Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 11.–13. mars 2014
Ég er
þakklátur
Þetta var
rosaleg barátta
Ég er sterkVið fórum
bara að gráta
Peningar skipta Ásgeir ekki of miklu máli. – DV Skilnaðurinn tók á Einar Jóhannesson. – DV Diljá Ámundadóttir varð fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað. – DVGunnar Hrafn Jónsson og kona hans börðust við ófrjósemi. – DV
F
rá áramótum hafa ýmsar
gjaldskrár hins opinbera
verið að hækka. Rétt fyrir
áramótin undirritaði heil-
brigðisráðherra, Kristján Þór
Júlíusson, reglugerðir um hækkun
á ýmsum gjaldskrám í heilbrigð-
iskerfinu og um minni niðurgreiðsl-
ur en áður á ýmsum hjálpartækj-
um og stoðtækjum, sem öryrkjar
og aldraðir þurfa að nota til þess
að geta dvalist í heimahúsum
þrátt fyrir heilsubrest. Komugjöld
á heilsugæslu í Reykjavík, á slysa-
deild og á bráðavakt Landspítalans
voru hækkuð, svo og gjöld fyrir við-
töl við sérfræðilækna.
Komugjöld hækkuð um 20%
Komugjöld til heilsugæslu voru
hækkuð um 20% hjá eldri borgur-
um og öryrkjum. Komugjöld slysa-
deildar, bráðavaktar og göngudeild-
ar LSH voru hækkuð um 6,6% hjá
lífeyrisþegum. Viðtöl eldri borgara
og öryrkja við sérfræðilækna hækka
um 12,5% auk viðbótarhækkun-
ar fyrir umframkostnaði. Þessar
hækkanir eru allar mjög bagalegar
fyrir eldri borgara og öryrkja. Hækk-
anir á hjálpartækjum, sem Sjúkra-
tryggingar hafa greitt að fullu, koma
sér mjög illa fyrir eldri borgara og
öryrkja. T.d. hafa sjúkratryggingar
greitt bleyjur niður að fullu en nú
þurfa eldri borgarar og öryrkj-
ar að greiða 1/10 hluta verðsins.
Það þýðir að lífeyrisþegar þurfa að
greiða 4.00–5.000 krónur fyrir þær
á mánuði. Fyrir ýmis hjálpartæki,
sem Sjúkratryggingar hafa leigt út
frítt til sjúklinga, þarf nú að greiða.
Þá hafa fargjöld strætisvagna hækk-
að. Gjald fyrir sjúkraþjálfun hef-
ur hækkað um 25% hjá öldruðum.
Og þannig mætti áfram telja. Þegar
allar þær hækkanir, sem lenda á
öldruðum og öryrkjum, eru tald-
ar saman er ljóst, að þær þurrka
út allar þær kjarabætur sem eldri
borgarar og öryrkjar hafa fengið
frá því að nýja ríkisstjórnin tók við
völdum. Formaður Þroskahjálpar
og formaður Öryrkjabandalags Ís-
lands segja að kjarabæturnar hafi
allar verið teknar til baka og rúm-
lega það. Ég er sammála því.
Lífeyrir aldraðra og öryrkja
hækkaði aðeins um 3,6% um sl. ára-
mót. Sú hækkun nær ekki verðlags-
hækkunum en verðbólgan var 4,2%
á sl. ári.
Kjarabætur rýrar í roðinu
Svokallaðar kjarabætur, sem ríkis-
stjórnin hefur veitt lífeyrisþegum
frá því hún kom til valda, eru mjög
rýrar í roðinu. Ríkisstjórnin ákvað
að gera breytingu á útreikningi
grunnlífeyris og færa útreikninginn
til fyrra horfs eins og hann var fyrir
1. júlí 2009. Samkvæmt því var hætt
að reikna greiðslur úr lífeyrissjóði
með tekjum við útreikning á grunn-
lífeyri. Við þessa breytingu fengu
þeir, sem höfðu góðan lífeyrissjóð,
kjarabætur. Þeir fengu grunnlífeyri
á ný en þeir misstu hann 2009. LEB
og FEB börðust fyrir því, að þessi
breyting yrði gerð. Ríkisstjórnin
breytti einnig frítekjumarki vegna
atvinnutekna til fyrra horfs, þ.e.
hækkaði það í 110 þús. kr. á mánuði
úr 40 þús. á mánuði. Það er tiltölu-
lega lítill hópur, sem fær kjarabætur
vegna þessarar breytingar. Það er
mjög erfitt fyrir eldri borgara að fá
vinnu um þessar mundir, þar eð at-
vinnuástandið er erfitt. Auk þess
verður heilsa eldri borgara að leyfa,
að farið sé út á vinnumarkaðinn.
Framangreindar tvær breytingar
voru mjög ódýrar fyrir ríkissjóð.
Þriðja kjarabótin,sem verður nefnd
hér, er lækkun skerðingarhlutfalls
tekjutryggingar til fyrra horfs, þ.e.
úr 45% í 38,25%. Það gerðist sjálf-
virkt um áramótin, þar eð lögin um
hækkað skerðingarhlutfall tekju-
tryggingar féllu þá úr gildi (Þau áttu
ekki að gilda lengur).
Þessi breyting tók til margra
aldraðra og öryrkja; var almenn að-
gerð. Þessi aðgerð tók til lífeyris-
þega, sem höfðu slæm kjör gagn-
stætt því, sem gilti um leiðréttingu á
útreikningi grunnlífeyris, þar eð sú
aðgerð tók til þeirra sem betur voru
settir og höfðu góðan lífeyrissjóð. n
Taka kjarabætur aldraðra til baka
Björgvin Guðmundsson
form. kjaranefndar Félags eldri borgara
Aðsent
„Það er
mjög erfitt
fyrir eldri borgara
að fá vinnu um
þessar mundir
Myndin Mugga Menntaskólanemar við Tjörnina láta snjómugguna ekki trufla sig við íþróttaiðkun. MynD SiGtryGGur Ari
1 Kudrow tapaði Leikkonan Lisa Kudrow, fyrrverandi Friends-
stjarna, tapaði máli gegn fyrrverandi
umboðsmanni sínum í vikunni.
20.934 hafa lesið
2 Farinn úr Grafarvogi Sig-mundur Ernir Rúnarsson, fyrrver-
andi þingmaður, er fluttur á milli hverfa í
Reykjavík. Nú býr hann í miðbænum.
18.783 hafa lesið
3 Lögregluskólinn mælti ekki með frænku Hönnu
Birnu Birna Guðmundsdóttir, frænka
Hönnu Birnu, var ráðin yfir framhalds-
deild lögregluskólans.
17.563 hafa lesið
4 Sjáðu Justin Bieber yfirheyrðan Kanadíska
poppstjarnan sýndi af sér mikinn hroka
og yfirlæti við lögregluyfirheyrslu.
16.887 hafa lesið
5 Elmar ráðleggur ferða-mönnum hvernig skal ná
í íslenskan rekkjunaut Fram-
kvæmdastjóri Guide to Iceland segir að
SMS sé lykilatriði þegar kemur að því að
næla sér í rekkjunaut á Íslandi.
10.715 hafa lesið
Mest lesið
á DV.is
Könnun
Telur þú að Vigdís
sé gagnrýnd með
ómaklegum hætti í
fjölmiðlum?
n Já n Nei 513 AtKvæði
87,7%
12,3%