar og Daða sem og dúett- ar þeirra eru með því fegursta í tón- listinni, enda lagrænt í meira lagi og vel í anda þess allra besta sem Gunnar hefur samið og er þekkt- astur fyrir. Það ríkir gott jafnvægi milli bjartra og dimmari tóna eins og í söngaríum Brynjólfs biskups og illmennisins séra Sigurðar. Gunnar semur nýja tónlist við útfararsálm Hallgríms Péturssonar, Allt eins og blómstrið eina, en sagan segir að sálmaskáldið hafi ort hann í minn- ingu Ragnheiðar. Librettó Friðriks Erlingssonar gengur í aðalatriðum vel að syngja, þótt textinn á stöku stað falli ekki alltaf að sönglínunni. Hann er hæfilega skáldlegur, leyfir sér líka vissa léttúð, enda nauðsyn- legt að fá gamansöm uppbrot í öllu dramanu, heyra slúðrið í alþýðunni og klúrt fliss í vinnukonum. Í heildina er óperan vel heppnað samspil milli höfundanna tveggja, þeir leyfa sér báðir að láta tilfinn- ingarnar leika stærsta hlutverkið án þess að melódramað taki yfir eða verði yfirþyrmandi. Auðvitað má finna að, sagan breiðir stundum óþarflega mikið úr sér, en þó varla hægt að komast hjá að spegla sögu þeirra Ragnheiðar og Daða í hliðar- sögu Ingibjargar vinnukonu og séra Sigurðar til að sýna okkur óbilgirni föður gagnvart dóttur. Það er helst að þættinum um Sæmundar-Eddu sé ofaukið. Allt er þetta spurning um nálgun, val og sjónarhorn á efnið, dramatúrgíu, því af nógu er að taka. Stjörnur kvöldsins Þóra Einarsdóttir hefur ekki að- eins fullkomna rödd fyrir hlut- verk Ragnheiðar, heldur geislar af henni á sviðinu. Hún hefur full- komið vald á hlutverkinu, glans- ar í helstu númerunum og leikur Ragnheiði af þokka, styrk og djúpri tilfinningu hvort heldur sem hún er ástfangin skólastúlka, biskups- dóttir í uppreisn eða niðurbrot- in móðir. Hún ber uppi helstu og eftirminnilegustu aríur óperunn- ar ásamt hinum nánast óþekkta en afar heillandi Elmari Gilbertssyni í hlutverki elskhugans Daða. Saman syngja þau ástardúetta af einstöku áreynsluleysi og fegurð og sjald- an eða aldrei hef ég orðið vitni að jafn fallegri erótík á íslensku óperu- sviði. Elmar syngur hér sitt fyrsta hlutverk hjá Íslensku óperunni og kemur verulega á óvart fyrir hljóm- mikla og tónvissa tenórrödd sína. Í framkalli var hann hylltur sérstak- lega af áhorfendum sem sýndu að þeir kunnu að meta frábæra frammistöðu hans. Það sópaði líka að Viðari Gunnarssyni í hlut- verki Brynjólfs en áhrifamestur var söngur hans í lokaþætti verksins þar sem hann stendur yfir mold- um Ragnheiðar og skærasta ljóss augna hans, dóttursonarins Þórðar. Bergþór Pálsson var óaðfinnanleg- ur í hlutverki Hallgríms Pétursson- ar og söng nýja músík Gunnars við útfararsálminn fræga afbragðsvel. Og reyndar var hvergi hnökra að finna í söngflutningi annarra söngvara enda rétt og vel skipað í flestöll hlutverk. Á engan er hallað þótt ég nefni hér sérstaklega Guð- rúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Ágúst Ólafsson sem komust einstaklega vel frá hlutverkum sínum. Fumlaust og fágað Ragnheiður er ekki aðeins vel sungin af frábærum söngvurum, heldur vel leikin í fumlausri upp- setningu Stefáns og hans listræna teymis. Yfir allri uppsetningunni ríkir fagmennska, fágun og öryggi. Það er augljóst strax í fallegri upp- hafssenu verksins þar sem afar stíl- hrein leikmynd Gretars Reynis- sonar ásamt sumarbjartri lýsingu Páls Ragnarssonar lofaði góðu um það sem í vændum var, þótt brátt tæki að skyggja í lífi aðalpersón- unnar. Hér kann fólk einfaldlega til verka enda margra ára samstarf og reynsla að baki. Leikmynd Gretars samanstendur af hallandi sviðs- gólfi og tveimur háum sviðsflekum sem hægt er að hreyfa til á sviðinu og lýsa þannig að þeir mynda bæði umhverfi og húsakost Skálholts- staðar án nokkurs íburðar eða skrauts. Páll sker út rými og vistarverur með ljósum og eins er notast við myndbönd og skuggamyndir til að auka á dramatíska hápunkta óper- unnar eins og í eiðinum og aflausn- inni. Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir á svo heiðurinn af viðeigandi og vel hugsuðum búningum sem féllu vel að persónum óperunn- ar og tærum einfaldleika uppsetn- ingarinnar. Stefán Baldursson getur ver- ið stoltur af öllu sínu fólki í þessari uppfærslu og ekki síst eigin þætti. Samstarf hans við höfunda og hljómsveitarstjórann Petri Sak- ari hefur tekist með eindæmum vel. Sakari stýrir hljómsveit, kór og söngvurum af næmi, röggsemi og einbeitingu, hvergi hik né veik- an blett að finna í flutningnum og hrein unun að hlusta á alla sam- hæfinguna. Það er alltaf ánægjulegt þegar vel tekst til með frumflutning á íslensku efni á óperusviði. Ragn- heiður þeirra Gunnars og Friðriks er alvöruópera, þar sem alvörutil- finningar skipa stærsta sessinn. n Á valdi tilfinninganna Dramatísk Saga Ragnheiðar er líka saga af ást í meinum. „Það leikur enginn vafi á því að óper- an Ragnheiður sver sig í ætt við frægar óperur frá liðnum tíma. Vegabréf Sigmundar Frakkland er mesta land- búnaðarþjóðin í gömlu góðu Evrópu – og þar þrútna sveitir á sumardögum heitum, ekki síst í Búrgúndarhéraði, sem á stundum er sagt vera magi Frakklands. Óvíða er fegurra í Frans en einmitt í þessari miklu matar- kistu þar sem saman fara aldagamlar hefðir í mat og drykk, menningu og hand- verki. Það er sem aðkomu- maður hafi verið kallaður aft- ur í óræðar aldir þegar hann stígur inn í ljóma þessa lands sem getur af sér þekktustu þrúgur heims. Og hann kem- ur aldrei samur aftur. Þarna hjólaði ég á milli vínekra um árið – í góðra vina hópi. Ljúfur keimur af nægju og fyllingu kitlaði vitin milli litríkra hæðardraga. Og tím- inn fyrir höndum virtist á að giska óþrjótandi. Einhver andi alúðar og rækslu sveif yfir ávölum ekrum þar sem sólbakaðir bóndabæir skutu upp rauðleitum leirsteinsþök- um innum glaðlegan vínvið. Og hvítkalkaðir sveitavegir, sem teiknuðu sig haganlega í gegnum lítil eirin þorp, lágu í þannig hlykkjum að engin leið var að flýta sér. Við stoppuðum öðru hverju og kíktum ofan í vínkjallarana. Þar tók á móti okkur tíðarandi og tungumál vínsins – og þessi undursamlega virðing fyrir bragði og angan sem er sam- gróin stundu og stað. Á svona svölum og sóldaufum stöðum er ekkert göfugra en að leyfa gullnu víni úr Cardonnay- þrúgum sveitarinnar að leika blítt um munnholið – og finna þennan líka ilmblæ af skrjáf- þurru kattahlandi með ein- hverjum virðulegum votti af flauelsáferð umvefja skynfær- in og kúra þar í hverjum kima. Það er innan um svona tungu- tak sem menn verða mjúkir í fegurstu merkingu orðsins. Og reyndar er það svo, að sögn Búrgúndarbænda, að með Chablis í æðunum eru menn eins nálægt guðunum og hinir síðarnefndu leyfa. Við gistum á gömlu póst- húsi í virkisborginni Beaune eftir þýðustu hjólaferð lífs míns. Þar hefur tíminn ekki liðið frá því menn klæddust spangabrynjum og herfórum. Og kvöldmaturinn niðri í listi- lega skreyttum salnum var einhvern veginn í anda dags- ins; þjónninn vel hreyfur af Macon-vínunum góðu og sveif á milli okkar gestanna eins og hamingja hans væri smíðuð úr gulli. Við vorum fimm klukku- stundir að snæða margrétta kvöldverðinn á gamla póst- húsinu í Beaune. Og þjónninn varð partur af borðinu. Hann skenkti sjálfum sér jafn oft og okkur. Eins og hann væri einn úr hópnum. Og alltaf stækkaði sæla og blessun þessa þekki- lega þjóns sem taldi sér skylt og einboðið að vera enginn eftirbátur okkar í værðarlegu vínsötrinu. Í Búrgúndí er það bara við- eigandi. Góðu berin í Búrgúndí Ragnheiður Eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Aðstoðar hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson Lýsing: Páll Ragnarsson Búningar: Þórunn S. Þorgrímsdóttir Leikmynd: Gretar Reynisson Leikstjóri: Stefán Baldursson Helstu söngvarar Þóra Einarsdóttir (Ragnheiður) Viðar Gunnarsson (Brynjólf- ur biskup) Elmar Gilbertsson (Daði) Hlín Agnarsdóttir ritstjorn@dv.is Dómur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.