Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Blaðsíða 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 11.–13. mars 2014 Sandkorn Hatar geimmyndir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og for­ maður fjárlaganefndar, þolir ekki geimmyndir. Í viðtali í blaðinu Monitor var Vigdís spurð hvaða kvikmynd væri sú versta sem hún hefði séð. „Þær eru þó nokkrar, ég ætla að fá að taka fleirtöluna um þetta, ég ætla að segja allar geimmyndir!“ Svarið er sérstak­ lega athyglisvert þegar annað svar úr sama viðtali er skoðað samhliða. Þegar hún var spurð hvaða teiknimyndapersóna hún vildi vera nefndi hún nefnilega persónu úr geimmynd. „Konan í Avatar, man ekki hvað hún heit­ ir, Avatar var æðisleg, snerist um auðlindabaráttu.“ Bjartsýnn á tvo Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er bjartsýnn á að fylgi flokks síns aukist í borginni. „Ég held að við náum inn manni. Ég ætla jafnvel að leyfa mér að vera svo bjartsýnn að við getum náð inn tveimur mönnum,“ sagði hann í viðtali við Frjálsa verslun sem kom út fyrir helgi. Í dag á flokkurinn engan fulltrúa í borgarstjórninni en hann tapaði eina fulltrúa sínum í borginni í síðustu kosningum. Það er hins vegar enn lengra síð­ an að flokkurinn átti tvo menn í borgarstjórn. Fara þarf aftur til ársins 1982 til að finna dæmi um slíkt. Gullaldartími Framsóknar­ flokksins í borginni var hins vegar á árunum 1962 til 1974 þegar flokkurinn átti tvo og einu sinni þrjá borgarfulltrúa. Fleiri en kusu Framsókn Á föstudag náðist merkilegur áfangi í undirskriftasöfnun gegn áformum ríkisstjórnarinnar um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusam­ bandið. Þá fóru undirskriftir yfir 46.173 en það var fjöldi þeirra sem greiddu Fram­ sóknarflokknum atkvæði í síðustu þingkosningum, þegar flokkurinn vann einhvern mesta kosninga­ sigur síðari ára. Undirskriftasöfn­ unin hefur staðið í um tvær vikur og hafa fáar safnanir gengið jafn hratt. Enn eru þó talsvert færri sem hafa skrifað undir þessa áskorun en gegn Icesave II en kosningasigur Framsóknar má líklega að mestu rekja til þess sig­ urs Íslands í Icesave­málinu. Súkkulaðikaka á þingi Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var harðorður í garð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs- sonar forsætisráðherra á þingi á mánudag. Sagði hann forsætis­ ráðherra taka súkkulaðiköku með rjóma fram yfir þingfundinn sem þá var í gangi. „Mér finnst það grátlegt að hæstvirtur forsætisráð­ herra skuli forðast þingsalinn en sitja þess í stað úti í matsal og háma þar í sig kökur með rjóma,“ sagði Össur. Sigmundur var þó ekki lengi að bregðast við þessu því hann var mættur í þingsalinn augnablikum eftir að Össur hafði lokið máli sínu. Ekkert kom fram um ástæður þess að boðið var upp á súkkulaðiköku í mötuneyti þingsins á mánudag. Vill sænsku leiðina við gerð fjárlaga Guðlaugur Þór vill auka aðhald í ríkisfjármálum Í sland á að taka sér Svíþjóð til fyrir­ myndar þegar kemur að undirbún­ ing og vinnslu fjárlaga á hverju ári. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðar­ son, þingmaður Sjálfstæðisflokks­ ins og varaformaður fjárlaganefndar. Hann segir alla flokka þurfa að taka sig saman til að ná aga í ríkisfjármál­ um; bæði stjórn og stjórnarandstöðu. „Það er engin ástæða til þess að finna upp hjólið, gerum þetta bara eins og þeir eru að gera þetta,“ segir Guð­ laugur Þór um fjárlagaferlið. Strangari reglur Meðal leiða sem Guðlaugur bendir á að Svíar fari en ekki Íslendingar eru breytingartillögur á fjárlögum. Stjórnarandstaðan þar hefur tæki­ færi á að koma með breytingartillögu í formi nýs fjárlagafrumvarps en get­ ur ekki lagt fram breytingartillögu á einstaka liðum líkt og hér. „Það þýð­ ir ekki að koma fram með breytingu á síðustu stundu eins og gert er hér,“ segir hann og vísar meðal annars til fjárlagaafgreiðslunnar í vetur. „Við hefðum átt að vera með meiri afgang á fjárlögum og síðan var stjórnar­ andstaðan ekki að hjálpa til með sín­ um áherslum.