Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2014, Side 15
Vikublað 11.–13. mars 2014 Fréttir Viðskipti 15 Áhættan hjá Bretum Ragnheiður Elín Árnadóttir fundar um lagningu sæstrengs með breska orkumálaráðherranum E ins og er þá er boltinn mest hjá stjórnvöldum en við erum að líka að vinna í þessu, fylgjast með fram- gangi mála erlendis og vinna greiningar á verkefninu,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, aðspurður um að- komu Landsvirkjunar að skoðun á lagningu sæstrengs frá Íslandi til Bretlands til að flytja rafmagn frá landinu sem framleitt er hér á landi. Slíkur sæstrengur yrði ein stærsta, ef ekki stærsta, fram- kvæmd Íslandssögunnar. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hélt til Bretlands á sunnudaginn til Bretlands að ræða við orku- málaráðherrann, Ed Davey, um hugsan legan sæstreng. Í ræðu á aðalfundi Samorku þann 21. febrúar síðastliðinn sagði Ragn- heiður Elín að mikilvægt væri að stjórnvöld á Íslandi tækju frum- kvæði í málinu. „Það má ef til vill segja að fram að þessu hafi nokkr- ir kokkar verið að hræra í þessari tilteknu súpu. Í nefndaráliti at- vinnuveganefndar kemur fram að mikilvægt sé; „að sú vinna sem þarf að fara fram verði ekki unnin eingöngu af þeim fyrirtækjum sem annast orkusölu og orkudreifingu heldur þurfi að tryggja að hún verði undir forræði stjórnvalda.“ Telur viðhorfið jákvætt Þegar Hörður er spurður að því hvort hann telji að viðhorf stjórn- valda á Íslandi í garð sæstrengs séu jákvæð segir hann. „Já, ég skynja það. Þetta er samt stórt verkefni sem flestir eru sammála um að vert sé að skoða. Hins vegar vakna fjölmargar spurningar hjá flest- um sem þarf að svara. Menn þurfa að velta því fyrir sér hver áhrifin verða á atvinnuuppbyggingu, hver eru áhrifin á raforkuverð til heim- ila og hver verða umhverfisáhrifin. Á móti koma jákvæðir þættir eins og möguleg arðsemi, möguleikar á að nýta orkuna betur, möguleik- ar á því að bæta orkudreifingu og áhættudreifingu. Þannig að þetta eru nokkrir hlutir sem þarf að vega og meta.“ Hörður segir mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að meta kosti og galla þess að byggja sæstrenginn og ekki hlaupa til og mynda sér skoðun. Áhættan á Bretlandi Ef sæstrengurinn verður lagður þá mun kostnaðurinn við lagn- ingu hans hlaupa á mörg hundruð milljörðum króna að sögn Harðar. Sá kostnaður myndi hins vegar ekki lenda á íslenska ríkinu held- ur má ætla að fjármögnunin á strengnum verði að mestu í hönd- um breskra yfirvalda. Hörður seg- ir að áhættan af lagningunni muni hvíla á Bretum. „Áhætta í verkefn- inu yrði að langmestu leyti tekin af breskum stjórnvöldum.“ Í ræðu sinni hjá Samorku ítrek- aði Ragnheiður Elín að umræð- an um sæstrenginn væri á frum- stigi. „Eins og kunnugt er lagði ég í byrjun vetrar fram á Alþingi skýr- slu ráðgjafahóps um raforkustreng til Evrópu. Umræðan um sæstreng er að mörgu leyti enn á frumstigi og var það mitt mat að afar mikil- vægt væri að Alþingi kæmi að um- ræðunni á þessum tímapunkti, og að beðið yrði með frekari skref í málinu þar til henni væri lokið.“ Hluti af þessari vinnu Ragn- heiðar Elínar og Alþingis eru við- ræðurnar við Breta. Allt til foráttu Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, skrifaði grein í Fréttablaðið á föstudaginn þar sem hann gagnrýndi sæ- strengslausnina. Eitt af því sem hann benti á að var að öll virkj- anleg umframorka á Íslandi yrði á endanum seld úr landinu í gegn- um sæstrenginn. Sighvatur sagði að bygging strengsins myndi væntanlega þýða byggingu fleiri virkjana hér á landi þar sem Ís- lendingar væru ekki lengur háðir því að erlend stóriðja yrði flutt til landsins til að nýta rafmagnið sem framleitt er á Íslandi. Orðrétt sagði Sighvatur meðal annars: „Verði sæstrengslausnin valin yrðu innan fárra ára engar virkjanlegar en óvirkjaðar orku- lindir eftir á Íslandi. Búið verð- ur þá að ráðstafa því öllu til sölu á erlendum markaði um sæstreng og enginn varaforði eftir til fram- tíðar. Útlendingar myndu líklega segja að slíkt væri í fullu samræmi við þá áráttu Íslendinga að geta aldrei hugsað í öðru en skamm- tímalausnum. Aldrei séð neina framtíð fyrir sér. En auðvitað hafa útlendingar alltaf rangt fyrir sér.“ Skoðanirnar um sæstrenginn eru því skiptar nú sem áður. Lík- legt er að á næstu árum verði hug- myndin ein sú umræddasta hér á landi. