Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Blaðsíða 14
Vikublað 11.–13. mars 201414 Fréttir
n Fangi sem dvalið hefur á Sogni réðst á annan fanga í Hegningarhúsinu
H
ann var tifandi tíma-
sprengja innan um aðra
fanga,“ segir fangi um
árásarmann sinn, en annar
fangi réðst á hann á sérlega
fólskulegan hátt í Hegningarhús-
inu við Skólavörðustíg um þar síð-
ustu helgi með þeim afleiðingum að
hann er nefbrotinn og sér ekki með
öðru auga. Hann segir að árásin hafi
komið eins og þruma úr heiðskíru
lofti. Hann hefur kært árásina en
óskar eftir því að koma ekki fram
undir nafni af tillitsemi við ættingja
sína. Eigin kona mannsins gagnrýn-
ir verklag fangelsisyfirvalda, bæði
hvað varðar umönnun eftir árásina
sem og að svo hættulegur maður sé
vistaður meðal almennra fanga.
„Í andlegri steik“
Fanginn segir að árásarmaðurinn
hafi veitt sér þrjú þung högg með
þeim afleiðingum að hann nefbrotn-
aði og skaðaðist á auga, tönnum og
hálsi. „Ég er illa farinn í andliti og í
andlegri steik. Allar afleiðingar eru
ekki komnar fram,“ segir fanginn í
bréfi þar sem hann lýsir málsatvik-
um. Fanginn segir að árásarmað-
urinn hafi verið með ógnandi til-
burði í sinn garð áður en hann lét
til skarar skríða. „Rétt er að segja
að ég var búinn viku áður að láta
verði vita að hann væri með ógn-
andi tilburði og væri sannarlega tif-
andi tímasprengja,“ skrifar fanginn.
Árásarmaðurinn hefur meira og
minna setið inni frá árinu 1998, þar
á meðal fjölda ára inni á réttargeð-
deildinni að Sogni. Sá maður var
dæmdur á ný á síðasta ári fyrir lík-
amsárás með hníf.
Fékk ekki verkjalyf
„Ég fór á spítala þar sem ég var skoð-
aður og myndaður. Ég var stuttu síð-
ar vistaður aftur í tveggja manna
fangaklefa verkjalyfjalaus. Almenn
skynsemi segir að þegar maður lend-
ir í höfuðmeiðslum þá ætti maður að
vera lagður inn í minnsta lagi sólar-
hring á sjúkrahúsi. Sólarhring eftir
árásina var mér enn ekki veitt við-
eigandi verkjameðferð eða lyf,“ segir
fanginn. Hann vill þó árétta að hann
kenni ekki starfsmönnum fangelsis-
ins um hvernig staðið var að. „Ég vil
árétta að allir starfsmenn eru að gera
sitt besta miðað við aðstæður. Það
má segja að fyrir þeirra snöggu við-
brögð fór ekki verr í þessari hrotta-
legu líkamsárás,“ segir hann.
Segir fangaverði hafa komið í
veg fyrir morð
„Þetta er ekkert auðvelt að takast
á við þetta allt saman og svo kem-
ur svona upp á. Sá sem er úti kvelst
oft meira en sá sem er inni,“ segir
eiginkona fangans sem segir mál-
ið allt hafa reynt mikið á andlega
heilsu sína. „Þeir voru út í útivist
og maðurinn minn var að bíða eft-
ir körfunni. Hinn var að labba þarna
í kring. Verðirnir voru ekki langt
frá. Andrúmsloftið var mjög rólegt
en svo skyndilega, búmm. Þú veist
aldrei hvar þú hefur geðsjúkling.
Þetta voru þrjú rosa högg og verðirn-
ir komu hlaupandi en annars hefði
hann drepið hann. Hann steinrot-
aðist. Hann er hálfeineygður, get-
ur opnað aðeins augað en hann sér
ekki neitt,“ segir eiginkona fangans í
samtali við DV.
Fór beint aftur í fangelsið
Þrátt fyrir að eiginkonan segi fanga-
verði vera yndislega menn gagnrýn-
ir hún harðlega hvernig hafi verið
staðið að málum í kjölfar árásarinn-
ar. „Hann fór aldrei inn á spítala.
Hann fór upp á slysavarðstofu og var
þar í þrjá tíma, það var tékkað á hon-
um en svo fór hann beint inn aftur.
Þannig hafa nú sumir dáið í fangels-
um,“ segir hún. Eiginkonan segir að
fyrst um sinn hafi maður hennar ein-
göngu fengið Paratabs-verkjalyf eftir
rothöggið og það hafi liðið þrír dagar
þar til hann fékk verkjalyf við hæfi.
„Þú þarft að vera undir umsjá spítala
í allavega tuttugu og fjóra tíma. Það
er ekki hægt að stinga þér beint inn
aftur, svo sofnarðu og vaknar aldrei
aftur. Hann er slasaður á hálsi, nef-
brotinn og með dofa í allri hendinni.
Hann er rétt byrjaður að opna augað
en sér ekkert með því,“ segir hún.