“ Verkefnið er ekki síst að auka gegnsæi frumvarpsins en það felst meðal annars í því að allar laga­ og reglugerðarbreytingar sem nauðsyn­ legar eru til að forsendur frumvarps­ ins nái fram að ganga séu birtar sam­ hliða fjárlagafrumvarpinu. Þá telur Guðlaugur mikilvægt að stefnan sé sett af ríkisstjórn en ekki einstökum ráðuneytum eða stofnunum. „Við þurftum að hafa mikið fyrir því að breyta áherslum í fjármálavinnunni þar sem við færðum fjármuni í heil­ brigðismálin og lækkuðum utan­ ríkismálin. Það er sérstakt að vera í átökum við stofnanir og hagsmuna­ aðila út í bæ,“ segir hann. Eilífðarbarátta Mikið af hugmyndunum sem Guð­ laugur vill leggja áherslu á koma fram í minnisblaði sem unnið var í kjölfar heimsóknar fjárlaganefndar Alþingis til helstu stofnana sænska ríkisins sem koma að opinberum fjármálum og fjárlagagerð sérstak­ lega. „Þetta er eilífðarbarátta og við þurfum að leggja mikið á okkur til að komast á þann stað sem Svíarnir eru á,“ segir Guðlaugur sem segir þó alla sammála um markmiðið. „Allavega í orði er mikill skilningur á þessu en hins vegar vantar mikið að þetta komi fram.“ n Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is „Það er engin ástæða til þess að finna upp hjólið, gerum þetta bara eins og þeir eru að gera þetta. Vill breytingar Guðlaugur Þór berst fyrir breytingum við fjárlagagerð. mynD SiGtryGGur Ari Reyndu ekki að semja Enn stefnir í viðræðuslit við ESB E ngin tilraun var gerð til að ná sátt í Evrópusambands­ málum á Alþingi í síðustu viku eins og samkomulag sem stjórnarflokkarnir gerðu við stjórnarandstöðuna gerði ráð fyr­ ir. Allir stjórnarandstöðuleið­ togarnir hafa lýst því yfir opinber­ lega um og eftir helgi að þeir hafi ekki heyrt neitt í stjórnarforyst­ unni, þeim Sigmundi Davíð Gunn­ laugssyni og Bjarna Benedikts­ syni. Andrúmsloftið á þingi hefur verið spennuþrungið allt frá því að stjórnarflokkarnir tveir kynntu áform sín um að slíta aðildarvið­ ræðum við Evrópusambandið án þjóðar atkvæðagreiðslu þvert á lof­ orð fyrir kosningar. Samkomulagið sem gert var fyrir nefndarvikuna var hins vegar ansi skýrt, í það minnsta eins og forseti þingsins kynnti það þegar fundur hélt áfram eftir ítrekaðir seinkanir þann 27. febrúar síðastliðinn. „Þá er gert ráð fyrir að leitað verði hóf­ anna á næstu dögum í nefndaviku til að vita hvort hægt sé að reyna að greiða fyrir umræðu málsins eftir því sem kostur er í framhaldinu,“ sagði Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti þingsins, á síðasta þingfundi þegar hann kynnti samkomulagið sem varð þess valdandi að þings­ ályktunartillaga Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra um viðræðuslit var ekki tafin frekar með umræðum. Á mánudag lýsti Birgitta Jóns­ dóttir, hjá Pírötum, furðu sinni á vinnulagi stjórnarmeirihlutans. „Þeir vita ekki alveg hvernig þeir eiga að haga sér í því. Ég held að það sé rétt að þeir ætla að reyna að humma þetta fram af sér fram yfir sveitarstjórnarkosningar,“ sagði hún í viðtali í útvarpsþættinum Harmageddon. Óvíst er hvert framhaldið verð­ ur en átök voru á þingfundi á mánudag sem var fyrsti fundur­ inn síðan samkomulagið var gert. Fleiri liðsmenn stjórnarinnar hafa stigið fram og lýst því yfir að bregð­ ast verði við með einhverjum hætti þeirri hörðu andstöðu fólks við viðræðuslitunum, meðal annars Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. n adalsteinn@dv.is talsmaðurinn Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er talsmaður tillögunnar um viðræðuslit við Evrópusambandið. mynD SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.