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Jákvætt viðhorf Hörður Arnason, forstjóri Landsvirkjunar, segist telja viðhorf stjórnvalda til sæstrengs vera jákvæðar. „Umræðan um sæstreng er að mörgu leyti enn á frum- stigi og var það mitt mat að afar mikilvægt væri að Alþingi kæmi að um- ræðunni á þessum tíma- punkti. Fundar með breska ráðherranum Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra fór til Bretlands í gær til að funda með breska orkumálaráðherranum um lagningu sæstrengs frá Íslandi. Mynd SIgTRyggAuR ARI Hagvöxtur ekki meiri frá 2007 Einkaneysla jókst um 1,2% á síð- asta ári frá fyrra ári en fjárfesting dróst saman um 3,4%. Þetta kem- ur fram í nýjum tölum frá Hag- stofunni. Verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustuviðskiptum eða um 132 milljarðar króna, en innflutningur dróst saman um 0,1% á meðan útflutningur jókst um 5,3%. Ekki hefur verið meiri hagvöxtur á Íslandi frá árinu 2007 og raungildi landsframleiðslu hefur ekki verið hærra frá árinu 2008. Samdrátt í fjárfestingu má rekja til minni innflutnings skipa og flugvéla, en að frádreginni fjárfestingu í þeim flokki jókst at- vinnuvegafjárfesting um 2,8% og fjárfesting alls um 5,8%. Keahótel kaupir Skútustaðaskóla Í febrúar síðastliðnum átti er- lendi fjárfestingarsjóðurinn KHG European Hospitality Partners hæsta boð í Skútustaðaskóla í Skútustaðahreppi, en þar hefur Kea- hótel ehf. rekið Hótel Gíg frá árinu 2002 og búið var að taka við bókun- um fyrir sumarið. Akureyri Vikublað greindi frá málinu og í fréttum þeirra kom fram að eignin hefði verið slegin á mun hærra verði en við var búist. Síðar greindi blaðið frá því að eig- andi sjóðsins væri Valdimar Jónsson, sonur Jóns Ragnarssonar sem hafði átt húsnæðið áður og að líklegt væri að félagið fengi ríflegan afslátt af kaupverðinu í gegnum fjárfestingar- leið Seðlabankans. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af því, en Keahótel ehf. sendi frá sér fréttatilkynningu í síð- ustu viku þess efnis að fyrirtækið hefði gengið inn í uppboðstilboð KHG og tekið það yfir. Ef samningar um slíkt hefðu ekki náðst hefði það haft mjög slæm áhrif á rekstur fyrir- tækisins. „Við héldum að okkar leigu- sali myndi sjálfur ná að kaupa eignina á uppboðinu og tókum þess vegna ekki þátt í því. Þegar það varð ljóst að erlendur aðili hafði keypt eignina var okkar staða í uppnámi, enda var búið að bóka hótelið í sumar og við vild- um standa við okkar skuldbindingar. Í kjölfarið settum við okkur í sam- band við KHG og gerðum þeim til- boð,“ segir Páll L. Sigurjónsson, fram- kvæmdastjóri Keahótel ehf. Eignin var slegin KHG fyrir 382 milljónir króna, en Páll vildi ekki gefa upp hversu mikið Keahótel greiðir fyrir eignina. „Við gerum upp skuld- ir við kröfuhafa í íslenskum krónum, þannig að það kemur aldrei til þess að KHG fari fjárfestingarleiðina. Til- boðið er hærra en þær kröfur sem eru til staðar og ég get tekið undir að það tilboð KHG var nokkuð hátt,“ segir Páll. Nú er reksturinn áfram tryggður í Skútustaðaskóla, en ekki stendur til að stækka hótelið á næst- unni þrátt fyrir að Keahótel sé nú orðið eigandi fasteignarinnar. n rognvaldur@dv.is n Erlendur sjóður bauð hæst á uppboði n Rekstur hótelsins tryggður Hótel gígur Keahótel hefur rekið Hótel Gíg frá árinu 2002 og leigt húsnæðið. Nú er það í þess eigu. Undirbúa olíuleit Kínverska fyrirtækið CNOOC hefur hafið undirbúningsvinnu vegna olíuleitar á Drekasvæðinu. Fyrirtækið fékk leyfi til leitar á Drekasvæðinu í janúar í sam- starfi við Eykon Energy og norska fyrirtækið Petoro, og er fyrsta kínverska fyrirtækið sem leitar að olíu og gasi á norðurslóðum. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa ekki viljað segja hvort þeir hafi áhuga á frekari leit í lögsögu Ís- lands, en Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Eykon, hef- ur sagt að áhugi sé fyrir meira samstarfi við CNOOC. Fyrirtæk- ið er í hópi stærstu olíufyrirtækja heims, en á þessu ári bora starfs- menn fyrirtækisins um 155 til- raunaholur. 800 milljónir í Meniga Hollenski áhættufjárfestingar- sjóðurinn Velocity Capital bætt- ist formlega í hluthafahóp Men- iga í síðustu viku, en um er að ræða umstalsverða fjárfestingu í tæknifyrirtækinu. Fjárfestingin er hugsuð til þess að styðja við áframhaldandi vöxt og sem aukin fjárfesting í vöru- og viðskiptaþró- un. Sjóðurinn sérhæfir sig meðal annars í fyrirtækjum sem fram- leiða fjármálahugbúnað. Í tilkynn- ingu frá Meniga segir að fyrirtækið fái aðgang að sérhæfðri þekkingu og tengslaneti á sínu sviði og að með þessu sé verðmæti Meniga og möguleikar þess staðfestir í augum erlendra aðila. Fyrirtækið er þó enn að mestu leyti í eigu Ís- lendinga, en stærstu hluthafar eru sjóðirnir Frumtak og Kjölfesta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.