Árásarmaðurinn fluttur
Eiginkona fangans gagnrýnir sér-
staklega að árásarmaðurinn hafi
verið meðal almennra fanga í Hegn-
ingarhúsinu. „Hann var rangur mað-
ur á röngum stað. Við viljum koma
því líka á framfæri. Fanginn sem
réðst á eiginmann minn átti alls ekki
heima þarna. Nú er hann kominn
inn á Litla-Hraun. Hann var fluttur
strax sem betur fer,“ segir hún. Eigin-
konan segir mann sinn þjást af kvíða
og þunglyndi eftir atvikið. „Ég þekki
þennan mann, hann er glaðasti
maður sem ég hef kynnst,“ segir hún.
Læknar ráða meðferð
Erlendur S. Baldursson, afbrota-
fræðingur hjá Fangelsismálastofn-
un, segir í samtali við DV það ekki
fangelsisyfirvalda að ákveða hve
lengi slasaður fangi dvelji á spítala.
„Ef fangi lemur annan fanga, sem
kemur nú fyrir, þá fer sá sem er lam-
inn upp á spítala og þá er það und-
ir læknunum komið hvenær hann
kemur aftur og hvaða lyf hann fær.
Læknarnir eru ekki starfsmenn okk-
ar. Það er ekki flóknara en það,“ segir
hann. Að hans sögn er reynt að að-
skilja fanga komi upp ósætti þeirra
á milli. Þá er yfirleitt annar fluttur
í annað fangelsi. Erlendur segir að
líkamsárásir innan veggja fangelsa
séu ávallt kærðar til lögreglu.
Fer eftir dómi hvert er farið
Spurður um hvort eðlilegt sé að
menn með sögu af geðsjúkdóm eigi
heima í almennum fangelsum seg-
ir Erlendur fangelsisyfirvöld geta
lítið gert. „Ef menn fá fangelsis dóm
þá verðum við að taka þá í fang-
elsi. Ef menn eru veikir reynum við
að senda þá á spítala. Það hefur
hins vegar margoft komið fram að
geðlæknaþjónusta í fangelsum er af
afskaplega skornum skammti. Það
tekst ekkert að ráða geðlækna þó að
til séu peningar. Ef að einhver hefur
verið á Sogni, er svo útskrifaður það-
an en fremur brot á ný og fær nýjan
dóm þá verðum við bara að taka við
honum,“ segir Erlendur. Ekki náðist
í forstöðumann Hegningarhússins
við vinnslu fréttar. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Það er ekki hægt
að stinga þér beint
inn aftur, svo sofnarðu og
vaknar aldrei aftur.
Hegningarhúsið Árásin átti sér stað í
bakgarði Hegningarhússins. Samkvæmt
fórnarlambi árásarinnar var hann að
bíða eftir að komast í körfubolta er hinn
fanginn réðst á hann. Mynd Sigtryggur Ari
„Hann var tifandi
tímasprengja“
„Ég var búinn viku áður að
láta verði vita að hann
væri með ógnandi tilburði
Ræðara rak
frá landi
Björgunarsveitin Ársæll var
kölluð út síðdegis á sunnudag
vegna kajakræðara sem var í
vanda staddur, um 600 metra
suður af smábátahöfninni við
Suðurströnd á Seltjarnarnesi.
Í tilkynningu frá Landsbjörg
kemur fram að hann hafi
misst árina og rekið hratt frá
landi. Nærstaddur fiskibátur
var í grenndinni og kom hann
fyrstur að manninum. „Í sömu
andrá kom björgunarbátur-
inn Gróa P á svæðið og flutti
manninn í land. Hann sakaði
ekki,“ segir í tilkynningunni.
Varðhaldið
framlengt
um mánuð
Hjördís Svan Aðalheiðardóttir mun
sitja næstu fjórar vikur í gæsluvarð-
haldi að minnsta kosti. Gæsluvarð-
hald yfir henni hefur verið fram-
lengt um fjórar vikur en Hjördís
hefur setið í fangelsi í Horsens síð-
an 10. febrúar síðastliðinn.
Sem kunnugt er flutti Hjördís
dætur sínar þrjár frá Danmörku
til Íslands í fyrrasumar án leyfis
föður þeirra sem fer með forræði.
Í Fréttablaðinu er haft eftir
Thomas Berg, lögmanni Hjördísar
í Danmörku, að saksóknaraemb-
ættið sé að undirbúa ákæru á
hendur henni og vonast hann til
að hún verði gefin út innan sex
vikna. Þá taka við réttarhöld.
Berg kveðst vongóður um að
refsing Hjördísar verði mildari en
ella þar sem saksóknarinn hafi nú
fengið skýrslu frá íslenskum sál-
fræðingi sem byggð er á viðtali við
stúlkurnar. Berg segir að Hjördís
hafi vissulega brotið lög með því
að fara með stúlkurnar úr landi en
sálfræðiskýrslan skýri hins vegar
forsendur hennar og mun verða
til þess að milda dóminn að því er
fram kemur í Fréttablaðinu.
Fleiri Bretar en
Íslendingar
Á vef Túrista kemur fram að Ís-
lendingar hafi ekki í síðasta
mánuði verið stærsti hópur
ferðamanna sem fór um
Keflavíkurflugvöll. Nærri 23 þús-
und Bretar fóru um völlinn í febr-
úar, um fimmtán hundruð fleiri
en Íslendingarnir. Fram kemur
að Íslendingar hafi til þessa verið
langstærsti farþegahópurinn sem
fer um völlinn. Bretunum hefur
fjölgað um tæp 43 prósent frá því
í fyrra. Farþegar sem millilenda á
Keflavíkurflugvelli eru ekki tald-
ir með.